Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.06.1949, Side 8
34
TÍMARIT V.F.I. 1949
2. mynd. Skútueyri.
við Skútueyri (sjá 3. mynd). Skriðan hefur svo
þrengt ánni upp að holtinu og myndað þar með nú-
verandi farveg. I Jarðabók Árna Magnússonar og
Páls Vídalíns (skrásett 1712) segir meðal annars
um jörðina Ráeyri: „Túninu spillir á einum stað
Ráeyrará með grjóts og sands áburði. Enginu spillir
vatn, sem etur úr rótina, og sjáargangur sem ber sand
og hroða á hólmana.“ Hér virðist talið, að undir-
lendið við árósana sé líkara hólmum en eyri, og að
þeir liggi opnir fyrir haföldu. Þetta undirlendi hef-
ur verið mjög lítið, þar eð það hefur grafizt með
öllu af skriðunni, en ljóst er af landslagi, að þarna
hlýtur að hafa verið lítið eitt vik í ströndina, hvar
hefði getað myndazt eyri eða óshólmar.
Að nokkru leyti í vari og í áframhaldi af skrið-
unni myndaðist Skútueyrin, lágur malaroddi, mjög
innað beygður, undan öldu og straumi. 1 kverkina
innan við Skútueyri fellur Skútuá. Hún er að kalla
laus við allan framburð og hefur því lítið borið í vik-
ið við eyrina, og öllu frekar hindrað sandinn í að
leggjast í var, og hjálpað hinum afsleppa eyrar-
odda við að dreifa sandburðinum yfir leiruna í fjarð-
arbotninum.
Skútueyri er merkilegust fyrir það, hvað hún er
ung, aðeins rösklega aldar gömul. Hún er enn í vexti,
þrátt fyrir sandtekju úr eyraroddanum, og heldur
sennilega áfram að vaxa, unz fjarðarbotninn innan
eyrarinnar hefur fyllt með öllu. Inn af Skútueyrar-
odda var áður lítill hólmi, kallaður Kríuhólmi. Hann
er nú að mestu horfinn sakir sandtekju til bygginga.
Langeyri.
Innst í fjarðarbotninum að vestan er langur og
mjór rnalaroddi, ívið beygður inn á við í endann.
Hann er kallaður Langeyri. Vöxtur hennar er nú
lítill eða alls enginn. Eyrarmyndunin er sennilega
mjög gömul, mynduð líkt og paralellrif við álands-
öldu sakir hæðadrags, e. t. v. gamals hlaups úr f jall-
inu, sem þrengt hefur að firðinum. Nokkurt lón
hefur myndazt í krikanum, og er það nú hálf gró-
ið og þurrt um fjöru. Lónið er opið út að ósum
Fjarðarár, og hefur framburður hennar síður en
svo megnað að loka því, og kem ég að því síðar.
Sigluíjaxðareyri.
Nálega hálfum öðrum kílómetra utar að vestan-
verðu er Siglufjarðareyri (áður sennil. Hvanneyri),
sjá 3. mynd. Að lögun er hún lík þeim eyrum, er úr
sjó eru komnar og um hana er vitað:
1. Að yfirborð eyrarinnar, að minnsta kosti við jaðr-
ana, er sænúin fjörumöl og sandur, þó nokkuð
í fínna lagi.
2. Að áður en byggingar hófust á eyrinni voru víðs-
vegar um eyrina fleiri grunnar tjarnir.
3. Að á allmiklum hluta eyrarinnar, undir f jörumal-
arlaginu, er mólag, sumstaðar nokkuð leir blandið,
sem er 1 til 2 metrar á þykkt, og nær niður á
móts við fjöruborð, eða þar um bil. Þetta svæði
er merkt punktalínu á þriðju mynd, eins og ég
hef áætlað það, en um glögg mörk þess eða útlínur
er ekki vitað, einkum að sunnan- og austanverðu,
og heldur ekki um mögulega sand- eða malarhólma
á þessu svæði, þar eð undirstöður fjölda húsa
hafa ekki verið grafnar svo langt niður, að mó-
lagsins yrði vart, eða illmögulegt er að fá heim-
ildir um hvað þar var undir.
4. Að undir þessu mólagi tekur við fínn ægisandur,
að því er virðist malarlaus, og dýpi á fast víða
allmikið, allt að 20 metra undir f jöruborð nyrst
í eyrinni.
5. Að í upphafi byggðar á eyrinni lá allnokkuð af
grjóti á fjöru eyrarinnar að norðanverðu. En er
það var tekið til bygginga, varð vart við allmikið
niðurbrot sakir sjávaröldu, og var það heft með
byggingu brimbrjóts meðfram norðurkanti eyr-
arinnar.
6. Að eftir að hafskipabryggja sú, er sýnd er á 3.
mynd, var byggð, og myndaðist við það boga-
dregin hvilft norðan í eyrina, berst þar nálega
engin möl á land, en dálítið af fínum sandi, sem
tekinn er jafnóðum til bygginga. En aftur á móti
berst lítið eitt af möl upp að suðurodda eyrar-
innar.
Að þessu athuguðu vaknar spurningin, hvernig
eyrin hafi orðið til. Á stað, sem malareyri fær ekki
staðist hjálparlaust, eru ekki miklar líkur til að eyr-
in fái myndazt án utanaðkomandi áhrifa, þar eð hún
annars yrði að verða til á ferðalagi. Skilyrði til, að
slíkt geti átt sér stað, eru meðal annars, að efnis-
burður sé mikill og dýpi lítið, en þær aðstæður eru
ekki hér til staðar. Slíkar eyrar eru ef til vill hvergi
til hér við land, að undanteknum smámyndunum í
fjarðarbotnum, nema ef vera kynni á leirum Borgar-
fjarðar. Þetta hefur þó mér vitanlega ekki verið-
rannsakað, enda tæki það langan tíma.