Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 22

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 22
2 TÍMARIT V.F.I. 1954 Loks má nefna önnur mikilvæg atriði, m. a. topphit- un við hámarksálag, ofnstærðir o. fl., og virðist einnig nauðsynlegt að drepa stuttlega á þau. Um hitun með laugarvatni og skyld mál hefur að sjálf- sögðu verið rætt allmikið meðal fagmanna og jafnvel í dagblöðunum. Skal hér bent á umræður um Hitaveitu Reykjavíkur, er fóru fram á fundi V.F.l. þann 22. og 29. des. 1937, og voru birtar í 6. hef'ti T.V.F.l. 1937. Er þar drepið stuttlega á sum atriði, sem rædd verða í þessari grein. Einnig skal getið greinar Steingríms Jóns- sonar í 5. og 6. hefti T.V.F.l. 1948, en hún fjallar aðal- lega um hitadælur og áhrif Hitaveitu Reykjavíkur á raforkunotkun Reykjavikur. Þá er lýsing á Hitaveitu Reykjavikur eftir Helga Sigurðsson í 2. hefti T.V.F.l. 1947f og loks er grein eftir Einar Árnason um nýtingu hveravatns til húshitunar í 6. hefti T.V.F.I. 1950, og er þar komið inn á lík atriði og rædd verða hér. 1 grein E. Á. koma fram ýmsar athyglisverðar athug- anir og tillögur á þessu sviði. Áhrif brcytinga útihita á innihita í húsum Það er augljóst mál, að hús með tiltölulega miklum massa, eins og venjuleg steinsteypuhús, geyma það mik- inn varma í veggjum, gólfplötum o. s. frv., að innihiti fylgir ekki breytingum útihita, nema að takmörkuðu leyti. Þetta skiptir að sjálfsögðu miklu máli á stöðum, þar sem veðrátta er mjög breytileg eins og hér á landi. Það má þannig fullyrða, að snörp kuldaköst, sem standa yfir aðeins skamman tíma hafi ekki veruleg áhrif á innihi'ta í þessum húsum, þótt afköst hitunartækja séu aðeins miðuð við útihita fyrir og eftir kuldakastið. Til þess að kanna þessi atriði nánar, skal hér gerð reikn- ingsleg athugun á sambandinu milli útihita og innihita í húsum af þeirri gerð, sem nú 'tíðkast hér á landi, þ. e. í steinsteyptu húsi. Við æstætt ástand má sem kunnugt rita heildarvarma- tap húsa á tímaeiningu Qh = Kj (T; — Tu), þar sem T; er innihiti, Tu útihiti og K; stuðull, sem gefur summu varma- taps út um glugga og útveggi og vegna loftskipta, fyrir hverja gráðu mismuns T; og T„. Við æstætt ástand er T; meðalhiti innanveggja, gólf- platna, húsgagna o. s. frv. Ef þyngd þessara hluta húss- ins er G, og eðlisvarmi þeirra c, má rita varmatregðu hússins M = Gc, þ. e. varmainnihald hússins er MT;. Þegar einangrun er á innri hlið útveggs, skal massi hans ekki reiknast 'til G, en sé einangrun á úthlið hans, skal reikna nær allan massann til G. Þá skal gert ráð fyrir því, að húsið sé hitað með laug- arvatni eða raforku, og meðalhiti vatnsins á ofnunum sé T0, en heildarvarmagjöf þeirra verður þá Qh = K0 (T0—T;), þar sem K0 er varmagjöf allra ofna fyrir hverja gráðu mismuns Tc og T;. Við rafhitun er Qh að sjálfsögðu óháð T;. Nú er massinn G gerður úr þunnum plötum, sem hitaðar eru á báðum hliðum, og það er auðvelt að sýna f ram á, að varmaskipti milli andrúmslofts og yfirborðs platnanna eru miklu tregari en varmastraumar um sjálfar plöturn- ar. Það má því reikna með því, að allur massinn G hafi hitann T;, enda þótt T; sé hægum breytingum undir- orpinn. Þessa fullyrðingu má að sjálfsögðu sanna með nánari útreikningum, en til þess að þreyta ekki lesondur um of skal á þetta drepið x viðbæti i enda greinarinnar. Við þessa útreikninga er hægast að reikna vai'matöp hússins á hverja flatareiningu hins steypta útveggs, þ. e. á flatareiningu heildarútveggsins án gluggaflatar, og skal það til samræmingar einnig gert hér, þ. e. við deilum stærðunum K0, K; og M með þessum fleti, sem nefndur er Fv, og táknurn hinar nýju stærðir með kD, k; og m. Enda þótt nokkur einangrun sé í útveggnum sjálfum skal heildareinangrun hússins reiknuð massalaus, og er þetta einnig leyfilegt samkvæmt þeim athugunum, sem gerðar eru í viðbætinum. Hin tiltölulega litla skekkja, sem kemur fram við þessa nálgun er i rétta átt, þ. e. hún ýkir áhrif breytinga útihita á innihita. Með þessum forsendum verður differentialjafna inni- hitans: mdTj/dt = kD (T0 — T;) 4- k; (Tu — T;) eða: mdT;/dt + (kQ + k;) T; = k0T0 + k;Tu . 1) Með föstu Tn og kQ fellur lausn þessarar einföldu jöfnu I tvo hluta, þ. e. annarsvegar hina æstæðu lausn: Tis = k0To/ (k() + k;), sem ekki skiptir neinu máli, og hina breytilegu lausn, sem háð er breytingum Tu. Það eru einkum þrennskonar breytingar Tu, sem máli skipta. 1 fyrsta lagi ferhyrnt kuldakast, sem hefur lengd- ina L og dýptina Td, eins og sýnt er á mynd la.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.