Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 23

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 23
TlMARIT V.F.l. 1954 3 Ef við til hægðarauka merkjum: (k0 + kx) /m = a , kj/ (kQ + kj) = b verður lausn jöfnu 1) á tímabilinu frá t = O til t = L íyrir ferhyrnt kuldakast: Tj = bTd (1 — e at ) , 2) en á timabilinu eftir t=L: Tj = bTde~at (eaL —1) 3) Innihitinn er að sjálfsögðu lægstur við t = L. 1 öðm lagi er þríhyrnt kuldakast, sem sýnt er á mynd lb, og hefur lengdina L og mestu dýpt Td. Á tímabilinu frá t=0 til t=L/2 er lausnin þá: T; = 2bTd(at + e—at — l)/aL , 4) en á tímabilinu frá t = L/2 'til t = L er: Tj = 2bTd(l + aL— at + e-at — 2e~a(t ~ L/2) )/aL , 5) Innihitinn er lægstur á tímanum: t= 1 ln(2eaL/2 —1) , a og lægsti innihiti er: TiláB = 2bTd(l— 1 ln(2eaL/2 —1)) , 6) aij Loks er regluleg sveifla með veifinu A og hornhrað- anum «, þ. e. Tu = Aeiu>t. Lausn jöfnu 1) er þá: bAei<‘0t-9> Tj= ------- ■ 7) ■\J 1 + (<»/a)> þar sem: tg v = “/a Með framangreindum jöfnum er kleift að kanna breyt- ingar innihita við þær aðstæður, sem venjulega koma fyrir hér á landi. Hámarksálagið í Reykjavík og á Akureyri Næsta skref er að ákvarða nauðsynlegt hámarksálag hitunar í Reykjavík og á Akureyri með hliðsjón af fram- angreindum útreikningum, og raunverulegu veðurfari á þessum stöðum. Skal hér gengið út frá því, að hitunar- tækin geti haldið hæfilegum innihita við ákveðinn grunn- útihita, og innihitinn megi lækka um ákveðinn gráðu- fjölda í verstu kuldaköstum. Verkefnið er því raunveru- lega að finna umræddan grunnútihita. Hér á landi mun talið hæfilegt, að innihiti sé frá 19 °C til 23°C, og fer það að sjálfsögðu nokkuð eftir raka- stigi og breytilegum kröfum einstaklinga. Til saman- burðar skal þess getið, að í Bandaríkjunum mun oftast gert ráð fyrir 21°C, en í þýzkum heimildum er víða talið hæfilegt að miða hámarksálagið við 19 °C innihita, og í nýjum sænskum heimildum er talið rétt að reikna hámarksálagið út frá 18 °C innihita. Þar sem Islending- ar ættu ekki að vera kulvísari en Svíar, vill höfundur Því ganga út frá því, að 18 °C sé lágmark innihitans, og að þessi innihiti sé þolanlegur þá örfáu daga ársins, sem útihiti nær lágmarki. Þá skal gert ráð fyrir, að innihiti sé 20 °C við grunnútihita í samræmi við venju hér á landi, en þar sem grunnhiti er talsvert lægri en meðalútihiti á vetrarmánuðunum geta menn þá haft 21°C til 23°C innihita langmestan hluta vetrarins. Nú er af jöfnu 7) augljóst, að allar útihitasveiflur með hárri tíðni hafa hverfandi áhrif á innihita, og er þvi nægilegt að byggja eftirfarandi útreikninga á meðal- útihita sólarhrings. Þá skal veðurfarið undanfarin 25 ár lagt til grundvallar. Það má að vísu segja, að þetta tímabil hafi verið óvenju hlýtt, en meðalhiti janúar- mánaðar var 0,2°C á tímabilinu 1921 til 1950, en hins- vegar ■—0,6°C á tímabilinu 1901 til 1930, og munar því 0,8°C. En það virðist ekki ástæða til að ætla, að veðurfarið 'taki snöggum breytingum og má því vænta, að næstu 25 ár verði ekki ólík undanförnum 25 árum. Auk þess ber að gæta þess, að á undanförnum 25 árum hafa komið tiltölulega kaldir vetur, einnig miðað við fyrri tíma, og verður höfð hliðsjón af þeim við eftir- farandi útreikninga. Til þess að fá glögga hugmynd um vetrarútihita á þessu tímabili, hefur höfundur athugað meðalútihita sólarhrings mánuðina nóvember til marz fimmta hvert ár á 'tímabilinu 1929 til 1950, og auk þess veturna 30—- 31 og 50—51, en þeir voru tiltölulega kaldir. Eftir nokkra athugun var ákveðið að nota grunnhit- ann —5°C I Reykjavík og —8°C á Akureyri. Kulda- köst miðuð við þennan grunnhita voru talin á umrædd- um 7 vetrum og mældir gráðudagar í hverju kasti, en meðaldýptin var síðan reiknuð með því að deila daga- fjölda kuldakastsins við grunnhitann inn í gráðudaga- fjöldann. Kuldaköstunum hefur þannig verið breytt í ferhyrnd kuldaköst með sama gráðadagafjölda. Sum af kuldaköstunum eru raunverulega mjög nálægt þvi að vera ferhyrnd, en önnur eru frekar þríhyrnd og er rétt að taka sérstaklega tillit til þess þegar áhrifin á inni- hita eru reiknuð. Niðurstaða þessarar athugunar fyrir Reykjavík er sýnd á mynd 2. Er þar greint milli þri- hyrndra og ferhyrndra kuldakasta og auk þess er lág- mark meðalhita sólarhrings í hverju kuldakasti ritað inn á myndina við hliðina á merki kuldakastsins. Höf- undur telur ekki ástæðu að sýna hliðstæða mynd fyrir Akureyri, þar sem hún er mjög lik mynd 2. Sveiflurn- ar þar eru ekki minni en í Reykjavík, og meðallengd þeirra hliðstæð, en meðalhiti sveiflanna er 2°C til 3°C lægri en í Reykjavík og var grunnhitinn því valinn 3°C lægri á Akureyri. Athyglisvert er, að veturinn 50—51 var jafnkaldastur þeirra 7 vetra, sem til athugunar komu, en hitasveiflur voru þó litlar þennan vetur, og lægsti meðalhiti sólarhrings í Reykjavík var — 8,5°C. Til grundvallar útreikningunum skal síðan lagt stein- steypt hús af þeirri stærð og gerð, sem nú tíðkast hér á landi, þ. e. tvílyft hús með einni íbúð á hvorri hæð, og e. t. v. íbúð í kjallara eða risi. tJtreikningarnir verða siðan gerðir fyrir aðalíbúðirnar, og gengið út frá þvi, að það gefi meðaltal fyrir húsið, þar sem hitasveiflna mun gæta minna í kjallara en meir í risi. Þetta fer þó að sjálfsögðu eftir aðstæðum, en hér er ástæðulaust að eyða rúmi í smáatriði, og getur hver sem vill auð- veldlega samræmt útreikningana einstökum tilfellum, sem víkja frá því, sem hér er lagt til grundvallar. Þá verður gengið út frá mismunandi aðstæðum og hitimaraðferðum, þ. e. einföldum og 'tvöföldum glugg- um, einangrun á innhlið eða úthlið útveggs, og laugar- hitun eða rafhitun.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.