Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 30

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 30
10 TlMARIT V.F.I. 1954 eins um 2°C til 3°C á þeim tíma, sem lokað er fyrir rennslið, en þetta má hæglega reikna með jöfnu 2) hér að framan. Er augljóst, að meðalinnihiti sólarhrings lækkar aðeins um tæplega 1°C við dægurmiðlun, og varmatap hússins minnkar því í mesta lagi um 4% vegna miðlunar, ef miðað er við álag við —5°C útihita. Segja má, að dægurmiðlun sé að ýmsu leyti óþægileg, þar sem híbýlahiti er þá of lágur fyrri hluta dags, en þetta væri að sjálfsögðu réttlætanlegt, ef miðlun hefði vatnsspamað í för með sér. En niðurstöður undangeng- ins kafla sýna, að dægurmiðlun stuðlar yfirleitt ekki að vatnssparnaði, heldur mun hún í flestum tilfellum auka vatnsnotkunina. Hér skal sýnt fram á þetta og ýmislegt annað varð- andi nýtingu vatnsins með útreikningi, sem byggður er á niðurstöðum undangengins kafla, og gerir saman- burð á vatnsnotkun sólarhrings við raunverulegt há- marksálag í Reykjavík og breytilegar aðstæður í nýju íbúðarhúsi af þeirri gerð, sem getið er um í þriðja kafla greinarinnar. Þessi samanburður er gerður fyrir dægur- miðlun og stöðuga hitun, hringstraums- og gegnstraums- kerfi, einfalda og tvöfalda glugga. Þar sem hér er verið að gera samanburð, skipta hlutfallstölur einar máli, og er vatnsnotkunin sett einn við dægurmiðlun, 70/50 hring- straumskerfi og með einföldum gluggum. Niðurstaðan er gefin í töflu II, og eru útreikningarnir byggðir á þvi, að vatnsno'tkunin er reiknuð út frá afrennslishitanum, sem gefinn er á mynd 6, og er að öðru leyti gengið út frá eftirfarandi aðstæðum: 1) Raunverulegt hámarksálag er eins og áður miðað við —5°C útihita, 20°C innihita og 12% álagsaukningu vegna lof'tskipta, en málraun hitunartækjanna er sam- kvæmt venju miðuð við —15 °C úthita, 20 °C innihita og 30% álagsaukningu vegna loftskipta og dægurmiðl- unar, og á merking kerfanna, þ. e. 80/60 o. s. frv., að sjálfsögðu við málraun þeirra. Álagsstuðull stöðugrar hitunar við raunverulegt hámarksálag og með einföld- um gluggum í húsinu er því x = l,12 . 25/1,3 • 35 = 0,62, en er hinsvegar x = 0,44, ef tvöfaldir gluggar eru sett- ir í húsið. 2) Varmasparnaður við dægurmiðlun með 9 stunda lokun og einföldum gluggum er áætlaður 4% hvem sól- arhring, en 3% með tvöföldum gluggum. Álagsstuðull raunverulegs hámarksálags við dægurmiðlun og með einföldum gluggum er því x = 0,96-0,62.24/15 = 0,95, en er hinsvegar x = 0,675 með tvöföldum gluggum. 3) Aðrennslishiti við húsvegg er reiknaður 75 °C við vatnsnotkunina einn. I dálkum a) í töflu II er reiknað með því, að þessi hiti sé óbreytilegur, en í dálkum b) er hann 75°C við notkunina einn, og minnkar um 1°C fyrir hverja 0,15, sem notkunin minnkar um, þ. e. hann sé t. d. 73°C við notkun 0,7. Hér með er tekið tillit til hitataps í utanhússveitukerfum. Við gegnstraumskerfi hefur þessi lækkun aðrennslis- hitans þau áhrif, að afrennslishitinn verður að hækka lítið eitt til þess að ná sama álagi, og hagnýtt hitafall minnkar þvi meira en lækkun aðrennslishitans. Þetta er þó breytilegt eftir aðstæðum, og við mjög lítið álag er minnkun hins hagnýtta hitafalls nokkum veginn jöfn lækkun aðrennslishitans, en við mikið álag er minnk- unin tvöföld lækkun aðrennslishitans. 1 útreikningun- um er tekið tillit til þessa. 4) Við samanburð á dægurmiðlun og stöðugri hitun er í dálki b) gert ráð fyrir þvi, að aðrennslishiti sé að jafnaði einni °C hærri við dægurmiðlun en við stöð- uga hitun, og er með þessu tekið 'tillit til þess, að meðal- rennsli er um V3 minna við stöðuga hitun en við dæg- urmiðlun að öðrum aðstæðum óbreyttum, en þetta gef- ur meira hitatap í götuæðum. Varmaleiðsla frá götu- æðunum hefur ein að vísu meiri áhrif, en varmatap í vatnsgeymum og varmatregða götukerfis draga einnig úr aðrennslishitanum við dægurmiðlun, og er munur- inn þvi ekki áætlaður meiri. 5) Kranavatnsnotkun er I dálki b) reiknuð 7% af vatnsnotkun til hitunar við raunverulegt hámarksálag með 70/50 hringstraumskerfi, dægurmiðlun og með ein- földmn gluggum, en það er talið jafngilda tæplega 70 litrum á íbúa og sólarhring. 6) Við dægurmiðlun er tekið tillit til þess, að inni- hiti er lí'tið eitt fyrir neðan meðalhita að morgni til, og eykur það nýtingu vatnsins lítillega. Þá er einnig hæft I huga að varmatregða hitunartækjanna veldur smávægilegri nýtingaraukningu við dægurmiðlun. Or- sök þessa er sú, að á þeim tíma, sem kerfið er að hitna að morgni til er afrennslið kaldara en þegar jafnvægi er náð, og sá varmi, sem fer til hitunar kerfisins nýtist til fulls, þar sem kerfið kólnar niður I innihita á nótt- unni. Hér skal ekki rætt frekar um þetta, en gert er ráð fyrir, að bæði atriði auki nýtingu vatnsins um 4% til 7%, ef miðað er við 15 stunda hitun, og að varma- tregða hitunarkerfisins samsvari einnar stundar varma- gjöf við full't álag, og er aukningin mest þegar hag- nýtt hitafall er minnst. Kerfið hitnar þó á skemmri tíma en einni stundu vegna þess, að afrennslið er kaldara á meðan á hitun kerfisins stendur. 7) Rét't dreifing vatnsins innanhúss og utan verður því örðugri, sem rennsli er minna, og er tekið tillit til þess I dálki b) með því að áætla, að nýting dreifingar versni um einn af hundraði fyrir hverja minnkun vatns- notkunar um 0,05, þ. e. nýting dreifingar er 90% við notkun 0,5 miðað við 100 við notkun 1,0. Að öðru leyti er gengið út frá því, að vatnsnotkun sé rétt stjórnað eftir því sem unnt er, þ. e. heita vatnið sé ekki not- að að óþörfu. Niðurstöður útreikninganna eru gefnar I eftirfarandi töflu, og er þar reiknað með ýmsum aðstæðum, og I hverju tilfelli eru gefnar tvær niðurstöður fyrir vatns- notkunina, þ. e. I fyrsta lagi er I dálki a) gefin notkunin þegar aðeins er reiknað með þeim aðstæðum, sem minnst er á I greinum 1) 2) og 6), og I öðru lagi er I dálki b) gefin notkunin þegar reiknað er með aðstæðum I grein- um 1) til 7), þ. e. tekið fullt tillit til allra hugsanlegra leiðréttinga. 1 dálki a) er því reiknað með varmasparnaði vegna miðlunar, óbreytilegum aðrennslishita 75°C og tekið til- lit til morgungilda innihita og varmatregðu hitunartækja við miðlun. Þessar tölur hafa þvi aðeins hagnýtt gildi, að aðrennslishiti sé óháður álagi og kranavatnsnotkun skipti ekki máli. 1 dálki b) er sömuleiðis reiknað með varmaspamaði vegna miðlunar, og tekið tillit til morgungilda innhita og varmatregðu hitunartækja, en auk þess er reiknað með breytilegum aðrennslishita. þ. e. hann sé 75°C við notkun 1,0, en minnki lítið eitt með minnkandi notkun vegna varmataps I utanhússveitukerfi, og þar að auki tekið tillit kranavatnsnotkunar og nýtni dreifingar innan- húss og utan. Tölurnar I þessum dálki eiga því við um hitaveitur af þeirri gerð, sem nú eru fyrir hendi hér á landi, og eru það því einkum þessar niðurstöður, sem hafa hagnýtt gildi. Rétt er að geta þess, að 80/60 hring-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.