Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 44

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1954, Síða 44
TlMARIT V.F.l. 1954 Til þess að gefa hugmynd um starfsemi Landssmiðjunnar, skal eftirfarandi tekið fram: Plötusmiðjan tekur að sér allskonar plötuvinnu, svo sem við- gerðir skipa, smíði tanka af ýmsum stærðum, stál- grindahúsa, bifreiðavoga, fiskimjölsverksmiðja, skjalaskápahurða, miðstöðvarkatla og ótal margt fleira. Á meðal síðustu verkefna er 400.000 ten- ingsfeta geymir fyrir Áburðarverksmiðjuna, ný stýrishús á varðskipin ,,Ægir“ og ,,Óðinn“, smíði sex fiskimjölsverksmiðja o. fl. — 1 plötusmiðj- unni vinna 70—80 menn, Vélvirkjadeild tekur að sér alls konar vélsmíði og vélaviðgerðir, niðursetningu á nýjum vélum og ýmislegt fleira. -— 1 þeirri deild vinna í kring um 60 menn. Renniverkstæðið tekur að sér alls konar rennivinnu, bæði í sam- bandi við verkefni annarra verkstæða smiðjunn- ar og fyrir aðra. Trésmiðjan tekur að sér alls konar viðgerðir í skipum og öðru tréverki. Tekur einnig að sér smíði glugga og útidyrahurða auk ýmis konar annarrar tré- smiðavinnu. Skipasmíðastöðin annast nýsmíði fiskibáta. Modelverkstæðið annast smíði „modela" af ýmsum gerðum, eink- um fyrir málmsteypu, en einnig annast þetta verkstæði smíði ýmissa „líkana". Sími 1680 (4 línur) Forstjóri: JÓHANNES ZOEGA, verkfræðingur. Málmsteypan tekur að sér að steypa ýmsa hluti úr járni, kop- ar eða aluminium, svo sem múffur, skipsskrúfur, fóðringar og fjölda margt fleira. Rafmagnsverkstæðið annas't alls konar viðgerðir og lagnir í skipum og verksmiðjum auk annarrar rafvirkjavinnu eftir ástæðum. Eldsmiðjan tekur að sér ýmsa járnsmíðavinnu, svo sem smíði frryggjuhringja o. fl. Nýsmíði af ýmsu tagi annast Landssmiðjan. Smíðar m. a. vatnstúrbínur, mykjudreifara, hitara, blásara, katla og margt fleira. Lager Landssmiðjan hefur venjulega fyrirlyggjandi flestar járnsmíðavörur. Umboð hefur Landssmiðjan fyrir nokkur heimsþekkt fyrirtæki, svo sem Armstrong Siddeley diesel- vélar, 3V2—22 hestöfl, Nohab dieselvélar fyrir stærri og minni skip og Sigma-Frigo Term frystivélar. Rafstöðvar fyrir sveitabæi útvegar Landssmiðjan með stutt- um fyrirvara.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.