Akranes - 01.11.1942, Side 6
6
AKRANES
Andakílsárvirkjon
ANNÁLL AKPANESS
M inningarsj óður.
Fyrir tveimur árum var stofnaður hér
minningarsjóður um frk. Soffíu Skúla-
dóttur matreiðslukennara. Stofnendur
sjóðsins voru þeir nemendur er nutu
kennslu frk. Soffíu sál. hér á Akranesi.
Hugmynd þeirra, er að sjóðstofnun-
inni stóðu var sú fyrst og fremst, að
halda uppi minningu hins ágæta kenn-
ara, og síðar, er Húsmæðraskóli Akra-
ness verður kominn upp og tekinn til
starfa, að þá verði skólanum afhentur
sjóðurinn og verði þá árlega veitt verð-
laun úr honum handa þeirri stúlku, er
skarar fram úr með kunnáttu sinni í
húslegum fræðum. Ætti það því að véra
metnaður okkar að gera sjóðinn sem
allra myndarlegastan úr garði.
10. Guðrún, ógift í Reykjavík.
Af öllum þessum hóp eru nú (1942)
aðeins lifandi:
Hallgrímur, Erlendur, Guðjón, Bene-
dikt, Kristín og Guðrún.
Ég hefi átt tal við Benedikt, Kristínu
og Guðjón um móður þeirra. Það má
fljótt heyra, hvert dálæti þau hafa haft
á henni og hve innilega þeim hefur þótt
vænt um hana og virt hana takmarka-
laust.
Ennfremur, hvað þeim hefur ofboðið
erfiðleikar hennar og þrek til að stand-
ast þá annarsvegar, og hinsvegar „harð-
yðgi aldarinnar“, eins og á stóð, og er
það sízt að undra.
Um þessa ágætu konu látna, kvað
Guðmundur Magnússon skáld eftirfar-
andi, og er þessu greinarkorni bezt lok-
ið með því, þau eru sannmæli:
„Vel var þú byggðir á Bjargi.
Bjargföst var trú þín.
Bjárgföst var blessun þar yfir,
búföngum smáum.
Bjargföst var ást þín og blíða,
börnunum þínum.
Borin af bjargföstu trausti,
byggðist þín vinsæld.
Byggður á kærleikans bjargi,
bærinn þinn jafnan
íslenzka gestrisni geymdi,
glaðværð og prýði.
Alúðar-viðmót við alla,
auðga og snauða
gerðu’ hann að heiðruðu, háu,
höfðingjasetri.
Hetja þú varst til hins hinnsta,
hugprúð og ráðsnjöll
hetja þótt harðlega dyndu,
hretviðri lífsins.
Þrásinnis þung voru kjörin,
þó gaf þér Drottinn
geðprýði, góðsemi, ástúð,
gleði og sigur.
Var mér því að detta í hug, hvort
ekki myndu vera einhverjar þær til, af
gömlu nemendunum, sem vildu minn-
ast fröken Soffíu sál. á fæðingardag
hennar, sem er 26. nóv., og senda sjóðn-
um smágjöf.
Sjóðurinn er geymdur í „Söfnunar-
sjóði íslands“, en umsjá hans hér hef-
ur stjórn Húsmæðraskóla Akraness, en
í henni eru þessar konur: frk. Svafa Þor-
leifsdóttir, frú Ingunn Sveinsdóttir og
frú Herdís Ólafsdóttir, er þá ekki ann-
að en að snúa sér til einhverra þessara
kvenna.
Tökum nú höndum saman og sýnum
hvað við getum áorkað.
S.
Skógrœktarfélag Akraness.
18. nóvember var stofnað skógrækt-
arfélag á Akranesi. Tilgangur félagsins
er sá, að efla skógrækt og trjárækt í
landi kaupstaðarins. Fyrsta verkefni fé-
lagsins verður að koma á fót trjárækt-
arstöð.Skógræktarstjóri hefir afhent fé-
laginu sáðblettinn innan við kaupstað-
inn og mun bráðlega hafist handa um
að koma honum í rækt. í stjórn félags-
ins voru kosin þau Arnljótur Guð-
mundsson, formaður, Hálfdán Sveins-
son, ritari og Svafa Þorleifsdóttir, gjald-
keri. Fyrir forgöngu félagsins sýndi
skógræktarstjóri börnum á skóla-
skyldualdri kvikmynd um skógrækt, en
kvikmynd þessa sýndi hann a stofn-
fundi félagsins. Blaðið mun síðar ræða
félagsstofnun þessa og nauðsyn hennar.
75 ára afmœli.
Hinn 9. þ. m. varð 75 ára góður og
gegn Akurnesingur, Guðmundur Narfa-
son á Völlum, sem um langt skeið hefur
verið starfsmaður hjá Haraldi Böðvars-
syni. Guðmundur er góður drengur,
hægur og stilltur, en þéttur fyrir. Hann
og kona hans, Júlíana Jónsdóttir, hafa
alið upp þrjú vandalaus börn, en aðeins
eitt þeirra er á lífi. Guðmundar mun
nánar verða getið í þættinum: „Þegar
mótorbátarnir koma til sögunnar".
Þakkarávarp.
Innilegt þakklæti tíl allra þeírra, sem
hafa sýnt okkur vinsemd, með heim-
sóknum og gjöfum, í veikindum mínum.
Sérstaklega viljum við þakka Hallgrími
Björnssyni lækni fyrir sína alúð og um-
önnun, og ennfremur Iðnaðarmannafé-
lagi Akraness fyrir stórmyndarlega
bókagjöf í sumar, og nú þann 15. þ. m.
fyrir stóra peningaupphæð.
Biðjum við algóðan Guð að launa
þeim og styrkja ófarna æfibraut.
Hjarðarbóli, 17. nóvember 1942.
Sigurður Gíslason.
Sunnudaginn 1. nóvember var stofn-
að hér á /iKranesi féiagið Andakílsár-
virkjun. Stoinendurnír eru Mýrasýsla,
Jdorgarí j arðarsvsla og Akraneskaup-
staður. Á stotnfundi áttu sæti sýslu-
nefndarmenn beggja sýslanna og bæj-
arstjórn Akraneskaupstaðar.
í samþykktum félagsins er svo á-
kveðið, að félagið byggi og reki orku-
ver við Andakílsá ásamt öllum há-
spennulínum og aðveitustöðvum. Fyrst
í stað verða einungis reistar háspennu-
línur til Akraness og Borgarness, en
síðar verður bætt við þessar háspennu-
línur eftir föngum. Skilyrði fyrir því,
að ný háspennulína verði byggð er það,
að nýbyggíngar beri sig fjárhagslega,
og er stjórninni óheimilt að ráðast í
þær, ef svo er ekki. Rísi deila um það
innan stjórnarinnar, hvort ný háspennu-
lína ber sig fjárhagslega eða ekki, sker
rafmagnseftirlit ríkisins úr þeim ágrein-
ingi.
Félagið er sameign hinna þriggja
sýslufélaga, og bera þau gagnvart þeim,
sem eiga kröfur á hendur félaginu sam-
eiginlega ábyrgð á þeim. Gagnvart
hvert öðru bera þau ábyrgð að einum
þriðja hvert.
Félagið selur raforkuna við stöðvar-
vegg aðveitustöðva (spennubreyti-
stöðva). Akranes og Borgarnes eiga eig-
in bæjarkerfi og reka þau. — Reksturs-
afgangur greiðist aldrei til eigenda
virkjunarinnar, heldur skal honum var-
ið til aukningar hennar, til afborgana
umfram samningsbundnar afborganir
til þess að lækka verð raforkunnar eða
hann lagður í varasjóð.
Stjórn félagsins skal skipuð sjö mönn-
um. Þrjá þeirra kýs bæjarstjórn Akra-
neskaupstaðar, tvo sýslunefnd Mýra-
sýslu, og skal annar þeirra búsettur í
Borgarnesi, en tvo kýs sýslunefnd Borg-
aríjarðarsýslu, og skal annar þeirra bú-
settur sunnan Skarðsheiðar.
Ef ágreiningur rís milli félagsaðil-
anna um stækkun virkjunarinnar, verð
á raforku, eða önnur atriði, sem þeir
telja sig miklu varða, og er þá hverjum
þeirra um sig heimilt að skjóta ágrein-
ingnum til gerðardóms, er skipaður sé
þrem mönnum, tilnefndum af Hæsta-
rétti.
í stjórn félagsins voru kosnir þessir
menn: Haraldur Böðvarsson, Svein-
björn Oddsson, Arnljótur Guðmundsson
(kosnir af bæjarstjórn Akraness), Jón
Steingrímsson og Sverrir Gíslason,
Hvammi, kosnir af sýslunefnd Mýra-
sýslu, Guðmundur Jónsson, Hvítár-
bakka og Sigurður Sigurðsson, Lamb-
haga, kosnir af sýslunefnd Borgarfjarð-
arsýslu. Á fundi stjórnarinnar 10. þ. m.
var Haraldur Böðvarsson kosinn for-
maður stjórnarinnar, Jón Steingríms-
son ritari og Guðmundur Jónsson vara-
formaður.