Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 33

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 33
TlMARIT VFl 1959 79 Reikningar V FI fyrir árið 1958 Rekstursreikningur Gjöld: Fundarkostn., sími, burðargj., augl. o. fl. kr. 28.576,34 Fjölritun, prentun .......................... — 9.109,70 Laun, lífeyrissjóðsgj., tryggingar .......... — 133.868,82 Húsaleiga, Ijós, hiti, ræsting .............. — 26.050,25 Lögfræðileg aostoð .......................... — 1.500,00 Árgjöld til félagasamtaka .................. —- 2.100,00 Til jafnaðar til næsta árs .................. — 24.519,02 Efnahagsreikningur 31./12. ’58 Eignir : Inneign í sparisjóði .................. kr. 24.519,02 Ógoldin félagsgjöld ................... — 14.270,00 Kr. 38.789,02 S k u 1 d i r : Hrein eign i árslok 1958 .................. kr. 38.789,02 Kr. 225.724,13 Kr. 38.789,02 Tekjur : Yfirfært frá fyrra ári Félagsgjöld VFl ..... Frá deildum o. fl.... Rekstursfé NIM-5 .... ----------- Endurskoðendur félagsins, þeir Árni Björnsson og Kr. 225.724,13 Egill Skúli Ingibergsson, hafa endurskoðað og undirritað ------------- reikningana án athugasemda. kr. 46.904,77 86.980,00 58.369,01 — 33.470,35 NÝR FÉLAGSMAÐUR Jens Christian Möller er fæddur 6. okt. 1888 í Jernesókn (þar sem nú er Esbjerg) á Jótlandi, sonur J. C. Möllers, múrarameistara, sem fæddur var í Lökken á Jótlandi, 6. okt. 1814, d. í Esbjerg 29. jan. 1891, og konu hans Laurettu Lausen f. í Skodsborg á Suðurjótlandi, 6. febr. 1833, d. í Esbjerg 2. marz 1915. Föðurættina er hægt að rekja til ársins 1612, en móðurættina til 1337. J. C. Möller tók próf úr gagnfræðaskólanum í Esbjerg 1903, gerðist iðnnemi í járnsmíði og rafvirkjaiðn og tólc próf frá vélstjóraskólanum í Kaupmannahöfn 1909. Síðan dvaldist hann um skeið i Englandi og Þýzkalandi. 1915 gekk hann í þjónustu raftækjafirmans Axel Schou I Kaupmannahöfn, en það var heildsölufirma, sem m. a. hafði umboð fyrir Philips-verksmiðjurnar hollenzku. Hann vann hjá þessu firma til 1920, en þá stofnaði hann sjálfstætt firma. Þ. 26. jan. 1920 stofnaði hann raftækja- heildsölu í Esbjerg, en flutti síðan til Kaupmannahafnar 1927. Fyrirtækinu var síðan breytt í hlutafélagið J. C. Möller, árið 1940. Starfar það enn, einkum að útflutn- ingi. J. C. Möller kom í fyrsta sinni til Islands árið 1919. Kom hann sem fulltrúi firma síns til að athuga skil- yrði til sölu á raflagnaefni til Islands. Þá var hafin virkj- un Elliðaánna, og bæjarstjórn Reykjavikur hafði ákveðið að taka rafveitumálin í sínar hendur. Möller hitti hér ýmsa menn, m. a. Halldór heitinn Guðmundsson, sem þá þegar rak umfangsmikla raftækjaverzlun í Reykjavík. Möller heimsótti Island oft eftir þetta, oft árlega um langt skeið, allt til síðustu heimsstyrjaldar 1939 og raunar eftir styrjöldina einnig, en sjaldnar. Hann ferðaðist mikið og víða sem fulltrúi stærstu raftækja- og rafvélaverksmiðjanna í Danmörku, einkum Laur. Knudsen A/S og Nordiske Kabel- og Trádfabrikker. Hann kom á góðum viðskiptasamböndum hér á landi við rafvirkjameistarana og firmu þeirra bæði í Reykjavík og öðrum bæjum, svo sem Akureyri og Siglufirði. Þegar bæjarstjórn Siglufjarðar vann að undirbúningi á virkjun Skeiðfoss í Fljótum, voru margir erfiðleikar í vegi, svo ekkert gekk. Þá bauð Möller bæjarstjórninni að taka að sér rekstur rafveitunnar, endurbæta kerfið og undirbúa það fyrir væntanlega vatnsvirkjun. Jafnframt tók hann að sér að láta gera áætlun um virkjun Skeið- foss og, ef fært væri, að virkja hann, en afhenda síðan Siglufirði allt saman. Bæjarstjórnin samþykkti þetta, og Möller stofnaði rafveitufélag á Sigulfirði með dönsku firmunum, sem hann var fulltrúi fyrir, sem meðeig- endum. Virkjunaráætlanir voru gerðar undir leiðsögu Geirs Zoega vegamálastjóra, og voru um það bil fullgerðar, þegar síðari heimsstyrjöldin braust út 1939. Þegar sam-

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.