Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 34

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.10.1959, Page 34
80 TÍMARIT VPI 1959 bandið slitnaði milli Danmerkur og Islands vegna styrj- aldarinnar, bauð Möller að skila fyrirtækinu aftur til Siglufjarðar á bókfærðu verði. Þessu tilboði tók bæjar- stjórn Siglufjarðar fegins hendi og vann síðan áfram að virkjunarmálunum síðari styrjaldarárin og kom Skeið- fossvirkjuninni upp. Á ferðum sínum til Islands fékk J. C. Möller einnig áhuga á ýmsum öðrum greinum í atvinnulífi Islendinga en rafveitumálunum. Hann undraðist framfarirnar hér, og m. a. sá hann, hversu mikilvæg frystihúsin yrðu fyrir útgerð landsmanna. Hann var og kunnugur þessari tækni frá veru sinni í Esbjerg. Á ferðum sínum hingað keypti hann oft síld á Siglu- firði, saltaða eða kryddaða, hafði með sér til Kaup- mannahafnar til sölu, en geymsla síldarinnar olli oft erfiðleikum, ef geyma þurfti nokkurn tima. Þetta kom honum m. a. inn á nýja braut, sem varð honum mikils- verð, og eigi aðeins honum sjálfum heldur og landi hans. Hann kom á fót nýrri atvinnugrein í Danmörku, frystihúsunum til geymslu og dreifingar matvæla. Fyrir Danmörku varð þetta hið mikilvægasta framfaraspor, því þar er útflutningur á landbúnaðarafurðum ein helzta atvinnugreinin. 1927 stofnaði Möller með nokkrum vinum sínum A/S Esbjerg-Klarisværk, íshús til sölu á ís til útgerðarinnar. Það óx ört upp í sölu á 17.000 tonnum árlega. 1938 seldi hann þetta fyrirtæki öðrum, en söluverðið hafði hann til stofnunar á nýju fyrirtæki A/S Dansk kölehus, Cold Stores við Islandsbryggju í Kaupmannahöfn. Byggði Möller þar nýtízku frystihús og ishús. Þegar Möller dvaldi á yngri árum í Englandi, en þangað er flutt megnið af landbúnaðarafurðum Dana, varð honum ljóst, hversu erfið aðstaðan var, þar sem engin frystihús voru. Seljendurnir yrðu þá að sæta hverju verði, sem væri, til að koma frá sér afurðunum. Frysti- húsin í Kaupmannahöfn hafa breytt þessu ástandi mjög til batnaðar og það varð til þess, að Möller byggði smám saman frystihús í Álaborg, Randers, Árósum, Kolding og Óðinsvéum, sem öll geyma útflutningsafurðirnar, þangað til hentugt sölutækifæri býðst. Möller lét ekki þar við sitja, heldur byggði hann 4 frystihús í Svíþjóð; í Gautaborg, Málmey, Stokkhólmi og Sundsvall. Er hægt að geyma alls ein 110.000 tonn í frystihúsum þessum öllum, og hafa þau kostað samtals 80 millj. danskra króna. Um leið og Möller lét byggja þessi frystihús, stofn- aði hann félagið Cold Stores Holding Co. í Kaupmanna- höfn til að stjórna og samræma rekstur frystihúsanna. Með því móti má hagnýta bezt geymslurúmið, þar til kemur að notkun eða útflutningi varningsins. Möller undirbjó byggingu frystihúsa í öðrum lönd- um. Hann leitaði m. a. sambands við íslenzka útflytj- endur, en sjónarmiðin voru of ólík, sennilega til tjóns fyrir útflutning Islands á frystum matvælum. 1 New York stofnaði hann firmað J. C. Möller Inc., sem annast milligöngu um mikinn hluta útflutnings á dönskum landbúnaðarafurðum til U.S.A. og sem hefur náð stöðugt vaxandi sölu hin síðari árin. Þegar það er athugað, að Möller hefir afkastað þessu verki á tæpum tveim áratugum, má telja það til afreka, og ber það vott um óvenjulegan dugnað og samninga- lipurð að byggja upp frá grunni atvinnugrein, sem er ein hin mikilsverðasta í útflutningsviðskiptum landbún- aðarþjóðar sem Danir eru. Á ferðum sínum til Islands kynntist Möller atvinnu- lífi Islendinga allvel og dáðist að hinni öru þróun, er hér átti sér stað á mörgum sviðum. Hann efaðist oft um framtak stjórnmálamanna okkar, en þrátt fyrir það fékk hann óbifanlega trú á framtíð Islands og var oft vanur að segja: „Guð heldur verndarhendi sinni yfir litla landinu“, þegar honum fannst Islendingar fara óskyn- samlega að ráði sínu. Möller var ávallt mjög hugulsamur gagnvart öðrum, sem hann komst í kynni við, og eignaðist marga vini hér á landi. Hann hefir verið mörgum hjálpsamur, stutt marga menn til náms og eldri menn í veikindum. Þegar hann varð 50 ára, 1938, gaf hann Verkfræðingafélagi Islands 10.000 kr. til námssjóðs ungum mönnum, er eink- um hefðu hug á að stunda nám í rafmagnsfræði við tækniháskólann í Kaupmannahöfn. Þegar Verkfræðinga- félagið varð 40 ára 1952, bætti hann við sjóðinn 10.000 sænskum krónum og 5.000 dönskum krónum. Hefir sjóð- ur þessi síðan veitt árlega námsstyrk einum nemanda í Kaupmannahöfn. Þegar Möller varð 70 ára, lagði hann niður stjórn á fyrirtækjum þeim, er hann hafði stofnað og rutt braut, til þess að aðrir yngri kæmust að til að halda áfram brautryðjendastarfinu. Nokkru áður hafði hann stofnað sjóð af hagnaði þeim, er honum féll í hlut frá félögunum. Tilgangur sjóðs þessa er, að sjóðsféð skuli nota, sumpart til ræktunar lands í Danmörku eða á Islandi og sumpart til varnar gegn sjúkdómum í þessum tveim löndum. Fyrsta úthlutun úr sjóðnum, árið 1956, féil til að kaupa röntgentæki til spítala í Danmörku til að vinna á móti krabbameini. Samtímis fékk islenzkur læknir styrk til framhaldsnáms i Danmörku í sama skyni. Fyrsta úthlutun til ræktunar lands féll, að ósk Möllers sjálfs, til skógræktarmanns frá Islandi til námsdvalar í Danmörku og Canada vegna skógræktar síðar á Islandi. I þakkarskyni fyrir starf J. C. Möllers á Islandi og fyrir Island og í viðurkenningarskyni fyrir brautryðj- andastarf hans á tæknilegu sviði, ákvað Verkfræðinga- félag Islands á sjötugsafmæli J. C. Möllers að bjóða hon- um að gerast meðlimur félagsins ævilangt án kvaða. Hefir hann þekkst þetta boð, og var honum veitt inn- ganga í félagið 19. febrúar 1959. Ákvörðun þessi mun gleðja hina mörgu vini J. C. Möllers á Islandi. Steingrímur Jónsson. TÍMARIT VERKFRÆÐINGAFBLAGS ÍSLANDS kemur út eigi sjaldnar en sex sinnum á ári og flytur greinar um verkfræðileg efni. Árgangurinn er alls um 100 síður og kostar 100 krónur, en einstök hefti 20 kr. — Ritstjóri: Hinrik Guðmundsson. Rit- nefnd: Baldur Líndal, Guðmundur Björnsson, Helgi H. Árnason og Magnús Reynir Jónsson. — Útgefandi: Verkfræðingafólag Islands. — Afgreiðsla tímaritsins er í skrifstofu félagsins í Brautarholti 30 Reykjavík. Sími 19717, Pósthólf 645. STEINDÓRSPRENT H.F.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.