Akranes - 01.07.1944, Síða 2

Akranes - 01.07.1944, Síða 2
86 AKRANES Forsetinn ferðast um landið Hinn nýkjörni forseti hefur tekist á hendur opinbera heimsókn um landið. Á þeirxi ferð byrjaði hann með heim- sókn sinni til Akraness sunnudaginn 30. júlí s. 1. Móttakan hér fór fram á þennan veg: Um kl. 1.30 óku þessir menn til móts við forseta íslands: Ól. B. Björnsson, forseti bæjarstjórnar, Arnljótur Guð- mundsson, bæjarstjóri og Þórhallur Sæmundsson, bæjarfógeti. Mættust bíl- arnir á Langamel. Eftir að hafa heilsað forsetanum og fylgdarliði hans (sem var forsetaritari Pétur Eggerz og Vigfús Sig- urgeirsson ljósmyndasmiður), var hald- ið að Görðum til þess að skoða bæjar- landið, ræktun þá og framræslumann- virki, er þar hafa verið gerð síðan land- ið var keypt. Þaðan var haldið að Lamb- hússundi, sem var löggilt höfn og verzl- unarstaður 16. júní 1864. Þá voru for- setanum sýnd hafnarmannvirkin, þau er áður hafa verið gerð, og nú eru í bygg- ingu, þá hinn nýi viti, Bíóhöllin, Bjarna- laug, kirkjan og hið nýja Bæjarhús. Að þessu loknu var ekið að Hótel Akraness, en þar var forsetanum af bæj- arstjórninni boðið til te- og kaffidrykkju og sátu þar um 70 bæjarmenn, karlar og konur. Salurinn var skreyttur fánum og blómum. Þar hélt Ól. B. Björnsson svofellda ræðu til forsetans: Herra forseti íslands, Sveinn Björnsson! í umboði bæjarstjórnarinnar, býð ég yður, fyrsta forseta hins íslenzka lýð- veldis, fyrir hönd þessa bæjarfélags hjartanlega velkominn á Akranes. Akraness hefur ekki verið mikið get- ið í þeirri íslandssögu, sem enn er skráð. En þegar að er gáð og lengra skyggnst, má sérstaklega benda á tvö óræk vitni þess, að Akranes hefur þolað súrt og sætt með þjóðinni í gegnum aldirnar og lagt fullkominn og veigamikinn skerf til þess, sem skapar og viðheldur lífsaf- komu þjóðarinnar á hverjum tíma. Það er ekki út í bláinn, — eða af eft- irhermum — sem þetta nes ber nafnið Akranes. Það bar, og ber enn nafn með rentu. Hér vrou sánir akrar. Það er stað- fest í fleirum en einni af fornsögum vorum, að hingað fóru menn til mjöl- kaupa á áliðnum vetri. Það er því sann- að, að hingað var leitað í þessum efnum sem um kornforðabúr væri að ræða: Nesið allt í kringum Akranes er grasi vafið, og mörg örnefni til, sem sanna staðreyndina um Akrana fornu. Sam- hliða kornræktinni hefur vitanlega allt frá fornöld verið búið hér í víðari merk- ingu, og þá ekki síður eftir að kornrækt- in lagðist niður. í annan stað er það sannað, að allt frá fornöld hefur hér verið verstöð og mik- ið útræði, — ekki aðeins heimamanna — heldur víða að. Það er því engin til- viljun, að tanginn, sem vér nú stöndum á, gekk um langt skeið undir nafninu Skipaskagi. Þessi tvö nöfn, sem þannig segja sög- una, — þó að hún hafi ekki verið skráð — teljum vér fullgilda sönnun þess, að Akranes hafi verið með í leiknum og líf- inu yfirleitt fram á þennan dag. Herra forseti! Til er gamalt máltæki, sem segir, að það sé ekki gott að maðurinn sé einn. — Og þér sjáið, að vér hér lifum rækilega samkvæmt þessari reglu. — Þér eruð ekki með yðar elskulegu frú. Fyrst og fremst fyrir hönd þessara kvenna, — og okkar allra — biðjum vér yður því að bera henni innilegar kveðjur vorar og hamingjuóskir með þann heiður, er henni hefur hlotnast með því að verða fyrsta forsetafrú vors kæra lands. Sam- hliða viljum vér láta í ljós sára hryggð vora yfir þeim þjáningum og frelsis- skerðingu, sem föðurland hennar hefur orðið að þola á síðustu tímum. Með ein- lægri ósk og bæn um að þar megi fljót- lega sjá roða fyrir degi frelsis og far- sældar á ný. Um leið viljum vér og minnast hins aldna konungs og hans húss, með þakklæti fyrir kærkomna kveðju á síðustu stundu, og fyrr og síð- ar velvilja og skilning í íslands garð. Með þessu ári byrjar þjóð vor „nýtt líf“. Hún öðlast á ný rétt og skyldur, er hún afsalaði sér í hendur erlends valds fyrir nær 7 öldum síðan. Vér vonum og að heimurinn byrji á þessu ári „nýtt líf“. — Þ. e. þegar þessu stríði lýkur. Vér vonum að framkoma stórþjóðanna við oss, velvilji þeirra og árnaðaróskir á þessu gæfuríka ári sé varanlegt tákn þeirrar sjálfsögðu köllunar og skyldu allra manna og þjóða, að gera um mál sín sem viti gæddar verur, þar sem einr hver köllun og lífshamingja er lögð til grundvallar. Eg gat þess í upphafi máls míns, að Akranes hafi ekki verið fyrirferðarmik- ið á spjöldum sögunnar. Bær vor er ung- ur að verulegum og stórstígum fram- förum, eins og land vort er yfirleitt. En vér vonum að það litla, sem þér, herra forseti, hafið skoðað hér í dag, bendi fullkomlega til þess að vér viljum og ætlum að rækja áfram þá tvo nauðsyn- legu höfuðþætti, sem tilvera þjóðar vorrar byggist á, og felast svo fagurlega — og táknrænt — í þeim tveim nöfnum, er ég benti á í upphafi, — Akranes, Skipaskagi. — Þegar þér því, herra forseti, gerið þessum bæ þann mikla heiður, að koma hingað fyrst á yðar opinberu heimsókn- arferð um land vort, viljum vér þakka það, hylla yður og óska yður allrar bless- unar í því veglega og vandasama starfi, sem þér hafið verið kosinn til. Þessi heimsókn bar svo brátt að, að vér gátum ekki leyst yður út með gjöfum. Hins- vegar lofum vér því, — og það vitum vér, að yður er meira virði en allar gjafir, — að vér ætlum enn að halda á- fram að róa og rœkta, svo að þetta fagra nes missi heldur ekki í sögu þjóðarinn- ar það táknræna heiti, sem því hefur fylgt. Og ef allir staðir gera það af al- vöru í vaxandi mæli með hverri kyn- Forsetinn talar til Akurnesinga við Hótel Akranes

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.