Akranes - 01.07.1944, Síða 5
akranes
89
í tilefni af vígslunni sendi Páll bóndi
Guðmundsson eftirfarandi vísu:
Bjarnalaug á Bjargi stendur,
besta minning hans.
Uti á sjó við íslandsstrendur
aflakóngur lands.
Sundnám styrkið, sóma ei hallið
saman vinnið fljótt.
Akraness á æsku kallið.
Æfið líkamsþrótt.
Bygging laugarinnar liefst.
Síðan 1939 hefur af nefndum aðilum
og öllum almenningi verið ötullega
unnið að undirbúningi, og síðar bygg-
ingu þessa húss sem hér er risið af
grunni. Ekki einasta sjómennirnir, —
þó þeir eigi þar mestan heiður, — held-
Ur almenningur, hefur hlýtt þessu kalli,
°g skilið mikilvægi málsins og mikla
gildi. Svo vel gekk þetta, að þrátt fyrir
dýrtíð og ýmsa erfiðleika fanst áður-
uefndri framkvæmdarnefnd, tímabært
og nauðsynlegt að byrja á byggingunni
vorið 1943. Þá hafði nefndin yfir að
ráða um 40 þús. krónum til verksins.
Þrátt fyrir fyrirheit um styrk úr ríkis-
sjóði var þetta næsta lítið. En við héld-
um ótrauðir áfram í þeirri vissu von
að úr mundi rætast, enda hefur sú von
ekki orðið sér til skammar.
í sama mund og verkið hófst, var
leitað til allra bæjarbúa um gjafir og
vinnuframlög. Mætti þetta í flestum til-
felum ótæmandi skilningi, góðleik og
greiðasemi. Svo miklum skilningi og al-
rnennum, að kuldi og kæruleysi hinna
örfáu hefur engu orkað um að tefja, eða
fyrirbyggja framgang málsins.
Staðarval.
Nefndin var þegar sammála um stað
fyrir laugina. Var auðsótt mál að fá lóð
keypta hjá Kvenfélaginu. Svo stóð á,
að nema þurfti litla sneið til viðbótar
af lóð Páls Guðmundssonar sem hann
átti þarna. Ber að þakka Páli liðlegheit
°g velvilja, er hann sýndi um að láta
lóð af hendi fyrir sanngjarnt verð.
Staðurinn er sérstaklega valinn með
hliðsjón af þessu þrennu: 1. Að hann er
rniðsvæðis í bænum. 2. Er fallegur og
^iggur vel við sól. 3. Hvað leiðslur eru
þarna stuttar að ljósamótornum ,sem
er hitagjafinn.
Stcerð sjálfrar laugarinnar.
Upphaflega ákvað nefndin ágrein-
llrgslaust að byggja laugina 25 m langa,
^aeð hliðsjón af að hún taldi það æski-
legast, og að hennar dómi fullnægði
ekkert annað kröfum tímans. íþrótta-
fulltrúi ríkisins Þorstein Einarsson tjáði
°kkur þegar reynslu sína og annara í
þessum málum. Öll sú reynsla var á
þann eina veg, að ekki væri mögulegt
að hita hér svo -stóra laug á þann hátt
Sem hér væri hugsað. Af reynslu þeirra
Sem hita laugar sínar með kolum, sá-
um við líka að það var heldur ekki
mögulegt vegna óhemju reksturskostn-
aðar. Þarna var því um þrent að velja:
1. Að gjald einstaklinga fyrir notkun
yrði svo hátt, að draga myndi stórlega
úr aðsókn. Að laugin yrði ekki notuð
nema fáar vikur á ári. 3. Að rekstur
laugarinnar yrði svo mikill baggi á
bænum, að af þeim sökum yrði sparað
verulega í rekstri, nema þau einu ár
sem menn „gengju á 10-köllum“.
Þá var næst ákveðið að hafa stærð
laugarinnar 16%. m. langa. Við ná-
kvæma rannsókn komst nefndin enn að
þeirri niðurstöðu, að með þeirri stærð
fengist heldur ekki nægjanlegt heitt
vatn, til þess að örugt væri að ná því
takmarki sem laugar verða fyrst og
fremst að uppfylla. Þá kom til tals að
Bjarnalaug, jramhlið.
Myndin er tekin rétt áður en vigslan hefst.
seta skilrúm í laugina, með þá hugsun
fyrir augum, að ef til vill yrði síðar
komist yfir einhverja af þessum örð-
ugleikum, þó ekki væri það nú hugsan-
legt. í því sambandi fengum við verk-
fræðing til að gera okkur grein fyrir
hvað kosta myndi að thita upp slíka
laug sem þessa, með ódýru vatnsafls-
rafmagni. En þegar við fengum þann
dóm, að slíkt kostaði árlega offjár á
venjulegum tímum, þá fanst okkur það
vera hreint ábyrgðarleysi að afgreiða
málið á annan veg en hér hefur verið
gert. M. ö. orðum, við sannfærðumst
um að með þessari stærð einni næðum
við því markmiði sem fyrst ber að
keppa að og meta mest: Að fá vel heita,
og fullkomlega nothæfa kennslulaug.
Ennfremur til að synda í að gamni sínu,
og til að halda sundkunnáttunni við.
Með þessu eina móti var og stærsti sig-
urinn unninn, sá, að fá laug sem reka
mætti alla daga ársins, svo ódýrt sem
nokkur föng standa til.
Þetta eru megin rök okkar fyrir þeirri
stærð sem valin var. Nefndin er öll
sammála um að það hafi verið allra hag-
ur og heill, að bygging laugarinnar
skyldi dragast það, að ekki yrðu mistök
á í þessu efni.
Húsaskipun og annað fyrirkomulag.
Við þessa laug er allstórt áhorfenda-
svæði, en það þekkist hvergi fyr hér á
landi. Þrátt fyrir þó endirinn yrði sá
um stærðina að hún yrði ekki methæf,
fannst nefndinni sjálfsagt að halda sig
við fyrstu hugmynd sína um áhorfenda-
svæði. Það var af ýmsum talið úr okk-
ur, en við lögðum eindregið fyrir húsa-
meistara að teikna laugina þannig. Við
erum mjög ánægðir yfir þessari tilhög-
un. Með þessu var og miklu hægara að
koma fyrir sólskýli, sem fer ágætlega
yfir áhorfendasvæðinu. Er ætlast til að
við báða enda þess komi steyptir stigar
upp á skýlið.
Yfirbygging laugarinnar.
Mesti vandi nefndarinnar í sambandi
við bygginguna var efalaust yfirbygging
sjálfrar laugarinnar. Erfiðleikarnir voru
meiri í þessu efni en annars fyrir það,
að þeir sem reynsluna höfðu annarsstað-
ar, sögðu sitt á hvað um gæði og galla
opinnar laugar eða yfirbyggðrar. Við
litum svo á, að það hefði vafalaust
marga góða kosti að geta komist hjá
yfirbyggingu. Bjartara og skemtilegra,
hollara og heilsusamlegra, kostnaðar-
minna í byggingu og rekstri að hafa
hana óyfirbyggða. Aðal hættan frá okk-
ar sjónarmiði er sót, foksandur og alls-
konar rusl. Miklu meiri en sú sem staf-
ar af kulda, a. m. k. þegar mótorarnir
eru meira eða minna notaðir. Hugsun
okkar var því lengi sú, að geta tekið
laugina í notkun fyrir miðjan vetur, svo
þegar á liðnum vetri hefði getað feng-
ist fullkomin reynsla í þessu efni.En því
miður gat það ekki orðið. Með hliðsjón
af þessu gerðum við engar ráðstafanir
til yfirbyggingar í bráð. Og einmitt af
þeim sökum eru veggirnir í kringum
laugina sjálfa ekki múrhúðaðir, því að
það er aðeins til að kasta peningum, að
getra það ef byggt verður yfir. Við ger-
um því ráð fyrir að reynsla verði látin
skera úr um þetta efni á næsta vetri, ef
þessi reynsla hefur ekki þegar fengist
við notkun í sumar og haust.
Laugin sjálf er 12.50 m. á lengd og 6.75
m. á breidd. Dýpt laugarinnar er mest
2 metrar, en 90 cm. þar sem hún er
grinst. Áhorfendasvæðið er þrír upp-
hækkaðir pallar við suðurhlið. Breiðir
gangar eru á hina þrjá vegu.
Forhlið og aðaldyr snúa að Freyju-
götu. Framan við húsið eru myndarleg-
ar tröppur. Af þeim er gengið inn í and-
dyri laugarinnar. Inn að lauginni liggja
3 smá herbergi hvert við hliðina á öðru.
Norðast — og næst stiga upp á efri hæð,
þar sem Rauða-krossdeild Akraness hef-
ur Gufubaðstofu — liggur herbergi, sem
ætlað er fyrir aðgöngumiðasölu, við hlið
þess er herbergi fyrir kennara, og þá
fyrirhúsvörð.Úröllum þessum herbergj-
um liggja dyr út að lauginni. Úr and-
dyrinu er ennfremur til beggja handa
gengið inn í búningsherbergi laugar-
gesta. Hægra megin, — eða að sunnan-
verðu — fyrir konur, en í norður álm-
unni fyrir karla. Þar inni eru bekkir og
22 fataskápar hvoru megin. Snyrtiher-
bergifylgiroghverjum þessara klefa.Inn