Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 6

Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 6
90 AKRANES af þessum búningsherbergjum, — nær lauginni — eru baðherbergi með heit- um og köldum steypi-böðum. Úr þeim er svo gengið út í laugina, og eru það aðeins nokkur fótmál. Byggingfn öll er að flatarmáli 270 ferm. en 1263 kbm. Undir öllu aðal hús- inu er mikill kjallari. Þar er ráðgert að koma fyrir tækjum til að hreinsa laug- arvatnið. Þar eru og ágæt herbergi til geymslu. Ennfremur er þar miðstöðv- arkynding hússins, svo og fyrir þrifa- böðin. Gangur er og allt í kringum laug- ina neðanjarðar. Á framhlið hússins er pallur til skjóls yfir dyrum, en þar fyrir ofan er letrað með stórum stöfum: — Bjarnalaug. — Þessir menn hafa staðið fyrir verki við bygginguna: Óskar Sveinsson, sem haft hefur þar aðal umsjón og fram- kvæmd. Aðalsteinn Árnason, sem hef- ur annast alla múrhúðun, utan og inn- an. Sveinn Guðmundsson, hefur annast raflögn alla. Vélsmiðja Þorgeirs & Ell- ert, niðursetningu allra hitunartækja og vatnslögn að lauginni. Vélsmiðjan Jöt- unn í Reykjavík gerði svokallaðann „forvermara“ — það er stór járndúnk- ur, sem stendur út við ljósastöðina, en „púst“ vélanna er leitt í þennan kút og látið hita vatn sem rennur um hann í mörgum járnpípum. — Annar aðal- hitagjafi er svo kælivatn mótoranna. — Lárus Árnason hefur séð um þá máln- ingu sem þegár hefur verið fram- kvæmd. Hurðir og glugga hefur Lárus Þjóðbjörnsson smíðað. Einar Magnússon var umsjónarmaður hér í fyrra sumar. Teikningar voru gerðar af skrifstofu húsameistara ríkisins, í samráði við í- þróttafulltrúa Þorstein Einarson, Ósk- ar Sveinson og nefndina. Miðstöðvar- teikningu gerði Sigurður Flygenring. Óskar gerði síðan ýmsar tillögur til breytinga eða viðauka meðan húsið var í byggingu, sem allar hafa verið til bóta. Hefur hann verið mjög áhugasamur um að þetta færi sem best úr hendi. Má hið sama segja um alla hina verktakana, sem og alla fasta- og lausamenn, sem við þetta verk hafa unnið. Færi ég þeim öllum fyrir hönd nefnd- arinnar innilegustu þakkir. Er laugin tilbúin til notkunar? Sjálfsagt finnst ykkur að það hefði mátt dragast eina viku enn að vígja laugina. Því miður er þetta ekki svo fullgert, sem við hefðum viljað vera láta. Er því sennilegt að það muni drag- ast um vikutíma eða svo að hún verði opnuð almenningi til afnota. En með sérstöku tilliti til þessa dags og ýmis- legs þess, sem ég hirði ekki að greina frekar, var ekki hægt að sleppa vígslu hennar á þessum degi. Var nefndinni það þó mjög óljúft, að gera það án þess að hafa gengið fullkomlega frá þessu úti og inni. Það er eftir nokkuð af þeirri múrhúðun er við aátluðum að ljúka. Þekja lóðina hér í kring. Steypa stokk um leiðslur til laugarinnar o. fl. smá- vegis. Ef til vill mun nú einhver spyrja. Hvað er laugin heit? í dag var hún 20 stiga heit. Að hún er ekki heitari stafar af þessu: Nú er aðeins litli mótorinn keyrður, og venjulegast með litlu álagi. En eftir því sem hann erfiðar meira gefur hann heitara vatn. Til þess að fylla laugina nú, höfum við látið renna í hana mjög mikið af köldu vatni. Þegar hún nú er orðin full, og eingöngu fer að renna í hana heitt vatn frá mótornum — jafn- vel með þessu litla álagi — hitnar hún smámsaman, og þarf vafalaust ekkert að óttast um kulda í henni þegar fram í sækir. Síðar er hugsað að hafa hringrás á vatninu til mótoranna aftur, og mun það enn hjálpa til um hitann. Fyrir hvaða jé hejur þetta verið byggt, og hvað kostar laugin? Því miður er hvorugu þessu hægt að að svara tæmandi í dag. Verður því að nægja í bili, að gera grein fyrir þessu í höfuðdráttum. Eins og þið sjáið er verkinu ekki að fullu lokið. í öðru lagi er nokkuð af reikningum ókomið og ó- greitt. Nefndin mun hinsvegar þegar er verkinu er lokið ganga frá heildar- reikning, og gera skilagrein fyrir því fé sem farið hefur um hennar hendur og birta þetta í blaðinu „Akranes“. Þar verður og gerð grein fyrir gjafavinnu, og þeim gjöfum sem ekki hefur þegar verið kvittað fyrir opinberlega. Það sem nú er búið að greiða vegna byggingarinnar í efni og vinnu er kr. 218.972,35. Þar með er talin lóðin, enn- fremur gjafavinna um 20 þús. kr. Þessi upphæð hefur verið greidd þannig: Tekjur af skemmtun, gjafir og áheit kr. 88.972.35 Styrkur úr íþróttasjóði ríkisins — 50.000.00 Tekin lán (ógreidd) — 55.000.00 Áætlaðar skuldir til viðb. — 25.000.00 Samtals krónur 218.972.35 Af þessu má sjá, að við skuldum enn um 80 þúsund krónur fyrir utan það, sem við kann að bætast. Nefndinni æg- ir þetta ekki. Hún er enn vongóð og bjartsýn um góðan endir þessa máls. Hingað til hefur hún ekki þurft að vera áhyggjufull í þessu efni. Sem litla sönn- un þessa er mér ljúft og skylt að geta þeirra stórgjafa, sem okkur hafa borist í dag og síðustu daga, eða vitað er um, að muni koma næstu daga: Frá Óskari Halldórssyni kr. 1000.00 — Petrínu og Pétri Ottesen — 500.00 — Knattspyrnufél. Akraness — 1500.00 — Hljómsveit Akraness — 1030.00 — H.f. Hængur — 5135.40 — Margréti Nikulásdóttur til minningar um foreldra hennar og ömmu — 1000.00 — Árna Kristinssyni — 1000.00 — Ólafi Ásmundss. til minn- ingar um föður hans Ásm. Þórðarson — 1000.00 — Gísla Vilhjálmssyni — 200.00 — Önnu Jónsdóttur — 50.00 Til minningar um Þorv. heit. Ólafsson, konu hans, Sig- ríði Eiríksdóttur og son þeirra Tómás, frá börnum þeirra hjóna — 2500.00 Frá Þóroddi Oddgeirssyni — 1000.00 Ennfremur höfum við hugboð um að næstu daga berist myndarlegar gjafir frá einstökum mönnum, félögum og fyr- irtækjum, þar á meðal rífleg upphæð frá iðnaðarmönnum sameiginlega. Óskar Sveinsson og kona hans hafa gefið alla vinnu á þessari veglegu hurð, gluggum og karmi í aðaldyrum laugar- innar. Þá ber að þakka Rafveitunni það raf- magn, sem hún hefur látið lauginni í té meðan hún hefur verið í byggingu. Enn- fremur rafmagnsstjórninni, sem í sam- bandi við tenginguna við stöðina hefur sýnt eindreginn velvilja og skilnng. Sömuleiðis þökkum við stuðning og á- gæta samvinnu við íþróttafulltrúa rík- isins, Þorstein Einarsson og íþróttanefnd ríkisins, ekki sízt formann hennar, Guð- mund Kr. Guðmundsson skrifstofustj. Mun hann segja hér nokkur orð á eftir. Þessum mönnum þökkum við fyrir komu sína hingað við þetta hátíðlega tækifæri. Kvittað hefur verið fyrir gjöfum jafn- óðum og þær hafa borist. Seinna verður kvittað fyrir gjafavinnu, hvort heldur hún hefur verið unnin eða greidd í pen- ingum. Fyrir allar þessar gjafir, — stórar og smáar — velvilja, stuðning og margvís- lega greiðasemi, þökkum við öllum, er hlut eiga að máli innilega. Við krejjumst. Það er einkennandi fyrir yfirstand- andi tíma, hve þessi tvö orð eru mikið notuð. Kröfurnar miklar og margir, sem krefjast. Samkvæmt eðli allra hluta, kemur afleiðing af orsök hverri. Það er ekki hægt að krefjast, án þess að 1- þyngja þeim, sem kröfurnar á að upp- fylla. Enginn efast um, að kröfur vorra tíma hafi oft á tíðum verið reistar á réttum rökum. Að þær hafi verið und- anfari framfara á marga vegu og bætt hag einstaklinga og heilda. En þar hef- ur gætt öfga eins og oft vill verða. Öfg- arnar eru þó mestar og hættulegastar, þegar allir gera kröfur til annarra. — Hverjir eiga þá að uppfylla þær? Eftir því eigum við að vera viðtakendur allra gæða, en aðrir að uppfylla. Hér verður nefnilega svo sem ávallt að vera hóf á hverjum hlut, til þess að árangurs megi vænta.

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.