Akranes - 01.07.1944, Side 13

Akranes - 01.07.1944, Side 13
AKRANES 97 5. Föðurmissir Þess er áður getið, að Jóhannes glerskeri, faðir Geirs, bjó alla sína tíð í gömlu Smiðjunni frá innréttingatímunum. Mun það hús aldrei hafa verið sérlega reisulegt, en þó tók fyrst að keyra um þvert bak eftir að aldurinn færðist yfir það. Var það loks orðið svo skakkt og snarað, að lítt gat talizt búandi í því lengur. Haustið 1842 tók Jóhannes sig til og reif mikinn hluta torfþaksins, setti timburþak í staðinn og hres'sti dálítið upp á kofasmánina að öðru leyti. Þóttist hann hafa unnið þarfa- verk með þessu og mun hafa harmað það mest, að efna- hagurinn leyfði ekki meiri bót húsnæðisins í bili. En með- an hann var að laga þakið á bænum, kom heldur en ekki babb í bátinn. Sjálfur bæjarfógetinn reis upp öfugur og skipaði Jóhannesi að hætta við allt saman. Bæjarfógeti var um þessar mundir Stefán Gunnlaugsson, ötull maður og fullur áhuga um framfarir bæjarins, en afskiptasamur í meira lagi og gefinn fyrir að rexa í smámunum. Ástæðurnar, sem bæjarfógeti færði fyrir afskiptum sín- um af þakinu á kofa Jóhannesar glerskera voru í stuttu máli þær, að Jóhannesi hafði láðzt að sækja um leyfi til hinnar háttvirtu byggingarnefndar! Það var í raun og veru eðlilegt, að bæjarfógeta tæki sárt til byggingarnefndarinnar, og vildi hafa veg hennar sem mestan. Þetta var alveg ný stofnun og bráðnauðsynleg fyr- ir vöxt og viðgang bæjarins. Hafði henni verið komið á laggirnar 1839, og jafnframt gerð ákveðin byggingarsam- þykkt. Fram til þess tíma gat hver og einn byggt eftir því sem í honum veltist vömbin, svo framarlega sem hann hafði fryggt sér lóðaréttindi. Hlaut slíkt eftirlitsleysi að leiða til fullkomins óskapnaðar, enda hafði reynslan orðið sú, að ekkert var skeytt um beina húsaröð eða nokkurt samræmi. Þegar bæjarfógeti varð þess var, að Jóhannes Zoega var tekinn að breyta bæ sínum, án þess að snúa sér fyrst til byggingarnefndar, brást hann reiður við og heimtaði lög- in í gildi. Fyrirbauð hann Jóhannesi að ljúka verkinu fyrr en leitað hefði verið formlega leyfis nefndarinnar. Jóhann- esi mun hafa þótt þetta þarflítil afskiptasemi, og setti á timburþakið eigi að síður. Lét Stefán Gunnlaugsson þá höfða mál gegn „glasmeistara Jóhannesi Zoéga“ vegna þess, að hann reif „nokkurn hluta af torfþakinu á íbúðarhúsi sínu og lagði það aftur á að nýju úr timbri, án þess að hafa fyrirfram leitað byggingarnefndar þeirrar, sem með opnu bréfi af 29. maí 1839 er tilskipuð fyrir Reykjavíkur- bæ, og útvega sér téðrar nefndar samþykki til þessa starfa“. Mál þetta var tekið til dóms í lögreglurétti Reykjavíkur og féll dómur á þá leið, að Jóhannes var „fríkenndur fyrir ákæru pólitíréttarins, þó svoleiðis, að hann greiði þann af sökinni leidda kostnað“. Ekki þótti nóg að gert með þessu. Var málinu skotið til yfirréttar og kvað hann upp dóm sinn 12. desember 1842. Blés þar engu byrlegar fyrir bæjarfógeta og byggingar- nefnd, og var Jóhannes sýknaður me ðöllu. Losnaði hann einnig við málskostnað. í dómsástæðum segir svo: „Þar eð það nú er sannað og upplýst, að umbót sú, er ákærði gerði á íbúðarhúsi sínu, einungis er þar í fólgin, að hann lagði nýtt þak í stað gamals á nokkurn hluta þess, oða réttara sagt timburhæð í stað þess, að áður hafði verið reisifjöl með torfþaki, án þess að endurbótin, vegna fú- inna máttarviða, sé þar að auki unnin til bráðabirgða, en engrar frambúðar, og án þess að hann hreyfði í hinu minnsta við hússins undir- eða máttarviðum, svo að húsið og þakið að öllu leyti heldur sömu stærð, lögun og ummáli sem áður, svo getur rétturinn ekki álitið, að ákærði hafi framið neitt lagabrot með því að gera téða umbót, án þess fyrirfram að hafa leitað byggingarnefndarinnar atkvæðis til hennar, er umbótin, eftir því sem að framan er útlistað, og undirdómarinn réttilega finnst að hafa álitið hana, er þess eðlis, að hún hlýtur að vera undanþegin tilkynningar- skyldunni. Eftir þessum sakarinnar kringumstæðum hlýt- ur ákærði því að frífinnast fyrir ákærum hins opinbera í ofangreindri sök, og sakarinnar kostnaður fyrir landsyfir- réttinum, hvar á meðal laun sóknara og svaramanns, 5 rbd. til hvors um sig (sem ekki finnst næg ástæða til að dæma á hinn ákærða), að greiðast úr opinberum sjóði.“ Jóhannes hrósaði því fullum sigri í þessum sviptingum við stjórnarvöld bæjarins. Virðist sýnt á máli þessu, að hann hafi átt það til að halda býsna fast fram settri stefnu. Annars hefur Jóhannes verið meðal hinna kyrrlátu í land- inu, enda kemur hann ekki víða við sögu eftir þetta. Bráðabirgðaviðgerðin á bæjargreninu dugði ekki nema í fáein ár. Strax og börn Jóhannesar tóku að vaxa úr grasi og gátu hjálpað til við að vinna fyrir heimilinu, var það fyrsta nauðsynjaverkið, að reisa sæmilegt þak yfir höfuð- ið. Var nú farið í öllu að lögum, leyfi byggingarnefndar fengið með pomp og prakt, og frá öllu gengið sem vendi- legast áður en framkvæmd var hafin. Árið 1848 réðst Jó- hannes síðan til atlögu við bæinn og jafnaði honum við jörðu. Hefur Geir að sjálfsögðu gengið skörulega fram í því starfi ásamt föður sínum, enda var hann nú orðinn 18 ára gamall. Reistu þeir feðgar síðan lítið en sómasamlegt timburhús á rústum Smiðjunnar, og þó ekki að öllu leyti á sama grunni. Stóð það á horni Tjarnargötu og Kirkju- strætis. Síðar komst þetta hús í eigu Sigurðar Arasonar frá Þerney, og munu hinir eldri Reykvíkingar kannast við nafnið Þerneyjarhús. Svo er að sjá, sem Jóhannes Zoéga hafi gengt einu opin- beru embætti á síðari árum sínum, en það var fátækrafull- trúastaðan. Þurfti til þess starfa vandaðan mann, ráðdeild- arsaman og vinsælan af almenningi. Virðist helzt, sem Jó- hannes hafi allvel sameinað allt þetta. Var hann nú enn- fremur að losna nokkuð úr fátækt sinni, og gat fremur en áður um frjálst höfuð strokið. En hann átti ekki að ná há- um aldri. Hinn 20. maí 1852 andaðist Jóhannes Zoéga, og var jarðsunginn í Reykjavíkurkirkjugarði 26. maí. Ekki hefur tekizt að fá vitneskju um það, hvert banameinið var, né hvort dauðann bar að með snöggum hætti. Kirkjubók getur ekki um dánarorsök og aðrar heimildir sleppa henni einnig. Tvö blöð komu þá út í Reykjavík, Þjóðólfur og Ný tíðindi, sem tekið höfðu við eftir að Landstíðindi hættu. Þjóðólfur minnist ekki á lát Jóhannesar með einu orði, en í Nýjum tíðindum stendur þessi klausa: Mannlát. Jóhannes Zoéga borgari og fátækrastjóri í Reykjavíkurbæ, f. 26. júní 1796, kvæntur 20. maí 1822, Ingi- gerði Ingimundardóttur, dó 20. maí 1852. Hann átti 9 börn alls, og lifa 6 þeirra enn.1) Þegar Jóhannes féll frá, 56 ára gamall, var enn allþungt heimili hans, og veitti ekki af öruggri forystu. Geir var nú orðinn 22 ára að aldri, vanur flestri vinnu á sjó og landi, stór og sterkur. Gerðist hann þegar fyrirvinna móður sinn- ar og systra. Bjuggu þau áfram í hinu nýreista húsi á horni Kirkjustrætis og Tjarnargötu. Var hinn ungi heimilisfaðir brátt fengsæll og drjúgur í aðdráttum, enda sparaði hann sig hvergi. 6. Sjómennska Sjómennskan varð aðalstarf Geirs fyrstu árin eftir að hann tók við búsforráðum á heimili móður sinnar. Mun Jó- hannes faðir hans hafa átt bát lítinn, fjögra manna far, en þau voru þá einna mest notuð af Reykvíkingum. Báti þess- um stýrði Geir vor og haust, en lét sér það þó ekki nægja. Eins og venja var flestra sjómanna í Reykjavík um þessar mundir, stundaði hann sjó á aðalvertíð suður á Vatnsleysu- strönd. Var hann þar háseti fyrstu árin, en ekki leið þó á 1) Ný tíðindi, 2. júní 1852.

x

Akranes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.