Akranes - 01.07.1944, Síða 16

Akranes - 01.07.1944, Síða 16
100 AKRANES að Árni Magnússon og Páll Vídalín semja jarðabók sína yfir Gullbringusýslu. Þar er hjáleigu þessari lýst svo: „Jarðardýrleiki er óviss. Ábúandinn Jón Jónsson. Landskuld 50 álnir. Betalast með 2^2 vætt fiska í kaup- stað. Við til húsabótar leggur ábúandi. Leigukúgildi er 1 nýlega inn komið, var áður ekkert, en þá fylgdi hjáleigunni helmingaskip, fjögra manna far, sem hjáleigumaðurinn átti sjálfur en heimabóndinn í Vík gjörði út að hálfu og tók annan skiphlutinn af árið um kring nema um slátt alleina. Leigur betalast í smjöri heima til bóndans. Leigukúgild- ið uppyngir heimabóndinn. Kvaðir eru mannslán árið um kring, gelst in natura. Dagsláttur einn. Að styrkja til flutninga þegar Bessastaða- menn kalla. Item að styrkja til að bera fálka. Kvikfénaður 3 kýr, 1 hestur. Fóðrast kann 3 kýr. Heimilismenn 6. Eldiviðartak hefir ábúandinn nægilegt asamt heima- bóndanum. Skipaútgjörð má ábúandinn hafa svo mikla sem hann megnar frí af bóndanum í Vík. Vatnsból er næsta því ekkert nema í Víkur brunni eður Hlíðarhúsa."1) Eftir þetta fara litlar sagnir af Götuhúsum um hálfrar aldar skeið. En þegar verið var að koma upp „innrétting- unum“ laust eftir miðja 18. öld, þurftu þær á töluverðu landrými að halda. Var þá Götuhúsatúnið lagt til þeirra nota, ásamt Landakoti og Hólavelli hálfum. í Götuhúsa- bænum sjálfum bjó allan síðari helming aldarinnar Sig- urður Erlendsson. Faðir hans var Erlendur Brandsson lög- réttumaður í Hrólfsskála. Sigurður í Götuhúsum var merk- ismaður talinn og þótti einn af gildustu borgurum Reykja- víkur á sinni tíð. Kvæntur var hann Hlaðgerði Guðmunds- dóttur frá Eyjum í Kjós. Meðal barna þeirra hjóna voru Sigríður, kona Runólfs Klemenssonar verksmiðjustjóra og Vigdís, er giftist Grími Ásgrímssyni. Grímur og Vigdís bjuggu í Götuhúsum eftir að Sigurður Erlendsson féll frá rétt fyrir aldamótin 1800. Þar ólust upp synir þeirra, séra Jón Grímsson á Húsafelli og séra Sigurður Grímsson á Helgastöðum. Nokkru eftir aldamótin komust Götuhús í eigu Petræus- ar-verzlunar. Fjölgaði þar þá mjög tómthúsum, en jörðin sjálf rýrnaði og gekk úr sér að sama skapi. Hét sá Jörgen Pálsson, sem lengst hokraði þar á fyrri hluta 19. aldarinnar og fram yfir miðja öldina. Var svo komið árið 1863, þegar Geir Zoéga eignaðist Götuhús, að þar voru flestir hlutir í megnustu niðurníðslu. En hann lét ekki bíða að taka til starfa. Strax á fyrsta ári var farið að rífa upp grjót úr Götuhúsatúni, slétta það og gera því til góða á allar lund- ir. Meðan Petræusar-verzlun hafði átt jarðeignina, voru reist þar mörg smákot, sem starfsmenn hennar ýmsir áttu og viðskiptavinir. Flest voru kot þessi léleg og lítt hæfir mannabústaðir, enda mörg í eyði er hér var komið sögu. Lét Geir rífa tóttirnar og slétta yfir. Leið ekki á löngu unz þar voru komnir vellir iðjagrænir, sem áður gat að líta rústir, grjót og þýfi. Árið 1866 er ræktun þessi svo langt á veg komin, að stjórn Húss- og bústjórnarfélags Suðuramts- ins ákvað að veita Geir verðlaun fyrir dugnað hans við jarðabætur. Annar merkur borgari í Reykjavík, Magnús Jónsson bóndi í Bráðræði, átti einnig að hljóta samskonar verðlaun fyrir ræktunarframkvæmdir sínar. „En þessir heiðarlegu menn vildu ekki þiggja verðlaun, til þess að sitja öðrum fátækari í ljósi,“ segir í skýrslu bústjórnarfé- lagsins. Sýnir þetta meðal annars, að þegar hér var komið sögu, hefur efnahagur Geirs verið orðinn fremur góður. 1) Jarðabók Á. M. og P. V. III. bindi, bls. 263—264. Árið 1870 var gefið dálítið yfirlit um búnaðarframkvæmd- ir Geirs fram til þess tíma. Þá var hann búinn að gera Götuhúsatún allt að sléttum velli, en hafði auk þess rækt- að 3V2 dagsláttu af grýttu og erfiðu landi. Tvíhlaðinn grjót- garður var kominn umhverfis túnið, stæðilegur og vel hlaðinn. Töðufall túnsins hafði aukizt úr 40 hestum í 120 hesta. Á þessum árum hafði Geir einnig stækkað Sjóbúðarhús- ið og byggt ofan á það, reist sæmileg peningshús og komið sér upp nokkrum kúm og allmörgum hestum. Tún það, sem Geir hafði látið rækta, hlaut í munni al- mennings nafnið Geirstún. Var það um langan aldur feg- ursta og grasgefnasta túnið í bænum, en hefur nú verið tekið undir byggingarlóðir. Mun fyrsta húsið hafa verið reist á Geirstúni 1916, en síðan hvert af öðru. 9. Fylgdarmaður Fram eftir öldum var það sjaldgæft mjög, að útlending- ar tækju sig til og ferðuðust til íslands. Virðist fæstum hafa komið til hugar, að hér væri minnstu vitund að sjá, sem merkilegt eða skoðunarvert gæti talizt. Vísindi og menntir lágu einnig í dvala um langt skeið. Flestir vitnuðu til hinna fornu spekinga, sem talið var að kunnað hefðu allan vís- dóm og kafað hvert djúp til botns, svo að ekki yrði um bætt. En þegar hreyfing fór að koma á mannshugann eftir langvarandi kyrrstöðu, rann það ljós upp fyrir hinum fjöl- vitrustu spekingum, að raunar stæðu þeir eins og börn með skeljabrot fáein á strönd hins firnavíða, ókunna og ó- kannaða hafs. Og þeir fóru að forvitnast um æ fleiri hluti, fálmuðu sig áfram og víkkuðu jafnt og þétt sjónhringinn. Sókn var hafin þar sem barist var fyrir aukinni þekkingu og auknu valdi á sem allra flestum sviðum. Einn þáttur þessarar framsóknar var sá, að kynnast sem nákvæmast hnetti þeim, sem mennirnir byggja, bæði að því er hið ytra útlit snertir, og innri eðlisrökum. Því fóru vísindamenn og þá sérstaklega „náttúruskoðarar“ að sækja til margra þeirra landa, sem afskekkt voru og sérkennileg að einhverju leyti, þótt þeim hefði verið gefinn lítill gaumur áður. ísland fór ekki varhluta af þeim könnunarferðum, sem mjög tóku að komast í tízku á fyrri hluta 19. aldar. Raun- ar hafði það komið fyrir endrum og eins hinar fyrri aldir, að hingað til lands flæktust ferðalangar erlendir, en oftast var það einhver sérstök tilviljun sem réði. En á 19. öldinni öndverðlega, og þó einkum um miðbik aldarinnar, gerðust íslandsferðir vísindamanna nokkuð tíðar. Þá fór hitt einnig í vöxt um svipað leyti, að allskonar hefðarfólk og peninga- lýður tók að skemmta sér með ferðalögum til afskekktra landa. Vildi slíkt fólk stundum setja blæ einskonar „vís- indamennsku“ á þessi ferðalög sín, og hafði stundum í hópnum hina og aðra er við „náttúruskoðun“ fengust. Má því segja, að hingað til lands hafi verið gerðar út ferðir á 19. öldinni í hinum ólíkasta tilgangi. Sumt voru hreinir vísindaleiðangrar hámenntaðra manna, en annað einberar skemmtiferðir yfirstéttarfólks, en auk þess mátti finna flest eða öll stig þar á milli. Það voru enskir vísindamenn, sem einna fyrstir gáfu því gaum, að ýmislegt var vert athugunar á íslandi. Á átjándu öldinni komu hingað ágætir gestir, er ýmislegt athuguðu vel og skynsamlega. Má þar einkum nefna Sir Joseph Banks, stórauðugan mann, lærðan vel og mikilhæfan. Hann kom til íslands árið 1772, og áttu íslendingar síðan hauk í horni þar sem Banks var. Kom það hvað skýrast í ljós í Napóleonsstyrjöldunum, en þá gerði höfðingi þessi íslend- ingum margvíslegan greiða, og átti mikinn þátt í að bjarga þeim frá hungurdauða. Með Banks kom hingað Uno von Troil, sænskur hirðprestur er síðar varð erkibiskup í Upp- sölum. Framh.

x

Akranes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.