Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 17

Akranes - 01.07.1944, Blaðsíða 17
AKRANES 101 ANNÁLL AKPANESS Spyr sá, sem ekki veit Eftirfarandi spurning hefur blaðinu borist: Hver synti fyrstur úr Viðey til Reyjavíkur? Svar: Ben. G. Waage synti úr Viðey til Reykjavík- ur fyrstur manna 6. september 1914. Eru því naestum 30 ár siðan. Þótti það þá mjög vel gert, og hefur sjálfsagt haft mjög örfandi áhrif til sundiðkana. Blaðið mun eftir því sem við verður komið svara slíkum fyrirspurnum sem þessum, ef að „garði bera“. Sumlsýning Sundsýning var í Bjarnalaug á A)kranesi sunnud. 27. ág. Sýningin var haldin í tilefni af tveggja mán- aða starfi hinnar nýju laugar. Um 50 börn á aldrinum 7—14 ára sýndu sund, auk þess var sýnd björgun drukknandi manns og lífgun úr dauðadái. Að lokinni sundsýningu barna, fór fram 50 rnetra boðsundskeppni karla. Að síðustu var keppni um sundmeistaratitil Akraness, bæði meðal karla og kvenna, vega- lengdin, sem keppt var á, voru 50 metrar. Leikar fóru þannig, að af stúlkunum varð Aðalheiður Oddsdóttir fyrst, synti hún vega- lengdina á 50,1 sek. í keppni karla varð Sigurður Guðmundsson fyrstur, og synti hann vegalengdina á 41,7 sek. Fyrir hönd sundlaugarráðs afhenti Jón Sig- tfnundsson sundbol og sundskýlu að gjöf til sigurvegaranna. í bol Aðalheiðar var saumað B.L. 1944 (Bjarnalaug 1944). í skýlu Sigurðar vár saumað það sama, en auk þess var þar saumuð mynd af sundmanni, sem er að hefja sig til sunds. (»jal<l«lagi hlaðsinB var 1. júlí Bsejarmenn eru beðnir að bregðast vel við °g greiða árgjal sitt ef til þeirra verður leitað fljótlega. Kaupendur úti á landi eru vinsam- legast beðnir að senda það sem fyrst ef þeir geta án mikillar fyrirhafnar. Iþrótiamenn á Akranesi hafa meira en venja er til keppt við íþrótta- flokka utanbæjar og staðið sig vel. Verður nán- or sagt frá þessu síðar. Þátttakan í lýðveldiskosningunum hér á Akranesi var rösklega 99%. Lesendum hlaðsins skal hér með bent á það, að forsíðumyndin í síðasta blaði, af Jóni Sigurðssyni fæst nú sér- prentuð, hjá flestum bóksölum landsins og kostar aðeins 6 krónur. Þess skal getið að af- greiðsla blaðsins rnun geta útvegað myndina innrammaða, þeim sem þess kynnu að óska. I* jölmennt kristilegt mót var haldið hér 24.—26. júní s. 1. Þar voru 300 fastir þátttakendur. Alla dagana voru fluttar messur og erindi í kirkjunni. Slíkt mót sem þetta var haldið hér í fyrra um þetta leyti. En áður um nokkur ár í Hraungerði í Flóa. lilaðið Jiakkar vinsamleg hréí, ummæli og orðsendingar er því berast við og við. Slíkt er kærkomið og þakkarvert, því það sýnir ljóslega að ekki fer allt efni þess fyrir of- an garð og neðan, eða fellur allt í „grýtta jörð“. Það hafa margir sagst lesa blaðið frá orði til orðs, en það gera nú — i öllu blaða- og bókaflóðinu — ekki aðrir en þeir sem hafa af því gaman og gagn. ekki síst var blaðinu á- nægja að heyra af hinni velviljuðu umsögn hins fyrsta forseta íslands um útlit þess og efni. Leiðrétting. í síðasta blaði er þess getið að Kristrún Ól- afsdóttir, (ekkja Jóns Hallgrímssonar) hafi leigt salarkynni í húsi sínu K. F. U. M. og K. fyrir starfsemi félagsins. Þetta er ekki alls- kostar rétt og leiðréttist því hér með: Hún lán- ar þessi umræddu saiarkynni frjálsu kristilegu starfi hér í bænum algerlega endurgjaldslaust. Ef hún leigir það til annara fundarhalda eða starfs, rennur sú leiga er þar fæst meira að segja til þessa frjálsa kristilega starfs. Sjúkraskýlissjóðurinn Þann 17. maí þ. á. kom frú Jófríður Jóhann- esdóttir með kr. 300,00 til Sjúkraskýlissjóðsins, í minningu um Ragnheiði Jóhannesdóttur, Deildartungu hér, er lést á þrettánda þ. á. Ósk- aði hún þess heitt að blessun fylgdi peningun- um og fleirra mætti á eftir fara. Sé henni innileg þökk. F. h. Sjúkraskýlissjóðsins Petrea G. Sveinsdóttir. Leiðrétting í grein um foreldra okkar Svein Guðmunds- son og Mettu S. Hansdóttir er birtist í blaðinu „Akranes" fyrir nokkru stendur, að hann hafi verið „léttur í taumi". Þetta finnst okkur dætr- um hans vera óverðskulduð og ósönn lýsing og heimfærist illa við festu hans og sjálfstæði í öllum málum, er hann var við riðinn, Myndirnar, sem birtar voru í sama blaði, voru teknar af honum 74 ára og henni 85 ára. Að öðru leyti þökkum við vinsamleg um- mæli höfundarins um foreldra okkar. Akranesi 21. maí 1944. Petrea, Ingunn og Matthildur. Athugasemd Ég vil aðeins með örfáum orðum svara „leið- ré.ttingu þeirra systra og benda þeim á, að misskilnings hlýtur að gæta í orðum mínum „léttur í taumi“. Eg bendi á það víða í grein minni, hve frjálslyndur, víðsýnn og hvílíkur framfaramaður Sveinn var. Er hæpið að skilja orð mín á þá leið, að hann hafi verið einhver „flautaþyrill“, eða að hver maður hafi getað vafið honum um fingur sér. En til frekari skýringar og með öðru orðalagi, er og var meining mín um skaphöfn Sveins: í hrepps- málum var hann hinn gætni framfaramaður, og þess vegna var hann, af gömlum manni að vera, og af „gamla skólanum" óvenjulega frjáls- lyndur og framsýnn („léttur í taurni"). Að síðustu þetta: Mér er þessi „leiðrétting" þess óskiljanlegri, að ég las þessa grein í hand- i'iti frá orði til orðs fyrir tvær systranna, þær Petreu og Matthildi, án þess þær þá gerðu ■ hina minnstu athugasemd. Ól. B. Bjöi'nsson. Atliugið Þar sem það hefur komið í ljós, að gengið nefur verið um hér á Akranesi í íjároonum fyrir Sjúkraskýlissjóð Akraness, viljum við undirrituð hér með lýsa yfir því, að stjórn sjóðsins á engan þátt í neinum slíkum fjár- beiðnum, og er fólk því varað við að sinna slíkum beiðnum, nema sönnur séu fyrir því, að stjói'n sjóðsins standi þar að baki, Jafn- framt eru það vinsamleg tilmæli okkar, að þeir gefi sig fram, sem geta gefið einhverjar upplýsingar í þesu efni. Akranesi 24. maí 1944. Petrea G. Sveinsdóttir. Árni Árason. Frá hæjarstjórninni M.b. Aldan hefur verið höfð til vöru- og mjólkurflutning milli Reykjavíkur og Akra- ness í sumar frá 10. júní, þar sem m.s. Víðir getur ekki annað þeim, samhliða hinum miklu fólksflutningum. Samþykkt hefur verið að láta fullgera teikn- ingu af verkamannaskýli. Ennfremur að láta gera tillögu-uppdrátt að eUiheimili og sjúkra- skýli. Að leggja á þessu ári 250 þús. kr. til hafnarbóta. Að gefa 10 þús. kr. til hvíldar- heimilis sjómanna í tilefni af 80 ára afmæli Akraness. Að hvetja bæjarbúa til að færa upp mó á þessu vori, m. a. með því að láta að þessu sinni falla niður gjald fyrir mótaki í landi bæjarins. Ivarlakór iðnaðarmanna úr Reykjavík söng hér í Bíóhöllinn sunnud. 9. júlí síðastl. undir stjórn Róberts Abrahams. Ekki hefur kórinn á að skipa óvenjulega góðum röddum, en stjórnandinn hefur þjálfað söngmenninna mjög vel og „nær úr þeim“ það sem þeir eiga til. Söngstjórnin fer honum mjög vel úr hendi og hefur vafalaust mikla hæfileika til söngstjórnar. Ef til vill hefur ein- hverjum þótt, sem söngskráin hefði mátt vera betur valin þegar til heildarinnar tekur. Yfir- leitt var söngurinn ágætur, mörg lögin falleg og vel með þau farið. Það vill um of brenna við að hinar bestu skemmtanir — svo sem ágætur söngur — séu ekki eins vel sóttar sem ýmsar lakari, er leitt til þess að vita. Styðjum öll að réttu mati og hollara í þessum efnum. Alíi-e<l An<lrésson skemmti hér í Bíóhöllinn laugard. 8. júlí, með aðstoð þeirra Jóns Aðils og Sigfúsar Hall- dórssonar. Húsið var nær þéttsetið. Skemmt- ’inin fer fram í útvarpsformi. Gengur allt svo eðlilega fyrir sig, að rafmagnið bilar meira að segja. Svo að biðja verður hlustendur að af- saka þetta hlé sem orðið hafi!!! Þulurinn (Jón Aðils) les fréttir og tilkynningar, en Alfreð les útvarpssöguna, flytur þáttinn um íslenskt mál og syngur smellnar gamanvísur með undirleik Sigfúsar. Það er ekkert hik eða fálm hjá Al- freð í þessum „kúnstum" þar er allt „öruggt og óskeikult". Það er veikur maður eða langt leiddur sem ekki hlær að honum a. m. k. einu sinni. Það er holt að hlæfija að græskulausu gamni, jafnvel þó vitleysa sé. H jartanlega jxakka ég öllum þeim, sem glöddu mig með heim- sóknum, gjöfum, blómum og skeytum á sjö- tugsafmæli mínu. Guð blessi ykkur öll. Sigríður Jónsdóttir, Gerði. Afniæli Ágúst Ásbjörnsson Sigurvöllum átti 60 áx’a af- mæli 2. ágúst s. 1. Frú Guðrún Stefánsdóttir Torfustöðum átti 80 ára afmæli 24. ágúst s. 1. Gunnlaugur Torfason Vegamótum átti 80 ára aírnæli 29. ágúst s. 1. Frú Þuríður Guðnadóttir ljósmóðir átti 40 ára afmæli 1. sept. s. 1.

x

Akranes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Akranes
https://timarit.is/publication/865

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.