Akranes - 01.06.1947, Blaðsíða 9
fædd í febrúar 1846. Þau áttu 2 dætur,
Kristínu. sem átti Þorstein Ólafsson, en
þau bjuggu á Krossi, Kjaransstöðum og
viðar. Kristín á nú heima i Akurprýði
hér i bæ.
Sigríður missti Eyjólf mann sinn eftir
skamma sambúð, en giftist aftur 21. des.
1884 Kristjáni Guðmundssyni. Kristján
var fæddur og upp alinn vestur í Dölum.
Fæddur 20. júlí 1853. Hann kvæntist
fyrir vestan konu þeirri er Elinborg hét,
Stefánsdóttir, 24. júli 1880, en missti hana
10. júlí 1882. (Elinborg þessi var systir
Ingibjargar, konu Sigurgeirs á Geirsstöð-
um, en Kristján og Sigurgeir voru bræð-
ur).
Þau Sigríður og Kristján bjuggju á Sól-
rnundarböfða, og áttu þessi börn: Guð-
mundur Sveinn, Elinborg, gift Júliusi
Ólafssyni, vélstjóra í Reykjavík, og Guð-
ný, saumakona i Reykjavík, ógift.
Kristján á Höfðanum var afburða dug-
legur maður og góður drengur, vel gefinn
og velviljaður. Hann þótti afbragðs sjó-
niaður og ágætur formaður. Átti og gerði
út skip frá Sólmundarhöfða, en stundaði
síðar mikið sjómennsku á skútum. Krist-
ján tók hér veigamikinn þátt í félagsstarfi,
bæði i Góðtemplarareglunni og síðar
Bárufélaginu. Stóð hann framarlega í
báðum þessum félögum sakir starfshæfni
smnar. Kristján var hið mesta karlmenni,
en geðgóður, léttlyndur og tiRögugóður í
hverju máli. 1 einu orði sagt góður dreng-
ur.
Kristján Guðmundsson á Höfðanum
fórst ásamt syni sínum á kútter Emilíu í
hina mikla mannskaðaveðri 7. apríl 1906.
Ekki varð langt á milli þeirra hjóna, Sig-
ríðar og Kristjáns, því hún andaðist á Sól-
mundarhöfða 24. janúar 1907. Sigríður
var góð kona og mikilhæf, sem sjá má af
eftirfarandi eftirmælum um hana.
Glaðlyndi lýsti
og göfugmennsku
svipur þinn
fyrir sjónum vorum.
Framkoma dagleg
djörf, en látlaus
vakti hjá mönnum
virðing þina.
Hagsýni, ráðdeild,
lijartagæzka,
þolgæði, traust
og tápmikill hugur
vér fundum að var
þitt föruneyti,
seni efldi þinn styrk
á ævibraut.
Þú stóðst sem bjarg
er bifast eigi
hörð þá að kom
hörmungafregn,
en lrjartanu blæddu
blóðug tár,
þá mann og son
þú misstir í einu.
A K R A N E S
Stríðið er endað, er nú rótt
þitt engilblíða hjarta,
þig hryggir engin hörmunganótt
í himinsalnum bjarta.
Andi þinn gleðst við unaðsstund,
og æðstu sælu nýtur
við ástvina þinna fagran fund,
sem framar aldrei þrýtur.
Dagsverk unnið þökkum þér
með þreki í friði og striði,
þin minning lieiðruð ætíð er
ættingja þinna prýði.
Hvíldu í friði, sofðu sætt,
sú er bótin meina,
þú gleymist ei, þvi mannorð mætt
er mannsins bautasteinar.
G. H.
Árið 1882 býr Árni bróðir Sigríðar líka
í Brekkubæ. 1885 býr þar Bjarni, bróðir
Þórðar á Vegamótum. Með honum bjó
fyrst hér, og svo í Ameriku, Guðrún syst-
ir Jóns Guðmundssonar í Garðhúsum. En
1886 kemur þangað sá maður, sem síðan
bjó þar lengi. Það var Þórður Jónsson,
gullsmiður. Hann var sonur Jóns Magn-
ússonar pósts og konu hans Þórunnar
Þórðardóttur. Kona Þórðar var Ingibjörg
Einarsdóttir, mydarleg og mikilhæf kona.
Þeirra börn eru Einar, úrsmiður í Hafnar-
firði, Þórunn, prestsekkja í Grindavík, og
Guðrún, ógift, rúmliggjandi á Hafnar-
fjarðarspítala í fleiri ár. Frá þeim hjón-
unrnn verður nánar sagt í öðrum þáttum.
Þórður byggði í Brekkubæ árið 1907
hús það, sem þar stendur enn. Þórður
Jónsson andaðist þar 22. apríl 1939, en
nokkru áður hafði hann eftirlátið stjúp-
syni sínum, Böðvari Jónssyni, ábúð á
Brekkubæ, eða haustið 1934. Böðvar var
sonur Ingibjargar af fyrra hjónabandi.
Hann hefur síðan búið í Brekkubæ ásamt
konu sinni, Guðrúnu J. Jóhannesdóttur,
ættaðri úr Eyjafirði. Þau eiga einn sin,
Ingva að nafni.
Böðvar er lærður skósmiður og stundar
þá iðn siðan hann kom hingað. Verður
nánar sagt frá honum í öðrum þætti.
Eins og áður er sagt, er Brekkubær
byggður úr Garðalandi, og hefur ævinlega
tilheyrt prestsetrinu. Þegar Garðarnir
voru á sínum tíma seldir hreppnum voru
þessar jarðir teknar undan við söluna:
Brekkubær, Presthús og Kalmannsvík.
Þegar prestseturshús var reist hér, var
það byggt í Brekkubæjarlandi, rétt ofan
við landamerkin milli Skagans og Garða.
Má því segja, að Brekkubær sé orðið raun-
verulegt prestsetur á Akranesi. Þar er nú
líka ákveðið að byggja hinn nýja bama-
skóla.
29. Götuhús.
Ekki er Götuhúsa getið fyrr en 1826. Þó
getur skeð að þar hafi verið byggt nokkr-
um árum fyrr. En þar býr þá þetta fólk:
Jón Þorláksson, húsbóndi, 31. árs, og Jó-
hanna Einarsdóttir kona hans, 36 ára. Þau
eiga þá einn son, Jón að nafni. Árið 1828
er þar þetta sama fólk. Árið 1833 býr þar
Magnús Jónsson, húsm., 57 ára, og Þurið-
ur Jónsdóttir kona hans, 58 ára. Hjá þeim
er Helga dóttir þeirra, þá 18 ára. Þetta
sama fólk er þar enn 1835.
Árið 1840 býr þetta fólk í Götuhúsum:
Árni Halldórsson, 58 ára, og Sigurborg
Guðmundsdóttir kona hans, 40 ára. Þeirra
börn eru þá: Sigurður, 12 ára, Halldór, 11
ára, og Árni, 7 ára. Árið 1850 býr þar
Guðmundur Pálsson, 51 árs, og Guðborg
Helgadóttir kona hans, 45 ára. Þeirra
börn eru þá: Guðrún, 10 ára, og Margrét,
3. ára. Árið 1862 er þar Jón Guðlaugsson
og Margrét Magnúsdóttir. IJau bjuggu
síðan í Götuhúsum meðan Jón lifði, en
hann druknaði 27. febrúar 1879. Þau
byggðu fyrst og bjuggu á Traðarbakka og
verður nánar getið þar.
Árið 1862 og lengst af úr því, eru tveir
bæir í Götuhúsum og tvíbýli. Eystri og
vestri bær. Árið 1865 var í öðrum bænum
Guðmundur Ólafsson húsm., 36 ára, og
Guðrún Jónsdóttir kona hans, 42 ára. Þá
voru hjá þeim þessi börn þeirra: Jón, 6
ára, Jónas, 5 ára, og Guðni, 1 árs. En allir
þessir drengir koma hér nokkuð við sögu
síðar: Jón skósmiður á Smiðjuvöllum og
Laufási, Jónas, síðar á Hól, og Guðni, síðar
í Guðnabæ, Bræðraborg og Götuhúsum.
Árið 1879 kemur þangað Guðmundur
Ólafsson, þá 46 ára, og Ragnheiður Bjarna-
dóttir kona hans, 41 árs. Þau komu frá
Kjaransstöðum, þar sem þau höfðu verið
í húsmennsku hjá Ólafi, bróður Guð-
mundar, — en sá Ólafur var afi Ólafs
Kristniboða. — Þeir bræður munu hafa
verið ættaðir af Hvalfjarðarströndinni.
Ragnheiður var dóttir Bjarna Einarssonar,
skipasmiðsi í Straumfirði, og þannig systir
Guðnýjar móður Halldórs, skipstjóra, í
Háteigi, og þeirra mörgu systkina. Börn
þeirra Guðmundar og Ragnheiðar voru
þessi:
1. Bjarni, f. 1865, druknaði 14. apríl
1912, ógiftur og barnlaus.
2. Jódis, f. 1866, dó ung.
3. Árni, f. 1867, d. 1885.
4. Kristinn, f. 1868, dó ungur.
5. Jódís önnur, f. 1871, ógift vinnukona
á Arnbjargarlæk.
6. Magnús, f. 1874, dó ungur.
7. Margrét, f. 9. nóv. 1877, á heirna í
Reykjavik. Hennar dóttir, Hrefna Hall-
dórsdóttir Oddsonar, búsett í Hafnarfirði.
8. Kristinn annar, f. 1879, druknaði 5.
maí 1894.
9. Arnheiður Guðrún, f. 9. nóv. 1884,
átti 31. des. 1907 Ólaf Stefánsson frá
Skarði í Leirársveit; þau búa í Bx-autar-
holti hér, og verður þar nánar getið síðar.
Guðmundur Ólafsson var fæddur 1832,
dáinn 28. okt. 1907. Ragnheiður var fædd
24. apríl 1838, dáin 28. júlí 1918.
Framhald.
69