Dagblaðið Vísir - DV - 02.04.2004, Side 16
16 FÖSTUDAGUR 2. APRÍL 2004
Sport DV
Ralf ekki bú-
inn að semja
viðToyota
Ralf Schumacher gerði
sitt besta í gær til þess að
draga úr sögusögnum þess
efnis að hann væri búinn
að semja við Toyota-liðið í
Formúlu 1 kappakstrinum.
„Það verður ekki tekin
ákvörðun um málið eftir
keppnina í Bahrain," sagði •
Ralf. „Mér liggur ekkert á að
ganga frá mfnum málum.“
Aðstandendur Williams-
liðsins, sem Ralf keppir
fyrir, eru víst æfir af reiði og
telja að hann sé að fara á
bak við sig með því að ræða
við Toyota. Þeir munu
funda með honum um
málið eftir helgi.
Job ræðir
við Boro
Framherjinn Joseph
Desire Job er í við-
ræðum við Middles-
borough um nýjan
samning. Job, sem er 26
ára, er samningslaus. í
sumar en hann skoraði
sigurmarkið í úrslitum
deildarbikarsins. FJann
segist vera mjög
ánægður með Steve
McClaren, stjóra
liðsins, og vill taka þátt
í uppbyggingunni
næstu árin.
Cole á leið
til Fulham?
Andy Cole hefur ekki
ákveðið hvort hann vilji
leika með Blackburn á
næstu leiktíð. Fiann er í
stríði við stjórann, Graeme
Souness, sem er ekki til
þess fallið að hann vilji vera
áfram hjá félaginu. Fulham
er sterklega orðað við Cole
þessa dagana en þeir leita
enn að arftaka fyrir Louis
Saha.
Davies eitt
áríviðbót
Kevin Davies hefur
verið verðlaunaður fyrir
vasklega framgöngu
með Bolton í vetur með
nýjum eins árs sam-
ningi. Davies fékk óvænt
samning hjá Bolton
síðasta sumar og hann
hefur staðið sig vonum
framar. Hann hefur
byrjað inn á í öllum
leikjum liðsins í
deildinni og skorað sex
mörk. Sam Allardyce
sagðist hafa verið búinn
að ákveða fyrir löngu að
bjóða Davies nýjan
samning.
ítalski knattspyrnumaðurinn Roberto Baggio er að spila sitt síðasta tímabil en
þessi goðsögn ítalskrar knattspyrnu varð á dögunum fimmti leikmaðurinn til að
skora 200 mörk í efstu deild á Ítalíu.
Sýndu öll 200 mörkin
honum til heiðurs
ítalska þjóðin fylgist vel með hverju spori knattspyrnumannsins
Roberto Baggio þessa dagana, enda er þessi frábæri knatt-
spyrnumaður að fara setja punkt á bak við stórbrotinn feril sinn,
sem hefur skipað honum stóran sess í sögu ítölsku knattspyrn-
unnar. Hann hefur alltaf verið á leiðinni að hætta en nú hefur
hann gefiö það formlega út.
„Það er alveg öruggt að ég er að
hætta," segir hinn 36 ára Roberto
Baggio sem er einn virtasti knatt-
spyrnumaður okkar tíma og einn
vinsælasti knattspyrnumaður ftala
fýrr og síðar. „Knattspyrnan er og
hefur verið mesta ástríða mrn í lífinu
en ég efast um að það endist mikið
lengur,". segir Baggio sem spilar
þessa dagana með liði Brescia. Þrátt
fyrir að þessi formlega tilkynning
hans hafi ekki komið á óvart er þetta
í fýrsta sinn sem hann gefur það út
að hann sé 100% ákveðinn í að
hætta.
Það hefur síðustu árin verið
stefna Baggio að komast í 200 marka
klúbbinn og það tókst á dögunum.
Um síðustu helgi náði hann síðan
tvennu gegn Ancona sem þýðir að
hann hefur skorað 202 mörk í A-
deildinni á Ítalíu. .
Vinsældir Roberto Baggio hafa
aldrei dvínað þótt hann leiki ekki
lengur með einu af stærstu liðum
Ítalíu eða landsliðinu en Baggio spil-
aði sinn síðasta landsleik 31. mars
1999. Það er gott dæmi um hversu
stór hluti Roberto Baggio er af
ítölsku þjóðarsálinni að allra helstu
sjónvarpstöðvar landsins sýndu aft-
ur og aftur öll mörkin 200 sem hann
hafði skorað í ítölsku A-deildinni á
árunum 1985 til 2004. í öllum könn-
unum er Baggio líka enn sá vinsæld-
asti þótt hann hafi ekki farið mikinn
á alþjóðlegum vettvangi á síðustu
árum.
„Þegar ég loka augunum og
hugsa til baka minnist ég margra
góðra hluta á mínum ferli en nú er
ég hættur að dreyma," segir Baggio í
viðtali við ítalska ríkissjónvarpið og
það á einnig við um svartasta daginn
á hans ferli þegar hann klikkaði á víti
í vítakeppninni í úrslitaleik heims-
meistarakeppninnar í Bandarrkjun-
um árið 1994.
Hetjan varð að skúrki
„Ég geymdi þá minningu inn í
mér í fjögur ár eða allt þar til að
næsta heimsmeistarakeppni fór
fram," sagði Baggio um umrædda
vítaspyrnu sem breytti honum úr
hetju í skúrk á einu augabragði.
„Það sem færir mér mesta gleði af
afrekum mínum sem knattspyrnu-
maður er að geta sagt að ég hafi ver-
ið góð fyrirmynd fýrir börnin," segir
Baggio, sem er strangtrúaður búdd-
isti sem þykir sérstakt í hinni róm-
versk-kaþólsku Ítalíu. Hann hefur
alltaf þótt ljóðrænn og sérstakur í
svörum og sem dæmi um það er
sjálfsævisagan uppfull af dulúð og
ljóðrænum innlifimum kappans.
Baggio ber ‘ líka viðurnefnið
„Guðdómlega taglið" á ítah'u þökk
sé hinu sérstaka tagli sem hann hef-
ur ávallt verið með og þeirri ímynd
sem hann býr yfir í huga ítölsku
þjóðarinnar.
Byrjaði í Flórens
Roberto Baggio byrjaði atvinnu-
mannsferil sinn með Fiorentina árið
1985 þar sem hann vakti strax mikla
athygli og var á endanum seldur til
Juventus fimm árum síðar. Baggio
vakti heimsathygli þegar hann neit-
aði að taka vítaspyrnu í fyrsta leikn-
um sem hann spilaði með Juventus
á gamla heimavelli sínum í Flórens.
Baggio vann þó ekki ítalska meist-
aratitilinn með Juve fyrr en 1995 en
seinna um sumarið var hann svo
seldur til AC Milan þar sem hann
varð ítalskur meistari á sínu fýrsta
ári.
Flestir töldu ferilinn búinn
Á næstu árum flakkaði Baggio
mikið á milli, hann spilaði eitt ár
hjá Bologna, fór svo til Inter Milan
þar sem honum gekk illa að fóta sig
innan vallar sem utan. Þegar
Baggio fór að lokum frá Inter til
Brescia töldu flestir að ferill hans
væri búinn enda vildi ekkert stóru
liðanna fá Baggio í sitt lið. Baggio
sýndi þó ekki fjölmörgum tilboð-
um erlendra liða áhuga því hann
vildi spila allan sinn feril á Ítalíu og
fór því til litla liðsins Brescia þar
sem hann hefur nú spilað í þrjú
tímabil.
Baggio hefur ekki spilað lands-
leik í fimm ár en á sínum tíma skor-
aði hann 27 mörk í 55 landsleikj-
um. Landsliðsþjálfari ítala,
Giovanni Trapattoni, þótti ekki
gera góða hluti þegar hann valdi
ekki Baggio í HM-hópinn 2002 en
hann ætíar sér að leyfa Baggio að
spila sérstakan kveðjulandsleik
þegar ítalir mæta Spánverjum 28.
apríl í Genúa. „Það yrði yndislegt,"
sagði Baggio um boð Trapattoni
sem skilur sáttur við
knattspyrnuna sem hefur átt hug
hans allan svo lengi.
ooj@dv.is
„Knattspyman er og hefur veríð mesta ástríða
mín í lífínu en ég efast um að það endist mikið
lengur."
Snillingur með knöttinn Roberto Baggio sést hér i ieik með Brescia gegn Lazio íitölsku A-deildinni. Til varnar er Jaap Stam.
Reuters