Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRlL 2004
Fréttir DV
Brotist inn í
20 biía
Um helgina var tilkynnt
um 20 innbrot eða tilraunir
til innbrota í bifreiðar til
lögreglunnar í Reykjavík.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni tókst þjófunum
ekki ætlunarverk sitt í öllum
tilvikum. Bíltæki, fatnaður
og geisladiskar virðast
ffeista þjófanna mest en
einnig var nokkuð um að
skemmdarverk væru unnin
á bifreiðum.
Haglabyssa í
hrakningum
Um helgina kom mað-
ur inn á lögreglustöðina í
Reykjavík með hagla-
byssu í fórum sínum. Að
sögn lögreglu hafði mað-
urinn verið beðinn um að
geyma gripinn fyrir kunn-
ingja sinn fyrir nokkrum
árum. Hann kvaðst hafa
gert nokkrar tilraunir til
að skila byssunni til eig-
andans en án árangurs og
því ákveðið að koma
byssunni til lögregu. Lög-
reglan segir að nokkuð
hafi verið um að fólk skili
byssum til hennar þar
sem það treysti sér ekki til
að hafa þær á heimilum
sínum.
Er vorið komið?
Þóranna Pálsdóttir veðurfræö-
ingur áVeðurstofu íslands
„Vorið er komið í bili, en aldrei
að vita hvað gerist síðar i vor.
Það er kólnandi núna í augna-
blikinu, en virðist vera nokkuð
gott fram undan. Ekkert hret er
sjáanlegt, heldur bara ágætis-
veður. Það verður svalt í dag
og nótt. Svo verður vætusamt
og skýjað á Suðvesturlandi, en
fremur hlýtt. En það er aldrei
að vita hvað veðrið gerir. Núna
eru hins vegar komin tvö ár í
röð með alla mánuðiyfir
meðallagi í hita."
Hann segir / Hún segir
„Ég hefþegar boðað að vorið
sé komið. Það er auðvitað
alltaf smekksatriði við hvað
menn miða þegar spurt er
hvort vorið sé komiö. Sumir
miða við lóuna, aðrir við lund-
ann og ég miða við það þegar
menn geta byrjað að klóra í
görðunum sínum. Þegar ég
horfi heildræntyfir veðurlag
næstu vikna er ég sannfærður
um að veðurfariö muni styðja
við þetta líka. Við erum í
smákuldakasti núna og meg-
um ekki ruglast á því, en eftir
það er hlýnandi veður og
mildir páskar, en frekarþung-
búiðyfir."
Sigurður Þ. Ragnarsson
jarð- og veðurfræðingur
Stefán Logi Sívarsson, síbrotamaður frá Skeljagranda, stórslasaði 16 ára dreng sem
vildi kaupa hjá honum kókaín. Hann losnaði úr fangelsi í nóvember eftir að hafa
fengið tveggja ára dóm fyrir að höfuðkúpubrjóta mann á heimili sínu. Stefán á að
baki fjölda tilefnislausra líkamsárása.
Bræðurnir frá Skeljagranda Stefán Logi Sivarsson og
bróðir hans börðu mann nærri til ólifis i ágúst 2002. i
nóvember siðastHðnum slapp Stefán Logi úr fangelsi
eftir aðhafa afplánað tvo þriðju af tveggja ára fangelsi.
Skeljagrandabroðir
stórslasaði ungling
Stefán Logi Sívarsson, annar síbrotabræðranna frá Skelja-
granda, barði 16 ára gamlan pilt með þeim afleiðingum að hann
var hætt kominn á laugardaginn. Miltað í drengnum sprakk og
hann hlaut innvortis blæðingar, eftir heimsókn hjá Stefáni Loga.
Móðir drengsins segir það hafa
verið áfall að frétta af árásinni.
„Hann er svona hægt og sígandi að
ná sér. Hann verður að liggja algjör-
lega kyrr í 10 daga. Hann er mjög
kvalinn, enda sprakk miltað í hon-
um,“ segir hún.
Móðirin kveðst ekki hafa vitað til
þess að drengurinn væri í nokkru
vinfengi við Stefán Loga. „Ég vissi
bara að hann [Stefán] hefði verið
brunandi um allan bæ bjóðandi
kókaín. Ég held að sonur minn hafi
farið þangað til að spyrja hann og
hann bara rændi hann og barði,"
segir hún.
Stefán Logi slapp úr fangelsi fyrir
aðra stórbrotna líkamsárás i nóvem-
ber síðastliðnum. Hann hafði þá af-
plánað tvo þriðju Kluta tveggja ára
refsidóms. Stefán Lógi og bróðir
hans, Kristján Markús Sívarsson,
hlutu dóm í maí í fyrra fyrir að höf-
uðkúpubrjóta tvítugan mann á
heimili sínu þannig að hann var nær
dauða en lífi. Þeir báru manninn að
„Ég held að sonur
minn hafi farið þang-
að til að spyrja hann
og hann bara rændi
hann og barði"
göngustíg og reyndu að fela hann
nærri Skeljagranda, þar sem þeir
töldu hann látinn. Bræðurnir hafa
stundað afbrot frá blautu barns-
beini, en þeir eru synir síbrota-
mannsins Sívars Sturlu Bragasonar
sem hlotið hefur á annan tug refsi-
dóma. Þegar þeir voru 11 og 12 ára
gamlir gengu þeir í skrokk á ungri
móður um miðjan dag á Eiðistorgi.
Móðirin vildi vernda börn sín frá
bræðrunum, en þeir höfðu þá stolið
peningum frá börnum sem héldu
tombólu og hrækt ítrekað á
tombóluborðið.
Árið 1997, þegar Stefán Logi var
16 ára, réðst hann á starfsmann
Rauða ljónsins á Eiðistorgí sem var
að loka staðnum, kýldi hann ítrekað
og stal GSM-síma hans. Þeir réðust
saman á mann á sextugsaldri við
áramótabrennu á Ægisíðu 1998,
frömdu saman sex innbrot og gengu
saman í skrokk á manni í Hveragerði
23. aprfl 1998. Þá kýldi Stefán Logi
mann á fimmtugsaldri við meðferð-
arstofnunina Vog og braut í honum
gervitönn.
jontrausti@dv.is
Vill komast í Heimsmetabók Guinness
Blindur í kollhnís í Smáralind
Bergvin Oddsson ætlar að reyna
að komast í Heimsmetabók
Guinnes með því að velta sér í koll-
hnís í Smáralind á skírdag. Bergvin
er 18 ára og hefur verið blindur í
þrjú ár:
„Ég fékk herpes-vírus í augun
sem lagðist á augnbotnana og eftir
það varð ég blindur. Þetta hefði get-
að komið fyrir alla; hrein tilviljun,"
segir Bergvin, sem sér þó eilítið ljós
þegar hann beitir augunum rétt. En
kollhnísarnir í Smáralind eiga nú
hug hans allan:
„Ég er ekki að þessu til að safna
fé fyrir góð málefni. Þetta er bara
hugmynd sem við félagarnir feng-
um og ætlum að láta verða að veru-
leika. Við erum búnir að fara yfir
skrárnar í Heimsmetabók Guinness
og sjáum ekki að heimsmet í koll-
hnísum sé til. Alla vega ekki hjá
blindum," segir Bergvin, sem ætlar
að rúlla sér í hringi Smáralind ásamt
félaga sínum Matthíasi Braga Sig-
Bergvin Oddsson Fyrsta blinda mann-
eskjan sem reynir að slá heimsmet i kollhnis-
um.
urðssyni. Þeir bjóða alla velkomna
til að fylgjast með:
„Maður vill alltaf vera að gera
eitthvað nýtt og ekki skrýtið því eft-
ir að ég varð blindur er ég stöðugt
að þjálfa mig við nýjar aðstæður.
Allt er breytt og ég verð að aðlagast
áður óþekktu umhverfi. Þetta eru
endalausar æfingar og því ágætt að
hvfla sig á verkefni eins og þessu -
að velta sér í kollhnís í Smáralind,"
segir Bergvin.
Tólf fíkniefnabrot komu til kasta Reykja-
víkurlögreglunnar um helgina.
Hentu dópi út um
glugga bifreiðar
Tólf fflcniefnabrot
komu til kasta lögregl-
unnar í Reykjavík um
helgina. í flestum tflvik-
um var ekki um mikið
magn fíkniefna að ræða.
Meðal þeirra mála sem
komu upp má nefna að
snemma á laugardags-
morgun var bifreið veitt
eftirför í Vesturbænum
en ökumaður neitaði að
stöðva. Eftir nokkurn eltingarleik
stöðvaði hann þó bifreiðina og lagði
á flótta á hlaupum. Hann fannst þó
skömmu síðar í húsagarði nærliggj-
andi húss. Ökumaður er grunaður
um ölvun við akstur en auk þess
fundust á honum fíkni-
efni.
Rétt eftir miðnætti á
sunnudag fór lögregla í
íbúð í miðborginni eftir
ábendingar um að þar
væru seld fflcniefni. í
íbúðinni fundust
kannabisefiii og tæki tfl
neyslu. Stuttu seinna
var bifreið stöðvuð í
Breiðholti. Þegar menn
urðu lögreglu varir reyndu þeir að
losa sig við fflcniefni út um glugga
bOreiðarinnar. Lögreglan náði þó
fíkniefnunum og við nánari rann-
sókn fundust á mönnunum fölsuð
skOrfki.
Dóp Mikið var um eiturlyfl
Reykjavik um helgina.