Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 Fréttir DV Varðskip tók togara Varðskip stóð togara að meintum ólöglegum veið- um í gær og vísaði skipinu til hafnar. Löggæslumenn á varðskipinu mældu möskvastærð poka botn- vörpu togarans og reyndust möskvarnir of þéttriðnir. Togarinn var að karfaveið- um með fiskibotnvörpu. Sýslumaðurinn á Seyðis- firði hefur málið til rann- sóknar. Kosningar boðaðará Haítí Þingkosningar verða haldnar á Haítí á næsta ári eftir því sem Gerard Latortue for- sætisráðherra landsins sagði á blaða- mannafundi í gær. Eins og kunnugt er var ástandið á Haítí í uppnámi fyrri hluta þessa árs vegna uppreisnar sem endaði með því að forseti landsins flúði land. Nú hafa stjórn- málaflokkar og fulltrúar fé- lagasamtaka komist að nið- urstöðu um að halda kosn- ingar á næsta ári. Átak gegn hryðjuverkum Yfirmaður lögreglunnar f New York segir að nú sé verið að undirbúa átak til að verja járnbrautir og strætisvagna borg- arinnar fyrir árás- um hryðjuverka- manna. Þegar átakið verður kom- ið á fullt verða alls um 2.800 lögreglumenn í eftirliti samgöngutækja og verður aðallega fylgst með neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar. Þá verða skyndikannanir gerðar í lestum og á lestarstöðvum. Einnig verða símalínur opnaðar þar sem glöggir farþegar geta tilkynnt grunsamlegt athæfi. Jóhannesdóttir „Þaö liggur á að breyta ákvæði skaðabótalaga þar sem kveðið ernúá um fáránlega útreikni- reglu sem stórlega skerðir dán- arbætur fyrir missi fullfrísks framfær- Hvað liggur á? anda/'segir Ásta R.Jóhannesdóttir þing- maður, sem vill breyta skaða- bótalögum og hefurlagt fram þingsályktunartillögu í þvl skyni.,,1 tilfellum þarsem fram- færandi deyr í vinnuslysi gerir reglan ráð fyrir að draga frá bótum greiðslursem hann hefði fengið sem 100% öryrki hefði viðkomandi lifað. Þetta er stórgallað kerfisem þarfað breyta sem allra fyrst, svo fólk llði ekki fyrir svona lagasetn- ingu." Mikill urgur er vegna úrslitanna í Gettu betur, spurningakeppni framhaldsskól- anna, en mörgum sýnist sem Stefán Pálsson dómari hafi ekki gætt nægrar ná- kvæmni. Niðurstaðan var sú að í raun voru tvö stig höfð af Borghyltingum sem máttu bíta í það súra epli að sjá á eftir „hljóðnemanum“ í hendur Versló. Hefðbundinn Gettu betur skandall Stefán Pálsson Heldur uppi harðri málsvörn og þykirþetta mál með fiðluna leiðinlegt gagnvart þeim sem unnu i keppninni. Verið sé að varpa rýrð á þeirra sigur. „Þetta er vitlaust. Auðvitað er rétta svarið fiðla. Konsertmeistari leikur á fiðlu. Það er ekki til neitt hljóðfæri sem heitir 1. fiðla," segir Sigrún Eðvaldsdóttir en hún er konsertmeistari Sinfóníu- hljómsveitar íslands ásamt Guðnýju Guðmundsdóttur. Borghyltingar Sjálfir liðsmennirnir eru furðurólegir þó vissulega sé þetta svekkjandi. En þeir gera ekki ráð fyrir aðgripið verði til aðgerða. Lið Verzlunarskóla fslands Þeim ernú legið á hálsi að hafa unnið Gettu betur ómaklega. Símalínur í Borgarholtsskóla hafa verið rauðglóandi og fólk hefur komið þar á framfæri ábendingum þess efn- is að höfð hafi verið stig af skólanum í úrslitaviðureigninni í Gettu betur - spumingakeppni framhaldsskólanna. Þar áttust við í æsispennandi viður- eign BorgarholtsskóÚ og Verzlunar- skóli íslands. Spurt var um hljóðfæri það sem konsertmeistari í sinfómu- hljómsveit léki á og sögðu Borghylt- ingar fiðla. Svarið sem dómari var að fiska eftir var 1. fiðla og fengu þeir því ekki stigið sem þá svo sárlega vantaði því Versló náði að merja leikinn í bráðabana og sigmðu svo þar. Fólk sem ekkert veit um klassík „Þetta er náttúrlega bara brand- ari,“ segir Sigrún en sjálf var hún um hríð í Fjölbraut í Garðabæ áður en hún flaug utan til náms. Hún á því ekki hagsmuna að gæta í þeim skifn- ingi. „Ég skil misskilninginn þegar fólk veit ekkert um klassíska tónlist." Önn- ur ábending varðar spumingu um hvar Sing Sing-fangelsi sé. Verslunar- skólinn svaraði í New York en réttara er að segja fangelsið fræga í New York- fylki því ekki er það í borginni sjálfri. MikiU hiti er vegna málsins og Gunn- laugur B. Ólafsson raungreinakennari við Borgarholtsskóla staðfestir það og spyr: „Þarna em tvö atriði sem gefa tvö stig og dómari meðhöndlar það á umdeilanlegan hátt. Annað má segja að Versló fái stig fyrir vitlausa spirni- ingu, en í hinu tilfellinu fær Borgar- holtsskóli ekki stig fyrir rétt svar. Nú spyr maður sig: Er keppnin ekki farin að skipta skólana það miklu máli með öllu því tilstandi og undirbúningi sem þarf til, þannig að úrslitin megi ekki ráðast af röngum forsendum eða spumingum?" Úrskurðarvald dómara endan- legt Aðstoðarskólameistari Borgar- holtsskóla er Bryndís Sigurjónsdóttir: „Það hefúr verið gríðarlega mikið í okkur hringt vegna þess. Ég þori ekki að segja til um hvort við grípum til einhverra aðgerða eða förum í kæm- mál. Varla og í það minnsta ekki fyrr en alveg er fyrirliggjandi að þama hafi verið farið rangt með.“ Bryndís segir að afar erfitt hafi verið að meta þetta í hita leiksins. Ilún hefur sett sig í samband viðRÚV „Fastneglt er fyrír- fram hvaða svör menn vilja fá fram. Og ræðurþarengu hvort umer að ræða litla krúttlega liðið eða stóri Ijóti mamm- onsskólinn og rætt málið við Andrés Indriðason sem ffamleiðir þættina. „Mörgum finnst þetta ekki rétt. Og ef þeir hefðu fengið rétt fyrir þessa fiðluspumingu hefði ekki komið til bráðabana og þeir unnið. Mér sýnist þama vera um óná- kvæmni að ræða. En þetta er náttúr- lega leikur og þetta er búið,“ segir Bryndís og veit vart í hvom fótinn hún á að stíga. Telur ólíklegt þó að gripið verði til sérstakra aðgerða vegna þessa. Andrés Indriðason vísar málinu hins vegar alfarið til dómarans og spumingahöfundarins Stefáns Páls- sonar. „Já, við Bryndís áttum saman, afskaplega ánægjulegt spjall," segir Andrés. „Hún sagði mér að nokkrir hefðu haft samband vegna þessa. En úrskurðarvald dómara er endanlegt. Stefán dæmir þetta svona og þá skal það rétt vera. Þeim dómi verður ekki haggað eftir á.“ Nemendur svekktir en rólegir Nemendur Borgarholtsskóla em furðulega rólegir vegna þessa máls. Valgeir Ragnarsson heitir formaður nemendafélagsins og hann segir fé- lagið sem slíkt ekkert ætla að aðhafast í þessum máli. „Þetta var auðvitað mjög sárt. En svona er þetta. Við nennum ekki að standa í þessu." Og í sama streng tekur fyrirliðinn Steinþór Amsteins- son. „Keppnin er búin. Þetta er bara leikur. Dómarar gera mistök. Ég kýs frekar að svekkja mig á spum- ing- um sem ég svaraði vitíaust en átti að vita svarið við." Steinþór bendir þó á að svekkjandi hafi verið að þetta skyldi vera í beinni útsendingu þannig að ekki var hægt að ganga úr skugga um að þetta stæðist. Hann bendir á atvik sem átti sér stað í viðureign MR og MH. Sá þáttur var tekinn upp fyrir- fram og þá var einfaldlega keppnin stöðvuð og gengið úr skugga um hið rétta." Þá var einmitt spurt út í hljóð- færi þannig að ekki virðist Stefán Páls- son vera á heimavelli þegar þau em annars vegar. Málsvörn dómarans „Merkilegt að fólk haldi það að ég telji að til séu tvö aðskilin hljóðfæri sem heita 1. fiðla og 2. fiðla," segir Stefán Pálsson dómari og spuminga- höfundur. Hann segir algerlega fyrir- liggjandi að verið var að fiska eftir stöðunni sem konsertmeistari gegnir en ekki verið að spyrja út í hljóðfærið sem slíkt. Stefán segir að ekki þurfi annað en fara á heimasíðu Sinfómu- ltíjómsveitar íslands og þar komi hin skýra goggunarröð vel ffam. Þetta sé spurning um virðingarstöðuna 1. fiðlu. Spumingin var að sögn Stefáns svohljóðandi: „Hvaða hljóðfæraleik- ari í Sinfóníuhljómsveit nefriist konsertmeistari?“ Stefán segir þetta nánast árvissan viðburð að allt fari í háaloft vegna spumingakeppninnar. „Regla frekar en undantekning að menn rjúki upp eftir keppnina. Að hluta til er það vegna þess að fólk hefur gaman af því að vera klókari en dómarinn. Liðin em oft spakari. Mér finnst þetta leið- inlegt gagnvart þeim sem vinna í keppninni. Verið að varpa rýrð á þeirra sigur. Og frekar þykir mér þetta furðulegt mál með þessa blessuðu fiðlu,“ segir Stefán full- viss um að Sinfóníufólkið sem ólmast láti prívatafstöðu stjórna geði sínu. Krúttlega liðið gegn stóra Ijóta mammonsskólanum „011 þjóðin, utan þeirra sem tengj- ast Verzlunarskólanum, hélt með Borgarholtsskóla," segir Stefán og Steinþór Arnsteinsson Segir verst að þetta hafi verið I beinni útsendingu og ekki hægt að ganga úrskugga um hvers lags var. „En þetta er búið. Þetta er bara leikur." nefnir að þeir Borghyltingar hafi verið ákaflega viðkunnalegir drengir. „Auð- vitað má dómari ekki halda með neinu liði en það má alveg koma fram að Versló hefur aldrei verið uppá- haldsskólinn minn. Fastneglt er fýiir- fram hvaða svör menn vilja fá fram. Og ræður þar engu hvort um er að ræða litía krúttíega liðið eða stóri ljótí mammonsskólinn. “ Stefán játar að nokkuð klúður liggi í spumingunni um Sing Sing og borg- ina sem það ffæga fangelsi er í. „En það er nú eins og með frelsisstyttuna og sem í raun er ekld í New York held- ur New Jersey. Sem sagt ekki í borg- inni sjálfri. En það er rétt, þetta er ónákvæmni. Óhjákvæmilega slæðast inn smávillur og ónákvæmni þó margir lesi yfir." Stefán segir úrslitin standa. „Ég játa að í sumum fyrri umferðum gerði ég mistök sem ekki skiptu máli hvað úrslitin varðar. Og ég hef ekki orðið var við annað en þetta hafi mælst vel fyrir. Nú er ég að fara að fá mér kaffi eða bjór með Borgarholtsskólaliðinu á eftir og gef meira fyrir álit þeirra en annarra. Og þeir em rólegir. Það er aðalmálið. Verslingamir unnu þetta vegna þess að þeir vom aggressívari. Borgarhyltingar eiga þess kost að verða með óbreytt lið að ári og ættu að beina kröftunum að þeirri keppni." jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.