Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Síða 10
7 0 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004
Fréttir DV
Þekktu þjóf-
inn þremur
vikum síðar
Um helgina var upplýst-
ur þjófnaður á sígarettum í
matvöruverslun í austur-
borginni frá því fyrir þrem-
ur vikum síðan. Þá var
kassa af sígarettulengjum
stolið úr versluninni. Ör-
yggismyndavél náði mynd-
um af þjófnum og er hann
mætti sl. föstudag til að
kaupa í matinn þekkti
starfsfólk verslunarinnar
hann. Lét það lögregluna
vita að gaurinn var mættur
aftur. Fékk þjófurinn svo
far upp á lögreglustöð þar
sem hann játaði brot sitt.
Guðrún Ögmundsdóttir lagði fram fyrirspurn um fjölda tilkynninga til barna-
verndarnefnda landsins. Félagsmálaráðherra, Árni Magnússon, svaraði því til að
4.665 tilkynningar hefðu borist 2002. Guðrún segir það benda til að íslensk yfirvöld
standi sig þokkalega á vaktinni.
Guðrún Ögmundsdóttir „Ég kýsa að lita jákvæðum
augum á þessar tölur og þá aukningu tilkynninga
sem eg hygg ad sé að eiga sér stað, þvi mér sýnist
fólk vera meira vakandi en áður og þá er frekar
hægt að hjálpa börnunum fyrr," segir Guðrún.
Baðkari stolið
Töluvert var um innbrot
á höfuðborgarsvæðinu um
helgina. Meðal þeirra inn-
brota sem til-
kynnt voru til
lögreglu má
nefna að úr ný-
byggingu í Graf-
arvogi var stolið
baðkari, veltisög og fleiru.
Þá fór bíræfinn þjófur inn í
skrifstofuhúsnæði í austur-
borginni og stal þaðan far-
tölvu, farsímum og fleiru
eftir að starfsfólkið hafði
brugðið sér frá til að borða
hádegismat sinn.
forstjóri Landsvirkjunar
Þykir lipur í samskiptum og
góður diplómat. Þá er hann
einnig Ijallmyndarlegur og
gat sótt töluvert fylgi meöal
sjálfstæðiskvenna sökum
þessa. Raunar gátu margar
þeirra vart haldið vatni af
hrifningu yfir honum. Hann á
einnig gott með að koma fyrir
sig orði í ræðu og riti.
mál á dag
Á árinu 2002 bárust barnaverndarnefndum landsins alls 4.665
tilkynningar um slæman eða ónógan aðbúnað barna en það
samsvarar tæplega 13 tilkynningum hvern einasta dag ársins.
4.655 tilkynningar til barnaverndarnefnda Þetta kom fram i svari sem félagsmálaráð-
herra lagði fram ígær við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur Samfylkingu um barnavernd.
Þetta kom fram í svari sem félags-
málaráðherra lagði fram í gær við
fyrirspurn Guðrúnar ögmundsdótt-
ur Samfylkingu um barnavernd. „Ég
kýs að líta jákvæðum augum á þess-
ar tölur og þá aukningu tilkynninga
sem ég hygg að sé að eiga sér stað,
því mér sýnist fólk vera meira vak-
andi en áður og þá er frekar hægt að
hjálpa börnunum fyrr," segir Guð-
rún um svörin.
Flest tilvikin smávægileg
Guðrún segist telja að enn skorti
nokkuð á að leikskólarnir tilkynni til
barnaverndamefnda, enda mikil-
vægt að sem fyrst sé gripið inn í
slæman eða ónógan aðbúnað
barna. „Að öðru leyti sýnist mér að
við séum að standa okkur þokkalega
á vaktinni."
Árni Vigfússon í forvarnadeild
lögreglunnar í Reykjavík segir að töl-
urnar séu alis ekki dl marks um eitt-
hvað ófremdarástand. „Það verður
að hafa í huga að okkur ber skylda til
að dlkynna bæði stórt og smátt til
barnaverndarnefnda og því em inni
í þessum tölum t.d. tilkynningar
vegna barna sem brotið hafa útivist-
artíma eða tekið sælgæti óffjálsri
hendi úr sjoppu. í lunganu af þess-
um málum er um smávægileg atvik
að ræða þar sem aðgerðir barna-
verndaryfirvalda eru ólíklegar. Ég
hef ekki gögnin tiltæk en mín tilfinn-
ing er sú að alvarlegri tilvikum fari
ekki fjölgandi. Það hefur að minnsta
kosd ekki verið umræða um slíka
þróun," segirÁrni.
Fimmta hvert barn spurt
Fái barnaverndarnefhd rök-
studdan grun um að lfkamlegri eða
andlegri heilsu barns eða þroska ged
verið hætta búin sökum ffamferðis,
vanrækslu eða vanhæfni foreldra
eða að barn stefni heilsu sinni eða
þroska í hættu með hegðun sinni, er
nefndinni skylt að kanna málið án
tafar.
Nefndin skal hafa það að mark-
miði að afla sem gleggstra upplýs-
inga um hagi barns sem í hlut á og
getur í því skyni leitað aðstoðar sér-
fræðinga. Foreldrum er gerð grein
fyrir því að tilkynning hafi borist og
að könnun sé að hefjast. Algengast
er að byrjað sé að ræða við foreldra
og barnið sjálft hafi það aldur og
þroska til. Árið 2002 var leitað efrir
upplýsingum hjá barninu sjálfu í
21% tilvika.
fridrik@dv.is
4.665 TILKYNNINGAR ÁRIÐ 2002 HVAÐ VAR VERIÐ AÐ TILKYNNA?
2.370 frá lögreglu. 1.440 vegna gruns um afbrot barns.
508 frá öðru foreldrinu. 726 vegna gruns um vanrækslu barns.
395 frá nágrönnum. 582 vegna gruns um áfengis- og vímuefnaneyslu foreldra.
394 frá skóla, sérfræöiþjónustu skóla, fræðslu- eða skólaskrifstofu. 441 vegna gruns um áfengis- og vímuefnaneyslu barns.
258 frá lækni, heilsugæslu eða sjúkrahúsi. 240 vegna gruns um kynferðislegt ofbeldi gegn barni.
41 frá barninu ,ialfu 211 vegna hegðunarerfiðleika og tengslaröskunar barns.