Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004
Fréttir DV
Létta búsið
í búðirnar
Nokkrir þingmenn úr
Sjálfstæðisflokki, Fram-
sóknarflokki og
Samfylkingunni
hafa lagt fram
frumvarp til laga
sem gerir ráð fyrir
að einkasala ÁTVR
með annað áfengi
en sterkt áfengi
verði aflögð. Með
sterku áfengi er yf-
irleitt átt við áfengi með
meiri vínandastyrk en 22%.
Leggja flutningsmenn til að
aðrir en ríkið fái að sjá um
smásölu léttvíns og bjórs
eins og á öðrum sviðum en
ekki er um að ræða breyt-
ingu á áfengisstefnu,
áherslum í tóbaksvörnum
eða tekjuöflunarkerfi ríkis-
ins á þessu sviði.
Berfætturá
nærbuxum
Lögreglan í Reykjavík
var kölluð út að veitinga-
stað í miðborginni að-
faranótt laugardagsins
vegna sérkennilegrar
hegðunar manns á
staðnum. Var hann ber-
fættur og á nærbuxun-
um einum fata og angr-
aði gesti. Hann fékk lög-
reglufylgd út af staðnum
en náði þá að bera kyn-
færi sín fyrir gestum og
gangandi. Hann var
fluttur á lögreglustöð og
fékk næturgistingu í
fangageymslu.
Afsláttarsjó-
mönnum
fækkar
Samkvæmt svari Geirs
Haarde fjármála-
ráðherra við fyrir-
spurn Marðar
Árnasonar hefur
þeim sem njóta
sjómannaafsláttar
af skatti fækkað
undanfarin ár, eða
úrrúmlega 11 þús-
und árið 1994 í
rúmlega 8.800 árið 2002.
Þetta er 21% fækkun á átta
árum.
f ónlistarmaður
„Ég er nú bara nýlentur hérna
á Keflavíkurflugvelli; varað
koma frá París og er á leiðinni
heim til Isafjarðar," segir Örn
Elías Guðmundsson, betur
þekktursem tónlistarmaður-
inn Mugison.yið héldum
þarna tónleika, ég, Trabantog
Emillana Torrini. Það var ótrú-
legt að upplifa Parls. Kærastan
var
Landsíminn
mérog
ég held að efmaður er ást-
fanginn þá sé París staðurinn.
Manni dettur I hug allar þess-
ar klisjur sem maður sér I bíó-
myndunum og kemst að þvl
að þær eru allar sannar. Nú fer
ég vestur I fyrramálið og byrja
aö undirbúa listahátíð sem
hefstá laugardaginn. Ætli
fyrsta verkið verði ekki að þrlfa
frystihúsið þar sem hátlðin
mun fara fram."
Árni Þór Sigurðsson forseti borgarstjórnar krefur Valgerði Sverrisdóttur iðnaðar-
ráðherra svara um hvað hún ætli að gera við vandamálið Jóhannes Geir Sigur-
geirsson stjórnarformann Landsvirkjunar.
Jóhannes á
pnkann sinn
aötaka
„Þetta voru mjög vanhugsuð
ummæli afhans hálfu."
Valgerður Sverrisdóttir
iðnaðarráðherra
Svarar ekki skilaboðum.
Hafni telur sér skylt að vernda unga dóttur sína
Árni Þór Sigurðsson forseti borgarstjórnar segir að ummæli Jó-
hannesar Geirs Sigurgeirssonar stjórnarformanns Landsvirkjun-
ar séu aumkunarverð og hafi skaðað fyrirtækið. Valgerður Sverr-
isdóttir iðnaðarráðherra verði að svara því hvort Jóhannes eigi
að halda starfi sínu sem stjórnarformaður.
Reykjavíkurborg er nærststærsti
eigandi Landsvirkjunar með 45%
eignaraðild. Álfheiður Ingadóttir
fulltrúi Reykjavíkurlistans í stjórn
Landsvirkjunar segir að sér þyki
miður að að Jóhannes hafi ekki
gengið hreinna til verks við að draga
ummæli sín til baka. Hins vegar
megi benda á að þetta sé ekki í fyrsta
sinn sem Jóhannes skaðar ímynd
Landsvirkjunar með óheppilegum
yfirlýsingum. Valgerður Sverrisdótt-
ir svaraði ekki skilaboðum DV um
málið í gær.
Ekki dugir að klóra í bakkann
Kolbrún Halldórsdóttir þing-
maður Samfylkingarinnar fjallar um
málið á vefsíðu sinni. Þar segir m.a.:
„Ummæli stjórnarformanns Lands-
virkjunar á samráðsfundi fyrirtækis-
ins sl. föstudag hafa dregið dilk á eft-
ir sér og skyldi engan undra. Um-
mælin, sem fólu í
ilHfcs
sér lágkúruleg-
ar ásakanir á
l hendur nátt-
j úruverndar-
| samtökum
! og öðrum
' andstæðing-
um stórfram-
kvæmdanna
norðan Vatna-
jökuls,
fólu
í sér að þessir aðilar gætu sjálfum sér
um kennt að einungis skyldi hafa
borist eitt tilboð í byggingu Kára-
hnjúkavirkjunar. Þar með ættu þess-
ir aðilar ekkert með það að gagnrýna
framgöngu þessa fyrirtækis, sem
eins og alþjóð veit, hefur átt í stans-
lausum útistöðum við opinbera eft-
irlistaðila og samtök launafólks
vegna meintra brota á vinnulöggjöf.
Ótal ávirðingar hafa komið upp á yf-
irborðið en engar þeirra hafa komið
sérstaklega á óvart þar sem saga fyr-
irtækisins gefur til kynna að alls
þessa hefði mátt vænta."
Álfheiður Ingadóttir segir að það
dugi ekki að Jóhannes reyni að klóra
í bakkann en málið sé á borði iðnað-
arráðherra enda situr Jóhannes í
umboði ráðherrans sem stjórnarfor-
maður.
Árni Þór segir að iðnaðarráðherra
verði að svara því hvort hún telji Jó-
hannes Geir heppilegan mann til að
gegna starfi stjórnarformanns
Landsvirkjunar. „Þetta voru mjög
vanhugsuð ummæli af hans hálftt,"
segir Árni þór.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson Ummæli hans hafa vakið hörð viðbrögð.
Ekki í fyrsta sinn
Kolbrún segir að þetta sé raunar
ekki í fyrsta sinn sem framganga
stjórnarformannsins í málefnum
Kárahnjúkavirkjunar veki harkaleg
viðbrögð. Þannig er þess skemmst
að minnast að þingmenn á Alþingi
gerðu athugasemdir við ummæli
hans um nafngreinda vísindamenn,
sem hann taldi nánast tilbúna til að
fórna starfsheiðri sínum í pólitísk-
9
Árni Þór Sigurðsson forseti Álfheiður Ingadóttir full- Kolbrún Halldórsdóttir
borgarstjórnar Iðnaðarráð- trúi í stjórn Landsvirkj- þingmaður Ekki í fyrsta sinn
^herra verður að svara þvi hvort unnar Miður að Jóhannes dró sem orð Jóhannesar vekja
ýhannes haldi starfi sinu. ekki ummæli sin betur til baka. hörð viðbrögð.
um tilgangi, eða til að koma í veg fyr-
ir tilteknar framkvæmdir á hálendi
íslands. í útvarpsviðtali í byrjun des-
ember gekk hann svo langt að segja
það ganga gegn lýðræði í landinu að
umhverfisverndarsamtök og um-
hverfisverndarsinnað fólk héldi
fram skoðunum sínum eftir að Al-
þingi hefði veitt heimild til tiltek-
inna framkvæmda og taldi það sér-
staklega ámælisvert að upplýsa um
gang mála hér á landi við erlenda
aðila. Þannig má sjá að skoðanir þær
sem stjórnarformaðurinn hafði uppi
í ræðu sinni sl. föstudag eru ekki nýj-
ar af nálinni, hann hefur látið þær í
ljósi áður og ekkert bendir til að þær
hafi breyst.
fri@dv.is
Heyrnarlausir
ekki um borð
Heyrnarlaus Breti er orðinn
langþreyttur á flugfélaginu Ea-
syjet en honum hefur í tvígang
verið að meinað að fljúga með
félaginu. Fyrir rúmri viku bað fé-
lagið manninn, sem heitir Steve
McKenna, afsökunar á að hafa
meinað honum og tíu öðrum
heyrnarlausum að fljúga með fé-
laginu í desember sl. Rök félags-
ins voru þau að heyrnarlausir
gætu ekki skilið öryggisleiðbein-
ingar - jafnvel þótt þeir væru
með túlk sér við hlið. McKenna
fagnaði afsökunarbeiðninni en
þegar hann hugðist fljúga með
félaginu nú um helgina endurtók
sagan sig. Farþegar máttu bíða í
45 mínútur meðan McKenna
fékk starfsmenn félagsins til að
taka sönsum.
Barnsfaðirinn ræður Örn Clausen lögmann
„Ég kem til með að vernda unga
dóttur mína eins og mér ber. Eins og
staðan er í dag hefur barnsfaðir
dóttur minnar fyrirgert rétti sínum
til að þess koma inn á heimilið," seg-
ir Hafni Rafnsson faðir móðurinnar
ungu sem DV ræddi við fyrir helgi.
Eins og fram kom í fréttum DV í
gær urðu foreldrar stúlkunnar að
senda hana á brott með barnið á
föstudag. Barnsfaðir hennar við
fimmta mann gerði aðsúg að húsinu
þar sem hann gerði kröfu um að fá
að sjá dóttur sína. „Framkomu hans
er ekki hægt að líða enda vann hann
skemmdarverk á húsinu okkar og
kastaði meira að segja reiðhjóli inn
um gluggann," segir Hafni.
Hafni vill árétta það sem haft er
eftir honum í blaðinu á laugardag
um misnotkun. „Ég kærði hann fyrir
að notfæra sér ungan aldur dóttur
minnar en ekki kynferðislega mis-
Örn Clausen Barnsfaðir ungu móðurinnar hefur ráðið Örn Clausen sem lögmann sinn.
notkun. Ég veit ekki hvað því máli
líður hjá lögreglunni," segir Hafni
sem telur sér skylt að vernda unga
dóttur sína.
Kristófer Már Gunnarsson,
barnsfaðirinn ungi, vildi sem
minnst um málið segja þegar eftir
því var leitað. Hann tók fram að
hann væri ekki búinn að segja sitt
síðasta og myndi ekki láta bjóða sér
það að fá ekki að umgangast dóttur
sína eðlilega. Hann hefur nú ráðið
Örn Clausen lögfræðing sér til full-
tingis.