Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 13
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 13 Stal farsímum meðfölsuðum pappírum Síödegis á laugardag reyndi maður að svíkja vör- ur út úr raftækjaversl- un með því að fram- vísa falsaðri beiðni frá fyrirtæki. Sam- kvæmt upplýsing- um frá lögreglunni í Reykjavík tókst manninum að svíkja út fjóra far- síma og komast á brott með þá áður en svikin komust upp. Eftirgrennslan leiddi í ljós að maðurinn sem hér um ræðir er góðkunningi lög- reglunnar og var hann handtekinn stuttu síðar. Hundur glefs- aði hárlokk af stúlku Um miðjan dag á sunnudag var tilkynnt um lausan hund í Mos- fellsbæ. Samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu mun hundurinn hafa ráðist á stúlku að leik og glefsað í hana þannig að hárlokkur losnaði af höfði hennar. Hundur- inn fannst eftir nokkra leit og var farið með hann á hundahótel. Á sunnudagskvöld var síð- an tilkynnt um slys á bami á leiksvæði í Breið- holti. Barnið hafði verið að róla sér þegar rólan slitnaði og brotnaði tönn í barninu við það. Nebraska er eina ríki Bandaríkjanna sem tekur menn af lífi einungis í rafmagns- stólnum. Níu önnur ríki brúka stólinn ennþá en þar hafa fangar einnig val um að fá eitursprautu. Enn á ný hefur aðferðinni við að deyða fanga með rafstuði verið breytt. Eitt lanpt patstuð í stað fjögurra stuttra Yfirvöld í Nebraska hafa ákveðið að dauðadæmdir fangar fái nú eitt 15 sekúndna langt rafstuð í stað fjögurra stuttra áður. Þessi breyting er gerð í kjölfar mikillar gagnrýni á að rafmagnsstóllinn skuli almennt notaður til að taka fólk af lífi. Nebraska er eina rík- ið í Bandaríkjunum þar sem allar aftökur fara fram í rafmagns- stólnum - flest önnur ríki þar sem dauðarefsingar eru við lýði nota eitursprautur. Yfirmaður dómsmála í Nebr- aska, Jon Bruning, er ánægður með breytinguna þótt hann viðurkenni að til séu mannúðlegri aðferðir við að taka fólk af lífi. „Við látum til dæmis svæfa gæludýrin okkar, við gefúm þeim ekki raflost,“ sagði Bruning um málið. Það voru lögmenn nokkurra fanga sem dvelja á dauðadeild sem kröfðust þess að aðferðum yrði breytt. Ekki þykir lfklegt að íög- mennirnir sætti sig við þessa breyt- ingu því þeirra krafa var að raf- magnsstólnum yrði skipt út fyrir mannúðlegri aðferðir, svo sem eit- ursprautu sem gefm er á eftir ró- andi lyfl. Sérfræðingar halda því líka fram að fimmtán sekúndna rafstuð geti verið ávísun á að eldur kvikni í fang- anum og hann brennist illa. Það var einmitt ástæða þess að fjögurra raf- stuða aðferðin var tekin upp árið 1990 en þá kviknaði í höfði manns sem verið var að taka af lífi. Tíu ríki Bandaríkjanna leyfa notkun raf- magnsstólsins ef fangar fara fram á það. Eitursprauta er langalgengasta aðferðin sem beitt er en í nokkrum ríkjum er enn í lögum að beita megi hengingu, gasklefa eða aftökusveit. Rúmlega 100 þjóðlönd hafa á undanförnum árum afnumið dauðarefsingar en á sama tíma hef- ur dauðarefsingum frekar fjölgað í Bandaríkjunum en hitt. Það sem af er þessu ári hefur 21 verið tekinn af lífi en alls eru 3.300 fangar á dauða- deild. Dauðarefsingar eru við lýði í 38 ríkjum Bandaríkjanna; tólf ríki beita þeim ekki. í 24 ríkjum er leyft að dæma fólk til dauða fyrir glæpi sem það framdi undir 18 ára aldri. Rafmagnsstóll Dauðadæmdir fangar í Nebraska fá eftirleiðis fimmtán sekúndna rafstuð. Það er afsumum talið ávísun á að það kvikni I viðkomandi. Fjailahjól verð frá kr. 23.655 stgr. GIANT Ál stell frá kr. 29.925 stgr. Lyftingabekkur og lóð. Bekkur með fótaæfingum og 50 kg lóðasetti. Tilboð kr. 19.855 stgr. QÆ TM» »•» eeor 1« Carving skíði og skíðafatnaður 30% stgr.afsláttur. Can/ing pakkar. Tilboð frá kr. 27.900 Femtingargjafír sem hitta íMARK Afsláttínn strax við staðgreiðslu 5% Snjóbretti bSCOTTUSA Brettaskór . Bindingar A Gleraugu TsyWASrAJi Hanskar Snjóbrettafatnaður 30 % stgr. afsláttur. Brettapakkar frá kr. 29.900 stgr. Lfnuskautar Verð frá kr. 10.355 stgr. Úrval af hlifum og hjálmum. Boxpúðar frá kr. 11.305 stgr. Boxdropar, Speedballs Hanskar. Billiardborð Pool Snooker Staarðir 4, 5 og 6 fet.. Verð frá kr. 15.105 stgr. Heilt golfsett m/poka frá kr. 23.655 stgr. Kerrur frá kr, 3.990 stgr. Mikið úrval af golfvörum. Alvöru fótboltaspil Vönduðstöðug borð, 2-8 geta leikið í einu. Verð frá kr. 11.210 stgr. A14RKIÐ Kreditkortasamningar, upplýsingar veittar í versluninni Varahluta- og viðgerðarþjónusta Verslið þar sem þjónustan er. -m www.markid.is • Sími; 553 5320 • Ármúla 40

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.