Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRlL 2004 Fréttir DV Norskur lögreglu- maðurféll Bankaræningjar, klædd- ir skotheldum vestum og með gasgrímur, skutu norskan lögreglumann til bana í Stavanger í gær. Bankaránið átti sér stað í Norsk Kontantservice en það er peningafjárhirsla í eigu átta norskra banka. Að sögn skutu ræningjarnir mörgum skotum að lög- reglunni áður en þeir lögðu á flótta. Ránið er sagt eitt það umfangsmesta í norskri glæpasögu og var gríðarlega vel skipulagt. Ræningjarnir voru átta tals- ins og höfðu þeir ekki fund- ist þegar DV fór í prentun í gærkvöld. Læknir í plati stóð sig vel Norskur læknastúd- ent sem starfaði sem fuUgiidur læknir í bæn- um Torsby í Svíþjóð um tveggja ára skeið þykir hafa staðið sig með af- brigðum vel. Læknanem- inn átti að baki nám í læknisfræði í Póllandi án þess að ljúka prófi. Hann sinnti um 1.200 sjúkling- um á tímabilinu og að sögn yfirlæknis var hann „ekki slæmur læknir". Ungi maðurinn sinnti minni háttar aðgerðum og þótti afar kurteis við sjúklinga. Búið er að fara yfir sjúkraskýrslur hans og kom f ljós að ferillinn er flekklaus. Honum hef- ur þrátt fyrir það verið tjáð að nú skuli hann ljúka prófi. Hundurí refagildru Hundaeigandi tilkynnti lögreglunni í Keflavík að hundur hans hefði fest sig í refagildru á laugardaginn. Maðurinn var á gangi með hund sinn í Sandvík fyrir viku síðan þegar hundur- inn festi fót í uppspenntri gildrunni. Hann skrámaðist á fæti en meiddist ekki al- varlega. Gildrur sem þessi eru ólöglegar en hún var sennilega ætluð til refa- veiða en ekki hundaveiða. Poirot í tölvuleik Nýir tölvuleikir þar sem glæpasögur Agöthu Christie eru uppistaðan líta brátt dagsins ljós. Leikendur verða í hlutverki Hercule Poirot og Miss Marple og þurfa að leysa flókin glæpa- mál. Bamabam Christie, Mathew Prichard, gaf leyfi fyrir útgáfunni með þeim orðum að amma sín hefði alltaf viljað leita nýrra leiða til að ná til almennings. Agatha Christie lést árið 1976 og hafði þá skrifað 79 skáldsögur. Bækur Agöthu hafa selst í þúsundum milljóna eintaka og einungis Biblí'an og skáldverk Shake- speares hafa selst betur. Jón Ingi Gíslason einn eigenda Ara á Ögri dvelur löngum í húsi sem hann á ásamt öðrum í Dómíniska lýðveldinu og drepur þar tímann með óvenjulegu áhugamáli. Jón Ingi á einnig jörð austur í Biskupstungum en þar stundar hann hestamennsku á sumrin. Ræktar bardagahana í Dóminíska lýdveldinu Jón Ingi Gíslason, einn eigenda Ara í Ögri, á sér óvenjulegt áhugamál. Hann ræktar bardagahana á sveitabæ í grennd við þorpið Cabrera í Dóminíska lýðveldinu og stundar hanaat með þeim nær daglega. Jón á ásamt öðrum hús í grennd við þorpið en hann kynntist hanaati þar fyrir nokkrum árum. „Þetta er þjóðaríþróttin hér í landi og menn tala varla um annað sín í millum. Svona svipað og aðrir tala um fótbolta heima," segir Jón Ingi. „Það er mikið af mótum í gangi og hér er keppt í hanaati alla daga ársins.“ Að sögn Jóns hefur hann að- stöðu, sem kallast „Trava" hjá vini sínum sem á sveitabæ í grennd við þorpið. ,Ætt þessa bónda hefur stundað ræktun á bardagahönum og hanaat öldum saman. Fjölskyld- an er með eitt besta og þekktasta hænsnakynið í þessari íþrótt og ég hef fengið að njóta þess,“ segir Jón Ingi. Aðspurður af hverju hann hafi farið út í þessa ræktun og íþróttina sem fylgir henni segir Jón Ingi að það sé flókið mál að útskýra og flest- ir botni ekkert í þessu enda er hann með mastersgráðu í sálfræði. Ein- faldast sé að segja að upphaflega hafi hann tekið þátt í veðmálum sem fylgja hanaatinu. „Hérna eru það ekki stórar upphæðir lagðar eru undir á íslenskan mælikvarða," segir Hanaat Hanaat iþorpinu Cabrera. í máli Jóns kemur fram að nafnið á upp- áhalds hananum hans í augnablikinu er „Skurðlæknirinn ". Hann segirþetta hreint magnaðann fugl sem unnið hefur niu viðureignir í röð á síðustu dögum. Jón Ingi. „En menn eru að veðja um 200 krónum í hverjum bardaga og það eru eiginlega veðmál upp á h'f og dauða fyrir viðkomandi því fyrir þessa upphæð er hægt að fara fjór- um sinnum út að borða á góðu veit- ingahúsi hér.“ Skurðlæknirinn Jón Ingi á jörð austur í Biskups- tungum og þar stundar hann hesta- mennsku á sumrum. Á veturna hins vegar dvelur hann suður í Dóminíska lýðveldinu svona eftir því sem tök eru á. Hann vill ekki gefa upp hve marga bardagahana hann á eða hvert umfang þessarar aukabú- greinar hans er. „Þetta er alveg eins með mig og hvern annan hesta- bónda sem gefur ekki upp hve mörg hross hann á,“ segir Jón Ingi. „Eðli málsins samkvæmt eru svo alltaf einhver afföll í þessum bardögum því það er jú barist upp á líf og dauða.“ í máli Jóns kemur fram að nafnið á uppáhaldshananum hans í augna- blikinu er „Skurðlæknirinn". Hann segir þetta hreint magnaðan fugl sem unnið hefur níu viðureignir í röð á síðustu dögum. Þægilegt líf Að sögn Jóns Inga er gott að búa í Dóminíska lýðveldinu. Ekki bara vegna þess hve loftslagið er þægilegt og verðlagið lágt heldur er ekkert stress á fólki eins og gengur og gerist hér heima. Menn eru aldrei neitt að æsa sig yfir smámunum og raunar ekki að æsa sig yfir einu eða neinu. Þetta er að vísu öðruvísi þegar kem- ur að hanaatinu. Þá eigi menn það til að öskra sig hása og blóta öUu í sand og ösku ef þeirra fugl stendur sig ekki vel. Tveggja metra íslenskt körfuboltakvendi frá Akureyri íslenskur körfuboltarisi í Detroit á 1. apríl Margir gleyptu við aprílgabbi markaðsskrifstofu kvennakörfu- boltaliðsins í Detroit sem kynnti tll sögunnar nýjan leikmann liðsins á fimmtudaginn var. FréttatUkynning var send út þar sem tilkynnt var að félagið Detroit Shock hefði náð samningum við m'tján ára gamla, tveggja metra háa körfuboltastúlku frá Islandi sem héti Rifla Oslop- gohtac. Hún átti að vera öllum körfuboltakonum fremri og skora að jafnaði yfir fjörutíu stig í leik. Troðsl- ur áttu að vera hennar sérsvið. Um leið og tUkynningin hafði verið send út byrjuðu útvarpsstöðvar í Detroit að ÍJalla um stúlkuna og hæfileika hennar. Þjálfarinn BUl Laimbeer spUaði með og veitti útvarpsstöðv- unum viðtöl. Stúlkan Rifla var sögð koma frá Akureyri og búin var til saga um hvernig íslenski utanríkis- ráðherrann hefði hringt í forsprakka Detroit Shock til að vekja athygli þeirra á þessu fyrirbæri. Ráðherr- ýgjg ann var sagður hafa talað við Ær Bandaríkjamennina með hjálp / túlks. Eftir þetta sagði í tilkynn- M ingunni að þjálfarinn hefði farið í og fylgst með stúlkunni í fiski- bænum sem hún kemur frá. Hann sagði að stúlkan gæfi mönnum alveg nýjar hug- myndir um kvennakörfu- bolta. Málið vakti mikla athygli á körfuboltalið- inu sem byrj- aði að selja ársmiða daginn eftir 1. aprfl. Halldór Asgrímsson Utanrikisráðherra Is- lands varsagður hafa hringt með aðstoð túlks i körfuboltaþjálf- ara i Detroit og vakið athygli á risavaxinni körfu- boitakonu frá Ak- ureyri. Nokkrir hlupu þetta apriigabb i Detroit. Bréfið frá al Kaída Spænska rannsóknarlögreglan telur nær allar líkur á því að bréf sem barst dagblaðinu ABC um frekari hryðjuverkaárásir sé frá liðsmönnum al Kaída í Evrópu. Bréfið barst tveimur dögum eftir árásirnar á Madrid og hafði að geyma hótanir um frekari árásir ef Spánverjar drægju ekki herlið sitt til baka frá írak. Innanríkisráðherra Spánar greindi frá þessu í gær og sagði rannsóknina langt komna í málinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.