Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004
Fréttir DV
Sænska viðskiptatímaritið Veckans Affarer olli miklum usla í gær þegar það hélt því fram að Ingvar
Kamprad væri ríkasti maður heims. Tímaritið Forbes setur Kamprad hins vegar í þrettánda sætið. Hjá
Forbes hefur Bill Gates verið talinn loðnastur um lófana síðastliðin tíu ár.
Stofnandi IKEA ríkasti
maður heims!
tngvar Kamprad er orðinn 77 ára og
hefur ekki skipt sér afdaglegum rekstri
IKEA um nokkurt skeið. Hann er búsett-
ur i Sviss þar sem hann vekur athygii
fyrir að aká um á gömfum Voivo eins og
góðum Svía sæmir.
Ingvar Kamprad, sem stofnaði húsgagnaverslunin IKEA, er rík-
asti maður heims um þessar mundir. Þessu er haldið fram í
sænska viðskiptatímaritinu Veckans Affarer sem kemur út í vik-
unni. Þessi óvænta upphefð olli miklum deilum í viðskiptaheim-
inum í gær og var meðal annars mótmælt af IKEA.
Samkvæmt útreikningum
Veckans Affárer eru auðæfi
Kamprads metin á fjögur þúsund
miUjarða króna, eða sem nemur 53
miUjörðum dala. Bill Gates, sem lengi
vel hefur verið talinn ríkasti maður
heims, er aftur á móti metinn á 3.300
milljarða króna, eða 47 miUjarða dala.
Að mati Svíanna er Gates því fallinn í
annað sætið og munurinn sjö hundr-
uð milljarðar króna.
Tímaritið Forbes, sem gefur árlega
út lista yfir ríkustu menn heims, hefur
sett Bill Gates í fyrsta sætið síðastliðin
tíu ár. Forbes gaf síðast út lista í febr-
úar og fast á hæla Gates kom Warren
Buffet með 42,9 miiljarða dala. Karl
Albrecht, stofnandi Aldi-matvöru-
keðjunnar í Þýskalandi, er í þriðja
sætí með 23 milljarða dollara.
Kamprad var í þrettánda sæti á þess-
um lista og mat Forbes auðæfi hans á
18,5 milljarða dollara.
IKEA vísaði því á bug í gær að
Ingvar Kamprad væri ríkastí maður
heims. IKEA segir tímaritið hafa gert
mistök með því að meta fyrirtækið í
heild sinni og Mta svo á að Kamprad
eigi allt heila klabbið. Kamprad eigi
ekki IKEA þar sem hann lét fyrirtækið
í hendur hollensku stofnuninni
INGKAárið 1982.
Rifstjóri Veckans Afiarer segir
þetta að hluta til rétt. Það sé hins veg-
ar Kamprad sem haldi um hina raun-
verulegu stjórnartauma hjá IKEA og
hann og fjölskylda hans séu eigendur
fyrirtækisins þótt það kunni að vera
skráð annars staðar. Hann segir jafir-
framt að tímaritíð Forbes hafi metíð
það svo að Kamprad eigi ekki IKEA.
„Við höfum metið það svo að stofn-
anir á vegum Kamprad-fjölskyldtmn-
ar, sem eiga og reka IKEA, séu hinir
sönnu eigendur." Ritstjórinn stendur
við frétt sína og segir skýringuna á
þessum skyndilegu umskiptum mega
rekja til þes að Bandaríkjadollar hefur
fallið gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Stofnaði IKEA þegar hann var
sautján
Ingvar Kamprad er orðinn 77 ára
og hefur ekki skipt sér af daglegum
rekstri IKEA um nokkurt skeið. Hann
er búsettur í Sviss þar sem hann vek-
ur athygli fyrir að aka um á gömlum
Volvo eins og góðum Svía sæmir.
Kamprad er samt aðaleigandi IKEA,
sem rekur 180 verslanir í 31 landi, og
hefur alla tíð haldið eignarhaldinu
innan íjölskyldunnar. Þrír synir hans
vinna hjá IKEA og hefur verið talað
um að einn þeirra taki alfarið við
stjómartaumunum að Kamprad
gengnum.
Kamprad hóf snemma að sinna
viðskiptum, hann var aðeins sautján
ára þegar hann skráði fyrirtækið í Sví-
þjóð. Það var árið 1943. Kamprad
hafði þótt ungur væri sýslað með ým-
islegt; selt fisk, tímarit og margt fleira.
Hann ferðaðist ávallt á reiðhjóli. Árið
1950 var fyrstí IKEA-bæklingurinn
gefinn út en það var ekki fyrr en átta
árum síðar að fyrsta IKEA-verslunin
var opnuð.
Ferðast á reiðhjóli
Ingvar Kamprad þykir vera goð-
sögn í lifanda lffi. Hann er afar spar-
samur og ferðast til dæmis alltaf á al-
mennu farrými hvort sem er í lestum
eða flugvélum. Reiðhjólið er hans
uppáhaldsfarartæki og sést heftír til
hans í strætó þegar hann heimsækir
Stokkhólm. Hann hefur alla tíð forð-
ast að vera í sviðsljósinu og til dæmis
ekki lagt í vana sinn að vera viðstadd-
ur þegar nýjar IKEA-verslanir em
opnaðar í fyrsta sinn. Kamprad hefur
að mestu sloppið við að vera aðalefni
frétta en fyrir fáeinum árum var hon-
um borið á brýn að hafa verið hlið-
hollur fasisma á yngri árum. Hann
svaraði fyrir sig og sagðist hafa hrffist
af Mussolini en verið minna hrifinn af
Hitler. Þetta megi hins vegar telja til
bemskubreka.
DCEA þykir afskaplega stöndugt
fyrirtæki og hefur salan aukist jafnt og
þétt ár frá ári. Höfuðstöðvar fyrirtæk-
isins em í Danmörku. Mestur hlutí
hagnaðar fyrirtækisins rennur aftur til
þess en hlutí er settur í sjóð í Lúxem-
borg sem virkar eins og fjárfestingar-
sjóður fyrir Kamprad-fjölskylduna.
Talið er að hann nemi á annan tug
milljarða sænskra króna.
Wliliam Gates 111
Metinn á 46,6 milljaröa Bandaríkjadala.
Betur þekktur sem Bill Gates. Ríkasti
maður heims slðustu tlu árin samkvæmt
Forbes. Gates, sem er 48 ára, er stofnandi
og forstjóri Microsoft.
Warren Buffet
Metinn á 30,5 milljaröa Bandaríkjadala.
Buffet er 72 ára Bandaríkjamaður. Hann
byrjaði með tvær hendur tómar en hefur
hagnast á verðbréfaviðskiptum.
EKari AJbrecht
Metinn á 23 milljarða Bandaríkjadala. Al-
brecht er 84 ára Þjóðverji. Hann byrjaði með
tvær hendur tómar þegar hann stofnaði
matvöruverslunina Aldi I seinna stríði. Versl-
anirAldi eru nú 6.500 talsins. Hann rekur
fyrirtækið með yngri bróður sínum.
Prins Alwaleed ■
Bin Talai Alsaud '
Metinn á 21,5
milljarða Banda-
ríkjadala. Al-
saud er 47 ára
Sádi-Arabi og
hefur hagnast á !*
eigin fjárfesting-
um. Alsaud hefur barist fyrir
umbótum I heimalandi sínu,
meðal annars kosningarétti
kvenna.
PaulAiien
Metinná 21
miljarð Banda-
rikjadala.
Allen erS1 árs
Bandaríkja-
maður. Hann
ereinn af
stofnendum
Microsoft og starfar þar.
Walton-fjölskyldan
Ekkja og fjögur börn Sams Walton
skipa sjötta sæti Forbes-listans. Hvert
um sig er metið á 20 milljarða Banda-
ríkjadala. Ekkj-
an, Helen R.
Walton, er 84
ára en börnin
eru Alice 55 ára,
Jim 56 ára,
John 58 ára og
S. Robson 60
ára. Fjölskyldu-
faðirinn Sam
Walton stofnaði
fyrsta vöruhús-
ið árið 1962.
Vöruhúsið heit-
ir Wal-Mart og
er stærsta smásölukeðja veraldar. Fjög-
ur þúsund Wal-Mart verslanir eru um
viða veröld og er eignarhlutur Walton-
fjölskyldunnar 38%. Sam Walton lést
árið 1992 en talið er víst að hann væri
tvöfalt ríkari en Bill Gates væri hann á
lífiídag.
Uliane Bettencourt
Metin á 18,8 milljarða
Bandaríkjadala.
Bettencourt er 81 árs
og án vafa ríkasta
kona Frakklands.
Bettencourt erfði
meirihlutaeign í
snyrtivörufyrirtækinu
L'Oréalárið 1957 en
faðir hennar stofnaði fyrirtækið.
Bettencourt á einnig stóran hlut í
Nestlé.
Lawrence EIHson
Metinn á 18,7 millj-
arða Bandaríkjadala.
Ellison er 59 ára og
búsettur i Bandaríkj-
unum. Hann eryfir-
maður Oracle-
tölvurisans.