Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Qupperneq 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Qupperneq 19
DV Sport ÞRIÐJUDAGUR 6.APRÍL 2004 19 Ferrari langt á undan öllum Mario Theissen, einn af yfirmönnum BMW Willi- ams-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, segir að Ferrari-liðið hafi mikla yfirburði í Formúlunni og fátt bendi til þess að önnur lið nái að nálgast liðið á næstunni. „Ferrari-liðið er mörgum gæðaflokkum fyrir ofan önnur lið eins og stað- an er núna og menn þurfa að vinna hörðum höndum að því að nálgast þá. Það er ekld ómögulegt en það verður mjög erfitt," sagði Theissen. 50. sigur Serenstam Sænski kvennkylf- ingurinn Annika Soren- stam vann sinn fimmt- ugasta sigur á LPGA- mótaröðinni í golfi um helgina þegar hún bar sigur úr býtum á Öffice Depot meistaramótinu í Kahfomíu. Sigur Sorenstam var nokkuð öruggur en hún var þremur höggum á undan Ashli Bunch. Þessi sigur var sárabót fyrir Sorenstam en hún vann ekki fyrsta stór- mót ársins um þarsíð- ustu helgi. Haukur Ingi með slitin krossbönd? Sóknarmaðurinn eld- fljóti Haukur Ingi Guð- nason, sem leikur með Fylkismönnum, gæti verið með slitin krossbönd en hann meiddist illa á hné í leik FH og Fylkis á Canela- mótinu á Spáni í síðustu viku. Haukur Ingi fór í skoðun í gær en niðurstaða hennar var óljós þegar blaðið fór í prentun. Real Madrid eltir met Spænska liðið Real Madrid er á höttunum eftir meti í Meistaradeild Evrópu. Liðið hefur ekki tapað í síðustu níu leikj- um sínum í Meistara- deildinni og getur hækk- að þá tölu í tíu með því að tapa ekki gegn Móna- kó í kvöld. Metið er 13 leikir en það var Bayern Munchen sem setti það tímabilið 2001-2002. Aðeins sjö félög hafa náð að spUa tíu leiki eða meira í MeistaradeUd- inni án taps. Haukar urðu á sunnudaginn deildarmeistarar úrvalsdeildar karla í handbolta. Haukar höfðu betur gegn Valsmönnum á markatölu en liðin voru jöfn að stigum og báðar innbyrðisviðureignir liðanna enduðu með jafntefli. Fypstip til að vinna deildina 3 áp í pnð DEILDARMEISTARAR Haukar spila mjög hraðan og létt- leikandi handbolta enda skipar liðið mikið afungum leikmönnum. Haukar úr Hafnarfirði urðu um helgina fyrsta liðið í sögu deildakeppni karla til að vinna efstu deildina þrjú ár í röð og enn fremur eru Haukarnir orðnir sigursælasta liðið í 13 ára sögu deildarmeistaratitilsins, sem hefur verið við lýði síðan að úrslitakeppnin var tekin upp vorið 1992. Það voru ekki allir bjartsýnir fyrir var þremur stigum á eftir Val en liðin hönd Hauka í upphafi úrvals- tóku með sér innbyrðisstig úr for- deildarinnar, Viggó Sigurðsson, keppninni. þjálfari þeirra til þriggja sigursælla ára, hafði sagt upp störfum og liðið Orslitakeppnin fer nú fram í 13. sinn í núverandi mynd en síðan 1992 hafa liðin tryggt sér deildar- meistarartitil í deildarkeppni yfir veturinn en unnið (slandsmeist- aratitilinn í úrslitakeppni. Haukar eru sigursælastir í sögu deildar- meistaratitilsins. ' Deildarmeistarar frá 1992: 1992 FH 1993 Valur 1994 Haukar (Valur) 1995 Valur 1996 KA (Valur) 1997 Afturelding (KA) 1998 KA (Valur) 1999 Afturelding 2000 Afturelding (Haukar) 2001 KA (Haukar) 2002 Haukar (KA) *2003 Haukar 2004 Haukar (-) * Innan sviga eru (slandsmelstarar sama ár ef þeir eru aðrir en delldarmelstamir. Flestir deildarmeistaratitlar: Haukar 4 KA 3 Afturelding 3 Valur 2 FH 1 Flest ár unnið í röð: Haukar, 2002-04 3 Afturelding, 1999-2000 2 deildarmeistararnir eru krýndir. Haukar hafa nú sem deildarmeistarar heimavallarrétt út alla úrslitakeppnina en þeir mæta ÍBV, sigurvegara 1. deildarinnar, í átta liða úrslitum. Deildarmeistara- titillinn hefur þó ekki dugað til íslandsmeistaratitils nema í fimm af tólf skiptum (42%). liðið í þrjú ár sem vinnur titilinn eftir að hafa unnið deildakeppnina á undan. Þeir voru enn fremur aðeins annað liðið frá 1995 sem fylgir deildarmeistaratitlinum eftir með fslandsmeistaratitli. ooj@dv.is Einn af mörgum efnilegum Andri Stefan, sem stýrði leik Hauka í úrvaisdeildinni og tók á sig aukna ábyrgð eftir að Litháinn Dalius Rasikevicius hvarf á braut eftir áramót, er einn fjölmargra ungra leikmanna sem hafa staðið sig með prýði i vetur. Andri byrjaði timabilið á því að vinna Evrópumeistaratitilinn meðU-18 ára landsliði Islands og hefur haldið sínu striki siðan. Fullir sjálfstrausts Haukár sýndu þó strax í fýrsta leik, 30-23 sigri á HK, að menn voru fullir sjálfstrausts og ætluðu að klára viðburðaríkan vetur með stæl. Liðið fór taplaust í gegnum sex fyrstu leiki sína og tók þá inn 10 af 12 mögulegum stigum. Fyrra tapið af aðeins tveimur hjá liðinu í úrslitakeppninni kom gegn KA á Akureyri en bæði töp Haukanna voru með aðeins einu marki og bæði á útivelli. Haukar náðu þannig í 20 af 28 stigum í boði, unnu 8 af 14 leikjum og gerðu fjögur jafntefli. Spila nútímahandbolta Haukar spila mjög hraðan og létdeikandi handbolta enda skipar liðið mikið af ungum leikmönnum sem hafa fengið mikið að spila undir stjórn Páls Ólafssonar, sem tók við liðinu af Viggó Sigurðssyni. Haukar skoruðu 32,2 mörk að meðaltali gegn bestu liðum landsins og eru að spila hraðan nútíma- bolta undir stjórn Páls. Úrslitakeppni karla í handbolta var tekin upp vorið 1992 og þetta er því í 13. sinn sem Hafa titil að verja í fyrra urðu Haukar íslandsmeistarar sem deildarmeistarar og urðu Markahæstur með 129 mörk Stórskyttan unga ArnórAtiason var markahæsti leikmaður RE/MAX-úrvalsdeildar karla með 129 mörk. RE/MAX-úrvalsdeild karla lokið Arnór markahæstur KA-maðurinn ungi Arnór Atlason varð markahæsti leikmaður RE/MAX-úrvalsdeildar karla í hand- knattleik sem lauk með íjórum leikjum á sunnudaginn. Arnór, sem mun leika undir stjórn Alfreðs Gíslasonar hjá Magde- burg á næsta ári, skoraði 129 mörk í fjórtán leikjum KA-liðsins í úrvals- deildinni, fimm meira heldur en Litháinn Andrius Rackauskas, sem leikur með HK. Félagi Arnórs hjá KA, litháíski línumaðurinn Andreus Stelmokas, varð þriðji markahæstur en hann skoraði 110 mörk. Þrír með yfir 100 mörk Þessir þrír voru þeir einu sem skoruðu yfir 100 mörk í úrvals- deildinni. Sá sem varð fjórði var stórskytta ÍR-inga Einar Hólmgeirs- son en hann skoraði 98 mörk í leikjunum fjórtán í úrvalsdeildinni. Ekkert mark úr 11 skotum Framarinn Valdimar Þórsson skoraði 78 mörk en honum voru heldur mislagðar hendur í síðasta leik Fram gegn Gróttu/KR á sunnu- daginn, þegar hann skoraði ekki eitt einasta mark úr ellefu skottil- raunum. Hinn ungi og efnilegi Haukamaður Ásgeir Örn Hall- grímsson skoraði 76 mörk og Hann- es Jón Jónsson, leikstjórnandi ÍR, skoraði 72 mörk. Gamla brýnið Héðinn Gilsson, sem spilar nú með Fram, skoraði 70 mörk. Y A Í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.