Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 6.APRÍL 2004 Sport XfV Edu vill spila fyrir England Brasilíski miðjumað- urinn Edu, sem hefur leikið stórt hlutverk hjá Arsenal í vetur, hefur lýst yfir áhuga sínum á því að spila fyrir enska landsliðið. Edu, sem er 25 ára gamall, hefur aldrei komið til greina í brasih'ska landshðið en þarf hins vegar að öðlast enskan rikisborgararétt til að vera gjaldgengur í enska liðið samkvæmt reglum FIFA en Edu ætti að geta fengið hann þar sem hann hefur dvalið samfellt í Englandi í meira en tvö ár. „Það vilja allir spila með landsliði og i ég er engin undantekning á því,“ sagði Edu. KA-menn fá markvörð Lið KA í Lands- bankadeild karla í knattspyrnu skrifaði um helgina undir samning við ungverska markvörðinn Matus Sandor sem var til reynslu hjá félaginu í síðustu viku. Matus, serm er 27 ára gamall og hefur spilað í Finn- landi undanfarin ár, skrifaði undir samning til haustsins en hann kemur aftur 3. maí. Geraallttil að halda Forssell Forráðamenn Birming- ham ætla að reyna að fá finnska framherjann Mikael Forssell að láni frá Chelsea næsta tímabil ef þeim tekst ekki að komast að sam- komulagi við félagið um ásættanlegt kaupverð. Ekki i er vitað hvað Chelsea ætlar sér að gera við Forssell í sumar en Finninn hefur þegar lýst því yfir að hann vilji spUa reglulega. FH mætir HK FH-ingar, sem höfnuðu í öðm sæti í * RE/MAX-1. deild karla, mæta HK-mönnum, sem höfiiuðu í sjöunda sæti RE/MAX-úrvalsdeild- arinnar, í tveimur leikjum í umspUi um sæti í úrslitakeppninni. Fyrri leUcur liðanna fer fram í Kaplakrika á mið- vikudaginn kl. 19.15 og sá seinni á föstudaginn langa kl. 16.30 í Digranesi. Sigurvegari úr þessum leikjum mætir Vals- mönnum í átta liða úr- slitum en annars mætast Haukar og ÍBV, ÍR og Grótta/KR og KA og Fram. Franski framherjinn Thierry Henry biður félaga sína hjá Arsenal að dvelja ekki of lengi við tapið gegn Manchester United heldur einbeita sér að leiknum gegn Chelsea í kvöld Hötum ekki tíma til að svekkja okkur Franski framherjinn Thierry Henry sat á varamannabekknum þegar Arsenal beið lægri hlut fyrir Manchester United í undanúrslitum bikarsins á laugardaginn og horfði upp á drauminn um þrennuna, sigur í deild, bikar og Meistaradeild, hrynja til grunna. Hann viH hins vegar gleyma þessum leik sem fyrst og einbeita sér að leiknum gegn Chelsea í kvöld. „Við getum ekki hugsað of lengi um þetta tap og verið niðurdregnir - það er einfaldlega ekki tími til þess,“ sagði Henry við enska fjölmiðla í gær. „Það er stórleikur gegn Chelsea á morgun [í kvöld] og við verðum að vera klárir í þann leik. Við megum teljast heppnir að fá þennan leik svona fljótt eftir vonbrigðin á laugardaginn því tilhugsunin um þennan leik færir mönnum frábært tækifæri til að rífa sig upp.“ Ekki sáttur við bekkinn Henry sagðist ekki hafa verið sáttur við að byrja á varamanna- bekknum í leiknum gegn Manchester United á Villa Park á laugardaginn en sagði þó jafnframt að hann virti ákvarðanir Arsene Wenger. „Eg get ekki verið sáttur við að sitja á bekknum, það er einfaldlega ekM minn karakter. Mér finnst ég ekki vera þreyttur en að sama skapi skil ég að það er erfitt að spila alla leiki þegar þeir eru jafn margir og raun ber vitni," sagði Henry. Arsenal hefur ekki unnið í síðustu þremur leikjum sínum og þrátt fyrir að Henry hafi horft upp á möguleikann á þrennunni frægu hverfa út um gluggann sagði hann að það væri nóg eftir af tímabilinu. Nóg eftir til að spila um „Ef bikarinn hefði verið okkar eini möguleiki á að vinna titil á þessu tímabili þá hefði þetta tap á laugardaginn verið gífurlega von- brigði. Staðreyndin er hins vegar sú „Við eigum að geta komið til baka eftir vonbrigði laugar- dagsins því að efvið trúum ekki á sjálfa okkur eftir það sem við höfum afrekað á þessu tímabili þá er eins gott að hætta bara." að við erum enn á fullu í úrvals- deildinni og Meistaradeildinni. Við eigum möguleika á tveimur titíum og ætlum ekki að gefa þá ffá okkur baráttulaust. Við eigum að geta komið til baka eftír vonbrigði laugardagsins því að ef við trúum ekki á sjálfa okkur eftir það sem við höfum affekað á þessu tímabih þá er eins gott að hætta bara,“ sagði Henry. Mikið mun koma til með að mæða á Henry í leiknum í kvöld en hann hefur ekki náð sér á strik í undanförnum leikjum miðað við það hvenrig hann hefur spilað í allan vetur. Hann var í gjörgæslu hjá William Gallas, varnarmanni Chelsea, í fyrri leik liðanna og gerði lítið í báðum leikjunum gegn Man- chester United fyrir utan markið glæsilega sem hann skoraði í fyrri leiknum. oskar@dv.is Dveljum ekki t fortfðinni Thierry Henry og félagar hans i Arsenal ætla að einbeita sér að leiknum gegn Chelsea I kvöld I stað þess að dvelja við tapið gegn Manchester Utd. Reuters Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United. stráir salti í sár Arsenal Myndi ekki veðja á sigur Arsenal gegn Chelsea Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, var ekki á þeim buxunum að veita Arsenal neina samúð eftir undanúrslitaleikinn á laugardaginn og gaf lítíð fyrir möguleika liðsins gegn Chelsea í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum meistaradeildarinnar á Highbury í kvöld en liðin gerðu jafntefli, 1-1, í fýrri leiknum á Stamford Bridge. Ranieri á heppni skilið „Ég myndi ekki veðja á sigur Arsenal í leiknum. Ég held að liðið eigi erfiðan leik fyrir höndum á þriðjudaginn [í kvöld]. Ég held að Claudio Ranieri eigi skilið að fá þá heppni sem við fengum í dag miðað við allt sem hann hefur gengið í gegnum að undanförnu,“ sagði Alex Ferguson eftir leikinn á laugar- daginn. Það hefur löngum verið grunnt á því góða á milli Fergusons og Arsene Wenger, knattspyrnustjóra Arsenal. Það ríkti lítil ást á milli þeirra eftír leikinn, handabandið og kveðjan var köld og þurr og Wenger var ekki sáttur við ummæli Fergusons eftir leikinn. Hlusta ekki á hann „Það er langt síðan ég hlustaði á eitthvað sem þessi maður hefur að segja," sagði Wenger um ummæli Fergusons. Wenger tók áhættu með því að hvíla sinn besta mann, framherjann Thierry Henry, og sagðist ekki sjá eftir því þótt leikurinn hefði tapast. „Ef ég ættí að velja á milli sigurs í „Það er langt síðan ég hlustaði á eitthvað sem þessi maður hefur að segja." undanúrslitaleiknum og sigurs í leiknum gegn Chelsea þá myndi ég velja Chelsea-leikinn. Það er gífurlegt álag á leikmönnum mínum og leikmaður eins og Henry getur ekki spilað alla leiki. Hann var þreyttur en ég vona að hann komi ferskur í leikinn gegn Chelsea. Við gáfum samt allt í þennan leik en úrslitín voru vonbrigði. Ég hef samt ekki trú á öðru en að leikmenn mínir sýni þann andlega styrk sem til þarf tú að klára þennan leik,“ sagði Wenger. Hefur ekki trú á Arsenal Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, telur að Arsenal lendi í erfiðleikum gegn Chelsea. Reuters

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.