Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2004, Side 31
DV Síðast en ekki síst ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 2004 31 Við erum öll með nef Fyrir nokkrum dögum fékk ég blað Geðhjálpar inn um lúguna hjá mér. Það er vel heppnað og troðfuílt af pínulitlum auglýsingum sem sýna svart á hvítu (og í öllum regnbogans litum) hversu margir eru tilbúnir að leggja málefninu lið. Og það er kannski ekkert skríúð því geðsýki er í raun og veru eins konar norm í samfélaginu. Ég efast um að nokkur íslendingur hafi BÆÐI verið alfarið laus við hnökra á eigin sálariífi OG sloppið við að horfa á geðsjúkt sálar- stríð náins ætúngja eða vinar. Rjúfum þagnarmúrinn Það sem helst fangaði athygli mína'var grein með yfirskriftinni Rjúfum þagnarmúrinn, eftir höfund sem raunar vildi ekki láta nafns síns geúð (!) en hvað um það. Greinin er áhugaverð þótt þar sé svo sem ekki að finna róttækar skoðanir eða nýjar upplýsingar. Þar segir meðal annars: „Undir- ritaður var fyrir skömmu staddur í Noregi og kyimúst þar heimamönn- um og varð satt að segja undrandi á því hvað þeir töluðu opinskátt um þunglyndi og aðrar geðraskanir. Þegar ég spurði hvort þetta væri al- gengt viðhorf til þessara sjúkdóma „Ég efast um að nokk- ur íslendingur haf( BÆÐI verið alfarið laus við hnökra á eig- in sálarlífí OC sloppið við að horfa á geð- sjúkt sálarstríð náins ættingja eða vinar." Guðrún Eva Mínervudóttir fékk blaö Geðhjálpar inn um lúguna hjá sér. Kjallari var mér tjáð að fordómar væru á miklu undanhaldi. Þar hefði það haft áhrif að forsæúsráðherra þjóð- arinnar hefði tilkynnt að hann yrði að taka sér frí frá störfum um tíma vegna þunglyndis." X-Files Þegar ég las þetta varð mér hugs- að til hinnar þrálátu kjaftasögu um deild 10 (eða eitthvað svoleiðis) á Landspítalanum sem er ekki til en er samt úl (eins og í Twilight Zone eða X-Files!). Þar á að vera eins konar griðastaður fyrir helstu ráðamenn þjóðarinnar sem þurfi stundum að laumast til að fá meðferð við sfnum þrálátu geðveilum. Samsæriskenn- ing þessi þykir ein sú safaríkasta af öllum þeim sem eru í umferð (og er þó af nógu að taka) hvort sem eitt- hvað er hæft í henni eða ekki. Ég hef auðvitað ekki hugmynd um hvort eitthvað er til í þessu, ég á ekki nógu valdamikla vini. Þjóðsaga eða hvað? Ef þetta er satt og rétt eru það auðvitað gleðitíðindi að fólkið sem stjórnar landinu skuli þó ekki telja sig yfir það hafið að leita sér hjálpar þegar þess er þörf. En ef þetta er hel- ber skáldskapur eða þjóðsaga þykir mér það segja meira um stemning- una meðal þjóðarinnar en nokkur skýrsla eða skoðanakönnun. Ég meina: Af hverju gerum ráð fyrir því að fólk sem stöðu sinnar vegna þarf að passa upp á orðsporið Hvar eru þau nú Fiskaii rolliifur úp maga konu r1 Fáir voru þekktari á íslandi á ár- unum 1975 til 1985 en Baldur Brjánsson töframaður. Gríðarlega athygli vakú þegar hann fletti ofan af andalæknum á Filippseyjum. Þá flutti Guðni í Sunnu, sá mikli ferða- frömuður sem var, heilu flug- vélarfarmana af fslendingum þang- að en þá voru þar starfandi miklir andalæknar sem skáru fólk upp með berum höndum. Baldur var inntur áhts á þessu og gaf ekki mik- ið fyrir, sagði þetta einskær töfra- brögð. Ómar Ragnarsson skoraði á Baldur að standa fyrir máli sínu sem hann og gerði. Skar upp konu nokkra með fingrunum og veiddi úr maga hennar rollulifur, garnir, egg og allt mögulegt. fslendingar stóðu á öndinni og ferðirnar til Filippseyja aflögðust snarlega. í dag býr Baldur í Garðabæ, í friði og ró, þriggja barna faðir og enn fleiri barna afi. Hann er virðú- legur kaupsýslumaður sem höndlar með fasteignir og á sér golf sem áhugamál. Hefur Baldur verið mik- ilvirkur í félagsmálum golfara þessa lands. hætti sér ekki á geðdeild nema geð- deildin sé eins konar íslensk útgáfa af herstöðinni í Ameríku þar sem geimverurnar eru geymdar? Af hverju fylgir því svona ógurleg skömm að vera stundum dálíúð illt í sálinni? Erum við ekki manneskjur? Að afneita á sér nefinu Sextán og sautján ára var ég bók- staflega að farast úr þunglyndi og kvíða og hef stundum dansað ná- lægt brúninni síðan. Flestir sem ég þekki hafa svipaða sögu að segja. Að vísu hef ég stundum lent í því, þegar ég minnist á geðlækna, að í kjölfarið detú á dauðaþögn. Þá hef ég í sak- leysi mínu gert ráð fyrir að viðstadd- ir væru sokknir í minningar um eig- in hugljúfu eða hraksmánarlegu kynni af geðlæknum en kannski voru þetta allt saman vandræðaleg- ar fordómaþagnir. Hver veit? Æ, látum ekki svona. Þetta er eins og að reyna að afneita á sér nefinu, þegar helmingur þjóðarinnar er á geðlyfjum og hinn helmingurinn sjálfsagt meira og minna að harka af sér eða notast við önnur úrræði. Nei, ókei, ég skal ekki taka alveg svo djúpt í árinni, en þið skiljið hvað ég á við. # lan Gillan Söngvari Deep Purple nú og eins og hann var. Aukatónleikar Deep Purple forn- „Menn í bransanum hlógu að Einari Bárðarsyni þegar spurðist að hann æú- aði að flytja inn Deep Purple. Hlógu sig mátt- lausa. En sá hlær best sem síðast hlær. Miðasala á suma aðra tónleika sem til stendur að halda hérlend- is er í jámum en miðar á Deep Purple seldust upp á mettíma," segir Einar Bárðarson sem nú vinnur að því að koma á koppinn aukatónleikum með þessari frægu hljómsveit. Þessi ótrúlega ásókn í miða á tón- leikana kom tónleikahaldaranum Einari reyndar í opna skjöldu þrátt fyrir allt sem og hörðustu aðdáend- um Deep Purple. En miðað við við- brögðin telur Einar að þó bætt yrði við tveimur aukatónleikum þá myndi verða húsfyllir. 5.300 miðar eru nú seldir en um þúsund aðdá- endur Deep Purle þurftu frá að hverfa miðalausir en örtröð mynd- aðist við Hard Rock Café á föstudag. „Menn í röðinni til að kaupa miða voru á öllum aldri, allt frá 16 upp í 65 ára. Það er ekki síður yngra Hljómsveitin Mánar Einhverallra vin- sælasta hljómsveit hippatímans og vilja sumir meina að þarna sé komin Uriah Heep Islands. Forsprakkann Labba má sjá lengst til vinstri. fólk sem æúar að mæta. Þetta er klassík og kemur alltaf upp á fimm ára fresú, þetta „heavy rock“,“ segir Einar kátur. Ekki hefur verið gengið endanlega frá því hvaða hljómsveit- ir munu hita upp fyrir Deep Purple en nú eru miklar líkur á að Mánar frá Selfossi muni verða önnur þeirra hljómsveita. Vonir stóðu til að Uriah Heep kæmi einnig en Mánar eru Uriah Heep fslands og eru ekki síður við skap íslenskra áhorfenda. Líkamsrækt og lífsstíll Dansrækt JSB er staður fyrir konur á öllum aldri. í opna kerfinu bjóðum við mikið úrval tfma í sal þar sem fram fer fjölbreytt þol-, styrktar- og liðleikaþjálfun: hefðþundnir JSB tímar, lóða- og styrktartímar, pallatímar, tímar í jazzballett og yoga. í tækjasalnum gefst þér jafnframt kostur á einkaþjálfun og leiðsögn. Aðhaldskortin eru svo tilvalin leið til að sameina kosti opna kerfisins og TT-námskeiðanna. Rope Yoga Nýtt heildrænt hug- og heilsuræktarkerfi. Markviss uppbygging og styrking fyrir líkamann þar sem miðjan - kviðurog bak-gegnir lykilhlutverki. 6 vikna námskeið 2x í viku: Verð: 12.500 kr. kl. 6:15 miðvikudaga og föstudaga kl. 7:15 þriðjudaga og fimmtudaga 4 vikna námskeið 3x í viku: Sama verð: 12.500 kr. kl.13:30 mánudaga, miðvikudaga og föstudaga Innritun hafin - Ný námskeið byrja 26. apríl Vertu velkomin í okkarhóp! Páskatilboð! 40% afsláttur af árskortum og 6 mánaða kortum í apríl. DRNSRfEKT leggur línumar Lágmúla 9 • 108 Reykjavik • Sími 581 3730 • Bréfsími 581 3732 J

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.