Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Side 4
4 MÁNUDAGUR 24. MAl2004
Fréttir DV
Styrmirtrú-
lofaður
Á heimasíðu Sivjar Frið-
leifsdóttur umhverfisráð-
herra, siv.is, má lesa fréttir
af storkinum Styrmi.
Styrmir dvaldi eins og al-
þjóð veit í Húsadýragarðin-
um í Laugardal nokkra
mánuði í fyrra. í vor eign-
aðist hann kærustu og er sú
heppna tuttugu og fimm
ára svissneskur storkur.
Saman bjuggu þau sér
hreiður og í aprfl verpti sú
svissneska sex eggjum. Síð-
ustu fréttir af skötuhjúun-
um herma að tvö eggjanna
hafi klakist út.
Reykurinn
reyndist ryk
Lögregla og slökkvilið
voru seinni partinn í gær
kölluð að fjölbýlishúsi við
Skaftahlíð í Reykjavflc en
þar hafði verið tilkynnt um
reyk í stigagangi. Þegar að
var gáð reyndist enginn
eldur laus en í ljós kom að
verið var að saga steinvegg
með steinsög í einni íbúð-
inni. Hafði örfínt rykið
smogið fram á stigaganginn
og valdið þessum misskiln-
ingi.
Sá þriðji í
varðhald
Maður, sem lögregla
hafði leitað í tengslum við
bankaránið í Landsbankan-
um í Grafarvogi á föstudag,
gaf sig fram á laugardags-
kvöld. Hann var úrskurðað-
ur í gæsluvarðhald í Hér-
aðsdómi Reykjavflcur í gær,
lfkt og tveir menn, 20 og 28
ára gamlir, sem handteknir
voru á föstudag. Þriðji
maðurinn er 26 ára. Þre-
menningarnir eiga að sitja í
varðhaldi til miðvikudags.
Boeing 747 þota var í yfirvofandi háska eftir flugtak í Hong Kong í desember. Stef-
án Kramer flugmaður neitaði að hlýða skipun írsks flugstjóra um að stefna þotunni
i Qallshlíð. Flugatvikið skráð hjá yfirvöldum í Hong Kong. Flugstjórinn rekinn úr
starfi skömmu siðar. Flugrekstrarstjóri Atlanta segir málin ekki tengjast.
Litlu mátti muna að Boeing 747 þotu flugfélagsins Atlanta væri
flogið í fjallshlíð eftir flugtak frá Hong Kong í október síðastliðn-
um. frskur flugstjóri, ráðinn í gegnum starfsmannaleigu, gaf ís-
lenskum flugmanni skipun um að breyta stefnu sem hefði þýtt
að vélin hefði skollið í fjallshlíð. Flugmaðurinn, Stefán Kramer,
neitaði að hlýða skipun flugstjórans, Michaels Fayev, þar sem
hann vissi hvernig aðstæður voru og að stefnubreyting myndi
verða áhöfninni og vélinni að fjörtjóni.
Heimildarmaður DV meðal flug-
manna Atlanta segir enga spurn-
ingu vera um það að Stefán hafi
sýnt hetjulund með því að rísa gegn
flugstjóranum og forða þannig vél-
inni og þriggja manna áhöfn ffá
brotlendingu.
Einar Öskarsson, deildarstjóri
flugrekstrardeildar, vill ekki gera
mikið með flugatvikið í Hong Kong.
„Ég get staðfest
að flug- atvik
átti sér stað
þegar við
^ ■ brottför
frá Hong
> Kong,"
segir
hann.
Einar
segir að þar
hafi verið um
að ræða atvik
sem skil-
greint
ESösSf
ssaKsss^
I stjórinn var látinn fjuka.
sem SAD, og á við um verklagsregl-
ur við flugtak.
„Samkvæmt reglugerð ber okkur
að tilkynna atvik sem skilgreind eru í
70 liðum. Sem dæmi um tilkynninga-
skyld atvik má nefna „Go around"
þar sem ekki er hægt að lenda af ein-
hverjum ástæðum. Við erum með
gríðarlega öflugt tilkynningakerfi
sem við höfum byggt upp á undan-
förnum þremur árum og erum
fremstir hér á landi," segir Einar.
Hann segir að flugstjóri hafi til-
kynnt um atvikið til félagsins og
Atlanta hafi látið viðkomandi yfir-
völd vita. „Þetta mál fór beint í
rannsókn innanhúss og útkoman
var send til yfirvalda í Hong Kong og
er þar enn til meðferðar," segir Ein-
ar.
Hann staðfestir að írski flugstjór-
inn er ekki lengur ekki í vinnu hjá
Atlanta en hann var rekinn úr starfi
vegna trúnaðarbrests í nóvember í
fyrra, mánuði eftir flugatvikið.
„Brotthvarf hans tengist ekki
þessu flugatviki í Hong Kong enda
er það mál enn til rannsóknar hjá
yfirvöldum," segir Einar.
Heimildir DV herma að innan-
hússrannsóknin eftir flugatvikið í
Hong Kong hafi leitt í ljós að
Michael hafi gefið rangar upplýs-
ingar um fortíð sína og starfs-
reynslu. Hann var því umsvifalaust
rekinn.
Þormóður Þormóðsson hjá
Rannsóknanefnd flugslysa kvaðst
ekki hafa fengið tilkynningu um at-
vikið enda væri það á forræði yfir-
valda á viðkomandi svæði að rann-
saka það. Hann sagði að það væri
hlutverk Flugmálastjórnar að rann-
saka tilvik á borð við þessi. Flug-
málastjórn staðfesti á sínum tíma
réttindi flugstjórans. Ekki tókst að
fá viðbrögð þaðan vegna þessa
máls.
n@dv.is
■ “oemg 747þotu At
J fugtak frá Hong Ko
I stjárinn vildibeygja
I maðurinn neitaði iv,
] Atlantaþotu sömu g
| um ræðir.Myndin er
I þeim flugmönnum st
I ræðir igreininni.
Svarthöfði + Björk = Sönn ást
Það stóð í DV að Björk væri svo
gott sem búin að fara tvær umferðir
á allan karlpening jarðkúlunnar síð-
ustu tvo áratugina. Svarthöfða finnst
hann vera útundan. Aldrei hafa ást-
rflcar hendur Bjarkar strokið létt og
frjálst um höfuð Svarthöfða. Hvað
þá aðra lfkamshluta.
Best gæti Svarthöfði trúað að
Björk væri haldin meðfæddum eða
áunnum fordómum gegn gáfuðum
mönnum. Haldi kannski að þeir séu
ekki blóðheitir og þróttmiklir bara af
því að þeir eru svo miklir andans
menn. Séu hvorki hipp né hopp.
Þetta er misskilningur hjá htla
Svarthöfði
söngfuglinum sem hefur flögrað svo
viðþolslaust um höf og lönd. Svart-
höfði er þvert á móti afar frambæri-
legur. í raun gæti hann verið frábær
ábót á ímynd Bjarkar. Það er máhð.
Björk + Svarthöfði = sönn ást, út-
skorið í bjarkirnar, væri hægt að
sýna alþjóðlegu pressunni þegar
hún kæmi í heimsókn í sumarhúsið
á Þingvöhum. Álftirnar myndu fljúga
eins og rándýrir samkvæmiskjólar
um loftin blá og himbriminn reka
upp sitt ámátlega gaui úti á miðju
Hvernig hefur þú það?
Jóhanna Kristjónsdóttir, blaðamaður „Ég hefþað mjög gott núna, þakka þér
kærlega fyrir. Ég er nýkomin heim úr einkar ánægjulegri ferð til Jemen og Jórdaníu. I
hvorugu landinu hitti ég hryðjuverkamenn eða -konur. Á næstu dögum ætla ég að
ræða við félaga mína IVIMA, Vina- og menningarfélagi Miðausturlanda, um fyrir-
hugaöa ferö til Sýrlands og Ubanon íseptember."
vatni. Inni við kveikir Svarthöfði
upp í arninum með geislasverði.
Sennilega verður þetta aldrei.
Það er best að líta raunhæft á hlut-
ina: Svarthöfði er lúði. En úr því má
bæta. Það er óþarft að gefast upp
þótt vandamálið sé trikkí með
meiru.
Ákvörðunin hefur verið tekin:
Svarthöfði ætlar að verða kúl. Málið
er að byggja á þeim grunni sem
sameiginlegur er með Björk. Smekk-
leysa er Svarthöfða í blóð borið. Eig-
inlega vantar ekki nema herslumun-
inn að Svarthöfði sé svo forkastan-
lega smekklaus að það geti tahst
meiðandi fyrir samferðarmennina.
Með elju verður Svarthöfði fullkom-
lega smekklaus; bókstaflega smekk-
leysið uppmálað. Þann dag mun
hann halda Björk í fangi sér. Hún
mun syngja gegnum tárin um glöt-
uðu árin.
Svarthöfði. /