Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR 24. MAl2004
Fréttir 1>V
Háreysti í
heimahúsum
Talsverður mannfjöldi
var í miðbæ Reykjavíkur að-
faranótt sunnudags og voru
flestir við skál. Nokkuð var
um að lögregla væri kölluð
út vegna gleðskapar og há-
vaða í heimahúsum. Þá voru
tveir ökumenn teknir vegna
gruns um ölvun við akstur.
Rétt fyrir klukkan sex í gær-
morgun var slökkviliðið
kvatt til vegna elds í mann-
lausri bifreið við Ásvalla-
götu. Greiðlega gekk að
slökkva. í nágrannasveitar-
félögunum, Kópavogi og
Hafharfirði gekk h'tíð á að
sögn lögreglu og hélt fólk sig
almennt til hlés.
Þrírstútará
Suðurnesjum
Þrír ökumenn voru teknir
grunaðir um ölvun við akst-
ur í umdæmi lögreglunnar í
Reykjanesbæ aðfaranótt
sunnudags. Tveir mann-
anna voru stöðvaðir í Kefla-
vík í morgunsárið og einn í
Grindavík. Mikið var um
veisluhöld á Suðumesjum
um helgina eins og annars
staðar á landinu og mikið líf
í fólki. Allt gekk þó vel fyrir
sig að sögn lögreglunnar í
Reykjanesbæ.
Okufanturá
Akureyri
Lögreglan á Akureyri
stöðvaði aðfaranótt laugar-
dags ökumann sem mældist
á 113 kílómetra hraða inn-
anbæjar þar sem leyfilegur
hámarkshraði er 50 kfló-
metrar. Annars var helgin
óvenjuróleg að sögn lög-
reglu þrátt fyrir venjulegt
helgarfyllerí í bænum. Til
dæmis var enginn stöðvaður
vegna gruns um ölvun-
arakstur.
Ölvaðurá
flótta
í fyrrinótt stöðvaði lög-
reglan á ísafirði drukkinn
ökumann í miðbænum.
Þegar sá fulli gerði sér grein
fyrir hvað verða vildi sá
hann þann kost vænstan að
taka á rás en sprettharðir ís-
firskir lögreglumenn náðu
honum skjótt. Að öðru leytí
var helgin róleg hjá lögregl-
unni á ísafirði.
Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir Qölmiðla móta skoðanir
íslensku þjóðarinnar. í rökstuðningi sinum fyrir fjölmiðlafrumvarpinu segir hann
fjölmiðla hafa verið misnotaða til að gera árásir á Sjálfstæðisflokk í tveimur síð-
ustu kosningum og á Halldór Ásgrímsson fyrir kosningarnar 1999.
íslensk stjórnmál
nrðin öfunsnúin
„Mér þykir mjög merkilegt að heyra hvernig Samfylkingin talar í
þessu máli, þessu er einhvern veginn öllu snúið við,“ sagði
Gunnar Birgisson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, í rökstuðningi
fyrir fjölmiðlafrumvarpinu. „Nú er það Sjálfstæðisflokkurinn
sem er að reyna að setja hömlur á hluti og Samfylkingin talar fyr-
ir algjöru frelsi í öllum málum. Þessu er öllu orðið snúið við í dag
í íslenskri pólitík."
Gunnar telur að fjölmiðlum sé
misbeitt og þeir séu „lámir ráðast á“
Sjálfstæðisflokkinn. Þetta réttlætí
lög á fjölmiðla. Hann telur að íjöl-
miðlar móti skoðanir fólksins í land-
inu og hafi gert það í síðustu tveimur
kosningum - með því að fjalla gagn-
rýnið um Sjálfstæðisflokk og Halldór
Asgrímsson. „Og ef það vefst fyrir
nokkrum — ég var
kannski einn af
þessum efasemd-
armönnum í
byrjun en eftir
I jnt — ’ að frumvarpið
kom fram og ég
hef séð hvernig
fjölmiðlunum
hefur verið beitt
IB*# ' látlaust segir
maður við sjálfan
sig: Það er fylli-
lega
Halldór Ásgrímsson Fjallað var um aö
Halldór Ásgrímsson græddi persónulega
á kvótakerfinu, sem hann átti þátt I að
koma á, í fjölmiðlum 1999.Gunnar Birg-
isson segir þetta hafa verið árásir á Hall-
dór, og vill lög á fjölmiðla.
réttlætanlegt að setja þessi lög. Lflca
var þetta gert fyrir ári. í kosningun-
um var öllu beitt af fullu afli, allt
saman skipulagt," segir hann.
Gunnar vísar einnig til umfjöllunar
um Halldór Ásgrímsson í ijölmiðl-
um 1999, en þá var fjallað um að
Halldór, sem átti stóran þátt í að
móta kvótakerfið, hagnaðist per-
sónulega af því. „Hvernig var það
svo í kosningunum 1999? Þá var að
vísu þessi fjölmiðlarisi ekki til en þá
beittu menn svona aðferðum gegn
hæstvirtum utanríkisráðherra Hall-
dóri Ásgrímssyni þegar menn níddu
af honum skóinn."
Að matí Gunnars er andstaða
þjóðarinnar við frumvarpið í reynd
marklaus - þar eð hún stýrist af
áhrifúm ijölmiðla á einstaklinga:
„Það er mjög merkilegt að sjá hvern-
ig þessir ágætu fjölmiðlar hafa unn-
ið. Það var kynt undir varðandi for-
setann og neitunarvaldið og allt
þetta, ef hann neitaði að skrifa und-
ir og málinu yrði skotíð til dóms
þjóðarinnar, í þrjá til fjóra daga og
síðan var gerð skoðana-
könnun. Þá var sagt að
80% væru með því að
frumvarpið færi í þjóðar-
atkvæði," segir hann og
bætir við: „Svona geta
menn haft skoðanamynd-
andi áhrif á fólk og það er
nákvæmlega það sem er gert
' með þessum fjölmiðlum."
„Þá var sagt að 80%
væru með því að
frumvarpið færi í
þjóðaratkvæði. Svona
geta menn haft skoð-
anamyndandi áhrifá
fólk og það er ná-
kvæmlega það sem
er gert með þess- ggjfj
um fjölmiðl- Jr
um."
Gunnar á and-
stöðu sína við umfjöll-
un fjölmiðla um Sjálf-
stæðisflokkinn og Dav-
íð Oddsson forsætisráð-
herra sameiginlega með
Davíð Oddssyni, Halldóri
Ásgrímssyni, Áma Magn-
ússyni félagsmálaráð-
herra, Halldóri Blön-
dal, forseta Al-
þingis, og Geir
H. Haarde fjár-
málaráðherra,
aukfjöldaþing- ,
manna Sjálf- j
stæðisflokks
sem hafa
gagnrýnt fjöl-
miðlaumfjöll-
un í fjölmiðl-
um nýverið á
þeim grund-
velli að um sé
að ræða mis-
beitíngu og
árásir.
Lúðvflc Bergvinsson samfylking-
arþingmaður, sagði á Alþingi á
föstudaginn í tilefni af rökstuðningi
rfkisstjómarinnar að stjómin vildi
kúga óþægileg sjónarmið. „í mínum
huga er þetta afar sérstakt. Þetta
verður náttúrulega fyrst og ffemst að
túlka sem lög gegn tflteknum sjónar-
miðum. Því verður það ekki túlkað
öðmvísi en svo að þar sem þessi
sjónarmið em hæstvirtum forsætís-
ráðherra óþægfleg sé nauðsynlegt
að stöðva þessi dagblöð. Þetta er
grafalvarlegt mál.“
Umræðu lauk um
fjöhniðlafrumvarpið í
hádeginu á laugar-
dag. Gert er ráð fyrir
að í dag verði
greidd atkvæði
um fmmvarpið.
1 jontrausti@dv.is
Gunnar Birgisson Þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins undrast að vinstri-
fiokkur Samfylkingar skuli andmæia
því að setja hamlandi lög á fjölmiðla
á sama tima og hægriflokkur Sjálf-
stæðisflokks vinni i hamlandi lögum.
islensk stjórnmál séu orðin öfugsnú-
in. Hingað til hefursú trú að ríkisvald-
ið þurfi að ala upp og vernda einstak-
linga fyrir„óæskilegum"áhrifum ver-
ið ein helsta vísbendingin til að skil-
greina vinstrimenn.
ísafjarðarbær á móti fjölmiðlafrumvarpi
Þingmenn skoði hug sinn vel
Bæjarstjórn ísafjarðar-
bæjar hefur samþykkt til-
lögu þar sem vinnubrögð
meirihluta Alþingis við
fjölmiðlafmmvarpið em
gagnrýnd harðlega. Þar
segir orðrétt: „Þau vinnu-
brögð em vart tfl þess fall-
in að auka virðingu al- Kristinn H.
mennings fyrir hinu háa Al-
þingi. Það hlýtur að teljast
lágmarkskrafa í sérhverju
lýðræðisrfld að málefni er
Gunnarsson Einn
stjórnarliða á móti
frumvarpinu.
varða gmndvallaratriði lýðræðisins
hljóti ítarlega og vandaða umræðu
áður en lagasetning er varðar þau
atriði er afgreidd," segir í bókun bæj-
arstjórnarinnar.
Hvað liggur á?
Meirihluti í bæjarstjórn
ísafjarðar samanstendur
af samstarfi Sjálfstæðis-
flokksins og Framsóknar-
flokksins, rétt eins og rflcis-
stjórn íslands. Beindi bæj-
arstjómin þeim tilmælum
til þingmanna Norðvest-
urkjördæmis að þeir skoði
hug sinn vel við afgreiðslu
málsins.
Eini stjómarþingmaður-
inn sem er á móti frumvarp-
inu er úr kjördæminu, Kristinn H.
Gunnarsson, Framsóknarflokki. Ein-
ar K. Guðfinnsson, Einar Oddur Krist-
jánsson, Magnús Stefánsson og
Sturla Böðvarsson styðja fmmvarpið.
Svanur Kristjánsson prófessor
Undirskrift forseta
ylli vonbrigðum
Magnús Þór
Hafsteinsson
alþingismaður
kæri mig ekki um að vera áskrifandi að blaði sem styður þessi ólög sem verið er að setja á
landsmenn í dag. Mér finnst það ófyrirgefanlegt að fjölmiðill sem vill láta taka sig alvarlega
geti skrifað upp á þetta mál og þessa málsmeðferð. Morgunblaðið má hafa sína skoðun en
ég kæri mig ekki um að hafa blað sem styður þetta inni á mínu heimili. Þess vegna ætla ég
að segja Morgunblaðinu upp frá og með deginum ídag."
Svanur Kristjánsson, prófessor í
stjórnmálaffæði, segir það ljóst af
orðum Ólafs Ragnars Grímssonar for-
seta að hann hafi opinn þann mögu-
leika að beita málskotsréttí forseta í
umdeildum málum. „Ólafur Ragnar
sagði í kosningabaráttunni 1996 að
hann teldi að þessi réttur
væri til staðar. Hann tók
• sem dæmi um EES-
samninginn að hann
~■'*■■■) v »- hefði talið rétt að neita
að skrifa undir hann.
Það sem er markvert er
lfka að hann sagðist hafa
íhugað að neita að
skrifa undir Kára-
Ólafur Ragnar Grímsson Forsetinn hef-
ur til íhugunar hvort hann skrifi undir fjöl-
miðlalög rikisstjórnarinnar, sem mæta
andstöðu mikils meirihluta þjóðarinnar.
hnjúkaframkvæmdirnar og hins veg-
ar öryrkjafrumvarpið. Og þar með er,
samkvæmt hans skilningi, forsetinn
ekki að taka efnislega afstöðu til
málsins, heldur að þetta sé mikflvægt
mál sem snertí tjáningarffelsi og lýð-
ræði í landinu. Hann er ekki að gera
neitt annað en að vísa þessu tfl þjóð-
arinnar," segir hann.
Aðspurður um afleiðingar þess að
forseti skrifaði undir fjölmiðlafrum-
varp ríkisstjómarinnar segir Svanur:
„Það er ljóst að þetta myndi valda
miklum vonbrigðum hjá fólki. 70 pró-
sent þjóðarinnar telja að það eigi að
skjóta þessu til þjóðarinnar. Hins
vegar veit maður aldrei hvað er mikill
þungi á bak við það. Ég geri ráð fyrir
að hjá einhverjum hópi, sennilega
mjög stórum hópi, þá myndi það fólk
verða fyrir miklum vonbrigðum,"
segir hann.