Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Page 9
DV Fréttir MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 9 Hraðiávegum Fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögregiunnar á Snæfellsnesi um helgina. Annað var uppi á teningn- um í umdæmi lögreglunnar í Vík í Mýrdal. Þegar sólin fór að sla'na í gærmorgun hóf lögreglan þar að fylgjast með umferð á þjóðvegi eitt og um miðjan dag hafði enginn farið yfir leyfilegan hámarkshraða á Suður- landsvegi. Enn svarar Davíð ekki Davíð Oddsson for- sætisráðherra og ráðu- neyti hans hafa enn í engu svarað skriflegum fyrirspurnum DV varð- andi samskipti forsætis- ráðherra og umboðs- manns Alþingis. DV hef- ur ítrekað óskað eftir því að Davíð Oddsson upp- lýsi um tilefni og inni- hald hótunarsímtals sem hann átti við Tryggva Gunnarsson, umboðs- manns Alþingis. Símtalið varð til þess að settar verða samskiptareglur varðandi þá úr stjórn- sýslunni sem vilja eiga orð við umboðsmann. Fyrirspurnin var einnig send á starfsmenn for- sætisráðuneytisins. Ráðuneytisstjóri er Óiaf- ur Davíðsson. Var sagt að pynta Hermaðurinn Ivan „Chip“ Frederick II, einn af sjö hermönnum sem eru fyrir dómi vegna pyntinga á föngum í frak, ver sig með því að hershöfðinginn Ricardo Sanchez og aðrir háttsettir innan hersins hafi fyrirskipað pyntingarn- ar. Þeir hafi fylgst með pyntingunum, verið við- staddir og sagt hermönn- unum að pyntingarnar væru venjubundin störf. Bandaríkjaher neitaði þessu í gær, en hermaður- inn stendur fast á sínu. Sanchez fyrirskipaði rann- sókn á meintum pynting- um í janúar, en fregnir af þeim komu ekki fyrr en undir lok apríl. Stofnandi án styrks Óánægja er hjá Land- vemd með að samtökin fengu enga úthlutun úr Pokasjóði á dögunum. „Það vekur vonbrigði að í síðustu úthlutun Poka- sjóðs var öllum umsókn- um Landvemdar hafnað. Þess iná geta að Landvemd stofnaði Pokasjóð á sínum tíma og rak hann allt fram til ársins 1995," segir í ályktun sem Landvernd samþykkti á aðalfundi sínum um helgina. Fram kom að 1 milljónar króna halli varð í fyrra á rekstri Landvemdar. Árið á undan var halfinn 4 milljón- ir. Steingrímur Hermanns- son er meðal stjómarmanna í Landvemd. Hættulegir staurar Ljósastaurar við Reykjanesbraut og víðar utan þéttbýlis eru með sérstaka brotfleti og eiga að gefa strax eftir við árekstur. Sérhannaður Ijósastaur brást í banaslysi Rannsókn á því hvers vegna sérhannaður og dýr ljósastaur brást. Átti að gefa eftir við högg en gerði það ekki. Vegagerðin leitar skýringa. Vegagerð ríkisins mun á næstu dögum og vikum rannsaka sér- staklega hvers vegna sérhannaður ljósastaur á Keflavíkurvegi gaf ekki eftir þegar jeppi keyrði á hann á þriðjudag í umferðarslysi þar sem ökumaður bílsins lést samstundis og farþegi slasaðist alvarlega. Um er að ræða staura sem keyptir voru sérstaklega, og voru talsvert dýrari en aðrir ljósastaurar, einmitt í þeim tilgangi og með þeim rökum að staurar þessir séu hannaðir með brot- flatafestingum sem valda því að árekstur við þá á ekki að vera harður og á þar af leiðandi ekki að valda slysum á við hefð- bundna ljósastaura. Magnús Ó. Einarsson, umdæm- isstjóri hjá Vegagerðinni, staðfestir að staurar þessir séu með sérstakan brotlið við jörð og eigi að gefa eftir við árekstur, sem ekki hafi gerst í þessu tilviki. Hann tekur skýrt fram að mörg dæmi séu um að þessi hönnun stauranna á Keflavíkurvegi hafi virkað eins og hún eigi að gera og hér því augljóslega um undan- tekningu að ræða. Vegagerðin áhyggjufull „Við vitum ekki ástæðuna en þetta verður vandlega skoðað. Ég vil ekki fullyrða of mikið um málið á þessu stigi, en tek eftir að þarna er um samverkandi þætti að ræða. Svona mál eru vandmeðfarin og við munum ásamt öðrum skoða þetta mál mjög vandlega," segir Magnús. Hann segir að þessir staurar hafi „farið í gegnum heilmikið ferli" hjá Vegagerðinni vegna þeirrar stefnu að taka upp staura sem séu þannig gerðir að þeir gefi eftir við árekstur, til að forða dauðaslysum. „Við mun- um fara yfir lögregluskýrslur máls- ins og sérstakir menn hjá Vegagerð- inni munu taka málið upp og skoða það vandlega." Uppsetning á lýsingu Reykjanes- brautar hófst 1996 og lauk að mestu sama ár. Mikii áhöld eru um hvort bætt lýsing utan þéttbýlis fækki í raun slysum, heldur breytist tegund slysa með auknum hraða og síðan árekstrum við ljósastaurana. „Þó nokkurt vandamál" I skýrslu sem Vegagerðin gaf út 1999 segir einmitt: „Lýsing gefur hugsanlega falskt öryggi sem veldur því að hraði eykst og verður meiri en aðstæður leyfa. Niðurstöður fyrri athugana á áhrifum lýsingar benda til að aukning umferðaröryggis verði lítil (5% af fjölda óhappa) og hefði alvarleikinn aukist, ef staur- arnir hefðu ekki verið sérstaklega útbúnir með brotíleti." Fyrirtækið Línuhönnun sagði og í skýrslu árið 2001: „Staurar við vegi með hámarkshraða 70 km/klst. eða þar yfir, verða að vera með brotfleti, til að draga eftir mætti úr alvarleg- um meiðslum við ákeyrslur. Þess vegna eru staurar við þjóðvegi í ná- grenni þéttbýlis yfirleitt með brot- flötum... Ákeyrslur á staura eru þó nokkurt vandamál á vega- og gatna- kerfum. Alvarlegum slysum fækkar verulega við notkun staura með brotfleti." Enginn vafi leikur því á að staur- ar með brotfleti hafi sannað gildi sitt og því þykir sérstök ástæða til að kanna rækilega hvers vegna þetta öryggisatriði brást í umferðarslys- inu á Reykjanesbraut á þriðjudag. fridrik@dv.is Úrhelli í sumarferð Davíðs Oddssonar á Þingvöllum á föstudag Hinsta sumarferð forsætisráðherra í slagviðri Starfsmenn forsætisráðuneyt- isins, makar og aðrir útvaldir gest- ir létu gríðarlega rigningu á Þing- völlum ekki slá sig út af laginu í ár- legri sumarferð ráðuneytisins á föstudag. Gestimir komu í langferðabíl af stærstu gerð austur í friðlandið rétt fyrir kvöldmatartíma. Áður höfðu forsætisráðherrahjónin rennt í hlað á b£l eiginkonu ráð- herrans. í anddyrinu á Þingvallabænum stóð eiginkona forsætisráðherra, Ástríður Thorarensen, og bauð gestina velkomna. Innar og í hvarfi frá ljósmyndara DV stóð forsætis- ráðherra sjálfur og tók á móti. Þar voru drykkir á boðstólum. Nánast ailt kvöldið barði rign- ingin burstirnar á bústað forsætis- ráðherra og allar grundirnar þar í kring. Öxárá ólmaðist mórauð í Þingvellir á föstudag Fríð fylking gesta streymir úr langferðabílnum og fram hjá Þingvallabænum. Forsjálir voru með regn- hlífar. farvegi sínum. Inni var þó hlýtt og notalegt. Glatt var á hjalla. Góðar veitingar voru bornar fram í veislunni sem síðar um kvöldið færðist yfir í sali Hótels Valhallar, handa Öxarár. Ferðalangar forsætisráðuneyt- Vinstri snú Hersingin beygði inn í bústað forsætisráðherra. isins hafa vart getað varist þeirri hugsun að slagviðrið í þessari síð- ustu sumarferð Davíðs Oddssonar - að minnsta kosti svo vitað sé - hafi verið lýsandi fyrir þann and- byr sem leikur nú um forsætisráð- herrann. En það var þó að minnsta (dyragættinni Ástríöur Thorarensen, eigin- kona Davíðs Oddssonar, tók vel á móti gest- um sem þar með sluppu inn úr vatnsveðrinu. DV-Myndir E.ÓI kosti allt með kyrrum kjörum þessa kvöldstund á Þingvöllum. Sama kvöld var stjórnarand- ■ staðan í Alþingishúsinu langt fram á nótt og ræddi hið umdeilda fjöl- miðlafrumvarp. Töluðu fulltrúar hennar fyrir daufum eyrum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.