Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Síða 10
10 MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004
Fréttir DV
Ódýrt kókaín
drepur
Lögreglan í Bretlandi
segir lágt götuverð á kókaíni
valda fjölda dauðsfalla þar í
landi. Fyrsta ársfjórðung
ársins 2003 olli eftiið 87
mannslátum en það er
helmingi hærri tala en í árs-
fjóröungnum þar á undan. í
rannsókn sem gerð hefur
verið um málið kemur fram
að ungt fólk velur nú kókaín
í auknum mæli fram yfir
önnur efni til helgarnota en
kókaín getur valdið hjartaá-
falh, heilablóðfaili og lang-
tíma þunglyndi.
Sjónvarp fyrir
páfagauka
Eigendur páfagauka
geta nú skilið fugla sína eft-
ir eina heima án
samviskubits. Á
markaðinn er komið
sérstakt vídeóefni
fyrir fuglana. Mynd-
in, sem er um 80
mínútur á lengd, sýn-
ir páfagauka fljúga
um, borða og maka
sig í regnskógi. „Við
vildum búa til sér-
stakt efni fyrir fugla sem
búa í búrum. Eitthvað til að
stytta þeim stundirnar
meðan eigendur þeirra eru
ekki heima," sagði kvik-
myndagerðarmaðurinn en
hann er sérfræðingur í at-
ferli páfagauka.
Fjölbraut út-
skrifar
Fjörutíu og sjö nem-
endur brautskráðust frá
Fjölbrautarskóla Vestur-
lands á Akranesi fyrir
helgi. Tuttugu og fjórir
útskrifuðust af almenn-
um bóknámsbrautum,
tólf af iðnbrautum og
átta af sjúkraliðabraut.
Þá voru viðurkenningar
veittar fyrir góðan náms-
árangur. Tveir nýstúd-
entar, Eyjólfur Ingvi
Bjamason úr Dalasýslu
og Birna Björnsdóttir frá
Akranesi, hlutu
námsstyrki. Þetta kemur
fram á vefsíðunni
skessuhorn.is
Atkins-kúrinn hefur löngum verið umdeildur og jafnvel talinn stórhættulegur
heilsu manna. Hvað sem því líður þá hafa bandarískir vísindamenn komist að því
að kúrinn virkar hraðar en aðrir matarkúrar. Efasemdir eru uppi um hvort kúr-
inn virkar til langframa.
eiga sig
Fólk léttist hraðar ef það sleppir brauðum og pizzum fremur en
kjötmeti og ostum. Þetta er umdeilt en niðurstöður nýrrar rann-
sdknar benda til þess að fítukúr Atkins sé hraðvirkari en aðrir
kúrar.
Atkins-kúrinn felur í sér að fólk
umbyltir mataræðinu og hefur kúr-
inn stundum verið kallaður fitukúr-
inn. Fólki er ráðlagt að sleppa með
öllu brauði, pasta, hrísgrjónum, kök-
um og kartöflum - þ.e. borða ekki
kolvetnisríkan mat. Þess í stað er
mælt með kjöti, rjóma, beikoni og
eggjum. Þetta er kúr sem byggir á kol-
vetnasnauðri fæðu en er að sama
skapi prótínríkur.
Vísindamenn við læknadeild
Duke-háskólans í Bandaríkjunum
hafa nýlokið við hálfsárs rannsókn
þar sem þeir fylgdust með hópi fólks
f tveimur mismunandi matarkúrum.
Annar hópurinn fór eftir Atkins með
smá viðbót sem fólst í því að vítamín-
um og næringarefhum var bætt á
matseðil dagins. Hinn hópurinn fór í
það sem sumir myndu kalla „hefð-
bundna megrun" en þeir forðust fitu-
ríkan mat og lögðu sig fram um að
neyta ekki kólesteróls eða of margra
hitaeininga yfir daginn.
Að sex mánuðum liðnum var fólk-
ið svo vigtað og mælt. Þá kom í ljós að
Atkins-hópurinn hafði lést um það
bil helmingi meira, eða um 13 kíló að
meðaltah, en hinn hópurinn um sjö
kíló að meðaltali.
„Við komumst að því að kolvetna-
snautt fæði er mjög grennandi og
reyndar kom það okkur á óvart
hversu hratt fólk léttist," segir Will
Yancy læknir sem fór fyrir rannsókn-
arhópnum. Yancy bætir við að gera
þurfi frekari rannsóknir til að meta
langtímaáhrif kúrsins á heilsufar.
Niðurstöður rannsóknarinnar eru
birtar í nýjasta hefti Annals of
Intemal Medicine og vísindamenn-
imir taka fram að þeir séu á engan
hátt tengdir Atkins-megrunarfyrir-
tækinu en þess er skemmst að minn-
ast að Robert Atkins, sá sem fann upp
kúrinn, lést fyrr á árinu og var hermt
að bæði offita og hjartveiki hefði orð-
ið honum að aldurtila.
Önnur rannsókn segir annað
Fréttín um rannsókn Duke-há-
skólans hefur verið áberandi í heims-
pressunni í vikunni en í fyrradag birtí
bandaríska sjónvarpsstöðin ABC
nýja frétt um matarkúra og einkum
Atkins-kúrinn. Samkvæmt þeirri frétt
er tekið undir að Atkins-kúrinn sé
hraðvirkur en það eigi líka bara við í
nokkra mánuði. ABC vitnar til ann-
arrar rannsóknar þar sem kom fram
að fólk á Atkins-kúrnum léttist hrað-
ar en fólk á hefðbundnum megmn-
arkúr fyrstu sex mánuðina. Þegar árið
var liðið höfðu hópamir jafiiast og
þeim sem höfðu tamið sér fitusnautt
fæði og pössuðu upp á hitaeininga-
magnið vegnaði í raun betur. „Það er
hægt að halda því fram að Atkins sé
fljótvirkur en þegar á heildina er litíð
er ávinningurinn ekki meiri en af
fitusnauðum ktirum,“ segir David
Katz, prófessor við Yale-háskóla. Katz
varar við oftrú manna á megrunar-
kúra og segir það eina jákvæða við
kúrana að hugsanlega hjálpi þeir við-
komandi að koma sér upp sjálfsaga.
„Við ættum frekar að hugsa um heils-
una en eilíft um það að léttast," segir
David Katz.
Gisll Marteinn Baldursson
sjónvarpsmaöur
Aðalfundur Náttúruverndarsamtaka íslands
Ánægja með nýjan
þjóðgarð og Þingvelli
Gísli Marteinn Baldursson
sjónvarpsmaður hefur létta
lund og er jákvæður í fram-
komu. Glsli hlustar gjarnan á
viðmælendursína til enda,
hvort sem er I sjónvarpssal
eða í rökræðum á pólitískum
vettvangi. Hann vandar vel
undirbúning að þvl sem hann
tekur sér fyrir hendur.
Aðalfundur Náttúruverndarsam-
taka íslands sem haldinn var í síð-
ustu viku lýsir ánægju sinni með þá
undirbúningsvinnu sem átt hefur
sér stað við stofnun þjóðgarðs norð-
an Vatnajökuls er taki til alls vatna-
sviðs Jökulsár á Fjöllum. Náttúm-
verndarsamtökin undirstrika að litíð
verði á stofnun þjóðgarðs norðan
Vatnajökuls sem fyrsta skref í þá átt
að friðlýsa svæði frá strönd í norðri
til strandar í suðri þar með tahnn
Langasjó.
Mikilvægt er að reglur Alþjóða
náttúmverndarsamtakanna, IUCN
verði lagðar til gmndvallar verndun
svæðisins. Við stjórn þjóðgarðsins
ráði faglegur metnaður með það að
markmiði að þjóðgarðurinn uppfylli
alþjóðleg skilyrði IUCN og hafi
möguleika á að komast á
heimsminjaskrá. Yfirstjórn þjóð-
garðsins verði í höndum Umhverfis-
stofnunar eða samsvarandi þjóð-
garðastofnunar í samvinnu við full-
Þing vellir Lýst er ánægju með umsókn
stjórnvalda um að þjóögarðurinn á Þingvöll-
um verði tilnefndur á heimsminjaskrá
UNESCO.
trúa sveitarstjórna og frjálsra félaga-
samtaka.
Aðalfundurinn fagnar fmmvarpi
forsætisráðherra um stækkun þjóð-
garðsins á Þingvöllum. Lýst er
ánægju með umsókn stjórnvalda
um að þjóðgarðurinn á Þingvöllum
verði tilnefndur á heimsminjaskrá
UNESCO. Til að svo megi verða þarf
verndun og stjórnun þjóðgarðsins
að fylgja ítmstu kröfum.
Tónleikar með breskum plötusnúði á Nasa
Fullt hús en stjarnan
mætti ekki
„Við erum að vinna að því að
leysa þetta mál,“ segir Helgi Már
Bjarnason einn þeirra sem stóð að
tónleikum á skemmtistaðnum Nasa
á miðvikudagskvöldið þar sem
plötusnúðurinn Sasha frá Bretíandi
átti að troða upp. Hann lét hins veg-
ar ekki sjá sig og einhverjir urðu að
vonum fúlir með það enda búnir að
greiða 2500 krónur fyrir miðann.
„Húsið var orðið fúllt og klukkan
hefur líklega verið nálægt þrjú þegar
einhver Breti kom í hljóðkerfíð og
sagði að Sasha gæti því miður ekki
spilað þetta kvöld. Það urðu margir
fúhr og mikil örtröð myndaðist þar
sem hægt var að fá miðann sinn
endurgreiddan," sagði einn tón-
leikagesta í samtali við DV. Hann
bætti því við að margir hefðu þurft
frá að hverfa án þess að fá endur-
greitt. „Þetta gerðist á mjög erfiðum
tíma. Kvöldið var farið af stað þegar
við fengum þær fréttír að hann hefði
Umsjónarmenn Partyzone Helgi Már
Bjarnason segir að aðstandendur tónleik-
anna vinni að lausn málsins sem allirgeti
sætt sig við. Fullt var út úr dyrum á Nasa þeg-
ar tilkynnt var að breski plötusnúðurinn gæti
ekki mætt.
misst af flugvélinni. Við gáfum fólki
þá strax kost á því að fá miðann end-
urgreiddan og það voru eitthvað um
50 manns sem nýttu sér það. Annars
var fuht út úr dyrum og fólk virtíst
skemmta sér mjög vel,“ segir Helgi
Már sem nú er að vinna að því að fá
plötusnúðinn til landsins síðar í
sumar. „Við erum að vinna að lausn
málsins sem allir geta sætt sig við.
Til stendur að fá Sasha til landsins
þann 5. júní til að bæta upp fyrir
þetta," segir Helgi Már.