Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Side 12
12 MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 Fréttir DV Seldu betri einkunnir Tveir ungir tölvunördar í Kaliforníu hafa verið sakað- ir um að selja samnemend- um sínum betri einkunnir. Félagarnir brutust inn í tölvukerfi skólans og breyttu einkunnum þeirra sem borgað höfðu uppsett verð. Nemendurnir borguðu hærri upphæð eftir því hversu háa einkunn þeir vildu. „Rannsókn málsins heldur áfram en vonandi er þetta eina tilvikið," sagði skóla- stjórinn en drengirnir höfðu breytt einkunnum tólf nemenda. Báðir voru reknir úr skólanum í fimm daga á meðan rannsókn málsins stendur yfir. Fangar greiði fyrir gistingu Fangelsisstjórinn í Or- egon ætíar að rukka fanga fyrir hvern dag sem þeir eyða bak við lás og slá. Tim Evinger fangelsisstjóri hef- ur þegar skorið heÚmikið niður í fangelsinu og bann- ar meðal annars notkun á tómatsósu, salti, pipar og kaffi til að halda fjármáium fangelsins gangandi. Fang- arnir verða að greiða 35 pund fyrir daginn en greiðsluna borga þeir þegar þeir losna. Þeir sem ekki geta borgað eða neita að borga eru kærðir og dómari látinn skera út um hvort fjárhæðinni verð bætt við skattgreiðslu þeirra eða hvort þeir sleppa við greiðsiur vegna fátæktar. bæjarstjóri I Snæfellsbæ. „Þátttakan i hátiöinni okkar, Vori undirJökli, hefur veriö góö. Slagorö bæjarins,„Þar sem jökulinn ber viö loft“, sýn- ir hve jökullinn er stór hluti af tilveru Landsíminn Snæ- '......." .. fellsjökull er reyndar i miöbæ Snæfellsbæjar og viö þvi eina sveitarfélagið í heiminum sem státar afsliku i miðbæ sínum. Viö höfum fariö í gönguferöir og ótal margt fleira. Nú er ég aö leggja upp I fjölskylduferö á Djúpalónssand þar sem í Ijós kemur hverjir eru sterkastir í bænum. Fólk reynirsig viö Fullsterkan, Hálfsterkan og Amlóöa. Ég mun reyna viö grjótiö og verö vonandi ekki amlóöi eftir. Hátíðin endarsvo á þvi aö knattspyrnufélagiö Víkingur I Ólafsvík keppir viö Skallagrím. Allt endar þetta svo meö knattspyrnumessu í kvöld. Hátíöin hefur tekist mjög vel og veröur væntan- lega haldin að ári aftur". Frekari uppsagnir í farvatninu hjá Varnarliðinu. Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, segir að atvinnulífinu á Suðurnesjum sé að blæða út hægt og rólega á meðan stjórnvöld aðhafist ekkert. Atvinnulíli á Sufiurnesjum blæfiir úl hænt on rnlega fbúðarhúsnæði á svæði Varn- ariiðsins Tæmist smám saman ú sama tíma og islenskum starfs- mönnum er fækkaö S4i Frekari uppsagnir eru í farvatninu hjá Varnarliðinu og hefur DV heimildir fyrir því að í næstu hrinu sé búið að ákveða að segja upp 20 manns sem hafa unnið að viðhaldi og umsýslu við fast- eignir á vallarsvæðinu. Kemur þetta til af sameiningu deilda í kjölfar fækkunar í hópi þeirra sem hafa haft fasta búsetu innan vallarsvæðis. Þetta er einn liður í niðurskurði sem smám saman er unnið að til að mæta minnkandi fjárframlögum frá Washington. Engar fréttir berast af viðræðum milli stjórnvalda um framtíð varnarsamningsins og er það túlkað svo að Bandaríkjastjóm framfylgi yfirlýstri niðurskurðar- stefnu án þess að stjómvöld á ís- landi fái rönd við reist. Kristján Gunnarsson form. Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavlkur Svæöinu er að blæða út Kemur ekki á óvart Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur segist ekki hafa heyrt af þessu uppsagnarútspili en það komi honum þó ekki á óvart. „Þetta er búið að liggja fyrir lengi," segir Kristján. „Við höfum lesið það út úr fréttatilkynningum frá Varnarliðinu þar sem tilkynnt hefur verið um uppsagnir að þeim sé gert að spara meira. Við sjáum það ekki gert öðmvísi en með frekari uppsögn- ' ' , ^ wm Kristján segir að Suðurnesja- menn séu uggandi yfir samdrættin- um sem þegar sé kominn fram á at- vinnusvæðinu. Hann sjáist á því að tekjur lífeyrissjóða, sveitarfélaga og verkalýðsfélaga dragist saman auk þess sem það Qölgi á atvinnuleys- isskrá. „Atvinnulífinu hér er að blæða út hægt og rólega á meðan Davíð [Oddsson] og Halldór [Ás- grímsson] sitja rólegir og tala um eðlilegan spamað. Ég skil ekki þessi rólegheit," segir Kristján og kallar eftir því að ríkisvaldið grípi til gagn- aðgerða. Ekki taiað við sveitarfélög Sveitarfélög á Suðumesjum hafa miklar áhyggjur af samdrætti hjá Varnarliðinu og aðgerðarleysi stjórnvalda. Sandgerðisbær álykt- aði um málið nýverið og segir þar að það hafi ítrekað verið kallað eftir viðbrögðum rfldsvaldsins „Vegna þess viðkvæða ástands sem rfldr í atvinnumálum á Suðurnesjum, einkum með tilliti til samdráttar hjá Varnarliðinu á Keflavrkurflugvelli," eins og segir í ályktuninni. Segir svo: „Til þessa hafa viðbrögð verið engin." Krefst Sandgerðisbær þess að forsætisráðherra og utanríkis- ráðherra hitti sveitarstjórnarmenn á Suðurnesjum hið fýrsta til að ræða atvinnumálin á svæðinu. ,Að- gerða er þörf hið fýrsta," segir i nið- urlagi ályktunarinnar sem sam- þykkt var samhljóða í bæjarstjórn Sandgerðisbæjar. Áhyggjur af neikvæðum áhrifum Kárahnjúkavirkjunar Konur og hreindýr flæmast undan framkvæmdum Áhrif framkvæmda við Kára- hnjúkavirkjun kunna að leiða til þess að konum fækki í atvinnurekstri á Austurlandi. Auk þess er talið að óvenjulegar ferðir hreindýra á Austur- landi kunni að skýrast af framkvæmd- unum. Þetta má lesa í tveimur grein- um í Austurglugganum. Greint er frá áhyggjum jafnréttísfulltrúa Austur- lands af því að verslunar- og þjón- ustufyrirtækjum í eigu kvenna fækki vegna þensluáhrifa sem birtast í stór- hækkun á leigu fyrir atvinnuhúsnæði. Konur í atvinnurekstri á Egilsstöðum funduðu um málið á dögunum og kom þar fram að tvö þjónustufyrir- tæki hafa þegar hætt rekstri vegna þessa og viðbúið sé að þrjú til fjögur fyrirtæki til viðbótar séu í hættu. Kall- Hreindýr á Austurlandi Hreindýrtalin fælast vegna framkvæmda að er eftir inngripum rfldsvaldsins til að tryggja störf kvenna gagnvart þess- um þensluáhrifum. Hreindýrin á Austurlandi virðast hafa fært sig um set og hafa til dæmis verið algeng sjón á Vopnafjarðarheiði sem þykir óvenjulegt á þessum árs- tíma. Einnig hefur sést til dýranna á Bakkafirði en það mun vera sjaldgæf sjón. í Austurglugganum er vitnað til manna sem telja einsýnt að breyting- amar á ferðum hreindýranna megi rekja til Kárahnjúkavirkjunar. Skarp- héðinn Þórisson, líffræðingur hjá Náttúrustofú Austurlands telur lang- sótt að tengja þetta saman og að dýrin sem hafi verið á ferð á Vopnafjarðar- heiði séu ekki úr hópi frá ffarn- kvæmdasvæðinu við Kárahnjúka. Fram- kvæmda- svæði við Kárahnjúka Konur/at- vinnurekstri einnig i hættu Jóhann sigraði Jóhann Hjartarson sigraði á skákmótinu Skákvor í vestri 2004 sem haldið var á Snæ- fellsnesi og Vestijörðum og lauk í gær. f öðru sæti varð Þröstur Þórhallsson, jafn Jóhanni en lægri að stigum. Hrafn Jökulsson, forseti Hróksins lenti í þriðja sæti ásamt stórmeisturunum Tomas Oral og Henrik Danielsen. Áslaug Kristinsdóttir sigraði í kvennaflokki og Ingvar Ásbjörnsson varð efstur í flokki fimmtán ára og yngri. Hann sigraði einnig í flokki drengja í fjórða til sjöunda bekk. Sex vinningshafar í bama og unglinga- flokki vom heimamenn. Alls tóku sjötíu og sjö þátt í mótinu sem þykir hafa heppnast vel í alla staði.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.