Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Side 16
76 MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004
Sport DV
Miller tryggði
Indiana sigur
Indiana Pacers bar
sigurorð af Detroit Pistons,
78-74, í fyrsta leik liðanna í
úrslitum austurdeildar
NBA-deildarinnar í
körfuknattíeik í fyrrinótt.
Það var hinn aldni Reggie
Miller sem tryggði sínum
mönnum sigur með því að
skora fjögur síðustu stíg
leiksins. Hann kom Indiana
yfir, 77-74, þegar 31 sek-
únda var eftir og gulltryggði
síðan sigurinn á loka-
sekúndum leiksins með
vítaskoti..
Ekki er
ráð...
Ekki er ráð nema I
tíma sé tekið. í það
minnsta virðast Eng-
lendingar halda að
tíminn sé að hlaupa frá
þeim því þeir eru þegar
farnir að undirbúa
umsókn um að halda
heimsmeistarakeppn-
ina 2018. Mt bendir til
þess að Evrópa muni
halda keppnina 2018
samkvæmt skiptikerfi
FIFA en Þýskaland
heldur keppnina 2006,
Suður-Afríka heldur
keppnina 2010 og
eitthvert landa Suður-
Ameríka heldur
keppnina 2014.
Beckham
meiddur
David Beckham er
meiddur á ökkla en læknir
Real Madrid telur þó engar
líkur á því að hann verði
ekki orðinn klár fyrir
Evrópukeppnina í Portúgal.
„Hann er í banni í leiknum
í dag en ef hann mætti spila
þá hefði það ekki verið neitt
mál. Þetta er minni háttar
tognun," sagði Juan Carlos
Hernandez, læknir Real.
Ailton á
spjöld
sögunnar
Brasilíski framherjinn
Mton hjá Werder
Bremen, er varð marka-
hæsti leikmaðurinn í
þýsku 1. deildinni með
28 mörk, varð fyrsti
erlendi leikmaðurinn til
að skora yfir 25 mörk á
einu tímabili í þýsku
deildinni. Mton heíur
þegar ákveðið að spila
með Schalke á komandi
tímabili.
Markaskorarar með bíkarinn Cristiano
Ronaldo og Ruud van Nistelrooy, marka-
skorarar Manchester United I leiknum gegn
Millwall, meö bikarinn I leikslok.
Reuters
Manchester United tryggði sér enska bikarinn á laugardaginn með því að leggja 1.
deildarlið Millwall að velli, 3-0, í úrslitaleik á Þúsaldarleikvanginum í Cardiff.
Maður leiksins að flestra mati var Portúgalinn Cristiano Ronaldo.
Portúgalinn ungi Cristiano Ronaldo stal senunni þegar
Manchester United bar sigurorð af Millwall í úrslitaleik enska
bikarsins á laugardaginn. Ronaldo skoraði fyrsta mark og fór
hvað eftir annað illa með bakvörðinn Robbie Ryan. Sven-Göran
Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, var sennilega eini
maðurinn, sem sá ekki að Ronaldo var besti maður vallarins en
hann valdi Ruud van Nistelrooy besta mann leiksins.
Það tók Manchester United 43
mínútur að brjóta baráttuglaða
leikmenn Millwall á bak aftur. Þá
skoraði Ronaldo fallegt mark og eins
og Dennis Wise, spilandi knatt-
spyrnustjóri Millwall, viðurkenndi
eftir leikinn þá var það einum of
mikið fyrir leikmenn MiRwall.
Markið fór með okkur
„Þetta mark fór með okkur. Ef við
hefðum náð að halda jöfnu fram í
hálfleik þá hefði þetta getað orðið
öðruvísi leikur. Við gerðum mistök
og okkur var refsað," sagði Wise.
Hollendingurinn Ruud van
Nistelrooy skoraði síðan tvö mörk í
síðari hálfleik og gerði út um leikinn.
Alex Ferguson var sáttur við
sigurinn en þó ennþá sáttari við
hinn unga Ronaldo sem hann taldi
hafa borið af á vellinum.
Ronaldo var bestur
„Ég skil ekki hvernig Eriksson gat
valið van Nistelrooy mann leiksins
og ég held að Nistelrooy sjálfur hafi
verið mest hissa af öllum. Þetta kom
okkur öllum á óvart því að mínu
mati og annarra var Ronaldo maður
leiksins.
„Hann hefur ótrúlega hæfileika
og ég held að það sé ekki hægt að
finna ungan leikmann í Evrópu sem
hefur jafnmikla hæfileika og hann.
Hann þurfti tíma til að venjast ensku
knattspyrnunni en hann hefur
aðeins orðið betri og betri," sagði
Ferguson eftir leikinn, greinilega
ósáttur við Eriksson.
Misstum ekki þolinmæðina
Varðandi leikinn sagði Ferguson
að leikmenn Millwall hefðu staðið
sig vel en hans menn hefðu náð
markmiðinu sem var að vinna titil.
„Fyrstí hálftíminn var erfiður.
Það var ekki auðvelt að spila góðan
fótbolta á þurrum og hörðum
vellinum og leikmenn Millwall
gerðu okkur erfitt fyrir með góðri
baráttu. Þeir vonuðust til þess að við
myndum missa þolinmæðina en
sem bemr fer þá skoruðum við mark
undir lok fyrri hálfleiks og eftir það
vorum við sannfærandi. Lokin á
leiknum sýndu síðan hversu stórt
þetta félag er. Stemningin og
andrúmsloftíð á vellinum var
stórkostíegt," sagði Ferguson sem
vonast til að þessi titill verði
undirstaða að fleiri titíum á næsta
tímabili.
Sá besti sem ég hef mætt
Bakvörðurinn Robbie Ryan, sem
átti erfiðan dag gegn Ronaldo,
sagðist aldrei hafa mætt öðrum eins
leikmanni á ferlinum.
„Hann er ótrúlegur. Ég hef aldrei
mætt öðrum eins leikmanni og ég
held að það sé óhætt að segja að
hann sé sá besti sem ég hef mætt. Ég
trúi því varla ennþá hversu góður
hann er, sérstaklega í ljósi þess að
hann er aðeins 19 ára gamall, og það
er alveg ljóst að hann á bara eftir að
verða betri. Hann er með ótrúlega
tækni og ég hefði svo sannarlega
reynt að sparka hann niður ef ég
hefði komist nálægt honum," sagði
Ryan sem berst fyrir nýjum
samningi hjá Millwall og gerði
væntanlega h'tið í þessum leik til að
hjálpa sér í þeirri baráttu.
oskar@dv.is
„Hann er ótrúlegur. Ég hefaldrei mætt öðrum
eins leikmanni og ég held að það sé óhætt að
segja að hann sé sá besti sem ég hefmætt."
Celtic skoskur bikarmeistari um helgina
Henke Larsson kvaddi
með tveimur mörkum
Sænski framherjinn Henke Lars-
son kvaddi skoska liðið Celtic með
tveimur mörkum í bikarúrslita-
leiknum gegn Dunfermline á laugar-
daginn.
Celtic vann leikinn, 3-1, eftir að
hafa lent undir en Búlgarinn Stilian
Petrov bætti þriðja markinu við.
Þetta var síðasti alvöruleikur
Larssons fyrir Celtic en hann er með
lausan samning í sumar og ætlar að
freista gæfunnar annars staðar á
komandi tímabili.
Hann fékk hlýjar móttökur hjá
stuðningsmönnum Celtíc eftir leik-
inn enda kominn í guðatölu þar á
bæ.
Hann sagði eftir leikinn að það
væri dásamlegt að enda ferilinn með
titli.
„Ég hef átt frábær ár hjá Celtic og
mun minnast þeirra með mikilli
ánægju. Það var gaman að geta fært
stuðningsmönnum félagsins titíl í
kveðjugjöf," sagði Larsson.
oskar&dv.is
Upp með bikarinn Jackie McNamara og Henke Larsson lyfta skoska bikarnum á loft eftir
sigurinn gegn Dunfermline á laugardaginn. Reuters