Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Qupperneq 17
DV Sport MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 17 Setti aðeins kassann í hann Umdeilt atvik átti sér stað undir lok leiks Fylkis og FH þegar Heimi Guð- jónssyni og Val Fannari Gíslasyni laust saman. Heimir virtist stjaka við Val og vildu margir meina að hann hefði átt að fá rautt spjald fyrir. „Nei, ég átti ekkert að fá rautt. Eg setti aðeins kassann í hann og ég tek ekki nema fimmtíu kíló í bekk þannig að þetta getur nú ekki hafa verið mikið högg,“ sagði Heimir eftir leikinn og bætti við á léttu nótunum að Valur mætti fara að bæta við sig í bekknum. „Það þarf að skora í svona leikjum og ef við hefðum skorað fyrsta markið þá hefðum við væntanlega unnið þennan leik en maður fær ekkert fyrir hefði í þessu." FYLKIR-FH 1-0 2. umf. - Fylkisvöllur -22. ma( Dómari: Kristinn Jakobsson (6). Áhorfendur: 952. Gæði leiks: 2. Gul spjöld: Fylkir: Engin - FH: Ásgeir (61.),Jón Þ. (72.), Sverrir (78.) Rauð spjöld: Engin. Markið 1 -0 Þorbjörn Atli Sveinsson 76. Skot úr markteig Sævar Þór (frák.) Leikmenn Fylkis: Bjarni Þórður Halldórsson 3 Guðni Rúnar Helgason 3 ValurFannarGlslason 3 ÞórhallurDanJóhannsson 4 Gunnar Þór Pétursson 3 Ólafur Ingi Stígsson 1 Helgi Valur Daníelsson 1 Finnur Kolbeinsson 2 Ólafur Páll Snorrason 4 (80., Kristján Valdimarsson -) Sævar Þór Gíslason 4 (87., Jón B. Hermannsson -) BjörgólfurTakefusa 1 (56., Þorbjörn Atli Sveinsson 4) Leikmenn FH: Daði Lárusson 4 Heimir Snær Guðmundsson 3 (85., Atli Guðnason -) Tommy Nielsen 5 Sverrir Garðarsson 3 Freyr Bjarnason 3 Heimir Guðjónsson 1 ÁsgeirGunnarÁsgeirsson 3 Simon Karkov 3 Víðir Leifsson 1 (71., Guðmundur Sævarsson -) Jón Þorgrímur Stefánsson 3 (80., Jónas Grani Garðarsson -) Atli Viðar Björnsson 1 Tölfræðin: Skot (á mark): 11-7 (6-3) Varin skot: Bjarni 3 - Daði 5. Horn: 4-6 Rangstöður: 3-0 Aukaspyrnur fengnar: 23-11. BESTUR Á VELLINUM: Tommy Nielsen, FH K A R L A R LANDSBANKADEILD ffi. Úrslit 2. umferðar: ÍA-Grindavík 0-0 ÍBV-Fram 1-1 Keflavík-KR 3-1 Víkingur-KA 0-1 Fylkir-FH 1-0 Staðan: Keflavík 2 2 0 0 5-2 6 Fram 2 1 1 0 4-1 4 Fylkir 2 1 1 0 2-1 4 1 KA 2 1 0 1 2-2 3 FH 2 1 0 1 1-1 3 (BV 2 0 2 0 2-2 2 Grindavík 2 0 2 0 1-1 2 (A 2 0 2 0 1-1 2 KR 2 0 0 2 1-4 0 Víkingur 2 0 0 2 0-4 0 Barátta Það var nokkuð um átök íÁrbænum á laugardag en minna um fótbolta. Hér berjast bakverðirnir Guðni Rúnar Heigason og Freyr Bjarnason um boitann en Atli Viðar Björnsson og Helgi Valur Danieisson fylgjast með. DV-mynd Pjetur Hann var ekki burðugur fótboltinn sem leikmenn Fylkis og FH spiluðu í Árbænum á laugardag. Áhorfendur, sem horfðu á leikinn i grenjandi rigningu, fengu ekkert fyrir aurinn Áhorfendur í Árbænum voru ekki öfundsverðir af því að þurfa að horfa upp á tilburði leikmanna í kuldanum og rigningunni og blaðamaður prísaði sig sælan með kaffið sem hann fékk hjá Fylkismönnum. Það var sterkt og gott og ekki veitti af til þess að halda manni vakandi. f raun var það kraftaverk að áhorfendur skyldu hafa enst eins lengi á vellinum og raun bar vitni því það var ekkert að gerast á vellinum sem gaf ástæðu til þess að hanga hundblautur í stúkunni í tvo klukkutíma. Það verður reyndar að segjast leikmönnum til vorkunnar að völlurinn var mjög þungur og erfiður viðfangs. Bæði þessi lið geta aftur á móti spilað miklu betri fótbolta og það vita þau best sjálf. Fyrstu mínútur leiksins voru ákaflega tilviljanakenndar og miðjumenn liðanna vissu vart í hvorn fótinn þeir áttu að stíga. Allar sóknir liðanna einkenndust af því að bakverðir liðanna stungu boltanum upp vænginn með ákaflega takmörkuðum árangri. Lítið álag var á varnarmönnunum sem þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að vinna boltann. Eitt færi Fylkismenn voru þó ívið sprækari til að byrja með og þá sérstaklega Ólafur Páll og Sævar Þór en þá vantaði alltaf hinn heimsfræga herslumun til þess að klára dæmið. Það hjálpaði þeim einnig lítið að Björgólfur Takefusa náði engum takti en Tommy Nielsen pakkaði honum saman eins og litlum skólastrák og var algjör yfirburða- maður á vellinum í fyrri hálfleik. FH-ingar hresstust seinni hluta fyrri hálfleiks og Víðir Leifsson fékk algjört dauðafæri á 36. mínútu en Bjarni markvörður varði frábærlega. Þetta færi var í raun það eina markverða sem gerðist í fyrri hálfleik. Síðari hálfleikur byrjaði nákvæmlega eins og fyrri hálfleikur endaði og allir vallargestir voru að komast á þá skoðun að þessum leik myndi lykta með markalausu jafntefli. Þá tók Þorlákur Árnason, þjálfari Fylkis, Björgólf af velli og í hans stað kom Þorbjörn Atli Sveinsson. Hann hressti verulega upp á leik liðsins og uppskar síðan ríkulega þegar hann potaði boltanum inn fyrir línuna korteri fyrir leikslok. FH-ingar reyndu í örvæntingu að jafna leikinn en sóknaraðgerðir þeirra voru ómarkvissar og varnar- menn Fylkis lentu aldrei í verulegum vandræðum. Tommy bestur FH-ingar geta samt huggað sig við að þeir áttu besta mann vallarins í Tommy Nielsen en hann var einn af fáum sem lék af eðlilegri getu. Daði var öruggur í markinu og Ásgeir og Karkov áttu einstaka spretti sem og Jón Þorgrímur. Mikið munaði um fyrir FH að Heimir Guðjónsson var fjarri sínu besta en það verður seint sagt að aðstæður hafi hentað honum vel. Fylkismenn una eflaust vel við stigin þrjú og þau geta þeir þakkað Þorbirni Atla sem átti líflega innkomu. Ólafur Páll lék sinn besta leik í langan tíma og Sævar Þór minnti á sig og sýndi að hann er í fantaformi. Miðjumenn liðsins voru arfaslakir og í raun með ólíkindum að þeir skuli hafa sigrað með svona slaka miðju. Vörnin sýndi annan leikinn í röð mikið öryggi en mótspyrnan var reyndar af mjög Það hjálpaði Fylki lítið að Björgólfur Takefusa náði engum takti við leikinn en Tommy Nielsen pakkaði honum saman eins og litlum skólastrák skomum skammti að þessu sinni. Þórhallur Dan Jóhannsson fór fyrir sínum mönnum í vörninni og var að vonum kátur. Skrítinn leikur „Aðstæðurnar leyfðu ekki mikinn fótbolta og það var skrítið að spila þennan leik. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja því við spiluðum ekki vel en það er styrkur að vinna þegar við leikum illa. Við tókum þrjú stig og þótt þau hafi ekki verið falleg þá vom þau ljúf,“ sagði Þórhallur sem gladdist fyrir hönd Þorbjörns Atla. „Það er flott fyrir Bjössa að koma svona inn og það hjálpar honum að fá sjálfstraustið aftur eftir útreiðina hjá Fram.“ Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, var með böggum hildar í leikslok og fyrsta spurning var hvað þetta hefði verið sem var boðið upp á? „Vom þetta ekki bara tvö lið sem ætla sér stóra hluti og þora ekki að opna sig mikið og spiluðu því frekar passífan fótbolta. Þetta féll þeirra megin þótt þeir hafi hvorki verið verri né betri en við,“ sagði Ólafur en hann saknaði sóknarinnar í leiknum. „Ég hefði viljað fá meiri sóknarleik og aðeins sprækari takta hjá mínum mönnum. Það er ekki líkt okkur að vera svona rosalega passífir en það var mikið undir í þessum leik.“ henry@dv.is VÍKINGUR-KA 0-1 2. umf. - Vfldngsvöllur -21. mal Dómari: Egill Már Markússon (4). Áhorfendur: 650. Gæði leiks: 3. Gul spjöld: Sölvi (34.), Höskuldur (42.), Þorri (56.) - Jóhann (52.). Rauð spjöld: Engin. Markið 0-1 Atli Sveinn Þórarinsson 47. Skalliúrteig Hreinn Leikmenn Víkings: Martin Tranicík Höskuldur Eiriksson Þorri Ólafsson Sölvi Geir Ottesen Steinþór Gíslason Sigursteinn Gíslason (80., Þorvaldur Már Guðmundsson Vilhjálmur Vilhjálmsson Kári Árnason Egill Atlason (86., Stefán Örn Arnarson Grétar Sigurðsson Daníel Hjaltason Leikmenn KA: Sandor Matus Steinn Viðar Gunnarsson Atli Sveinn Þórarinsson Ronni Hartvig Óli Þór Birgisson Örn Kató Hauksson Dean Martin Kristján Elí Örnólfsson Pálmi Rafn Pálmason Hreinn Hringsson (82., Steingrímur Eiðsson -) Jóhann Þórhallsson 3 Tölfræðin: Skot (á mark): 13-4 (10-3) Varin skot:Tranicík 2 - Matus 8. Horn: 11-3 Rangstöður: 1-2 Aukaspyrnur fengnar: 27-18. BESTUR Á VELLINUM: Sandor Matus, KA Atli sterkur i loftinu Markaskorari KA-manna, Atli Sveinn Þórarinsson, f baráttu við V/kinginn Grétar Sigurösson í leik liðanna i Vikinni. KA-menn stálu þremur stigum Víkingar sóttu og sköpuðu sér fullt af góðum marktæki- færum en það voru KA-menn sem fóru burt með öll stigin og skildu nýliðann eftir stigalausan á botninum eftir leik liðanna á föstudagskvöldið. Þetta voru fyrstu stig KA-manna en Víkingur er eina liðið sem skoraði ekki mark í fyrstu tveimur umferðunum. Ath Sveinn Þórarinsson skoraði eina mark leiksins með góðum skalla eftir hornspyrnu og fyrirgjöf Hreins Hringssonar en markið kom á upphafs- mínútum seinni hálfleiks. Sandor Matus, markvörður KA-manna hafði nóg að gera í markinu og varði alls átta skot frá Víkingum mörg þeirra úr opnum færum. í viðbót áttu Víkingar stangar- og sláarskot það síðara átti Vilhjálmur Vilhjálmsson úr aukaspymu af 35 metra færi. Vilhjálmur var iðinn að skjóta á markið í leiknum og oft skapaðist mikil hætta. Það var allt annað að sjá til Víkingsliðsins en í fyrsta leiknum gegn Fram en þrátt fyrir góða baráttu og oft ágæta spila- mennsku eru áhyggjur Víkinga af skorti á mörkum aðeins meiri eftir fyrstu tvo leikina. KA-menn geta þakkað fyrir stigin en þurfa að sýna betri leik í ffamhaldinu ef liðið á að geta verið í efri hlutanum. ooj@dv.is og hrm NJNJMMNJNJLn^MLn ^OJsUMCn^wMM^UJMU)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.