Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Blaðsíða 19
DV Sport
MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 1 9
íslensku unglingalandsliðin náðu frábærum árangri á Norðurlandamótinu í Solna í Svíþjóð sem lauk
uxaÉÉHfcfeJsland hafði aðeins eignast einn Norðurlandameistara í sögunni fyrir gærdaginn og það á
ir 13 árum en íslendingar eignuðust þrjá Norðurlandameistara í Svíþjóð í gær.
íslenskir Noröur-
landameistarar
Sunnudagsins 23. maí 2004 verður örugglega minnst sem eins
stærsta dags í sögu íslenska körfuboltans því fsland eignaðist þá
þrjá Norðurlandameistara á ijölum íþróttahallarinnar í Solna í
Stokkhólmi. íslensku liðin unnu alla úrslitaleikina gegn
gestgjöfunum en aldrei áður hafði ísland unnið titil utan
íslands. Eini Norðurlandameistaratitiilinn sem fsland hafði
unnið fyrir daginn í gær var þegar íslensku strákarnir unnu á
heimavelli í Stykkishólmi vorið 1991 eða fyrir 13 árum síðan.
Fyrir mótið var ekki búist við
neinum titlum en menn bundu þó
vonir við að íslensku liðin gæm staðið
sig vel og að þau væri komin upp að
hlið Svía og Finna á toppnum. Raunin
var önnur, fsland á þrjú af fjórurn
bestu ungliðum Norðurlanda í
körfúbolta.
16 ára landslið karla gaf tóninn
með frábærum 31 stigs sigri á Svíum í
fyrsta úrslitaleik dagsins. Þjálfarinn
Benedikt Guðmundsson var
greinilega búinn að undirbúa liðið vel
en leikur liðanna í riðlakeppninni
vannst með 16 stígum. Brynjar
Bjömsson var með 22 stíg, Hörður
Axel Vilhjálmsson skoraði 19 stig og
var valinn bestí leikmaður
úrslitaleiksins, Hjörtur Hrafn
Einarsson bætti við 18 stígum,
Þröstur Jóhannsson var með 8 og þeir
Emil Þór Jóhannsson og Hörður
Hreiðarsson skomðu 7 stíg hvor.
Helena Sverrisdóttír áttí frábæran
leik í eins stigs sigurleik 16 ára
landsliðs kvenna, 77-76, gegn Svíum,
fyrstí sigur íslenska kvenna-landsliðs
á stórmótí frá upphafi. Helena
skoraði 43 stíg í úrslitaleiknum og var
valinn bestí leikmaðurinn. Stelpumar
létu ekki tap í fyrsta leiknum slá sig út
af laginu því þær unnu fjóra síðustu
leiki sína á mótínu. Auk Helenu
skoraði María Ben Erlingsdóttir 12
stíg, Bára Bragadóttir var með 9 og
Bryndís Guðmundsdóttir skoraði sjö.
18 ára landslið karla kórónaði
síðan daginn með þriðja
Norðurlandameistaratítlinum á
aðeins fjórum klukkutímum þegar
liðið vann sex stiga sigur á Svíum,
97-91, en Svíar unnu aðeins einn
Norðurlandameistaratítil á heima-
velii og hann var hjá 18 ára stelpum.
16 ára lið kvenna Efri röð f.v.:Hannes S.Jónsson varaformadur KKl,Jón HalldórEðvaldsson aðstoðarþjálfari, Hrönn Þorgrímsdóttir, Bára
Fanney Hálfdánardóttir, María Ben Erlingsdóttir, Helena Sverrisdóttir fyrirliði, Bryndís Guðmundsdóttir, Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir, Bára Braga-
dóttir, Henning Henningsson þjálfari.Neðri röð f.v.: Margrét Kara Sturludóttir, Ragnheiður Theodórsdóttir, Linda Stefanía Ásgeirsdóttir, Guðrún
Harpa Guðmundsdóttir, Ingibjörg Skúladóttir.
Þjálfari:
Benedikt Guðmundsson
Leikmenn og félög:
HörðurVilhjálmsson Fjölnir
Emil Jóhannsson Fjölnir
Hjörtur Hrafn Einarsson Njarðvík
Brynjar Björnsson KR
Páll Halldór Kristinsson Keflavík
Þröstur Jóhannsson Keflavík
Hafþór Björnsson Breiðablik
Gissur Helguson Valur
Hörður Hreiðarsson Valur
Gústaf Gústafsson Valur
Sigurður Þorsteinsson KFf
Þórir Guðmundsson KFÍ
Úrslitin á mótinu:
Svíþjóð 77-59 sigur
Danmörk 75-66 sigur
Finnland 68-64 sigur
Noregur 73-83 tap
Svíþjóð (úrslit) 86-55 sigur
Njarðvíkingamir Kristján Rúnar
Sigurðsson og Jóhann Ámi Ólafsson
skomðu saman 65 af 97 stígum liðsins
og Kristján hittí úr 9 af 16 þriggja stíga
skotum sínum. Þá var fyrirliðinn
Pavel Ermolinskij með 17 stíg, 13
fráköst og 13 stoðsendingar en hann
var frábær á mótinu.
Fjölnismennimir Magnús Pálsson (6
stíg) og Brynjar Þór Kristófersson (5
stig) komu síðan næstir.
Uppskeran er einstök, þrír
Norðurlandameistaratítlar í hóp-
íþrótt sama daginn. Stórkostlegur
dagur fyrir bæði íslenskan körfúbolta
og fyrir íslenskar iþróttir.
ooj@dv.is
16 ára lið karla Efri röð f.v.: Hannes S.Jónsson varaformadur KKl, Benedikt Guðmundsson þjálfari, Gissur Helguson, Gústaf Gústafsson, Hafþór
Björnsson, Sigurður Þorsteinsson, Hörður Hreiðarsson, Hjörtur Hrafn Einarsson, Björn Leósson fararstjóri. Neðri röd f.v.:Emil Þór Jóhannsson,
Þröstur Jóhannsson, Brynjar Björnsson fyrirliði, HörðurAxel Vilhjálmsson, Þórir Guðmundsson, Páll Halldór Kristinsson.
16ÁRA LIÐ KARLA
M 1 1 m t-'--
, W -V - SH/' W' Á
18 ára lið karla Efri röð f.v.: Snorri Örn Arnaldsson unglinganefnd KKl, Jóhann Árni Ólafsson, Pavel Ermolinskij fyrirliöi, Davíd Páll Hermanns-
son, FinnurAtli Magnússon, Ólafur Halldór Torfason, Tryggvi Pálsson, Einar Árni Jóhannsson þjálfari, Hannes S. Jónsson varaformadur KKÍ Neðri
röð f.v.: Brynjar Þór Kristófersson, Kristján Rúnar Sigurðsson, Magnús Pálsson, Bjarni Árnason, Jón Gauti Jónsson, Halldór Fannar Gíslason.
16ÁRA LIÐ KVENNA
Þjálfari:
Henning Henningsson
Leikmenn og félög:
Bryndís Guðmundsdóttir Keflavík
Guðrún Harpa Guðmundsd.Keflavík
Hörnn Þorgrímsdóttir Keflavik
Linda Ásgeirsdóttir Keflavík
María Ben Erlingsdóttir Keflavík
RagnheiðurTheódórsdóttir Keflavík
Bára Bragadóttir Keflavík
Bára Fanney Hálfdánard. Haukar
Helena Sverrisdóttir Haukar
Ingibjörg Elva Vilbergsd. Njarðvík
Margrét Kara Sturludóttir Njarðvík
Ingibjörg Skúladóttir UMFH
Urslitin á mótinu:
Svíþjóð
Danmörk
Finnland
Noregur
Svíþjóð (úrslit)
74-84 tap
91- 45 sigur
92- 81 sigur
84-39 sigur
77-76 sigur
18ARA LIÐ KARLA
Þjálfari:
Einar Árni Jóhannsson
Leikmenn og félög:
Brynjar Þór Kristófersson Fjölnir
Magnús Pálsson Fjölnir
Tryggvi Pálsson Fjölnir
Jóhann Árni Ólafsson Njarðvík
Kristján R. Sigurðsson Njarðvík
Ólafur HalldórTorfason ÞórAk.
Bjarni Árnason Þór Ak.
Halldór Fannar Glslason (R
Pavel Ermolinskij Vicky (Frakkland)
Davíð Páll Hermannsson Grindavík
Finnur Atli Magnússon KR
Jón Gauti Jónsson Keflavfk
Úrslitin á mótinu:
Svfþjóð
Danmörk
Finnland
Noregur
73-83 tap
74-66 sigur
87-80 sigur
105-99 sigur
Svíþjóð (úrslit)
97-91 sigur