Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2004, Qupperneq 31
DV Síðast en ekki síst
MÁNUDAGUR 24. MAÍ2004 31 *
Stjórnarskrárvandi
Afeinhverjum ástæð-
um virðast valda-
menn líta á þjóðarat-
kvæðagreiðslu sem
náttúruhamfarir;
samsæri gegn lýðræð-
inu og atlögu að
stjórnarskránni. Ekk-
ert er þó í raun eðli-
legra en þjóðarat-
kvæðagreiðsla í lýð-
ræðisríki.
fangsefni dómstóla innanlands sem
erlendis, enda virðist ekki önnur leið
til að hafa hemil á stjórnvöldum.
Kosið einræði virðist vera besta lýs-
ingin á stjórnkerfi landsins. Þingið
hefur brugðist hlutverki sínu og
ákafur ásetningur ráðherra mætir
lítilli mótstöðu. Ef ákafi af þessu tag-
inu getur lagt að velli volduga and-
stæðinga, hvernig geta þá hinir veik-
ari varið sig?
Synjunarvald forseta er hugsað
sem ein leið til að hafa hemil á og
eftirlit með stjórnvöldum. Fólkið
sjálft fær þá málið til úrskurðar í
beinni atkvæðagreiðslu. Af einhverj-
um ástæðum virðast valdamenn líta
á þjóðaratkvæðagreiðslu sem nátt-
úruhamfarir; samsæri gegn lýðræð-
inu og adögu að stjórnarskránni.
Ekkert er þó í raun eðlilegra en þjóð-
aratkvæðagreiðsla í lýðræðis-
ríki.
Skrifi forsetinn undir
fjölmiðlalögin skapast
stjórnarskrárkreppa.
Ólafi Ragnari Gríms-
syni ber því að vísa
máhnu til þjóðarinn-
ar.
í dag verður fjölmiðlafrumvarpið
samþykkt sem lög frá Alþingi. Eins
og kunnugt er á frumvarpið sér for-
mælendur fáa og kemur þar til bæði
innihald frumvarpsins og málatil-
búnaðurinn. Flestir eru sammála
um nauðsyn þess að setja reglur á
þessu sviði, en þeim hinum sömu er
misboðið af þeim ákafa og heift sem
þetta mál er fram borið. Davíð
Oddsson segir blákalt ffaman í þjóð-
ina að annað hvort séu menn sam-
mála frumvarpinu eða þeir styðji
Baug af annarlegum ástæðum.
Ritskoðun
Hvað sem líður málefnalegum
deilum um þær reglur sem gilda eiga
á fjölmiðlamarkaði, þá er ljóst að
stuðningsmenn frumvarpsins með
Davíð í broddi fylkingar, hafa í lang-
an ú'ma haft hom í síðu Fréttablaðs-
ins, DV og Stöðvar 2. Fréttaflutning-
ur þessara fjölmiðla er leynt og ljóst
notaður sem rök fyrir aðgerðum á
þessu sviði. Það sjá það allir menn,
segir Davíð, að þessir fjölmiðlar em
mér andsnúnir; þeir em tæki auð-
hringsins Baugs úl að koma mér frá
völdum og lyfta til valda fólki sem fer
betur í vasa. Fyrst var reynt að bera á
mig fé, segir Davíð, og síðan að vega
mig úr launsátri undir dulargervi
fréttaflutnings. Bolludagurinn 2003
gengur aftur í öllu þessu máh.
Ámi Magnússon stóð með DV í
ræðustól Alþingis og veifaði því máli
sínu til stuðnings: innihald fjölmiðl-
anna réttlætti lagasetningu. Popul-
ismi af þessu taginu er því miður
fremur regla en undantekning.
Frumvarpið verður því að skoðast
sem tilraun til að koma böndum á
fjölmiðla sem stjómvöldum er í nöp
við og því tilraun til að hefta tjánin-
arffelsi í nafiii almeimra laga um
eignarhald á fjölmiðlum.
Birgir Hermannsson
býst við samþykkt
fjölmiðlafrumvarpsins
Idag
Vörn gegn ofríki
Stjórnarskrár em settar meðal
annars til að verja okkur fyrir ofríki
stómvalda. Margir af helstu höfund-
um þeirra hugmynda sem liggja
stjórnarskrám nútímans til gmnd-
vallar vom heldur svartsýnir menn,
vildu hafa vaðið fyTÍr neðan sig og
tortryggðu mannlegt eðli. Þetta þarf
ekki að koma á óvart: stjórnar-
skrár vom tæki til að koma
böndum á ríkisvald einvalds-
konunga. Réttarríkið og hug-
myndin um stjórn lag-
anna fremur en duttl-
unga valdhafanna er
sprottið úr þessum
jarðvegi. Banda-
ríska stjómarskrá-
in er til dæmis
hönnuð þannig að
enginn einn hópur
eða flokkur geti nokkm
sinni náð meirihluta.
Hugmyndir um valda
jafnvægi og að stofn-
anir hafi eftir
lit og
hemil hver á annarri em mikilvægar
í stjórnarskrárhugmyndum. Fram-
kvæmdavald og löggjafarvald á að
vera aðskihð og dómsvaldið sjálf-
stætt. Manméttindaákvæði stjórn-
arskrárinnar em ekki aðeins hugsuð
sem gmndvöhur lýðræðisins, heldur
ekki síður sem tromp á hendi ein-
staklinganna th að verja sig fyrir
duttlungum meirihlutans. Einn af
ráðherrum ríkisstjórnarinnar orðaði
það svo á dögunum að öhu sóma-
kæru fóUd væri misboðið með
fréttaflumingi „Baugstíðinda". Ráð-
herranum er auðvitað fjálst að hafa
þessa skoðun svo lengi sem hann
gleymir því ekki að ákvæði stjórnar-
skrárinnar um verndun tjáning-
arfrelsis em m.a.
hugsuð th að
verja okkur
fyrir ofrUd
hinna
sóma-
kæm.
Synj-
unar-
vald
for-
seta
Dav-
íðslögin
verða að lík-
indum við-
Hvareru þau nú
Henný f
Hermannsdottir
„Ég Ufi eins og venjuleg kona í
dag og finnst það bara mjög gott,“
segir Henný Hermannsdóttir sem
gerði garðinn frægan áriðl970 er
hún vann keppnina Miss Young
International eftir að hafa unnið ti-
titUinn FuUtrúi ungu kynslóðarinnar
hér heima. „Ég er raunar nýorðin
amma og hæstánægð með þann
áfanga í lífi mínu."
Henný segir að hún reki verslun-
ina Bónusvídeó í Mávahlíðinni
ásamt sambýUsmanni sínum, Bald-
vin Bendtsen, og hafi gert það und-
anfarin fjögur ár. Þetta sé góð breyt-
ing á högum hennar fr á því sem
áður var. „Eftir að ég komst á spjöld
sögunnar hér á íslandi fylgdu mörg
ár í kjölfarið þar sem maður var á ei-
lífum þvæUngi mUli staða með
danssýningar, tískusýningar og ann-
að sem tengdist þessum titíli sem ég
vann,“ segir Henný. „Nú er líf mitt
aUt á mun rólegri nótum og það var
raunar kominn tími fil að svo yrði.
Að vísu vinnum við mUdð enda er
sjoppan opin aUa daga ársins nema
jóladag. En það eru viss þægindi
samfara því að vinna með sambýlis-
manninum og ég er bara eins og ég
sagði áður mjög ánægð með hfið og
tUveruna í augnablikinu.“
S*
-*
0 Undirlokum-
ræðunnar um fjöl-
miðlafrumvarpið
munu þingmenn
stjómarhðsins hafa
legið í Samfylking-
unni um að semja
um lok th að fá lok
umræðunnar ekki yfir á besta
fréttatíma laugardagsins en þing-
menn hennar þvertóku fyrir. Harð-
astir í því munu hafa verið Jóhann
Ársælssonog Bryndfs Hlöðvers-
dóttir sem þvertóku fyrir aUa samn-
inga. Það reyndist rétt mat því þeg-
ar umræðunni lauk á laugardag var
aUt súrefni úr stjómarliðinu og Öss-
ur Skarphéðinsson
lauk umræðunni
með klukkutíma
þmmuræðu þar
sem hann færði rök
fyrir því að frum-
varpið væri tUraun
tíl að koma á varan-
legri ritskoðun. f kjöifarið komu svo
frUItrúar hinna stjórnarandstöðu-
flokkanna, GuðjónAmar Krístjáns-
sonog Kolbrún Hahdórsdóttir og
tóku í sama streng. Fréttatímar vom
stútfuUir af ræðum þeirra þriggja
meðan ekkert bar á stjómarliðum
sem lögðu ekki í ræðuhöld th vam-
ar málstaðnum.
Slysum á íslandi hefur fjölgað
gríðarlega. Skráð slys vom 18.213
árið 2002 en 26.017 árið 2003. Fjölg-
unin miUi ára er þannig fjölgun upp
á 7804 slys og er mest á heimUum og
í frístundum. Samkvæmt slysaskrá
fslands sem gefin er út af Landlækn-
isembættinu er fólk í mestri hættu
heima hjá sér eða í frístundum með
fjölskyldu og vinum. Fyrir þá sem
engar áhættur vUja taka og kjósa sér
ömggt umhverfi er best að eyða sem
mestum tíma um borð í flugvél eða
úti á sjó.
Heima- og frítímaslys
11.324 slysáári
43,5%
Heimilið er hættuleg-
asti staðurinn á Islandi
- frístundir ber að var-
ast
Umferðarslys
4.504 slys á ári
17,3%
Umferðarslys eru
klassísk
Vinnuslys
4313slysáári
16,6%
Vinnuslys geta átt
sérstaðáöllum
vinnustöðum
Iþróttaslys
2.922 slys á ári
11,2%
Það getur vel verið
að íþróttirséu holl-
ar en þær eru líka
stórhættulegar
Skólaslys
1.910 slysáári
7,3%
Skólinn getur verið
hættulegur
Önnur slys
946 slys á ári 3,6%
Sjósiys
97 slys á ári 0,4%
Flugslys
1 slys á ári 0,0%
Garden 3
Glæsileg húsgögn
fyrír garðinn og sólstofuna
Garden Signature er sórverslun með
„klassa" garðhúsgögn frá Danmörku
og Hollandi á sérlega hagstæðu verði.
Um er að ræða garðhúsgögn úr áli,
gleri, náttúrusteini, marmara eða sterkum
plasttrefjum sem öll þola íslenska veðráttu
eða hinum sívinsæla og sterka tekkvið.
Kirkjulundi 17 (v/Vífilsstaðaveg), 210 Garðabær
Simi: 898 4699 • bfco@simnet.is • www.simnet.is/gardhusgogn
OPIÐ: mán. - fös. 13.00-18.00 og lau: 11.00 - 16:00
r