Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 13

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 13
TÍMARIT VERKFRÆÐINGAFÉLAGS ÍSLANDS 1. hefti 1970 55. árg. MARKMIÐ OG LEIÐIR Nýlega var haldin á vegum Verkfræðingafélags Islands ráðstefna um markmið félagsins og leiðii bær, sem unnt er að fara til að ná settu marki. Margt veldur því að mjög tímabært var orðið að efna til slíkrar ráðstefnu. Verkfræðingmn hér á landi fer mjög ört fjölgandi, þáttm- þeirra í at- vinnulífi þjóðarinnar verður æ mikilvægari, verk- efni þeirra verða æ flóknari og fjölbreyttari og loks vinna þeir störf sín í æ ríkari mæli í eigin verkfræðistofum. Þess vegna var nú spurt: Hvert skal haldið og hvaða leiðir eru heppilegastar. Ráðstefna þessi var með nýstárlegu sniði. Meg- ináherzla var lögð á að gera alla þá, sem tóku þátt í ráðstefnunni, virka í umræðunum. Þetta fundarform er gjörfrábrugðið því, sem við eigum að venjast. Oftast er það fyrst og fremst einn maður, sem leggur fram sjónarmið sín og aðrir hlusta. Á þessari ráðstefnu lögðu hinsvegar allir þátttakendur saman í einn hugmyndasjóð. Fyrri ráðstefnudaginn var leitað álits fundarmanna á hinum ýmsu þáttum varðandi félagsstarfsemi íslenzkra verkfræðinga, en síðari daginn var reynt að vinna frekar úr þessum hugmyndum. Ekki er ástæða til að ræða hér frekar það sem fram kom á ráðstefnunni, þar sem henni eru gerð betri skil síðar í þessu hefti. Hér skal aðeins bent á nauðsyn þess að hver einasti félagsmað- ur leggi nokkuð af mörkum í þeim umræðum og þeirri vinnu, sem vonandi mun fylgja í kjölfar ráðstefnunnar. Þeir sem sóttu ráðstefnuna munu vera sammála um að þar hafi komið fram fjöldi athyglisverðra hugmynda og að það gæti orðið Verkfræðingafélagi Islands ómetanlegur styrkur, ef við berum gæfu til að fylgja himnn mikilvæg- ari hugmyndum vel eftir. Því fleiri félagsmenn sem leggja þar hönd á plóg, því betri árangri verður unnt að ná. Einn þátt í starfsemi Verkfræðingafélagsins, sem var mjög til umræðu á fyrrgreindri ráð- stefnu og var greinilega mjög ofarlega í hug allra fundarmanna, þykir þó rétt að ræða nokkuð frekar. Hér er átt við Tímarit VFÍ. Allir voru á einu máli um mikilvægi þess og að núverandi form þess væri langt frá því að fullnægja þeim kröfum, sem við yrðum að gera til þess.Einmikil- vægasta sóknarlota félagsins mun því miða að því að bæta tímaritið verulega. Fyrstu skrefin hafa þegar verið stigin. Samþykkt hefur verið að launa starf ritstjóra, en jafnframt verða lagð- ar á hann auknar skyldur. Þá verður reynt á þessu ári að koma út sex heftum af tímaritinu en frá næstu áramótum er stefnt að því að tíma- ritið komi út á föstum dögum á tveggja mánaða fresti. Reglubundnir útgáfudagar eru forsenda þess að unnt sé að birta ávallt nokkuð af fersku frétta- efni frá starfssviði verkfræðinga. Hinsvegar skapar þetta fyrirkomulag ritnefnd og ritstjórn mikinn vanda því oft hefur reynzt mjög erfitt að fá höfunda greina til að standa við umsamdan skilatíma. Ritnefndin telur mjög æskilegt að taka öll mikilvægari mál til skipulegrar umræðu í tímaritinu. Eðlilegast er þá oft að safna saman í eitt hefti nokkrum greinum, sem f jalla um hin- ar ýmsu hliðar sama máls. Torvelt er að hef ja söfnun greinanna með of löngum fyrirvara, því þá vill oft verða svo að einstök atriði verða orðin úrelt, þegar efnið er loks birt. Því hlýtur það að vera algjör forsenda þess, að hægt sé að ræða efni á skipulegan hátt í tímaritinu, að verkfræð- ingar, sem fallast á að skrifa í tímaritið skili greinum sínum á umsömdum tíma. Ritnefnd og ritstjóri eru þess albúin að leggja sitt fram til að bæta Tímarit VFl verulega. Hins- vegar verða allir verkfræðingar að gera sér ljóst að það er fyrst og fremst undir þeim sjálfum komið hvort þetta tekst.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.