Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 25

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 25
TlMARIT VFl 1970 13 ætlaðar öllum félögum VFl, en ekki eingöngu meðlim- um stéttarfélagsins. Tillaga um aðgeröir stjórnar VFl. 1. Stjórn VFl leiti, að eigin mati, álits félaga á nýj- um stéttarreglum, drengskaparreglum, og leggi þær síðan fyrir aðalfund. 2. Innganga nýrra félaga verði gerð formlegri. Við inngöngu í félagið útskýri formaður megintilgang VFl, réttindi og skyldur félaga og afhendi Hand- bók VFl. 3. Stjórn VFl skal skora á þá, er telja drengskapar- reglur (og aðrar reglur) brotnar, sér eða stéttinni til skaða, að leggja fram rökstudda greinargerð. 4. Stjórn VFl taki slík mál fyrir samkvæmt 13. gr. félagslaga. 1 vissum tilvikum kanni stjórn VFI hvort ekki megi koma í veg fyrir endurtekningu brota á drengskaparreglum með viðræðum við for- ráðamenn stofnana, sem hlut eiga að máli. 5. Handbók VFl verði gefin út að nýju, vönduð að frágangi og bandi. Virðingarfyllst, Bragi Þorsteinsson (sign) Haukur Pálmason (sign) Björn Kristinsson (sign) Drengskagarreglur VFÍ. 1. Félagar VFl skulu ávallt í starfi sýna drengskap. Þeir skulu vera vandir að virðingu sinni og gæta álits verkfræðingastéttarinnar í hvívetna. 2. Félagar skulu gæta drengskapar í keppni um verk- efni eða stöður. Þeir skulu ekki afla sér tekna með þeim hætti, er stríðir aimennt gegn hagsmunum annarra félaga í launa- eða gjaldskrármálum. 3. Félagar skulu ávallt vinna að verkefnum á hlut- lægan hátt. Geti fjárhagslegir eða aðrir hagsmunir félaga haft áhrif á lausn verkefnis, skal greina verkkaupa frá því. Félagi skal við lausn verkefnis forðast að hlúa að óskyldum hagsmunum, sér eða öðrum til hagsbóta. 4. Félagar skulu taka tillit til stéttarbræðra sinna og vernda faglegt álit þeirra gegni illkvittnu umtali eða röngum ásökunum. 5. Félagar skulu leitast við að setja skoðanir sínar fram á almennum vettvangi á ábyrgan og málefna- legan hátt og forðast rangar, villandi og ýktar fullyrðingar. 6. Félagar stuðli að almennri tækniþróun og miðli af þekkingu sinni og reynslu. 7. Félagar skulu vinna að því, að réttir aðilar njóti viðurkenningar fyrir verk sln. Tímarit Verkfræðingafélags Islands kemur út sex sinn- um á ári. Ritstjóri: Páll Theodórsson. Ritnefnd: Dr. Gunn- ar Sigurðsson, Jakob Bjömsson, Vilhjálmur Lúðvíksson, Þorbjörn Karlsson og Birgir Frímannsson. Framkv.stj. ritnefndar: Gísli ÓlafssOn. STEINDÓRSPRENT H.F. FRETTIR Fyrirlestrar um jarðhita- rannsóknir. I janúar s.I. hófst röð fyrirlestra um jarð- hitarannsóknir á vegum Jarðfræðafélags Islands. Fyrirlestrarnir voru aðra hverja viku og stóðu fram í apríl. Aldrei fyrr mun hafa verið gefið jafnítarlegt yfirlit yfir jarðhitarannsóknir hér á landi og var því mikill fengur í þessum fyrir- lestrum. Þarna fékkst mjög greinargott yfirlit um þann árangur, sem þegar hefur náðst, og þær aðferðir, sem beitt hefur verið við þessar rann- sóknir. Ennfremur kom vel í ljós að enn bíða mörg hinna mikilvægari verkefna óleyst. Fyrirlestrarnir voru vel sóttir. Auk allra þeirra, sem slíkar rannsóknir stunda, sótti töluverð- ur fjöldi jarðfræðinema við Háskóla Islands þessa fyrirlestra og að auki nokkrir verkfræð- ingar, sem unnið hafa við hagnýtingu jarðhita. Ekki er hér rúm til að gefa nema nöfn fyrirles- ara, en brýn þörf er að gera mun meira af efni sem þessu aðgengilegt með prentun eða f jölritun en nú er fáanlegt. 1. fundur: Innrauðar mælingar úr lofti yfir jarðhitasvæðum, Guðmundur Pálmason. Jarðfræðileg bygging háhitasvæða, Kristján Sæmundsson. 2. fundur: Jarðsveiflumælingar og túlkun þeirra, Guðmundur Pálmason. 3. fundur: Rennsliskerfi jarðhitasvæða. Bragi Árnason, Jens Tómasson og Páll Theodórsson. 4. fundur: Jarðefnafræði jarðhitasvæða, Guð- mundur E. Sigvaldason og Stefán Arnórsson. 5. fundur: Jarðhitasvæðið í Reykjavík, Guð- mundur Pálmason, Jónas Elíasson og Þorsteinn Thorsteinsson. 6. fundur: Jarðhitasvæði á Reykjanesi, Jens Tómasson, Stefán Arnórsson og Sveinbjörn Björnsson. 7. fundur: Smáskjálftar á jarðhitasvæðum, Sveinn Björnsson. Tækni við jarðhitaleit, Sveinn Björnsson. 8. fundur: Áætlun mn rannsókn háhitasvæða, Sveinn Björnsson. Framtíðarhorfur í jarðhitarannsóknum, Guð- mundur Pálmason.

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.