Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 16

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.02.1970, Blaðsíða 16
4 TlMARIT VPl 1970 því sem væri að gerast, persónulegar upplýsing- ar um félagsmenn (stöðubreytingar o. fl.), lif- andi gagnrýni og/eða lof á störf verkfræðinga. Hugmyndir komu fram um nýja skipan á út- gáfu tímaritsins, t. d. um samvinnu við aðra aðila, sem hafa áhuga á svipuðu efni. Mikil áherzla var lögð á að tímaritið kæmi reglulega út a. m. k. sex sinnum á ári. Þá var nokkuð rætt um möguleikann á því að gefa út mánaðarlega lítið fréttablað, þar sem meiri áherzla væri lögð á hraða en útlit. Töluvert var einnig rætt um hlutverk tíma- ritsins í kynningu á verkfræðingastéttinni og störfum hennar út á við. Töldu margir að æski- legt væri að stíla töluverðan hluta af efni tíma- ritsins til breiðari lesendahóps en nú er, þannig að verktakar og aðrir þeir aðilar, sem hafa bein- an áhuga á verklegum framkvæmdum og tækni- framförum yfirleitt, teldu ástæðu til að fylgjast með því, sem í tímaritin birtist. Eftirmenntun. Mikið var rætt um eftirmenntun verkfræðinga. Öllum er ljós hin sívaxandi þörf sem er á því, að verkfræðingar bæti stöðugt við menntun sína, þannig að þeir beiti ávallt þeim vinnuaðferðum og lausnum, sem hagkvæmastar eru. Fyrir til- stilli VFl hefur nú fengizt viðurkenning Háskóla Islands á því að slík eftirmenntun sé eðlilegt verkefni Háskólans. Fyrstu skrefin hafa því þeg- ar verið stigin í þessu efni. Nú þarf hinsvegar að koma þessari starfsemi á fastari grundvöll, bæði varðandi námskeiðahald hér á landi og þátt- töku í eftirmenntun erlendis. Allmikið var rætt um hvernig unnt sé að tryggja það, að íslenzkir verkfræðingar sæktu slík námskeið í nógu ríkum mæli. Var meðal annars bent á það að bæði kenn- arar og læknar hefðu það tryggt með ráðningar- samningum sínum að þeir fengu með vissu árabili frí frá störfum á fullum launum til að bæta við menntun sína. Athygli ráðstefnunnar beindist mjög að því á hvaða sviðum eftirmenntunar væri mest þörf, og voru flestir á þeirri skoðun að mest væri þörfin fyrir námskeið í stjórnunarfræðum. Vinnuhópar og verkefni þeirra V erkefni: 1) Taka afstöðu til staðhæfing'a í hugmynda- safni, sem snerta verkefni vinnuhóps. 2) Gera rökstuddar tillögur til stjórnar VFl fyr- ir 1. júní n.k. um aðgerðir félagsins í þeim málefn- um, sem vinnuhópurinn hefur til úrlausnar. Vinnuhópar: 1. Verkefni 1.1-1.5 Markmið, stjórn, skrifstofa, stjómskipulag/deildir, félagsgjöld. Nefndarmenn: Einar B. Pálsson, Jónas Elíasson Sveinn Þórarins- son og Gunnar Ámundason. 2. Verkefni 1.6: Húsnœðismál. Nefndarmenn: Birgir Frímannsson, Sigurður Halldórsson og Sig- fús Thorarensen. 3. Verkefni 1.7: Tímarit/útgáfustarfsemi. Nefnd- armenn: Haukur Pálmason, Jónas Frímannsson og Stefán Hermannsson. 4. Verkefni 1.8-1.12: Félagsandi, fundir, ráð- stefnur, skemmtanir, skoðunarferðir. Nefndarmenn: Gylfi Isaksson og Kristján Jónsson. 5. Verkefni 2.0: Kjaramál og 8. V. Nefndarmenn: Gunnar Baldvinsson, Skúli Skúlason, Vífill Odds- son og Sigurður Þórðarson. 6. Verkefni 3.0: Gjaldskrá. Nefndarmenn: Rík- arður Steinbergsson, Gunnar H. Pálsson og Páll Sigurjónsson. 7. Verkefni 4.0: Lífeyrissjóður. Nefndarmenn: Jóhannes Guðmundsson, Hörður Frímannsson og Magnús Bjarnason. 8. Verkefni 5.0: Stéttarreglur. Nefndarmenn: Björn Kristinsson, Bragi Þorsteinsson og Haukur Pálmason. 9. Verkefni 8.0-8.3: Menntamál, almennt, tœkni- menntun, eftirmenntun. Nefndarmenn: Dr. Gunn- ar Sigurðsson, Jakob Gíslason og dr. Vilhjálmur Lúðvíksson. 10. Verkefni 10: Réttindi og skyldur. Nefndar- menn: Jóhann Indriðason, Leifur Hannesson og Bergur Jónsson. 11. Verkefni 11.0-11.4, 16.0 og 17.0: Skyldar starfsgreinar og samtök: arkitektar, tœknifrœðing- ar, verkfrœðinemar, BHM, erlend samkeppni, al- þjóðasamvinna. Nefndarmenn Skúli Guðmunds- son, Geir A Gunnlaugsson og Sæmundur Óskars- son. 12. Verkefni 12.0 og 18.0: Stjórnmál, almennings- tengsl. Nefndarmenn: Aðalsteinn Guðjohnsen. Guðmundur Magnússon og Pétur Stefánsson. F.h. Stjórnar V.F.l./Ráðstefnunefnd

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.