Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 3
DV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 3
Óharðnaðir guttar með dtvarpsbátt
Söguþættir við Skúlagötu
Broddi Broddason og Gísli
Ágúst Gunnlaugsson, sagn-
fræðinemar við Hf, að vinna
einn afSöguþáttum sínum I
húsakynnum Ríkisútvarpsins
við Skúlagötu í aprfl 1978.
Vetuma 1978 og '79 sáu sagnfræðinemarnir
Broddi Broddason og Gísli Ágúst Gunn-
laugsson um Söguþætti í Ríkisútvarpinu.
Gísli Ágúst lést fyrir nokkrum árum en Broddi
Broddason fréttamaður man vel eftir þessum
tíma.
„Við vomm báðir í
Háskólanum en hugmyndin
held ég að hafi verið komin frá Sögufélaginu," segir Broddi.
„Gunnar Karlsson prófessor hnippti svo í okkur félagana og
Gamla myndin
við hófumst handa. Þetta voru oftar en ekki
viðtalsþættir, við ræddum við menn um rann-
sóknir þeirra, bókaskrif og ég man að einu sinni
sátum við heila doktorsvörn. Einhvern tíma
tengdum við lfka sagnfræðina, bæði jarðfræði og
fornleifafræði og fengum þá Sigurð Þórarinsson og
Kristján Eldjárn á okkar fund. Út frá þessum unnum við
aðra þætti stundum, m.a. tvo þegar þrjátíu ár voru liðin frá
inngöngu okkar í Nató 1979. Ég varð svo ekki fréttamaður hjá
RÚV fyrr en tæpum áratug síðar," segir Broddi Broddason.
Spurning dagsins
Heldurðu að Davíð hætti í haust?
Kemur aftur og aftur
„Ég held hann hætti sem forsætisráðherra
en ekki sem formaður flokksins. Svo mun
hann koma hraustur og fjallfrískuraftur
inn i næstu kosningum.
Eins og Marteinn Mosdal, þetta er
maður sem kemur alltafaftur og
aftur og aftur.
Sem betur fer."
Sverrir Stormsker
tónlistarmaður
„Vonandi
hættirDavíð
ekki í pólitík.
Hann býr að
yfirburða-
reynslu sem á
að
nýtast okkur áfram."
Hrafn Jökulsson ritstjóri
„Nei. Ég held að
Davíð Oddsson
hætti ekki í
pólitík þótt
hann hætti
sem
forsætis-
ráðherra. Hann mun áfram vera
virkur fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Það er alveg borðleggjandi."
Ragnheiður Ríkharðsdóttir,
bæjarstjóri í Mosfellsbæ
„Ekki finnst
mérnú
sögurnar hans
neitt sérstakar
og því enginn
fengur
afþví efhann
sinnir frekari
ritsmíðum. Hann ætti bara að
skella sér í
sveitina og fara að yrkja
jörðina. En til að svara
spurningunni
þinni þá er ég sannfærð um að
hann muni ekki hætta."
Sigríður Hagelund kennari
„Það er erfitt
að segja því
Davíð hefur
þann hæfileika
að koma alltaf
sífellt
á óvart. Það er
algjörlega opin bók!"
Þorkell Á. Óttarsson
guðfræðingur
Davíð Oddsson mun láta af embætti forsætisráðherra í haust. DV
spyr hvort hann verði áfram í pólitík eða hætti og snúi sér að
ritstörfum eða öðru utan stjórnmálanna.
Bjólfskviða
Bjólfskviða telst elsta
þekkta söguljóðið með-
al germanskra þjóða og
merkast ljóða á
fornensku. Skrifari á
Englandi tók sig til í
kringum árið 1000 og
skráði kviðuna á hand-
rit. Þar segir í 3.182 h'n-
um frá afrekum Bjólfs,
hetju frá Gotlandi, við
hirð Hróðgeirs Dana-
kóngs. Bjólfur fréttir af
hremmingum Hróð-
geirs og þegna hans en þursinn
Grendel herjar þar mikinn, þarf
a.m.k. 30 menn í mál á hverri nóttu.
Bjólfur fer til Danmerkur með á
annan tug manna og vinnur á
Grendel. En móðir þursins vill hefna
sonar
Saga af sögu
síns,
Bjólfur
þarf að vinna á henni áður en þegn-
ar Hrógeirs geta andað léttar. Um
2/3 hlutar kviðunnar fjalla um þessi
átök, svo líður hálf öld og þá er Bjólf-
ur vel fullorðinn Gotakóngur. Þar í
landi hefur dreki nokkur lengi legið
á gulli sínu og aldrei gert mönnum
mein. Félftill maður stelur gullkaleik
úr safni drekans sem ærist og herjar
á Bjólf og þegna hans. Bjólfur Gota-
kóngur verður að berjast við drek-
ann og báðir falla. Árið 1772 varð
Grímur Jónsson stúdent frá Frúar-
skóla í Kaupmannahöfn og lagði síð-
Söguljóðið góða Skrifariá
Englandi tók sig til í kringum
árið 1000 og skráði kviðuna á
handrit.
an stund á heimspeki,
lög og fornffæði.
Hann varð aðstoðar-
maður í leyndar-
skjalasafni Danakóngs
árið 1780 og fjórum
árum síðar var hann
orðinn prófessor.
Hann var þá sendur til
Englands að leita uppi
norræn handrit í söfri-
um þar, náði sér í leið-
inni í doktorspróf í
lögum frá St. Andrews.
Grímur kallaði sig Thorkelin,
skimaði um á enskum söfnum og
rak augun í Bjólfskviðu. Hann skrif-
aði hana upp, ekki einu sinni heldur
tvisvar og mátu enskir hann svo
mjög að þeir vildu gera hann að for-
stöðumanni British Museum. Hann
afþakkaði, hélt til Kaupmannahafn-
ar að gerast jústitsráð, etatsráð,
riddari og konferenzráð en sá líka
um prentun ótal fornrita. M.a.
Bjólfskviðu en hún kom fyrst út í
Kaupmannahöfn 1815.
Afleiðingar
reiðinnar eru
mun alvarlegri
en orsakir hennar.
Markús Árelíus, Rómarkeisari
og stóuspekingur á 2.öld.
Sendiherrann &
blaðamaðurinn
Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra f Finnlandi, og Ólafur
Hannibaisson blaðamaður eru bræður. Þeir eru synir Hanni-
bals Valdimarssonar, alþingismanns og forseta ASl, frá Fremri-
Arnardal i N-lsafjarðarsýslu og konu hans Sólveigar Ólafsdótt-
ur húsmóður frá Strandseljum f N-lsafjarðarsýslu.
Báðir eru þeir bræður f sviðsljósi fjölmiðlanna
þessa dagana. Jón Baldvin vegna forræðisdeilu
dóttur hans f Mexfkó og Ólafur Hannibalsson
sem talsmaður Þjóðarhreyfingarlnnar sem
berst nú gegn ofrfki stjórnvalda f þjóðarat-
kvæðagreiðslumálinu.
<Eiríksstöðum íJíaukadal
9. -11. júff 2004
Nánari upplýsingar í síma: 434-1132 & 434-1410
- Víkingabúðir
Leikir, útskurður í tré og bein, forn matargerð,
markaðstjöld, leikir fyrir börnin o.fl.
- Kór úr Dalabyggð
Heimamenn flytja nokkur sönglög.
- Sögufélag Dalamanna og söngur.
- Sumarblót i Leifsbúð:
Nikkólina. Lopapeysu-teitið, söngvatn og hver syngur
með sínu nefi.
- Ættirykkar raktar til Eiríks-rauða af Oddi Helgasyni.
- Kórsöngur Vorboðans.
- Landnáma.
Stoppleikhópurinn.
- Horft aftur í tímann.
Erla Stefánsdóttir segir m.a. frá því sem hún sér.
- Víkingakappleikir.
Ungmennafélagið Æskan annast leikina. Keppt verður
í glímu, spretthlaupi, grjótkasti o.fl. Allir hvattir til
þáttöku.
- Ratleikir.
- Halli Reynis og bandflytja ýmis lög.
- Heimsókn Gunnars, Njáls og Kolskeggs til heitmeyjar
Gunnars.
Söngur og leikur.
- Brennu-Flosi tendrar í bálkestinum.
Tröllasögur — fjöldasöngur með Nikkólínu.
- Dansleikur.
Hljómsveitin Ábrestir spilar fyrir
Aðgangseyrir 2.500 kr.
13 - 16 ára og lífeyrisþegar 1.000 kr.
12 ára og yngri ókeypis aðgangur.