Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLl2004
Fréttir DV
Davíð glaður
með Bush
Davíð Oddsson forsætís
ráðherra er himinUfandi
eftir íund sinn með
Georg Bush forseta
Bandaríkjanna í
Hvíta húsinu, sam-
kvæmt framburði
hans í fjölmiðlum í
gær. Davíð segir
Bush hafa verið já-
kvæðan og hrein-
skiptinn. Krafa Davíðs var
að herstöðin yrði rekin
áffam og það af Bandaríkj-
unum, en Davíð virðist
hafa gefið ádrátt um það,
vegna sparnaðarvilja
Bandaríkjamanna, að ís-
lendingar muni í framtíð-
inni taka á sig „aukaþátt" í
kostnaðinum við starfsemi
herstöðvarinnar í Keflavík.
9 ára barn
hrapaði til
bana
Níu ára stúlka lést í gær-
dag eftir að hafa hrapað
niður fjallshlíð í fjallinu
Kubba sem er í botni Skut-
ulsfjarðar og skilur að Engi-
dal og Dagverðardal. Lög-
reglunni á ísafirði barst til-
kynning frá Neyðarlínunni
klukkan 14:41. Björgunar-
sveitir með fjallaklifrara
voru ræstar út. Lögregla og
læknir komu svo á vettvang
klukkan 15:00 en stúlkan þá
úrskurðuð látin. Aðstæður í
fjallinu eru mjög varasam-
ar, mjög brött fjallshlíð
með lausu grjóti og kletta
sem eru hættulegir yfirferð-
ar. Ekki er vitað hvað stúlk-
an, sem var gestkomandi á
ísafirði, var að gera í fjall-
inu eða hverjir voru með í
för.
Kærði ekki
morðhótanir
Jón Baldvin Hannibals-
son sagði í DV í gær að
Marco Brancaccio hefði
hótað að drepa
bæði hann og
Bryndísi Schram ef
hann fengi ekki
barn Snæfríðar,
dóttur Jóns Bald-
vins, afhent. Jón
Baldvin segist ekki
hafa kært hótanir
Marcos. „Nei, ég hef ekki
gert það," segir Jón Bald-
vin. Marco segir einnig að
Jón hafi nýtt stöðu sína til
að láta framkvæma fíkni-
efnaleit á honum þegar
hann kom til landsins.
„Þessari paranoju hefur
verið lýst í málsskjölum,"
segir Jón Baldvin. „Embætti
sýslumanns hefur sjálft
svarað þessu og vísað
burt.“
Björn Baxter Herbertsson, sumarafleysingamaður hjá Strætó bs., var ráðinn til
starfa þrátt fyrir að vera próflaus. Á mánudagsmorgun ók hann yfir á rauðu ljósi á
Kringlumýrarbraut og klessti á fólksbíl. Skömmu síðar klessti hann á kyrrstæðan
bíl við apótekið á Gullteigi. Björn var rekinn samdægurs.
Ruglaúun og pnoflaus
á strsetó olli skaða
„Honum hefur verið sagt upp störfum," segir Ásgeir Eiríksson,
framkvæmdastjóri Strætó. Á mánudagsmorgun lenti Björn Baxt-
er Herbertsson, sumarafleysingamaður hjá Strætó, í árekstri á
Kringlumýrarbrautinni eftir að hafa farið yfir á rauðu ljósi.
Skömmu síðar klessti hann á kyrrstæðan bíl við apótekið á Gull-
teigi. Björn var ekki með gilt ökuskírteini.
„Hann hafði framvísað ökuskír-
teini þegar hann var ráðinn í júní,"
segir Ásgeir Eiríksson. „Við höfum
ekki þá vinnureglu að athuga hvort
ökuskírteini séu rétt. Við göngum
út frá því að menn séu heiðarlegir.
Þeir sem ekki hafa ökuréttíndi geta
ekki unnið hjá okkur.“
Þrátt fyrir staðhæfingu Ásgeirs
um að réttindalausir menn séu
ekki ráðnir hjá Strætó þá hafði
Björn Baxter verið próflaus í um
fimm mánuði áður en hann var
ráðinn til starfa. Ökuskírteini hans
rann út í febrúar.
„Við getum náttúru-
lega ekki gert áfeng-
istest á öllum okkar
ökumönnum áður en
þeir setjast undir
stýri."
„Þetta voru bara mistök,“ segir
Björn. „Ég gerði þetta óvart og get
ekkert gert að þessu. Lífið heldur
áfram."
Björn Baxter er hvergi skráður
með lögheimili. Faðir Björns sagði
fréttirnar af árekstrinum ekki
koma sér mikið á óvart. Það kæmi
honum frekar á óvart að Björn
hefði verið ráðinn til starfa hjá
Strætó.
Þeir sem DV talaði við hjá
Strætó bs. í dag voru sammála um
að hræðilegt slys hefði átt sér stað.
Einn af yfirmönnum Strætó sagði
að Björn hefði verið í annarlegu
ástandi. Fleiri sögðu svipaða sögu.
„Við getum náttúrulega ekki
gert áfengistest á öllum okkar öku-
mönnum áður en þeir setjast und-
ir stýri,“ segir Ásgeir Eiríksson.
„Við erum með yfir áttatíu bfla
á götunum í einu og treyst-
um okkar mannskap til að
vera í þannig ástandi að þeir
geti keyrt."
Er hann var spurður hvort
ábyrgðin liggi ekki hjá Strætó - að
láta réttíndalausan ökumann aka
almenningsvagni - segir Ásgeir að
hann geti ekki svarað því hvernig
málið verði til lykta leitt.
„Það hlýtur að koma til kasta
réttra aðila að fjalla um það," segir
Ásgeir. „Þetta hlýtur þó að kalla á
einhvers konar skoðun á starfs-
reglum Strætó bs."
Samkvæmt upplýsingum frá
Landspítala-Háskólasjúkrahúsi er
maðurinn sem varð fyrir strætis-
vagninum á Kringlumýrarbraut út-
skrifaður. Læknir sem var á vakt
þegar slysið varð sagði að
miðað við áverkana
hafi slysið verið
harkalegt.
Maðurinn hafi ver-
ið skoðaður og sé
nú farinn heim.
simon@dv.is
Djöfulsins aumingjar
Svarthöfði getur ekki annað en
hlegið sig máttíausan yfir þeim van-
mætti og aumingjaskap sem veður
uppi meðal þjóðarinnar og ráða-
manna um þessar mundir.
í gær sá hann fréttir af því að
Davíð Oddsson fékk loksins að hitta
George Bush, eftir að hafa beðið og
beðið eins og horuð móðir við
Mæðrastyrksnefnd, með fullri virð-
ingu fyrir þeim. Bush sagði eftir
fundinn að Davíð hefði verið fylginn
sér og fastur fyrir á fundinum. Hann
sagði að Davíð ætlaði að meta varn-
arþörfina og aðstöðuna á íslandi.
íl p
i Svarthöfði
Svo sagði Bush að hann hefði sagt
við Davíð að hann vildi tryggja að
hann skildi allar afleiðingar þeirrar
ákvörðunar sem tekin yrði, hvort
sem hún verði um að vélamar verði
þarna áfram eða ekki. Svarthöfði
frussar og hlær, þegar hér er komið
við sögu, enda talar Bush fyrir Davíð
eins og hann sé h'till krakki sem
hefði öllum að óvömm sett saman
Hvernig hefur þú það?
„Ég hefþað alveg prýðilegt og er í ágætisformi. Ég náði smá fríi íjúní og hljóp upp á
hvern einasta dag/'segir SteingrímurJ. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, sem bregð-
ur oft undir sig betri fætinum og hleypur íklukkustund úr Breiðholti niður á þing. At-
hygli vakti að Steingrímur kallaði stjórnarliða djöfulsins aumingja I fyrradag.„Ég stend
á mínum rétti og þingsins og hefekki vanið mig á að láta hann afhendi. Það var bara
ekki farið að settum leikreglum, “ segir Steingrímur og tekur fram að fyrir norðan hefði
enginn kippt sér upp við slik orðaskipti hans og Halldórs Blöndal, forseta Alþingis.
vitræna fullyrðingu sem greina eigi
frá.
Að matí Svarthöfða hefur
tourette-sjúklingurinn í Vinstri
grænum loksins rétt fyrir sér. „Djöf-
ulsins aumingjar," sagði hann við
stjórnarliðana, sem þögguðu niður í
vanmáttugum og vælandi stjórnar-
andstæðingum með því að láta
þingforseta shta þingi. Það versta
var að aumingjarnir voru sjálfir
stjórnarandstæðingarnir, því það
em þeir sem ekkert geta eða megna
á þingi. Algerlega valdalaus hópur
sem einfaldast væri að afnema af
launaskrá þjóðarinnar. Svarthöfði
heyrði í útvarpinu að margir íslend-
ingar eru ósammála forsetanum um
að skjóta lagafrumvarpi tíl þeirra.
Þeim finnst góð lausn að breyta bara
fjölmiðlafrumvarpinu örlítið þannig
að þjóðin þurfi ekki að kjósa „með
þessum 150 tíl 200 milljóna króna
kostnaði".
Svona er aumingjaskapurinn
vaðandi uppi. Stór hluti þjóðarinnar
treystír sér ekki til að kjósa um hvort
setja eigi ákveðin lög, sem valda-
menn vilja nota til að drepa alla
gagnrýni. Stór hlutí á Alþingi hefur
engan tilgang nema að væla yfir
þeim sem valdið hafa. Og þeir sem
völdin hafa á íslandi hlaupa til
heimskingja í Hvíta húsinu til að
biðja um vernd fyrir einhverju sem
enginn veit hvað er. Með orðum
Steingríms: ísland er djöfulsins
aumingi.
Svaithöfði