Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Síða 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚU2004 Fréttir DV Kona myrt fyrirframan lögreglustöð Fimmtug kona, Debra Allen Vazques, var myrt íyrir framan lögreglustöð í borginni Ocala í Flórída í gær. Debra hafði átt í deil- um við fyrrverandi eigin- mann sinn fyrir utan Wal- Mart-verslun í nágrenni lögreglustöðvarinnar. Hún flúði frá manni sínum og leitaði aðstoðar hjá lög- reglunni. Hins vegar voru engir lögreglumenn til staðar á stöðinni vegna anna. Eiginmaðurinn skaut Debru til bana og framdi síðan sjálfsmorð. í gæslu fyrir innbrot f upphafi helgarinnar var brotist inn í íbúð í Hafnarfirði og miklum verðmætum stolið. Á föstudagskvöldið var ung- ur maður handtekinn, grunaður um að eiga aðild að málinu og hefur hann nú verið úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. Á laugardgskvöld var til- kynnt um rúðubrot í Víði- staðaskóla í Hafnarfirði og er lögreglan kom á staðinn sást að þar höfðu verið brotnar sjö rúður. Málið er í rannsókn. Annars var helgin róleg hjá lögregl- unni í Hafnarflrði. veitingamaöur á Café 67 á Akranesi „Þaö er mikil stemning hérna á Skaganum. Irskir dagar nálgast og þá verður nóg að gera. Ég rek veitingastaðinn Pizza uMHHan Landsíminn þar sem búist er við yfir tiu þúsund manns í bænum verð ég með tvöfalda vakt. Einn skemmti- legasti liður hátíðarinnar er þegar allir bæjarbúar grilla úti á götu. Þá fyllist bærinn af reyk og menn leggja mikið upp úr að grilla sem best. Svo er liðið aðeins í glasi og elda- mennskan verður mjúk og fín eftir þvi. Ég er einnig vélstjóri á stýribáti og held úti sjóstanga- veiði. Efég ætti að velja milli pizzastaðarins eða þess að stunda sjóinn vel ég hið síðar- nefnda. Sjórinn er lifið." Marco Brancaccia, barnsfaðir Snæfríðar Baldvinsdóttur, segir að Jón Baldvin Hannibalsson hafi notað áhrif sín til að sjá til þess að leitað yrði að fíkniefnum í fórum hans við komuna til landsins i ágúst sl. Marco ætlar að kæra ummæli Jóns Baldvins um líflátshótanir hans í garð Jóns og Bryndísar Schram sendiherrafrúr. Sakar Jón Baldrin um að hafa staðið fyplp fíkniefnaleit á sér „Ég vissi að Jón Baldvin hefði sambönd á Keflavíkurflugvelli og þess vegna bað ég bróður minn að vera rólegan ef það kæmi til einhverrar undarlegrar atburðarásar. Hann sagði það aðeins gerast í Hollywood-myndum," segir Marco Brancaccia, sem nú er á íslandi til að reyna að hitta dóttur sína Mörtu. Hann sakar Jón Baldvin Hannibalsson, sendiherra í Finnlandi, um að hafa „látið“ framkvæma fíkniefnaleit og yfirheyrslur yfir honum þeg- ar hann kom til landsins 9. ágúst síðastliðinn ásamt bróður sín- um og eiginkonu hans. „Ég sá að það var maður að fara í gegnum ítalska farangurinn. Hann valdi okkar nöfn sérstaklega úr. Okk- ur var skipað að koma í yfirheyrslu. Það fyrsta sem hann spurði var: Hvar eru vegabréf dóttur þinnar?" segir Marco um reynslu sína í tollinum þegar hann kom hingað til lands að hitta dóttur sína í ágúst í fyrra. Marco var tengdasonur Jóns Baldvins í 13 ár, allt þar til Snæfríður Baldvinsdóttir yfirgaf hann í Mexíkó og flutti dóttur þeirra ólöglega úr landi. í plöggum frá mexikóska utan- ríkisráðuneytinu frá 5. janúar 2004 kemur fram eftirfarandi: „[Bjrott- nám barnsins til Reykjavíkur, á ís- landi, var ólöglegt og brýtur augljós- lega á réttindum herra Marcos Brancaccia og barninu á nú þegar að skila til Mexíkó, búsetulands hennar, eins og segir í greinum 7, 10 og 11 í Haag-sáttmálanum." Hæstiréttur ís- lands hefur hins vegar ekki komist að sömu niðurstöðu. Snæfríður vissi allt Að sögn Marcos og lögfræðings hans, Stefáns Geirs Þórissonar, við- urkenndi Snæfríður að vita allt um téða fíkniefnaleit á fundi á skrifstofu Stefáns. „Hún vissi nákvæmlega um fíkniefnaleitina auk þess sem hún virtist vita nákvæmlega um að mest- ur tími við leitina hefði farið í að skoða skjöl sem umbjóðandi minn hafði með sér,“ skrifaði Stefán í kvörtun til Jóhanns Benediktssonar, sýslumanns á Keflavíkurflugvelli. í svari Jóhanns sýslumanns kemur fram að upplýsingaleki hafi orðið og að innanhússrannsókn yrði sett af stað vegna þess. Ekkert virðist hafa komið út úr leitinni, en Marco segir ljóst að Jón Baldvin hafi beitt áhrif- um sínum sem fyrrverandi utan- Jón Baldvin Hannibalsson „Þaö síöasta sem ég heyrði frá Marco var aö efhann fengi ekki að sjá barnið myndi hann koma til Finn- lands og myrða fööur Snæfriöar og móður," sagðiJón Baldvin i DVÍ gær um viðskipti við fyrrverandi tengdason sinn. rfkisráðherra, sendiherra og sem náinn vinur Jóhanns sýslumanns. „Ég borðaði hádegismat á heimili Jóns Baldvins þar sem Jóhann Bene- diktsson var viðstaddur. Þeir voru nánir vinir," segir Marco. Hann seg- ist sannfærður um að átt hefði að koma fyrir fikniefnum á sér tO að koma í veg fyrir frekari tilraunir til að endurheimta dótturina. „Þegar þeir leituðu í töskum mínum báðu þeir mig að setjast niður. Ég neitaði því, með þeim útskýringum að ég vildi fyrirbyggja að eitthvað yrði sett í töskurnar," segir hann. Jón Baldvin beið fyrir utan Marco hefur einu sinni fengið að hitta dóttur sína frá því Snæfh'ður yf- irgaf Mexíkó. „Ég fékk að vera með Strákar í vinnuskólanum í Hafnarfirði Fundu bein í Hafnar- fjarðarhrauni „Okkur brá nokkuð þegar við sáum þessi bein þarna í hrauninu," segir Brandur Franklín Karlsson sem var að týna rusl fyrir vinnu- skólann í Hafnarfirði ásamt félög- um sínum þegar þeir rákust á poka fulla af beinum. „Mér sýnist þetta vera af kindum eða geitum en er þó ekki viss en þetta var þónokkuð magn af beinum og leit nokkuð skuggalega út.“ Félagarnir rákust á beinin í hrauninu sem er syðst í Hafnarfirði þar sem nýtt hverfi hef- ur risið. Brandur segir þá þó hafa haldið áfram að vinna eftir þessa uppákomu enda ekki á hverjum degi sem þeir finni svona mikið magn af beinum. „Mér finnst samt eiginlega hundleiðinlegt að týna rusl en kaupið er svo sem ágætt þannig að maður sættir sig við þetta," segir Brandur sem var að klára tíunda bekk og er á leið í Flensborgarskólann. Brandur segist aðallega ætla að vinna í sumar en sé þó á leiðinni til Danmerkur í brúð- kaup seinna í sumar. ■ breki@dv.is Vinnuflokkurinn Hér má sjá Brand ásamt félögum sínum sem fundu beinin í hrauninu i Hafnarfirði. Þeim brá nokkuð þegar þeir sáu beinin. Marco Brancaccia Ætlar að mæta Snæfriði Baldvinsdóttur, barnsmóður sinni, og Jóni Baldvini fyrir dómi þar sem hann segistgeta hrakið ásakanir þeirra. DV-mynd E.ÓI. henni á afmælisdaginn minn, 14. ágúst. Þrír jakkafataklæddir h'f- verðir biðu inni í hótelinu og ég mátti ekki fara með dóttur mína það- an út. Jón Baldvin beið fyrir utan í bíl ásamt öðrum manni. Ég sá hann þar meðan ég talaði í símann. Hann vildi heilsa mér, en ég vildi það ekki, enda hafði hann fyrirskipað fíkniefnaleit á mér nokkrum dögum áður. Þegar tíminn var úti reif Snæfríður dóttur mína frá mér og fór ásamt h'fvörðun- um þremur," segir hann. Jón Baldvin Hannibalsson sagði í samtali við DV í gær að Marco hefði hótað honum og Bryndísi Schram, eiginkonu hans, lffláti. Marco segist ætla að draga Jón fýrir dómstóla vegna þessa. „Ég svara ekki þessum röngu ásökunum, en ég mun svara fyrir þetta á viðeigandi stað, sem er rétturinn," segirMarco. „Ekki aðeins er dóttir þeirra og öll fjölskyldan að búa til ásakanir, heldur segja þau nú að ég hafi sýnt dóttur minni of- beldi,“ segir hann og ítrekar að rang- ar ásakanir um ofbeldi geti hann hrakið fyrir dómi. jontrausti@dv.is Þrefað um kolmunna í dag munu samningaviðræð- ur hefjast milli íslendinga, Norð- manna, Rússa, Færeyinga og ESB í Brussel um skiptingu aflalieim- ilda úr kolmunnastofninum. Við- ræðurnar nú eru að frumkvæði ESB. Fjallað er um málið í „Hálf fimm fréttum" KB banka. Á síð- asta ári veiddu þessar þjóðir samtals um 2,3 milljónir tonna af kolmmina. Þar af var afli okkar íslendinga rúm 500 þúsund tonn eða um 22 prósent af saman- lögðum kvóta þessara þjóða. í síðasta mánuði jukum við okkar eigin kolmunnakvóta úr 493 þús- und tonnum í 713 þúsund tonn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.