Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 13
DV Fréttir Stærsti stuld- ur í sögu Rúmeníu Öryggisvörður stóð að stærsta stuldi í sögu Rúm- eníu nú eftir helgina er hann ók á brott á pen- ingaflutningabíl sínum þegar fé- lagi hans skrapp í næstu sjoppu eftir sígarett- um. Þeir voru nýbúnir að fara rúnt á brynvörðum bíl sínum milli banka og safna saman rúmlega 100 milljón- um kr. í peningum. Bíll fannst síðar yfirgefinn í út- jaðri Búkarest. Mikil leit stendur nú yfir að þjófnum en öryggisfýrirtækið sér fram á stórtap ef hann næst ekki þar sem það var ekki tryggt fyrir þjófnuðum af þessu tagi. Þorgrímur Þráinsson segir Örn Arnarson sundkappa ekki hafa greint tóbaksvarnarnefnd frá munntóbaksnotkun sinni. Örn kom fram á auglýsingum gegn tóbaki. „Menn verða að standa við orð sín,“ segir Þorgrímur. Oheppileg tyrin- mynd unglinga Vill fá gjafir til baka Smáður kærasti í Rússlandi hefur krafið fyrrverandi kærustu sína um gjafir þær sem hann gaf henni þann stutta tíma sem þau voru sam- an. Um er að ræða súkkulaði og aðrar mat- vörur. Stúlkan hefur aftur á móti sagt fyrir dómi að hún geti ekki orðið við kröfu hans þar sem hún hafi þegar neytt allra gjaf- anna. Um er að ræða Toblerone, hnetur, ban- anar og rautt epli. Þyrla send ájökul Landhelgisgæsla íslands fékk boð frá lögreglunni á Selfossi kl. 14:50 í gær og var þyrla send á Langjökul til að sækja konu frá Taívan. Búið var að sækja hana og koma á Borgarspítalann í Fossvogi kl. 17:30. Lögregl- an á Selfossi hafði fengið beiðni frá Neyðarlínunni en vegna aðstæðna var ákveðið að senda þyrlu. „Hún hafði dotúð, lent illa og er með lærleggsbrot," sagði læknir á Borgarspítal- anum. „Svona áverka er ekki er óalgengt að sjá hjá eldra fólki. Þetta krefst að- gerðar og leggst hún inn í einn úl tvo sólarhringa." Konan, sem er fædd 1938, talar ekki ensku og naut hún aðstoðar túlks við komuna. Varúð, mellur framundan! Melludólgar í Rúmen- íu deyja ekki ráðalausir og til þess að efla viðskiptin hafa þeir komið upp vegaskiltum með áletrun- inni: Varúð - mellur fr amundan! Skiltin eru á þeim stöðum þar sem vændiskonumar halda sig og markmiðið að „vara“ bflstjóra við svo þeir keyri ekki of hratt og átti sig um seinan á að sniðugt hefði verið að stoppa. Lögregl- an kvað ekld hrifin af uppátækinu og segir skilt- ið sem sýnir auk áletrun- arinnar fallega konu í rauðu kjól beinlínis geta valdið slysum. „Við fjar- lægðum svona skilti fyrir nokkrum mánuðum en nú eru þeir famir að steypa þau niður," segir lögreglustjórinn í Sibu- héraði og er ekki skemmt. „Ég hafði ekki hug- mynd um að hann notaði tóbak," segir Þorgrímur Þráinsson. „Efhann hefurþurft að leyna okkur ein- hverju er það hans vandamál.“ af þessu. Hann sagði okkur aldrei neitt. Þetta sýnir kannski hve tóbak er öflugt fíkniefni." í viðtali við DV um helgina sagði Örn þetta um munn- tóbaksnotkun sína: „Ég var kominn með ógeð á sundinu og þá leyddist ég út í þessa vitleysu. Ég þurfti að passa mig vel að það sæist ekki opinberlega að ég væri að nota efnið." Örn segist nú vera hætt- ur að nota munntóbak. „Það var djöfullegt að hætta," segir hann. simon@dv.is Þorgrímur Þráinsson, sviðs- stjóri tóbaksvarna „Hann sagöi okkur aidrei neitt." „Mér finnst þetta afar óheppilegt," segir Þorgrímur Þráinsson, sviðsstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsustöð. ÖrnArnarson sund- kappi hefur opinberlega viðurkennt að hafa notað munntóbak í nokkur ár. Á sama tíma var hann á veggspjöldum á vegum tób aksvarnarnefndar. Þorgrímur segir að þeir íþrótta- menn sem komu fram á auglýsing- unum hafi gert það á þeim for- sendum að þeir notuðu ekki tóbak. „Ég hafði ekki hugmynd um að hann notaði tóbak," segir Þorgrím- ur Þráinsson. „Ef hann hefur þurft að leyna okkur einhverju er það hans vandamál." Þorgrímur segist ekki vera þannig gerður að hann dæmi menn fyrir það sem þeir gera. Það sé óheppilegt að Örn Arn- arson hafi ekki sagt þeim frá tóbaksnotkun sinni en hver hafi sinn djöful að draga. „Ef menn koma fram á auglýs- ingum gegn reykingum verða þeir að standa við orð sín,“ segir Þor- grímur. „Á þessum auglýsingum vildum við íþróttamenn sem gætu orðið fyrirmynd unglinga. í tilfelli Arnar vissum við ekki Á toppnum án tóbaks Þessaraug- Vj5 lýsingarvoru % settar upp í grunnskótum landsins. Loðnuveiðar á sumarvertíð hafnar með 100.000 tonna bráða- birgðakvóta Enn verið að semja um heildarkvótann Heildarkvóti af loðnu á sumarver- tíðinni verður sennilega ákvarðaður 335 þús. tonn í kjölfar mælinga rann- sóknarskipsins Áma Friðrikssonar á stofninum. Samkvæmt loðnusamn- ingnum mun hlutur íslendinga nema um 225 þús. tonnum en 110 þús. tonn koma í hlut Norðmanna, Fær- eyinga og Grænlendinga. Vilhjálmur Egilsson ráðuneytis- stjóri sjávarútvegsráðuneytisins segir að ráðuneytið muni strax gefa út 100.000 tonna bráðabirgðakvóta. „Við erum enn að ræða við hinar þjóðirnar sem aðild eiga að loðnu- samningnum um skiptingu kvótans og vonandi liggur niðurstaða í þeim viðræðum fyrir á næstu dögum," seg- ir Vilhjálmur. „Við getum hins vegar ekki beðið með að gefa út kvóta þar sem skip eru þegar komin á miðin og því munum við í fyrramálið (í dag, innsk. blm.) gefa út reglugerð með bráðbirgðakvótanum. “ Stofristærð loðnunnar verður endurskoðuð og mæld aftur í haust. Útlit er fyrir að aflinn verði í minna lagi á þessari sumarvertíð því nokkuð er liðið af hefðbundnum veiðitíma. Auk þess eru mörg skip upptekin við kolmunnaveiðar sem í raun eru frjálsar eftir ákvörðun sjávarútvegs- ráðherra að auka kvótann úr 493 þús. tonnum í rúm 713 þús. tonn. í júh' í fyrra veiddist 71 þús. • tonn af loðnu en 2002 veiddust 125 þús. tonn. Vilhálmur Egilsson „ Wð getum hins vegar ekki beöið með að gefa út kvóta þar sem skip eru þegar komin á miðin." Aðalvinningur er: Sony Ericsson TS30 + PS2 tölva + Spraer-Man 2 PS2 leikúrinn og miöi fyriói 2 á Spider-Man2' Fjöldi glæsilegra aukauinninga! Sendu SMS skeytið á númerið og þú gætir unnið. 99 kr/skeytið

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.