Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Side 14
74 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLl2004 Fréttir TfV DÓMSTÓLL KRINGLUNNAR Þekkja þau Árna og hvað finnst þeim um hann? Brynja Norðfjörð „Ég man ekki alveg hvað hann heitir en hann er eitt- hvað í pólitík. Hann kom oft £ sjoppuna sem ég vann í en ég held samt ekki með hon- um, frekar Steingrími J." Hallvarður Gylfason „Ég veit ekki alveg hver þetta er en hann heitir Ámi og er ráðherra. Hef voða lítið álit á honum." Ásthildur Kjartansdóttir ,Ámi Matíúesen, er alveg með það á hreinu því ég kenndi honum að lesa. Hann hefur staðið sig alveg þokkalega bara." Lilja Jakobsdóttir „Hann er úr Hafnarfirði þessi og heitir að mig minnir Ámi. Ég fylgist ekkert með honum." Kristjana Rúnarsdóttir „Sjávarútvegsráðherra, Ámi Matt. Hann var rosalega óvinsæll, man ég, en hefur skánað, held ég.“ Stefán Ómar Jónsson „Þetta erÁrni sjávarút- vegsráðherra, hann var það að minnsta kosti í gær. Hefur hann ekki bara staðið sig ágætlega?" Matthías Sigurðsson ,Æ, ég veit ekki og fylgist ekkert með þessari pólitík. Hann er að minnsta kosti þingmaður eða ráðherra eða eitthvað." Palladómar Árni M. Mathiesen hefur setið í umdeildum stóli sjávarútvegsráð- herra í tæp fimm ár. Honum hefur ekki tekist það ætlunarverk sitt að sætta stríð- andi fylkingar í kvótamálum. Árni þarf ekki að óttast um sæti sitt innan flokksins og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mun ekki stela sæti hans. „Menn skyldu aldrei vanmeta Mathiesenana,“ sagði heimildarmaður DV. Skjaldarmerkin Árni Mathiesen mun ekki þurfa að hafa áhyggjur af stöðu sinni innan Sjálfstæðisflokksins á næstunni ef marka má fullyrðingar samflokksmanna hans sem segja hann jafnvel munu taka for- mennsku í flokknum áður en langt um líður. Davíðsmaður sem spilað hefur öruggan bolta í ráðherratíð sinni. Hagsmunaaðilar tengdir málaflokki hans þó langt í frá sáttir við ráðuneytið í hans tíð. Sömu sögu er að segja af mörgum af þingliðum stjórnar- flokkanna. Ráðuneyti Áma hefur verið tals- vert minna í umræðunni síðan hann tók við völdum þar en áður. Það segja kunnugir að megi þakka þeirri stað- reynd að í tíð Þorsteins Pálssonar hafi faðmur Davíðs Oddssonar og blessun ekki legið yfir verkum ráðuneytisins í bráð og lengd eins og verið hefur í tíð Áma. Hann var á sínum tíma einn helsti stuðningsmaður Davíðs til for- mennsku í flokknum. Árni er sagður hafa æ síðan haft Davíð með í ráðum þegar erfið mál hafi komið upp og því hafi stuðningur forystunnar tryggt honum meira logn en oft áður í vindasömu ráðuneytinu. Hefur ekki náð kvótasátt Tvær stríðandi fylkingar hafa löngum tekist á innan málaflokks Árna og em þær hvorugar sáttar við ráðherrann í dag: Smábátasjómenn, og þá ekki síst forsvarsmenn landssamtaka þeirra, hafa litið á Áma sem málsvara stórút- gerðarinnar eingöngú og máli sínu til stuðnings hafa þeir nefnt sem dæmi nefhdarskipanir ráðuneytisins í tíð Árna þar sem LÍÚ hafi jafnan verið tryggt sæti meðan smábátasjómenn hafa þurft að sitja heima, oftar en ekki að kröfu LÍÚ. Nefna þeir til sögunnar að nú síðast hafi Árni fundað ítrekað með forsvarsmönnum smábátaeig- enda og talið þeim jafiivel trú um að engin hætta væri á að svokallað sókn- ardagafrumvarp og innkoma þeirra báta í kvótakerfið stæði fyrir dyrum jafnvel þótt heimildir hermi að LÍÚ hafi vitað hvað til stæði löngu fyrr. Aðildarmenn LÍÚ segja á móti að Ámi hafi nú síður en svo reynst þeim dyggur þjónn enda hafi margar ákvarðanir hans frá því um kosningar hvorki reynst umbjóðendum LÍÚ, né svo til nokkrum öðmm, happ. Þeir sem harðast dæma Árna innan LÍÚ sögðu í samtali við DV að líkast tii væri gleggsta dæmið um mislukkaða tilraun Áma til að mynda sátt um kvótakerfið sú staðreynd hversu fyrir- tækjum í greininni hefði fækkað mjög á opnum hlutabréfamarkaði. Það segja þeir vera vegna áhugaleysis fjár- festa sem telja sjávarútveginn ein- faldlega ekki arðbæra fjárfestingu eft- ir ákvörðun um aukna skattlagningu í formi auðlindagjalds og stöðugrar óvissu um framtíð kvótans. Þeir sem standa utan þessara fylk- inga segja þá staðreynd að bæði smá- bátasjómenn og stórútgerðin skuli ekki vera fyllilega sátt við Árna vera einmitt til marks um klókindi hans við að reyna að losa hagsmuna- tengslastimpilinn af ráðuneytinu - en mörgum hefur fundist að ráðuneytið hefði jafnvel átt að vera kostað af LÍÚ. Árni hefur sjálfur gefið út að hann muni ekki skera útgerðarmenn úr snöm kjarasamningagerðar við sjó- menn, ummæli sem verða að teljast söguleg í ljósi undanfarinna kjara- deilna sjómanna og útvegsmanna. Tvö stærstu málin klúður Tvennum sögum fer þó af emb- ættisfærslum hans og er hvalveiði- málið svokallaða nefnt sem dæmi um ákvarðanafælni Áma. Mörgum finnst enda að hann hefði átt að taka ákvörðun, og leiða umræðu, um áframhaldandi bann við hvalveiðum þar sem áróður gegn þeim sé þegar farinn að hafa áhrif á aðrar atvinnu- greinar. Þeir telja Áma hreinlega vera á villigötum að eltast við kröfur ör- fárra hagsmunaaðila í hvalveiðum í þeirri mynd sem nú er og nær væri að hætta þeim alveg í bili. Þingmenn stjórnarflokkanna tveggja bera honum þó misvel sög- una og þá sérstaklega þeir þingmenn sem öðrum fremur hafa átt sitt undir breytingum á kvótakerfinu. Þeir segja hann síst hafa gengið þann veg sátta sem hann hafi boðað þegar hann tók við í ráðuneytinu og það sé síst hon- um sjálfum að þakka að lygnt hafi í ráðuneytið frá fyrri tfinum. Dæmi um þetta em sögð óvægin svik Áma við samþykktir og gefin loforð í línmviln- unarmálinu þar sem Árni hafi hreint aldrei ætlað sér að efna fyrr en hann sá frarn á að umræðan væri töpuð. Sú leið sem Árni valdi þar er jafiian not- uð sem dæmi um hvernig hægt sé að klúðra umdeildum máium með leið sem engum virðist hugnast. Þar segja kunnugir að Ámi hafi hreinlega svikið bæði gefin loforð sín og forsætisráð- herra auk þess sem hann hafi hunds- að landsfiindarsamþykkt flokks síns og Framsóknar. Embættismaður og Mathiesen Ámi Mathiesen, þessi krónprins ihaldsmanna í Hafnarfirði, þykir hafa fallið £ skugga Þorgerðar Katrfnar Gunnarsdóttur á sfðustu missemm og þvf gefið þeim sögum byr undir báða vængi að hún muni hugsaniega steypa honum af staili við næstu kosningar sem oddvita í „kraganum". Þeir sem þekkja vel til innan raða Sjálfstæðisflokksins í kjördæmi Árna segja þó hæpið að halda því fram að Þorgerðar bfði einhver sigur í próf- kjöri gegn Árna - sem hún sótti sjálf mjög stíft en fékk ekki fyrir síðustu kosningar. Þar sem frama hennar eigi hún að miklu leyti að þakka Áma og ekki síst hans baklandi, Mathiesen- unum í Hafnarfirði. Auk þess hafi Þorgerður þurft embæftis síns vegna að taka meiri þátt í þeim slag sem ver- ið hefur um fjölmiðkunálið svokall- aða en Árni. „Menn skyldu ekki vanmeta Mathiesenana, og allra síst Áma sjálf- an, þótt lítið beri á honum," sagði einn heimildarmanna DV um framtíð Áma innan Sjálfstæðisflokksins. Samherjar Áma í pólitíkinni lýsa honum sem hæglyndum embættis- manni sem hafi gott nef fyrir pólitík og því þurfi hann að óbreyttu ekki að kvíða framtíð sinni - nema síður sé. Hins vegar vilja margir, þeirra á meðal samherjar hans, taka undir það að ef til vill sé Árni ekki í réttu ráðuneyti til að ná þeim frama sem hann hefur sjálfur lýst yfir að hann ætli sér að ná - dæmin sanni það. helgi@dv.is Álitsgjafar okkar telja Árna nota- legan dreng, en litlausan baksviðs- mann, hvers stjarna fer sígandi. Hann forðast argaþras dægurmálanna og reynir að sigla lygnan sjó. Talinn ósjálfstæður og þægilegur þjónn og virðist ætla að ná því að sleppa við mjög neikvæð eftirmæli. „ Var vonarstjama i flokknum og viö hann bundnar miklar væntingar, en hefur fallið i skugga Þorgeröar Katrinar." „Hefur ekki nýtt vel þaö forskot sem hann hafði á sina kynslóð innan flokks- ins.“ „Mér finnst hann hafa staðið sig nokk- uð vel og ekki oröið uppvís að neinum slæmum skandal." „Hafi hann lokiö embættisprófi í dýralækn- ingum veit hann hvað það er aö vera steingeldur „Hann hefur vit á því aö blanda sér ekki í dægurmálin aö ósekju." „Notalegur, góður og Ijúfur drengur, en svo litlaus, eins og þorskurinn, að mað- ur þarfað klipa sig til að muna um hvern er verið að tala." „Er i erfiðri stöðu við að lappa upp á rangindi. Þarfoft að velja milli tveggja slæmra kosta." Einkunnaskalinn 2&St 1 skjaídarmtrki- Falleinkunn, þingsæti jafnvel ekki verðskuldað 2 skjaldarmerki - Öruggt þingsæti en lítið að gera í stjórnarráðið 3 skjaldarmerki- Á friðarstóli íaug- um samherja sinna en á rangri hillu samkvæmt andstæðingum sínum 4 skjaldarmerki - Á réttri hiilu 5 skjaldarmerki - Hinn fullkomni ráðherra „Velviljaðurmaðuriveigamiklu ráöherra- embætti. Sá farsælasti I rlkisstjórninni.“ „Hefur misst húmorinn iráðherrastóli." „Fékk skæðan keppinaut i foringjahlut- verkið þegar Bjarni Benediktsson kom fram á sjónarsviðið." „Því miður ekki ráðherrann sem skilar okkur kvótanum aftur. Hann er kúgað- ur i samskiptunum við kvótasullar- ana." „Hefur ekki fengið þaö á sig að vera Llú- brúða líkt og fyrirrennarar." „Mesta furöa hvaö honum tekst að sigla milliskers og báru." „Sáttur við að vera kominn þangað sem hann er kominn." „Árni erfði náttúrulega meingallað kvótakerfi sem hann hefur sáralítið bætt." „ Virkar heiðarlegur og hreinskiptinn. Nokk- uöfarsæll." „Þjónn foringjanna. Gegnir öllum ráö- herraembættum meöan hinir stóru fara i lúxusferöirnar." „Hefur ekki eins sterka stöðu og fyrir nokkrum árum." „Hafði mikla trú á honum. Hélt hann yrði sjálfstæður, afþvi hann hefurætt tilþess. Vonbrigði,þvímiður." „Hann er mjög þægilegur í allri umgengni og ber þar af öðrum ráðherrum flokksins." Álitsgjafarnir okkar Arnþrúður Karlsdóttir útvarpsmaöur og fyrrverandi þingkona, Krist- ján Kristjánsson umsjónarmaður Kastljóssins, Hildur Helga Siguröardóttir blaðamaöur, Róbert Marshall fréttamaöur á Stöö 2. Álitsgjafar um Árna M. Mathiesen sj ávarútvegsr áðherra Með litarhátt þorsksins

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.