Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 15

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 15
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 15 Glæsileg bjók um spenayr í síðasta mánuði kom bókin íslensk spendýr út og er hún skrifuð af tólf færustu vísindamönn- um landsins á sviði dýrafræði. í bókinni sem Páll Hersteinsson prófessor ritstýrir er gerð grein fyrir lifnaðarhátt- um og sögu sextíu spendýrategunda á íslandi. Vatnslitamyndir Jóns Baldurs Hlíðberg af dýrun- um eru stórglæsilegar og gefa textanum ekkert eftir. Meira en sjötíu ár eru síðan sambærilegt rit var gefið út en þá kom út tímamótaverk Bjarna Sæmundssonar um fslensk dýr. í bókinni íslensk spendýr er og fjöldi skýringamynda og korta sem hjálpa lesendum að átta sig á útbreiðslu og lifn- aðarháttum dýranna. bergljot@dv.is Skilin eftir úti Þessi þrjú systkini voru skilin eftir fyrir utan Kattholt og fundust á mánudag þegar starfsfólk kom til vinnu. Þau voru óskaplega hrædd og hafa ekki borðað mikið síðan. Þau langar að komast á góð heimili þar sem þau verða án efa miklir gleði- gjafar. Áhugasömum er bent á að hafa samband við eða líta á vefsíðuna kattholt.is til að fá upplýsingar um kettlingana og fjölda annarra katta sem vilja flytja til kattavina. Unalinoar drápu SeXTlVOlpa Lögregla í Tulsa í Oklahoma í Bandaríkjun- um leitar nú unglingahóps sem grunaður er um að hafa drepið sex hvolpa um helgina með því að festa flugelda við gin þeirra og kveikja í. Talið er að þessi hryllilegi atburður hafi átt sér stað á sunnudag en hvolpahræin fundust f yfirgefnu húsi á mánudagsmorgun ásamt tveimur alvarlega slösuðum hundum. Annar þeirra var móðir hvolpanna. Lög- dýrayfirvöld í Tulsa hafa lofað að veita þeim sem gæti gefið upplýsingar um málið peninga að launum. Bergljót Davíðsdóttir skrifar um dýrin sín og annarra á miðvikudögum í DV. Tínu liggur mikið á „Tína, sem er eins árs læða,eralltafað flýtasér.Húnereins og priklaus flugeldur hér í húsinu," segir Halla Þorsteinsdóttir, eigandi Tínu. „Hún er mjög sjálfstæð og er kelirófa þegar hún vill það, maður tekur hana ekkert upp til að kela við hana. Þess á milli er hún á hraðferð, hún er óskaplega upptekin afþví að flýta sér. Tina kom til mín úr Kattholti um miðjan sept- ember í fyrra. Hún er ekki mikið fyrir að fara út, nema meö okkur eða út á svalir, en er mikil fluguveiðikisa. En hún er örugg i kringum okk- ur heimilisfólkið og hin heimilisdýrin og reynirað stjórna okkur.“ Hundar og kettir með Norrænu Á heimasíðu farþegaferjunnar Norrænu kemur fram að hægt sé að hafa hunda og ketti með séráskipinu. Um borð eru búr fyrirdýrin og eru þau staðsett á dekki. Eigendur geta því ávallt nálgast dýrin, hreyft þau og fóðr- að. Heimilt er að taka gæludýr með sér í klefa en þetta á einungis við um þá sem bókað hafa sérklefa. Panta þarf fyrirfram fyrir hunda og ketti og er fólki bent á að kynna sér reglur um flutninga á dýrum milli landa hjá embætti yfirdýra- læknis. Stemma og Bragur eru veiðihundar af tegundinni ungversk vizsla. Hundarnir eru þeir fyrstu sinnar tegundar hér á landi en nú hefur fjölgað í fjölskyldunni. Nú er lag hjá Stemaiu og Brag Þegar eigendumir Erla Jónsdóttir og Emil Emilsson voru í námi í útlöndum fengu þau sér tík og hund af tegundinni ungversk vizsla. Þegar fjölskyldan flutti heim kom upp hugmynd um að para tíkina Stemmu og hundinn Brag saman. Það hefur nú aldeil- is gengið eftir því í júm' gaut Stemma ellefu tíkum og einum hundi. „Það komu tólf hvolpar í byrjun júm' og þeir dafna ótrúlega vel þótt það séu ekki nema níu spenar á Stemmu," segir Erla Jónsdóttir, eig- andi hundanna. „Þetta er merkilegt got því það komu ellefu tíkur og einn hundur. Stemma og Bragur eru búin að koma ár sinni ærlega fyrir borð hér heima. Það er einfaldara að flytja inn sæði en tíkur. Hvolparnir eru að verða mánaðar gamlir og eru nú að samhæfa fæturna fjóra og kútveltast um allt. Það er yndislegt að fylgjast með og þeir verða fallegri með hverj- um deginum. Þeir eru famir að leika og sýna ýmsa veiðitakta, liggja í launsátri hver fyrir öðrum og gera svo árásir. Þeir eru voðalega kelnir og krúttíegir," segir Erla. Gotið gekk mjög vel „Það var búið að setja gotíð á 9. júní en þegar við vorum í kvöld- göngu rétt fýrir miðnætti 7. júní tók Stemma allt í einu upp á því að grafa holur. Ég fór með hana í bílinn og ók heim. Þegar ég opnaði skottið var laumufarþegi hjá Stemmu. Þá var fyrstí hvolpurinn kominn, elsta dam- an er því fædd 7. júm' en systkini hennar 8. júní. Næstu sexkomu með þrjátíu til fjörutíu mínútna millibili, svo stoppaði gotíð. Tveimur tímum síðar heyrði ég stunu frá Stemmu og grunaði strax að hún væri að koma með áttunda hvolpinn en þegar ég aðgættí lágu tveir blautír hvolpar hjá henni. Sá tíundi var þá á leiðinni og á næstu fjórum tímum bættust tveir hvolpar við. Það voru komnir tólf hvolpar og við hjónin trúðum ekki okkar eigin augum," segir Erla. Nöfnin mættu gjarnan tengj- ast tónlist „Stemma er mikil móðir, en er óskaplega fegin að við skulum hjálpa henni. Hún mjólkar vel en vegna fjöldans gefum við þeim líka pela með mjólkurblöndu og graut. Á mat- málstímum er Uðinu skipt upp í tvo hópa. Við pössum upp á að blanda svo í hópunum þannig að allir verði vinir, það er bannað að vera með klíkumyndanir. Allt gengur vel og þeir eru farnir að myndast við að lepja. Stemma lætur mig vita þegar hún vill gefa, hnippir í mig og leggst á teppi fýrir framan hvolpagrindina," segir Erla. „Ein tíkin hefur þegar fengið nafnið Þula og svo erum við að pæla í nöfnunum Syrpa, Sónata, Vísa, Limra, Staka og Ríma. Okkur finnst að nöfn hvolpanna eigi að vera tengd tónhst, eins og nöfii foreldr- anna," segir Erla. Hún óskar eftir hugmyndum frá lesendum að nöfn- um á póstfang sitt erla- jons@yahoo.com Meðfærilegir og þægilegir í viðtali við Erlu sem birtist í Fréttablaðinu síðastliðið sumar seg- ist hún ekki hafa kynnst meðfærilegri og þægilegri hundum en ungversku vizslunum. Hún hefur átt hunda áður og þegar hún eignaðist Stemmu, sem þá var hvolpur, skildi hún ekkert í því hvað allt var einfalt og auðvelt. „Stemma hagaði sé eins og fullorð- inn, uppalinn hundur. Hún át hundaþurrmat og drakk vatn og piss- aði á tÚlögð blöð. Hún nagaði hvorki leikföng né annað eins og hinir hvolpamir mínir höfðu gert," segir Erla. Afkvæmi Stemmu og Brags halda merki foreldra sinna á loftí. „Þriggja vikna voru hvolparnir famir að halda bælinu sínu hreinu. Ég settí hjá þeim blaðarönd og þeir pissa á hana. Þetta em fyrirmyndarböm," segir stoltur hundaeigandinn. Hetjuhundur m heiðraður Tíkin Cobra Líf slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir bil i siðustu viku Baðað og blásið til bjargar hundi „Við ætíum að vera hér heima hjá mér að Þorgeirsgeisla 96 í Grafar- holtí um helgina og klippa menn og baða og blása hunda frá morgni til kvölds" segir Karen Tómasdóttir, hundaræktandi og eigandi Draum- óraræktimarinnar. Hún og Sólveig Pálmadóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi Cobm Lífar, ætla þannig að safita fyrir aðgerðum sem tíkin hef- ur þegar farið í. Cobra Líf, sem er eins árs frá því í janúar, varð undir jeppa á mánudag í síðustu viku og slasaðist mikið. Mjaðmagrindin bromaði á fimm stöðum og sinar fóm í sundur. Cobra Líf var í aðgerð- um næstu tvo sólarhringa. „Kosm- aðurinn er þegar kominn upp í hundrað og fimmtíu þúsund krónur og fæstir eiga þá upphæð fýrirliggj- andi," segir Karen. „Cobra Líf er af tegundinni amerískur cocker spani- el og kemur úr minni ræktun. Sem ræktandi hef ég passað uppá að halda vel utan um þann hóp sem frá mér fer og við hittumst reglulega og fömm í göngutúra. Því fannst mér tilvahð að reyna að styðja við bakið á Cobm Líf til að koma henni á fætur aftur. Hún er ótrúlega hress eftír þessa lífsreynslu og dýralæknarnir hrista bara hausinn yfir henni. Lífs- viljinn er mikill og hún eltir mann á röndum. Cobra Líf er völt á fótunum en hún ætlar að hafa þetta af. Matar- lystin er góð en maður þarf að dekstra hana svolítíð," segir Karen. Hún er í pössun hjá Karen og verður hjá henni þar til búið er að taka saumana en þá fer hún heim aftur. Sólveig Pálmadóttir sem á tíkina og þtjá drengi er nemi í viðskiptalög- fræði við Viðskiptaháskólann á Bif- röst og vinnur í sumar á skrifstofu á Eftir slysið Cobra Lífer ótrúlega Itress eftirlífs- reynsluna og dýralæknarnir hrista hausinn yfir henni. Selfossi. „Þetta var gífurlegt áfall því Cobra Líf var mjög efnilegur sýningar- hundur, henni hafði gengið vel á sýningum og fengið heiðursverð- laun. Dýralæknirinn hennar segir að tfininn verði að leiða það í ljós hver bæklun hennar verður. En hún er ljósið í lífi okkar," segir Sólveig. Þær Karen og Sólveig ælta að klippa Cobra Líf og Sólveig Tikin varmjög efnilegur sýningarhundur áður en hún lenti i slysinu. menn og baða og blása hunda frá morgni til kvölds á laugardag og sunnudag í Þorláksgeisla og em allir ferfætling- ar og tvífætlingar hvattír til mæta og njóta þjónustu þeirra. Minningarathöfn um stríðshetj- una og sankti bernharðshundinn Bamse var haldinn í skoska hafn- arbænum Montrose á sunnudag- inn var í tilefni af því að þá voru liðin sextíu ár frá dauða hans. Bamse var skipshundur á norska tundur- dufla- slæðar- anum Þóroddi sem hafði bækistöðvar í bænum á árum seinni heimsstyrjaldarinn- ar. Hann var brátt þekktur fyrir að standa við fremstu failbyssu skipsins þegar barist var á hafi úti og þegar hann var í höfn var hann liðtækur {því að sækja bátsmenn á krárnar. Til verksins fékk hann sérstakan strætis- vagnapassa og var eini hundur- inn í bænum sem fékk að nota vagnana. Bamse gekk ævinlega með norska sjóliðahúfu og brátt spurðust út fréttir af háttalagi hans og var hann dáður af mörg- um hermönnum bandamanna. Þegar Bamse dó árið 1944 var skólum í Montrose lokað og sóttu hundruð barna útför hans. Áhafnir norskra herskipa mættu til að votta Bamse virðingu sína árið 1984 og 1994 og í ár mætti áhöfn norska kafbátsins Utvaer til minningarathafnarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.