Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004
Fréttir DV
Konurekki
kaupóðar
Það er bara vitleysa að
konur hafi gaman af búða-
rápi. Þetta er að minnsta
kosti niðurstaða nýrrar
breskrar rannsóknar en
samkvæmt henni veit þriðj-
ungur kvenna ekkert skelfi-
legra en fatainnkaup. Alls
tóku 1.685 konur þátt í
rannsókninni og kváðust að-
eins 22% þeirra vera haldnar
kaupæði. Verðið skiptir
þennan hóp engu máli -
þær eru drifnar áfram af ein-
skærri verslunarþörf. Sami
Qöldi kvenna segist bara
kaupa föt á útsöluverði og
hugsa lítt um nýjustu tísku.
Þá segjast 10% kvenna leggja
á sig ómælda vinnu við að
ramba um útsölur og að hjá
þeim skipti öllu að gera góð
kaup.
Engar hagrænar
forsendur
U mhverfisráðuneytið
kannaði ekki sjálfstætt
hagrænar forsendur
framkvæmda við Fljóts-
dalslínu og þar með
Kárahnjúkavirkjunar. Lít-
ur ráðuneytið svo á að
það sé framkvæmdarað-
ila að meta hagrænar for-
sendur og hagkvæmni
framkvæmdarinnar.
Þetta kemur fram í svari
umhverfisráðuneytisins
við bréfi frá Tómasi
Gunnarssyni, en hann
hefur sent svarið og við-
brögð sín til ráðuneyta,
stofnana og samtaka.
Tómas segir að það hafi
tekið þrjú og hálft ár að
fá svarið og nú sé ljóst að
þessar forsendur hafi
vantað vegna úrskurðar
ráðuneytisins árið 2000.
Bananar með
berjabragði
Jarðarberjaban-
anar eru það nýjasta
ef marka má fféttir
frá Chiquita-banana-
veldinu. Fyrirtækið
prófar nú að rækta
nýja tegund þessa
vinsæla ávaxtar með
átta mismunandi
bragðtegundum. Chiquita-
menn segja venjulega ban-
ana leiðigjarna og ekkert því
til fýrirstöðu að poppa þá
aðeins upp. Evrópubúar
verða þó að bíða til næsta
árs en þá er ráðgert að berja-
bananar og fleira í þeim dúr
komi á markað.
Slobo qæti
sloppið
Útlit er fyrir að
Slobodan Miiosevic,
fyrrverandi forseti
Júgóslavíu, kunni að
sleppa við refsingu
vegna þess hversu
heilsuveill hann er. Talið er
að Milosevic geti dáið úr
hjartaáfalli á hverri stundu.
Fyrrum forsetinn hefur verið
ákærður fyrir þjóðarmorð,
stríðsglæpi og glæpi gegn
mannlcyninu í Króatíu,
Bosníu og Kosovo. Dómarar
við Alþjóðastríðsglæpa-
dómstólinn í Haag hafa
frestað réttarhöldunum og
er það ekki í fyrsta sinn sem
heilsufar Milosevic setur
strik í reikninginn. Milosevic
er 62 ára.
Alþjóðleg friðarsamtök bjóða fólki að borga rúmar 20 þúsund krónur fyrir þriggja
daga „heimilisleysi“. Þetta er ný tegund ferðamennsku þar sem þátttakendur mæta
óbaðaðir og allslausir til leiks. Samtökin segja götusvefninn ótrúlega lífsreynslu á
meðan hinir heimilislausu í borginni eru allt annað en hrifnir af uppátækinu.
Engin takmörk eru fyrir hugmyndaflugi fólks og það nýjasta er
að selja mönnum aðgang að súpueldhúsum og svefnaðstöðu á
gangstéttum og í skúmaskotum Lundúnaborgar. Hið tilbúna
heimilisleysi virðist höfða til margra.
Breska blaðakonan, Ruth Hill,
prófaði þessa nýju tegund ferða-
mennsku á dögunum. Hún gafst upp
fyrstu nóttina þar sem hún lá á kaldri
gangstétt með teppi yfir sér. Klukkan
þrjú um nóttina þaldcaði Hill sínum
sæla fyrir leigubíla og hlý hótelher-
bergi en ekki eru allir á sama máli því
„heimilisleysið" nýtur nokkurra vin-
sælda og augljóst að margir vilja
prófa þennan lífsstíl í þrjá daga.
Það eru samtökin Peacemaker
Circle Intemational Community sem
standa fyrir þessum ferðum. „Að gista
á götunni er leið til þess að kanna hið
óþekkta - menn gista þar sem þeir
em staddir hverju sinni og upplifa um
leið gleði og sorg alheimsins," segir
talsmaður samtakanna.
Þátttakendur þurfa að snara ffam
20 þúsund lcrónum og renna tveir
þriðju upphæðarinnar til athvarfa
fyrir heimilislausa. Afgangurinn fer til
friðarsamtakanna sem auðvitað sjá
um alla skipulagningu. Þeir sem taka
þátt í „götulífinu" mega ekki fara í
bað fimm daga fyrir ferðina og karl-
menn eiga líka að láta vera að raka
sig. Fólk á að koma allslaust á stað-
inn: það er eklci með peninga, bækur,
úr, dýnur eða annan búnað. Þá er
Þeir sem taka þátt í
„götulífinu" mega
ekki fara í bað fimm
daga fyrir ferðina og
karlmenn eiga líka að
láta vera að raka sig.
fólki sagt að forðast litskrúðugan
fatnað. Aður en haldið er út á götu
fær fólk stutta kennslu í hvemig best
er að betla. „Ekki skipta fólki upp í
hópa. Biðjið alla,‘‘ segir leiðbeinandi
hópsins og bætir við að það að beda
peninga sé tabú í vestrænum þjóðfé-
lögum og því afar lærdómsríkt að
prófa það - enda hlutskipti flestra
sem ekki eiga í nein hús að venda.
Fá teppi og heitan mat
Ruth Hill segir áberandi að konur
séu í miklum meirihluta þeirra sem
taka þátt í „ferðinni" og mest séu
þetta konur sem hafa prófað allt
mögulegt í ferðamennsku og óvenju-
legum gististöðum. Þá eigi hópurinn
það sammerkt að leita að andlegri
uppörvun og sameiginlegri andlegri
reynslu. Margir þátttakenda segjast
alla tíð hafa óttast heimilislaust fólk
og vilji reyna að vinna bug á óttanum
með þvf að setja sig í spor þessa fólks,
þótt ekld sé nema í þrjá daga.
Blaðakonan fylgdi hópnum á
næturstað eftir að hafa fengið að
borða í súpueldhúsi. Henni fannst
erfið tilhugsun að borða mat ffá fólki
sem þarf á honum að halda og eins
fannst henni óþægilegt að þiggja
teppi af sjálfboðaliðum enda grunaði
hana að aðrir yrðu kannsld ábreiðu-
lausir á kostnað hópsins.
Ekki aufúsugestir á götunni
Þegar hópur Hill fann sér nætur-
stað meðal raunverulega heimilis-
lauss fólks kom í ljós að hinir síðar-
nefndu voru ekld par hrifriir af þessari
innrás. „Hvað í fjáranum eruð þið að
gera? Þið verðið einskis vísari um hag
heimilislausra þótt þið sofið tvær
nætur á götunni. Þið lærið ekkert nýtt
- þið hljótið að vita að það er skelfilegt
að vera heimilislaus," sögðu hinir
heimilislausu meðal annars við ferða-
mennina. Aðrir fastagestir á götunni
höfðu líka á orði að ef „venjulegt" fólk
vildi prófa þennan lífsstíl þá ætti það
að koma um miðjan vetur en ekki um
hásumar þegar hlýtt væri í veðri.
Lílcnarsamtök í London eru víst
allt annað en ánægð með ferða-
mennsku af þessu tagi. Mike
Nicholas, sem starfar fyrir Bondwa-
yathvarfið segir það beinlínis
hættulegt að selja fólki aðgang að
strætum Lundúna með þessum
hætti og fólk ætti fremur að leggja
hinum heimilislausu raunverulega
hjálparhönd.
Nýr bar vekur mikla athygli í Kina
Sorgmæddir borga fyrir að gráta í bjórinn
Búið er að opna nýjan bar í Kína
þar sem sorgmæddir borga fyrir að
gráta ofan í bjórinn sinn. Munn-
þurrkur og mentoldropar eru til
staðar á barnum í Nanjing sem og
laukur og chilipipar ef viðskiptavinir
eiga í erfiðleikum við að bresta í grát.
Barþjónarnir á staðnum spila
ekkert annað en dapra og sorglega
tónlist og til staðar eru gúmmídúlck-
ur sem kúnnarnir geta kastað um
gólfið eða barið á ef þeir vilja fá útrás
fyrir reiði sína í kjölfar sambúðar-
slita.
Samkvæmt frétt í dagblaðinu Jin-
ling Evening News þurfa viðskipta-
vinir á þessum bar að borga 220 kr. á
tímann fyrir utan drykki til að fá að
gráta og væla eins og þá lystir. Bar-
inn hefur slegið í gegn í borginni og
flykkist fólk á hann til að drekkja
sorgum sínum á hverjum einasta
degi.
Grátbar Kínverjar hafa nú
tekiö upp það nýmæli aö
vera meö sérstaka bari fyrir
þá sem þjakaöir eru afsorg.
Nautahlaupi
mótmælt
Berbrjósta kon-
ur og karlar á nær-
brókunum einum
saman þrömmuðu
í gegnum
Pamplona á Spáni í
gær til að mót-
mæla árlegu
nautalilaupi sem
fram fer í borginni. Mótmælenda-
hópurinn lét hátt og lirópaði:
„Ferðamennska er ekki menning.
Stöðvum nautaat." Nautalilaupið
hefst í Pamplona á morgun og
stendur f vikutíma.