Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004
Sport DV
Kluiverttil
Newcastle?
Hollenski framherjinn
Patrick BQuivert, sem hefur
fengið þau skilaboð frá
yfirboðurum sínum hjá
Barcelona að hann eigi
enga framtíð hjá félaginu, á
nú í viðræðum við enska
úrvalsdeildarfélagið
Newcastle um að ganga í
raðir liðsins. Kluivert var
eini leikmaður hollenska
liðsins sem fékk ekki að
spila eina einustu mínútu á
Evrópumótinu í Portúgal og
eftir lélegt tímabil hjá
Barcelona gæti hann haft
mjög gott af því að sanna
sig á ný hjá Bobby Robson í
Newcastle.
Dellas
vinsæll
Gríski vamarmað-
urinn Traianos Dellas,
sem spilaði firábærlega
með grískaliðinuá
Evrópumótinu er eftir-
sóttur maður.
Umboðsmaður hans
sagði við fjölmiðla í gær
að félög eins og Porto,
Everton og Tottenham
hefðu öll lýst yfir áhuga
áfáhannen sagði
jafnframt að Dellas
hefði mestan áhuga á
því að spila áffarn með
Roma og sanna sig þar.
Hoddle vill
franska liðið
Glenn Hoddle, fyrrum
landsliðsþjálfari Englands,
hefur lýst yfir miklum
áhuga á því að taka við
franska landsliðinu en
þjálfarastaðan er laus eftir
að Jacques Santini hætti til
að taka við Tottenham.
Hoddle spilaði með
Mónakó á sínum tíma, talar
frönsku reiprennandi og
hefur alla tíð haft mikinn
áhuga á hugmyndum
Frakka um knattspyrnu.
Reizigertil
Middlesbro
Fátt virðist geta
komið í veg fýrir að
hollenski landsliðs-
bakvörðurinn Michael
Reiziger gangi til liðs við
Middlesbro. Reiziger er á
frjálsri sölu en honurn
var leyft að yfirgefa
herbúðir Barcelona í
sumar. Hann er kominn
til félagsins þar sem
hann mun ganga frá
samningi og gangast
undir læknisskoðun á
næstu dögum.
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, veit hvað hann viil og ætlar ekki að
safna leikmönnum til sín fyrir komandi tímabil þrátt fyrir hann hafi aðgang að
endalausum sjóðum Romans Abramovich, eiganda félagsins.
Ekkert pláss fyrir
Davids on Rooney
„Ég er ekki kominn hingað til að hafa hundrað leikmenn í kringum mig
heldur eingöngu þá leikmenn sem ég tel að hjálpi liðinu og geri það betra,"
sagði Jose Mourinho knattspymustjóri þegar hann stjórnaði Chelsea-liðinu
á sinni fyrstu æfingu á mánudaginn. Mourinho ætlar sér að vera búinn að
gera leikmannahópinn kláran áður en Chelsea fer í æfingaferð til Banda-
ríkjanna 21. júlí en segir hvorki vera pláss fýrir hollenska miðjumanninn
Edgar Davids né ungstirnið Wayne Rooney hjá Everton sem hafa báðir verið
orðaðir við félagið að undanförnu.
Jose Mourinho tilkynnti í gær að
Wayne Rooney, hinn frábæri
framherji Everton, væri ekki inni í
myndinni hjá sér og ruddi þannig
leiðina fyrir Manchester United svo
félagið geti keypt Rooney á
sómasamlegu verði.
Þessar fréttir eru mikið áfall fyrir
Everton sem hefur slengt 50
milljóna punda verðmiða á Rooney
og ætlaði sér að fara með piltinn á
uppboð þar sem Chelsea og
Manchester United áttu að berjast
um hann. Rooney hefur ekki viljað
framlengja samning sinn við
Everton og því gæti farið svo að
Manchester United fái kappann
fyrir 30 milljónir punda en félagið
hefur gefið til kynna að það muni
aldrei borga meira en þá upphæð
fyrir neinn leikmann.
„Ég held að Rooney komi ekki til
okkar og þar skipta peningar ekki
svo miklu máli. Við höfúm önnur
forgangsatriði hvað varðar leik-
menn, stöður og hæfileika," sagði
Mourinho.
„Rooney er frábær sóknarmaður
en hann er ekki þessi eiginlegi
framherji. Hann hreyfir sig mikið út
á kantana og niður á miðjuna og við
höfum einfaldlega aðra leikmenn
sem hafa þá hæfileika," sagði
Mourinho.
Það er samt sem áður laust pláss
í framlínu Chelsea því allar líkur eru
á því að argentínski framherjinn
Hernan Crespo fylgi Jimmy Floyd
Hasselbaink út um dyrnar á
Stamford Bridge eftir að Crespo
mætti ekki á fyrstu æfinguna hjá
Mourinho. Flest bendir til þess að
Crespo fari til AC Milan, annað
hvort í láni eða á frjálsri sölu.
Eins og áður sagði hefur
Mourinho gefið sjálfum sér fimmtán
daga til að klára leikmannamál
liðsins en á næstu dögum mun
serbneski framherjinn Mateja
Kezman ganga til liðs við félagið en
hann var keyptur frá PSV Eindhoven
fyri 5,4 milljónir punda. Chelsea er
búið að sækja um atvinnuleyfi fyrir
Kezman og mun hann ganga frá
samningi í þessari viku eftir að hann
hefur gengist undir læknisskoðun.
„Hann skorar mörk, mikið af
mörkum. Hann er mjög fjölhæfur og
getur leyst mörg hlutverk í
sóknarleiknum. Hann er ekki
eingöngu framherji af gamla
skólanum heldur getur hann Uka
spilað með öðrum framherja eða
sem kantmaður hægra megin. Hann
er líkamlega sterkur þótt hann sé
ekki stór en það er nú einu sinni
þannig að stórir strákar eru ekki
alltaf líkamlega sterkir."
Annar leikmaður, sem hefur
verið orðaður við Chelsea, er
hollenski miðjumaðurinn Edgar
Davids en Mourinho er viss um að
það sé ekki pláss fyrir hann á
miðjunni í Chelsea-liðinu þar sem
Frakkinn Claude Makelele er fyrir.
„Ég myndi ekki vilja fá hann.
Hann er mjög góður leikmaður en
ensk knattspyrna er þannig að það
er ekki hægt að hafa tvo leikmenn á
miðjunni sem eru 170 cm á hæð. Ef
ég hefði ekki Makelele þá myndi ég
segja að Davids væri mjög góður
leikmaður með mikinn karakter en
ég held að hann passi ekki inn í liðið
á meðan við höfum Makelele,“ sagði
Mourinho.
Þessi snjalli Portúgali, sem vann
meistaradeildina með Porto á
síðasta tímabili, hefur keypt þrjá
leikmenn fyrir utan Kezman síðan
hann kom til félagsins. Portúgalski
bakvörðurinn Paulo Ferreira, sem
lék undir stjórn Mourinhos hjá
Porto, var keyptur fyrir Evrópumótið
•Emlralg,
Eiður Smári á hlaupum Eiöur Smári Guðjohnsen sést hérá fyrstu æfíngu Chelsea ásamt
nokkrum félögum slnum og Rui Faria, sem sér um að líkamlegt form leikmanna sé I lagi.
Jose Mourinho '
Mættur til starfa hjá
Cheisea og ætiar sér
aðgera leikmanna-
hóp féiagsins kláran á
næstu fímmtán dögum
„Rooney
er frábær
sóknar-
maður en
hann er
ekki þessi
eiginlegi
framherji.
Hann
hreyfir sig
mikið út á
kantana og
niður á
miðjuna og
við höfum
einfaldlega
aðra leik-
menn sem
hafa þá
hæfileika
og fyrr í vetur festi Chelsea kaup á
hollenska vængmanninum Arjen
Robben, sem stóð sig frábærlega á
Evrópumótinu, og tékkneska
landsliðsmarkverðinum Peter
Cech.