Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Síða 21
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 21
Keflvíkingar urðu áttunda og síðasta liðið til þess að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum VISA-bikars karla
í knattspyrnu þegar þeir unnu 0-1 sigur gegn Fram í Laugardalnum. Hólmar Örn Rúnarsson skoraði
sigurmarkið en Framarar hafa ekki unnið í síðustu átta leikjum sínum gegn Landsbankadeildarliðum.
Á fleygiferð
Guðmundur Steinarsson
brunar hér framhjá Hans
Fróða Hansen I vörn Fram
I leik liðanna I fyrrakvöld.
Keflavík haföi betur I
slökum leik.0-1.
DV-mynd E.ÓI.
Brotthvarf Ion Geolgau hjálpaði ekki Fram mikið í leik liðanna í
16 liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla. Liðið var að vísu ekki
slakara en í síðustu leikjum - reyndar ögn skárra - en það dugar
skammt. Ef frá er talinn sigurleikurinn gegn Víkingum í fyrstu
umferð Landsbankadeildarinnar hefur verið fátt um fína drætti.
Liðið hefur þó verið þekkt fyrir að hysja upp um sig buxurnar
seinni part sumars og hver veit nema það gerist einnig nú.
Keflvíkingar tryggðu sér sæti í 8
liða úrslitum bikarkeppninnar með
0-1 sigri á Frömurum á Laugardals-
velli á mánudagskvöldi. Leikurinn
var í það heila arfaslakur og alveg
hryllilega leiðinlegur. Þrátt fyrir frá-
bært veður og góðar aðstæður sáu
ekki nema 362 áhorfendur sér fært
að mæta á völlinn og óhætt er að
segja að ekkert hafi fengist fyrir
þann pening enda stemningin lítil
sem engin.
Skallamark Hólmars
Fyrri hálfleikur var ótrúlega dap-
ur og það var í raun aðeins tvennt
sem gerðist þá; Hólmar Örn Rúnars-
son skoraði eina mark leiksins á 25.
mínútu með ágætum skalla eftir
hornspyrnu Guðmundar Steinars-
sonar. Þórarinn Brynjar Kristjáns-
son fékk dauðafæri þegar langt var
liðið á hálfleikinn en skot hans fór
naumlega framhjá.
Seinni hálfleikur var ögn skárri
en langt frá því að geta talist
skemmtun af einhverju tagi.
Framarar færðu sig smám saman
framar á völhnn og þeir fengu nokk-
ur góð færi. Það besta fékk Ómar
Hákonarson á 63. mínútu en skaut
þá vel yflr af stuttu færi. I blálokin
náðu svo Framarar nokkuð þungri
sóknarpressu en var fyrirmunað að
skora.
Ekki bjart framundan
Keflvíkingar eru því komnir
áfram en haldi liðið áfram að leika
eins og það gerði í þessum leik er
ekki bjart framundan. Andleysið var
einkennandi og hugmyndaauðgin
lítil.
Framarar sýndu á köflum í síðari
hálfleik ágætan leik en í það heila
var ekki hægt að merkja framför á
leik liðsins frá síðustu leikjum og
Ólafs Helga Kristjánssonar bíður
vægast sagt erfitt verkefni.
Ólafur ekki með liðið
lörundur Áki Sveinsson, aðstoð-
arþjálfari Framara, sem stjórnaði
liðinu í fjarveru Ólafs Helga Krist-
jánssonar, sem er í Danmörku að
taka þjálfarapróf, var ósáttur en sá
þó ljóstýru í myrkrinu: „Við fórum
varfærnislega af stað og mér fannst
þetta vera örlítið jákvæðara hjá okk-
ur en það hefur verið í undanförn-
um leikjum.
Liðið var öruggara á boltanum og
nokkuð þétt og það er auðvitað já-
kvætt. Síðan fáum við á okkur þetta
mark úr föstu leikatriði sem er auð-
vitað bara óafsakanlegt því við erum
búnir að fara mikið yfir þau mál. Við
náðum okkur ekki á strik í fyrri hálf-
leik eftir þetta mark.
Lágum á þeim
Mér fannst leikur okkar í seinni
hálfleik mikið betri og við lágum á
þeim í lokin og fengum nokkur
ákjósanleg færi til að jafna en því
miður gekk það ekki eftir.
Við þurfum bara að halda áfram
að vinna okkar vinnu - aðaláherslan
er lögð á að laga hugarfarið og takist
það getum við gert góða hluti. Við
mætum Keflvíkingum strax í næstu
umferð og það verður erfitt en við
ý\ '! •; ■; A*$1*f;>.••<*■ Vh ■
„Við þurfum bara að
halda áfram að vinna
okkar vinnu - aðalá-
herslan er lögð á að
laga hugarfarið og
takistþað getum við
gert góða hluti."
munum mæta stálslegnir í þann
leik. Það er nóg af leikjum eftir og við
erum ekki búnir að missa trúna,"
sagði lörundur Áki Sveinsson.
sms@dv.is
SÍÐUSTU 8 LEIKIR FRAIVI
Framarar hafa ekki unnið í síðsutu
átta leikjum sínum gegn liðum í
Landsbankadeild karla. eða síðan
að þeir unnu 3-0 sigur á Víkingi í
fyrstu umferð mótsins.
Síðustu átta leikir Fram:
20. maf IBV (úti) 1-1
25. maí |A (heima) 0-2
1. júní Grindavík (úti) 2-3
7. júní Fylkir (heima) 1-1
16. júni KA (heima) 0-1
21.júníKR (úti) 0-3
28.júní FH (helma) 1-2
5. júlí Keflavík (heima í bikar) 0-1
ÁTTA LIÐA ÚRSLITIN
Það var dregið í átta liða úrslitin í
hádeginu f gaer og þar maetast:
8 liða úrslit VISA-bikars karla í
knattspyrnu sumarið 2004.:
4. ágúst
HK-Valur
KR-FH
5. ágúst
Fylkir—Keflavfk
KA-lBV
Undanúrslitaleikirnir verða 25.
og 26. september og úrslita-
leikurinn fer fram 2. október.
Allt klárt fyrir átta liða úrslitin Halldór Þorsteinsson, starfsmaður mótanefndarKSÍ, hengir
upp á töflu nafn síðasta liðsins sem kom upp úrpottinum þegar dregið varl 8 liða úrslitin í gær.
Dregið í átta liða úrslit í VISA-bikar karla í knattspyrnu.
Stórleikur í vesturbænum
1. deildarlið í undanúrslit
Það var dregið í 8 liða úrslit
VISA-bikarkeppni karla í há-
deginu í gær. Stórleikur 8 liða
úrslitanna er á milli KR og FH.
Það verður örugglega eitt 1.
deildarlið í hattinum þegar dregið
verður í undanúrslit VISA-
bikarkeppninnar því HK og Valur
drógust saman og verður það án efa
athyglisverð viðureign. Bæði lið hafa
gert góða hluti í sumar og
Gunnleifur Gunnleifsson, fýrirliði
HK, tók alveg undir það. „Það var
gott að fá heimaleik og fýrst við
gátum unnið Skagamenn getum við
unnið Valsara þó þeir séu vissulega
sterkir. Við höfum fulla trú á getu
okkar og þá spilhr ekki fyrir að
andinn í þessu félagi er einfaldlega
frábær og það eru forréttindi að
tilheyra því,“ sagði markvörðurinn
Gunnleifur Gunnleifsson
Stórleikur 8 liða úrslitanna er þó
á milli KR og FH en þessi lið háðu
eftirminnilegan undanúrslitaleik í
fyrra þar sem FH-ingar unnu upp
tveggja marka forskot og unnu að
lokúm 3-2.
Heimir Guðjónsson, fyrirliði FH,
var sæmilega sáttur. „Það hefði verið
gott að fá heimaleik og þetta verður
mjög erfiður leikur. KR-ingarnir hafa
verið að styrkjast eftir slæma byrjun
og það er alltaf erfitt en gaman að
spila í Frostaskjólinu. Við steftium
þó óhikað á sigur enda fengum við
smjörþefinn af þessu í bikar-
úrslitaleiknum í fyrra gegn Skaga-
mönnum og viljum eira nú,“ sagði
Heimir Guðjónsson
í hinum leikjunum tekur Fylkir
síðan á móti Keflavík og KA á móti
ÍBV. Allir leikirnir, nema leikur KR
og FH, fara fram 5. ágúst og hefjast
klukkan 18.30. Ekki er endanlega
búið að ákveða hvenær leikur KR og
FH fer fram þar sem bæði liðin gætu
verið á fullu í Evrópukeppninni á
þeim tíma. sms@dv.is