Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Side 31
DV Síðast en ekki síst MIÐVIKUDAGUR 7. JÚLÍ2004 31 Hvað ef ríkið væri einkarekið? Ég er fyrir löngu hættur að láta lélega frammistöðu hins opinbera í rekstri á hinu og þessu koma mér á óvart. Deilur á vettvangi stjórnmál- anna eru fyrir löngu hættar að truila mig að einhverju ráði. Biðröð á neyð- armóttökunni, plássleysi í frarn- haldsskólum, útfærslur á bindandi skoðanakönnunum um tæknilegar viðbætur við samkeppnis- og út- varpslög, lofthæð sorphauga á Suðurlandi og margt fleira af þessu tagi eru ekki undantekningar frá þeirri reglu að ríkisreksturinn sé allur í sóma. Þessi fyrirbæri og mörg fleiri eru undirstrikun á hinum mikla van- mætti yfirvalda til að mæta kröfum skjólstæðinga sinna. Þannig bara er það. En býð ég upp á lausnir? Kannski og kannski ekki, en ég get reynt. Hinn óhagstæði samanburður Samanburður á ríkisrekstri og einkarekstri er ríkinu mjög í óhag. Þetta vita jafnvel hörðustu vinstri- menn sem sést á því að þeir eru upp- teknari af því að uppnefna einkavæð- ingu frekar en að hallmæla einka- rekstri sem slíkum. Orðið einkavina- væðing skýtur strax upp kollinum í því samhengi. Ástæður þess að sam- anburðurinn er jafhóhagstæður og raun ber vitni eru margar og auðskilj - anlegar. Fólk fer betur með eigið fé en annarra, sú von að hagnast per- sónulega á viðskiptum er til staðar hjá einkaaðilum, kröfur neytenda heyrast betur þegar viðamikið ríkis- vald og aðrir milliliðir er víösfjarri, Geir Ágústsson vill að einkaaðilar taki ttr við stjórninni afhinu W'*'" opinbera. %æ.: hvatar til að innleiða nýjustu tækni og knýja framleiðni upp eru meiri þar sem samkeppnisaðilar leynast á hverju horni og svona má lengi telja. í ljósi alls þessa er ekki að undra að þeir sem berjast fyrir ríkisrekstri gera það ekki með því að berjast gegn einkarekstri. Andstæðingar einka- reksturs, einkavæðingar, einkafram- taks og þess háttar fyrirbæra eru mun duglegri við að benda á að þótt sum- um gangi vel þá gangi öðrum illa. Gjarnan er talað um að bilið milli ríkra og fátækra sé að aukast þótt þeir fátæku séu líka að auðgast, t.d. með auknum kaupmætti. Einnig er okkur tjáð að þegar einn hagnast þá hlýtur einhver annar að tapa. Þó er það lát- ið liggja á milli hluta að nánast ein- ungis skattheimta hefur þau áhrif, því þau viðskipti fara ffarn óháð því hvort samþykki er fyrir þeim af hálfu allra hlutaðeigandi aðila eða ekki. í stuttu máh má segja að öllum sé ljóst hve illa ríkisrekstur kemur út í samanburði við einkarékstur þegar litið er á heildarmyndina. Menn skiptast hins vegar á skoðunum um hvort eigi að ráða - reynsla og rétt- læti, eða þvermóðska ríkisrekstrar- sinna sem hafa það helst að mark- miði að „hanna“ og „móta“ samfé- lagið og þar með hegðun og atferli þeirra einstaklinga sem það mynda. Dæmin eru mýmörg En hvemig er hægt að komast út úr þessum djúpu förum deilna milli þeirra sem vilja frjálst og óþvingað samfélag sjálfstæðra og samúðar- fullra einstaklinga og þeirra sem halda að allir séu eigingjöm fúlmenni sem láta sig engu varða um aðra en sjálfa sig og þarf að þvinga til hlýðni við jafnaðarmennsku og forræðis- hyggju? Er ekki ráð að halda áfram að kenna mönnum á kosti einkafram- taksins með því að breiða það út til sífellt fleiri sviða ríkisrekstrarins? Hvað segja viðskiptavinir og hluthaf- ar bankakerflsins um það? Hefur ein- hver stungið upp á því að rfláð hefji bankarekstur aftur? Nei. Hvað með símnotendur í landinu? Póstur og sími var eflaust ágætt fyrirtæki en ég hef ekki heyrt marga boða endur- reisn þess. Fáir berjast fyrir því að rflc- ið kaupi aftur sementsverksmiðjuna á Akranesi og Hvalfjarðargöngin mala gull án þess að nokkur hafi yfir því að kvarta. Hitt er verra hvað nemendur grunn- og framhaldsskólakerfisins á Islandi hafa það skítt. Sjúklingar em einnig í vondum málum á þessu landi. Rfldsvaldið hefur af einhveij- um ástæðum ákveðið að ríghalda í margar af mikilvægustu stofnunum samfélagsins með tilheyrandi óhag- ræði, deilum, niðurskurði á þjón- ustu, takmörkunum á rýmum og kjaradeilum og verkföllum meðal op- inberra starfsmanna. Ég játa mjög einlægt skilningsleysi á þessum þankagangi. Ég skal alveg ræða um fjármögn- un á hinu og þessu með notkun skattkerfisins ef einhveijar sálir róast „Með því að leyfa einkaaðilum að keppast um að gera sem best við sem flesta fyrir sem minnst fé skapast ævinlega mikið svigrúm til að aðstoða þá sem minnst mega sín." við það. Um reksturinn á ég hins veg- ar erfitt með að ræða. Á meðan ríkið heldur áfr am að standa í rekstri á fyr- irtækjum og stofnunum, öðrum en þeim er snúa að dómskerfi landsins og löggæslu, þá virðist vera hægt að ganga að því vísu að biðraðir lengist, þjónusta skerðist, rýmum fækki og verkföllum fækki ekki. Á meðan starfsmenn matvöruverslana mæta til vinnu dag eftir dag og þiggja lág- markslaun fyrir erfið störf þá sitja mun betur launaðir starfsmenn heil- brigðiskerfisins allir sem einn úti á götu og mótmæla lélegum kjörum - allir geta keypt í matinn en færri fá lækningu meina sinna! Á meðan þjónustuver símfyrirtækjanna taka á móti kvörtunum viðskiptavina allan sólarhringinn koma hjartveikir að nánast luktum dyrum á neyðarmót- tökunni um helgar. Á meðan margir námsfúsir nemendur komast ekki í framhaldsskóla vegna fjárskorts í skólakerfinu geta aðrir í leit að há- skólanámi valið á milli einkarekinna skóla sem keppast um að mennta eft- ir þörfum markaðarins gegn vægu gjaldi. Þarf virkilega að nefiia öll þessi dæmi? Svo virðist vera. Hvað veldur? Að mínu mati skilur þvermóðska á milli þess sem er og þess sem með réttu ætti að vera. Hvað er til ráða? Einkarekstur hefur verið nefiidur aftur og aftur á mörgum sviðum rflás- rekstrarins. f vetur lögðu meira að segja svokallaðir jafnaðarmenn til að einkarekstur yrði í auknum mæli skoðaður á sviði heilbrigðismála. Dropinn holar steininn hægt en eftir því sem reynslan hleðst upp verður sífellt fleirum ljóst að þegar rfláð sér um reksturinn þá fara miklir fjánnun- ir til spillis og mikil óánægja verður reglan fremur en undantekningin. Er erfitt að ímynda sér að einkaaðilar sjái um rekstur á flestum ef ekki öllum sviðum hins opinbera í dag? Hvað ef rfláð væri einkarekið? Yrði það ekki öllum til gagns? Gæti kannski einhver grætt á því að lækna og mennta hratt og vel og við mikla ánægju og þar við situr? Oft finnst manni sem það séu einu rökin sem heyrast gegn einka- rekstri. Þau rök em slöpp. Ég vona af mikilli einlægni að þeir sem hafa tröllatrú á stjómmála- mönnum og embættismönnum hins opinbera byrji með auknum hraða að sjá ljósið. Með því að leyfa einkaaðil- um að keppast um að gera sem best við sem flesta fyrir sem minnst fé skapast ævinlega mikið svigrúm til að aðstoða þá sem minnst mega sín. Óánægjuraddir em fáar þegar einka- aðilar standa og falla með velvilja viðskiptavina sinna. Hið opinbera býr ekki við sama aðhald. Er lexían ekki að fullu lærð? Er okkur nokkuð að vanbúnaði að bjóða út rekstur á flestum sviðum hins opinbera í dag til einkaaðila? Á laugardaginn klukkan níu hefst nýr þáttur með Hemma Gunn á Bylgjunni Hemmi aftur í útvarpið „Ég tók þá ákvörðun eftir veik- indin í fyrra að nú þyrfti ég að fara að hugsa málið og ákveða hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór,“ seg- ir Hermann Gunnarsson og hlær en á laugardaginn snýr hann aftur á öldur ljósvakans þegar nýr þátt- ur hans hefst á Bylgjunni. „Ég náði blessunarlega skjótum bata og eft- ir það gjörbreyttist gildismatið svo að ég vildi í þetta skiptið velja sjálfur hvað ég gerði og á eigin for- sendum. Fyrst vildi ég kanna hvort það væri líf fyrir utan sjónvarp og útvarp svo að ég gerðist safnstjóri á Hrafnseyri og um leið og ég sökkti mér í sögu helstu frelsis- hetju þjóðarinnar fann ég að þar er ágætt líf.“ Fjölmiðlalífið hefur þó eitthvað togað í Hemma því fyrir nokkrum mánuðum byrjaði hann að koma fram í íslandi í bítið. Þar var Hemmi með skemmtilegar og hressilegar innkom- ur þar sem hann fékk að ræða um allt milli himins og jarðar „Mér líkaði það vel að vera frjálslegur og fá að gera þetta á eigin forsend um.“ Og nú hefur honum boðist að vera með eigin þátt á Byigj- unni. „Þetta verður skemmtilegur þáttur til að vakna við og ég mun benda hlustendum á að það sé betra að brosa mót deginum í staðinn fyrir að leggjast í þunglyndi. Ég verð einnig að lýsa Suður-Ameríku- keppninni á Sýn í sumar og kannski eitthvað meira í framtíð- inni.“ Hemmi segir að þetta verði viðtalsþáttur með tónlistarlegu ívafi og að viðtölin verði af öllum toga. „Eg mun fá alla til mín, meira að segja pólitíkusa en ég myndi ekki nenna að tala við þá um þessa vitleysu sem nú er í gangi. Ég hef rætt við marga af þessum mönn- um áður og mér hefur fundist það gaman að ræða við þá á mannlegum nót- En alla vega, þátturinn verður á léttum nótum og þetta verður svona próf- raun fyrir mig sem ég vonast til að standast.“ Duglegum krökkum býðst nú að selja DV í lausasölu og þeir sem selja blaðið fá 70 kr. af hverju seldu blaði virka daga en 90 kr. um helgar. Ef þú selur 10 blöð á hverjum degi frá mánudegi til laugardags þá vinnur þú þér inn 4.400 kr. á viku eða 17.600 á mánuði. Þú sækir blaðið til okkar í Skaftahlíð 24 að morgni og skilar síðan af þér óseldum blöðum og sölunni þegar þú ert búin. Við greiðum þér launin strax. Blaðið er selt með því að ganga í fyrirtæki og heimili eða við fjölfarna staði. Blaðberar DV og Fréttablaðsins geta líka fengið blöðin send heim og gert upp vikulega. Náðu þér vasapening í sumar með því að selja skemmtilegt

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.