Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.07.2004, Blaðsíða 32
t T1 f *u t Í ÍÍJ> J í 0 Í! Við tökum Jl fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrír hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar I nafnleyndar er gætt. r-1 r-* r . r-1 r \ c \ í \ ■— zjzjU 3> UUU SKAFTAHLÍÐ 24, 105REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMI550 5000 V. * • Davíð Oddsson forsætisráðherra vakti heimsathygli eftir fundinn með George Bush þegar fréttamenn spurðu leiðtogana spjörun- um úr. Meðferð Davíðs á enskunni þótti undar- leg og sumt sem hann sagði samhengislaust. „That was never - the meeting - was to have an agreement, “ sagði Davíð og fáir skildu. Með- al sjálfstæðis- manna heyrðist að hér eftir væri útilokað að for- inginn færi til starfa erlendis þegar tími hans rennur út. Held- ur verði hann að fá vinnu heima á íslandi. Enska Davíðs þykir ekki mikið betri en íslenska Dorrit Moussaieff... Var hann ekki að kvænast lambakjöti? Fengu 1900 brúðkaupsgjafir Lofað lambakjöti af nýslátruðu 5. ágúst Nú stendur yfir í Kristjánsborgar- höll í Kaupmannahöfn sýning á brúðargjöfum sem Friðriki krón- prins og Mary Donaldson bárust þegar þau gengu í heilagt hjóna- band í vor. Alls bárust ríkisarfanum og konu hans 1900 brúðargjafir og eru þær allar til sýnis í húsakynnum danska þjóðþingsins. Hefur verið biðröð fyrir utan Kristjánsborgarhöll dag hvern frá því sýningin opnaði um miðjan síðasta mánuð en að- gangseyrir er 20 danskar krónur. „Þetta er blanda af Þúsund og einni nótt og Kolaportinu," sagði ís- lenskur ferðalangur sem lagði leið sína á sýninguna og skemmti sér vel. Mesta athygli hans vakti þó vegg- spjald á besta stað þar sem brúð- hjónunum var lofað íslensku lamba- kjöti af nýslátruðu 5. ágúst næst- komandi. Eru gestir sýningarinnar á einu máii um að glæsilegra gjafabréf hafi þeir ekki áður augum litið. Brúðkaupsgjöfþessierliðuríátaki í sölu íslensks lambakjöts erlendis og vel til fundið í sjáifu sér. Sérstaklega með hliðsjón af því að meðal brúð- kaupsgjafanna, sem til sýnis eru í Kristjánsborgarhöll, eru ekki færri en 17 grill af öllum stærðum og gerðum. Þar á meðal eitt á stærð við eldhús með vaski og frárennslisrör- um. Þar myndi íslenska lambið sóma sér vel ef brúðhjónunum dytti í hug að grilla. Dönsku brúðhjónin Friðrik krónprins og Mary Donaldson fengu margar góðar gjafir semnú eru til sýnis í Kristjánsborgarhöll. Alls er sýningin á brúðar- gjöfunum á þremur hæðum Kristjánsborgarhöll og spann- ar hún allt frá gjöfum þjóð- höfðingja til gjafa frá almenn- ingi sem oftar en ekki eru heimagerðar og unnar af alúð og ást á danska konungsveld- inu. Á sýningunni má sjá gler- skál eftir Jónas Braga Jónas- son sem er gjöf frá íslensku forsetahjónunum. Þá eru þama kampavínsglös frá Frakklandsforseta og svo mætti lengi telja. Blátt bann liggur við að taka ljósmyndir á brúð- kaupsgjafasýningunni í Kristjánsborgarhöll því gjaf- irnar eru vissulega einkamál brúðhjónanna þó svo þau hafi samkvæmt danskri hefð kosið að deila gersemunum j með þjóð sinni. Bjórinn kominn í Grafarholtið „Við opnuðum á föstudaginn," segir Brynhildur Kristjánsdóttir veit- ingakona sem ásamt eiginmanni sínum hefur opnað fyrstu krána í nýja hverfinu í Grafarholti. Bryn- hildur og Stefán, eiginmaður henn- ar, eru nýflutt til höfuðborgarinnar og hafa komið sér fýrir í Breiðholt- inu eftir að hafa rekið veitingastað- inn Vitann í Sandgerði í 22 ár: „Þetta er í raun þrír staðir hjá okkur og byggir allt á einu miðlægu eldhúsi," segir BrynhUdur. „Hér er Holtkráin sem tekur hundrað manns í sæti, pizzustaður og svo kaffihús og bakarí. Ég held að þetta miðlæga eldhús sé einsdæmi hér á landi," segir hún. Brynhildur og Stefán vonast eftir góðum viðtökum íbúanna í Grafar- holti sem ijölgar dag frá degi. Það var Snorri Hjaltason, bygginga- meistari og athafnamaður í Grafar- vogi, sem byggði veitingastaðina og á þá en Brynhildur og Stefán sjá um reksturinn. Alkar í útvarpi Alkóhólistar hafa hasl- að sér völl í útvarpsrekstri og senda nú út á FM 88,5. útsendingarbúnaðurinn er ekki flókinn; sent er út frá skúr á Rjúpnahæð en allt efnið er á spólum og því þarf ekki þuli. „Við sendum út ís- lensku AA-bókina en hún er til á hljóðsnældum og svo eru erlendir ræðumenn sem láta í sér heyra," segir einn af aðstandendum alka-útvarpsins sem vill ekki láta nafns síns getið enda nafnleynd aðall AA-samtak- anna. „Hér er enginn sleginn til riddara fyrir að gera góða Jiluti," segir hann. Aðstandendur útvarpsins hafa fengið gríðarleg viðbrögð og vitað er um fjölmarga sem sofna út frá út- varpinu og eflast fyrir bragðið í bar- áttunni við bakkus. Er því jafnvel haldið fram að útvarpið komi í stað AA-funda að hluta. Loft er þó lævi bland- ið: „Við höfum fengið skilaboð frá útvarpsrétt- arnefnd um að bannað sé að senda út enskt tal án þess að þýða það og því getum við átt von á því að stöðinni verði lokað. Það er bara ógjörningur fyrir okkur að þýða þetta og flestir sjá svo sem að þetta kemur ekki að sök. Við vonum hið besta," segir nafnlausi ----------1 útvarpsstjórinn. Alki á bekk getur fundið björgunar- hring á öldum Ijós- vakans;FM 88,5. Flogið yfgr helmskautsbaug rj U jnj'iiij' JiijjJiij'jJiaiiij' n £jj'i3JjJl)JjjJj Einstakt tækifæri til að upplifa bjartar sum- arnætur og miðnætursóiina á Grænlandi. Flogið er frá Keflavík kl. 22:50 og lent í Syðri Straums- firði/Kangerlussuaq sem liggur fyrir norðann heim- skautsbaug kl. 22:50 að staðartíma. í Kangerlussuaq verður farið í 2 klst skoðunarferð og sauðnautasafari með staðkunnugum leiðsögumanni áður en flogið er til baka og lent í Keflavík kl. 05:10 að morgni næsta dags. Gríptu þetta einstaka tækifærí til að upplifa bjartar heimskautsnætur sem láta engan ósnortinn og skilja eftir sig frábærar minn- ingar. Ekki láta þetta framhjá þér fara ! Verð aðeins kr. 19.900 á mann. Innifalið: Leiguflug með lcelandair (Boeing 757) frá KEF til Kangerlussuaq og til baka. Öll flugvallagjöld og skattar. Skoðunarferð í Syðri Straumsfirði/Kangerlussuaq (ca. 2 tímar). Stað- kunnugur leiðsögumaður frá Kangerlussuaq. Akstur til og frá Reykjavík brottför kl. 20:50 alla fimmtudaga frá 1. júlí til 12. ágúst Einnig er hægt að fá vikudvöl. Allar nánari upplýsingar og bókanir hjá lceland Excursions Allrahanda s. 540 1313 eða á www.allrahanda.is o fE / œí Sitiá excursions

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.