Dagblaðið Vísir - DV - 05.08.2004, Blaðsíða 3
0V Fyrst og fremst
FIMMTUDACUR 5. ÁGÚST2004 3
Langaði ekki að verða mjólkurlræðingur
„Ég man vel eftir þessu. Við vorum fjórir
krakkar úr Kópavogi í þessum þætti og um-
fjöllunarefnið var mjólkurframleiðsla með
sérstakri
áherslu á starf
mjólkurfræð-
ingsins," segir Eiríkur Hjálmarsson, aðstoðarmaður
borgarstjóra, um sjónvarpsþáttinn Gagn og gaman sem
sýndur var í Sjónvarpinu árið 1978.
Hugmyndin að baki Gagn og gaman var að kynna hinar
Gamla myndin
ýmsu starfsgreinar fyrir ungu fólki og með að-
stoð ungs fólks. Eftir því sem DV kemst næst varð
þátturinn þó ekki ýkja langlífur.
Eiríkur minnist þess að hann og krakkarnir hafi
mætt með spurningar í settið. „Fyrst var sýnd mynd
þar sem starf mjölkurfræðings var sýnt frá öllum hlið-
um og síðan kom að okkur að spyrja mjólkurfræðing út í
starfið. Ekki man ég að hverju ég spurði en ég man að mér
fannst starf mjólkurfræðingsins ekki ýkja spennandi," segir
Eiríkur Hjálmarsson.
Spurning dagsins
Var óviðeigandi
að Dorrit klæddist skautbúningi ?
„Fjarri lagi, og það er ekkert annað en rasismi
að vera að kasta hnútum að henni fyrir
það. Það er fullkomlega við hæfi að hún
sem eiginkona forsetans beri þennan
búning og hún var glæsileg i honum.
Það er ekkert sem segir að hver sem er
megi ekki skrýðast þjóðbúningi við
ákveðin tilefni enda veit ég ekki annað
en við íslendingar klæðumst þjóðbún-
ingum annarra þjóða efsvo ber undir. "
Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður
„Mér þótti það alls ekki óviðeigandi
og búningurinn var einstaklega fal-
legur. Mér fannst
vel við hæfi að
klæðast þjóðbún-
ingi við þetta til-
efni og það eru
ekki annað en
fordómar ef ein-
hverjum finnst
það óviðeigandi. Dorrit er eiginkona
forsetans og hefur lagt sig sérstak-
lega fram um að aðlaga sig að
Islenskum aðstæðum. Mér fannst
hún glæsileg í búningnum sem var
mjög fallegur."
Salome Þorkelsdóttir
fyrrverandi forseti Alþingis
„Nei, mér finnst
það alls ekki
óviðeigandi, hún
ernú einu sinni
forsetafrú. Hún
var mjög glæsi-
leg í búningnum
og tóksig vel út.“
Atli Hafsteinsson
verslunarmaður
„I Ijósi þess að allt varð vitlaust
vegna þess að svört kona klæddist
þjóðbúningi utan á Grape fyrr í sum-
arþá finnst
mér Dorrit ekki
frekar hafa rétt
á því að klæð-
ast honum.
Hins vegar
finnstmérað
allir sem vilji geti klæðst búningnum
við ákveðin tilefni og ekki skipta
máli hvort konur eru útlendingar,
svartar eða hvltar. Eftilefnið hæfir
skiptir það ekki máli. “
Jóna Dögg Sveinbjörnsdóttir
verslunarmaður
„Alls ekki, mér fannst það I fyllsta
máta viðeigandi að hún klæddist
skautbúningi við þessa athöfn.
Dorrit er glæsilegur
fulltrú þjóðarinnar
og varglæsileg I
búningnum. Það
hefur ekkert með
það að gera að hún
skuli ekki vera
íslensk og ég skil ekki þá sem eru að
fetta fingur út I klæðnað hennar. “
Kristín Stefánsdóttir
förðunarmeistari No Name
Nokkur kurr var í alþingsmönnum vegna þess að Dorrit
Moussaieff skrýddist skautbúningi við innsetningu forseta (slands
þann 1. ágúst síðastliðinn. Gagnrýnt var að hún hefur ekki
íslenskan ríkisborgararétt.
Tólftónamaðurinn
hræddur við töluna 13
Austurríska tónskáldið Arnold Schönberg
<1874-1951) var brautryðjandi I nýrri tón-
sköpun og„fann upp“ svokallað tólftóna-
kerfi. Það þótti afar nýstárlegt og framúr-
stefnuiegt en mjög krefj-
andi fyrir jafnt fiytjendur
sem hlustendurog þeg-
arSchönberg kynnti
einu sinni nýtt fiðluverk
var honum sagt að til að
geta spilað þyrfti fiðlu-
leikarinn sex fingur.
Schönberg varþá orðinn
vanur úrtölum vegna
verka sinna og svaraði
einungis:„Ég get beðið. “
Vinsældir létu mjög á
sérstanda og tónlist
Schönbergs varsvo fram-
andleg að iðulega kom til
uppþota á tónieikum.Á einum tónleikunum
kom meira að segja til harðra átaka og
Tónlistarsagan
slagsmála. Þau enduðu fyrir dómstólum og
sá sem harðast hafði gengið fram varði sig
með því að segja að tónlist Schönbergs hefði
verið svo hræðileg að taugakerfi hans hefði
gefið sig og hann hefði því ekki verið með
sjálfum sérþegar hann hófslagsmálin.
Það kom gesti á heimili Schönbergs hins
vegar einu sinni á óvart þegar hann fór i
gönguferð um nágrennið með tónskáldinu
hvað vegfarendur og Ibúar íhverfinu heils-
uðu honum afmikilli virðingu og hlýju.„Ég
vissi ekki að tónlistin værisvona vinsæi," sagði
gesturinn.„Það elska þig greinilega allir.“
„Æ,já,“sagði þá Schönberg.„Það er bara
afþvi sonur minn er bakvörður I skólaliðinu í
fótbolta.“
Schönberg þjáðist afþví sem á fræðimáli
kallast triskaideka-
phobia og þýðir sjúkleg
hræðsla við töluna 13.
Hann var til dæmis
sannfærðurumað
hann myndi deyja hinn
13. dag einhvers mán-
aðar. 13.júlí 1951 var
hann á nálum og sat
ásamt konu sinni i stof-
unni þangað til á mið-
nætti þegar stofuklukk-
an sló. Allshugar feginn
gekk hann þá til sængur
en kona hans fór i eld-
húsið að blanda honum kókó. Þegar hún
kom upp varSchönberg dáinn, hafði fengið
hjartaslag í rúminu. Og klukkan í svefnher-
berginu sýndi að enn lifðu fáeinar sekúndur
af 13.júlí. Stofuklukkan reyndist hafa verið of
fljót.
Rétt er þó að geta þess að ýmsir halda þvi
fram að þessi siðasta saga sé ekki sönn.
Lífið 5purningar ykkar núna, og
kannski, án þess að þið
vitið, þá munuð þið einn
fjarlægan dag lifa svör-
in iíka. f J|p
-Rainer Maria Rilke 1 * "''iffjrf
EirfkurTómasson, prófessor f lögum við Háskóla íslands með
meiru, og Þórhildur Lfndal, umboðsmaður barna, eru
hjón. Þau hjónin eru gjarnan f fréttum
vegna starfa sinna. Eins bar talsvert
á Eiríki þegar hann taldi dóms-
málaráðherra hafa gengið
framhjá sér með órökstuddum
hætti við skipan f embætti
hæstaréttardómara.
LAUGARDALSHÖLL11. ÁGÚST
MIDASALA í SKÍFUNNI, BT AKUREYRI, BT EGILSSTÖÐUM & á WWW.SKIFAN.IS
ixRottweiler GenoSydal suar's&f.í DJRampagefeat.O.N.E. Huxui
FOOTWEAR __
RtpKí^l
Iceland Express (>>)